Dagblaðið - 31.10.1979, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 31.10.1979, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAC.UR 31. OKTÓBER 1979. 9 Engin lög um merkingar hættulegra málningarefna: Of lítill mannskapur til að fylgjast með merkingu ,,Á undanförnum árum hafa komið fjölmörg ný efni á markaðinn. Mörg hafa ýmsa eiginleika umfram þau sem áður fengusl, svo sem ýmis þéttiefni, málning og lökk. Mörg þessara efna innihalda stórhættuleg kemísk efni sem engin leið er að vara sig á nema þekkja og kunna rétta meðferð þeirra og nauðsynlegar öryggisráðstafanir. Oft er að finna aðvaranir og leiðbeiningar á erlendu máli utan á umbúðum. í vissum til- vikum er bilalakki helít i ómerktar dósir i verzlunum og skiptir þá ekki máli hvort um er að ræða hættu- minnstu eða hættumestu tegund bila- lakks. Síðan eru menn að basla við að sprauta bíla með þessu lakki við ófullkomnar aðstæður heima í bíl- skúrum. Þeir hafa jafnvel ekki hug mynd um að vanlíðan og jafnvel rúmlega í fleiri daga á eftir var lakk- inu eða réttara sagt meðferð þeirra á lakkinu að kenna, þeir verða ef til vill aldrei heilir heilsu uppfrá því. Orsök in vanþekking útar en kæruleysi,” segir meðal annars í kjallaragrein sem Leó M. Jónsson tæknifræðingur skrifar í DB föstudaginn 19. október. C.rein Leós vekur þá spurningu hvort virkilega séu ekki til neinar reglur um merkingu þessara efna og annarra hættulegra efna. Hrafn A. Friðriks- son, forstöðumaður Heilbrigðiseftir- litsins, var spurður að því. „Það eru fáar sem engar reglur gildandi. Til er reglugerð frá árinu 1977 sem kveður á um ílát, með- ferðarmerkingu og aðvörunarmerk- Terpentína og önnur leysiefni ciga að vera rækilega merkt á íslenzku eins og er í þessu tilfelli en ekki nærri alltaf. ingu á nokkrum hættulegum efnum sem síðan eru upp talin. Má þar nefna efni eins og sýrur og basa, líf- ræn leysiefni eins og t.d. bensín, hreinsiefni og leysiefni sem oft eru seld í málningarvöruverzlunum. Þessar vörur ber að selja i sérstökum, vel merktum umbúðum. Málning sem slík er ekki undir þessar reglur sett. Bílalakk sem ómerkt er með öllu á íslen/ka tungu. Hreint ekki nalgeng sjón þvi engar reglur kveða á um merkingu. DB-myndir: Hörður. Það verður að játast að Heilbrigð- iseftirlit ríkisins, sem á að fylgjast með að þessar reglur séu haldnar, er of mannfátt og hefur ekki fengið nægilega fjárveitingu til þess að fylgj- ast með því að þessar reglur, sem þó eru fyrir hendi, séu haldnar. Við höfum einnig lengi haft áhuga á að auka merkingar á málningarvörum og værum löngu búnir að því ef við hefðum mannafla og fé. Við erum nú að byrja viðræður við samband bygg- ingarmanna um aukna merkingu á efnum sem þeir telja hættuleg og ég hef ástæðu til að halda að sú sam- vinna geti orðið til góðs. Málið er sem sagt i fullum gangi,” sagði Hrafn. - DS Azcort Force 5 Seglbátar fyrir- liggjandi Uppl. í síma 77612 eftir kl. 20. FRAMBOÐ f REYKJANESKJÖRDÆMI Framboðslistum til alþingiskosninga í Reykja- neskjördæmi ber að skila til formanns yfirkjör- stjórnar, Guðjóns Steingrímssonar hæstaréttar- lögmanns, Ölduslóð 44, Hafrarfirði fyrir kl. 24 miðvikudaginn 7. nóvember nk. — Yfirkjör- stjórn kemur saman ásamt umboðsmönnum lista í Skútunni í Hafnarfirði fimmtudaginn 8. nóvem- ber nk. kl. 17. Yfirkjörstjórn Reykjanesskjördæmis GUÐJÓN STEINGRÍMSSON ÞORMÓÐUR PÁLSSON VILHJÁLMUR ÞÓRHALLSSON PÁLL ÓLAFSSON BJÖRN INGVARSSON. SKIPHOLT119 SÍMI29800. EIKARAR SKILA AUÐU Einingarsamtök kommúnista, EIK(m-l), bjóða ekki fram til þirtgs að þessu sinni og hvetja kjósendur til að skila auðu. Segir i frétt frá samtök- unum að höfuðástæðan sé of naumur timi til undirbúnings framboðs svo vcl færi. EIKarar telja „engan valkost vera l'yrir verkafólk og vinnandi alþýðu i komandi kosningum meðal framboðs- aðila.” Jafnframt segja samtökin að „aðal- atriðið sé að mótmæla framferði þing- flokkanna fjögurra og taka höndum saman um að verja lýðréttindi og lífs- kjör gegn harðnandi árásum peninga- valdsins mcð aðstoð þessara flokka.” Kjörorð EIK(m-I) í kosningaslagnum „Hugðist styðja Jón Ármann” — segirSigurður Gizurarson ,,Ég vil, vegna frétta um að ég hafi ætlað að kjósa i prófkjöri Alþýðu- flokksins, taka fram eftirfarandi,” sagði Sigurður Gizurarson sýslumaður i viðtali við DB í gær. „Jón Ármann Héðinsson, sem var frambjóðandi í l. sætið á lista Alþýðu- flokks í Norðurlandskiördæmi eystra er ganiall vinur minn. Hann leitaði eftir stuðningi mínum og hugðist ég verða við þeirri bón,” sagði Sigurður. Sigurður Gizurarson er flokks- bundinn i Framsóknarflokknum og fékk hann af þeirri ástæðu ekki að greiða atkvæði í prófkjöri Alþýðu- flokksins. Reglurnar i prófkjörum flokksins voru þær að menn mættu taka þátt væru þeir ekki flokksbundnir i öðrum llokkum. - HH Skipti á kerru og báti Honum hel'ur líklega þótt það enn kurteisi að skilja eitthvað eftir manninum, sem stal kerru aftan úr kswagen bíl aðfaranótt mánudags. þegar eigandinh kom út sá hann að að kerrunnar hafði honum áskotn- bátur. Báturinn er súðbyrtur gafl- jr, hvitur með grænum botni. inn stóð við húsið Njálsgötu 40, er itin fóru fram. _|ys. eru: „Kjósum engan kaupránsflokk- anna fjögurra, berjumst fjöldabaráttu fyrir alþýðuhag, mótmælum þing- flokkunum — skilum auðu, stofnum nýjan verkalýðsflokk.” - ARH 10.000 tækiþegar Tækimeðöl/u eru vinsæ/ust — enda beztu kaupin Verð: 498.980.- Greiðsluskilmálar: Ca. 250 út og rest á 6 mán. Staðgreiðsluverð: 3% afsláttur.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.