Dagblaðið - 31.10.1979, Blaðsíða 11

Dagblaðið - 31.10.1979, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. MIDVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1979._ Einhæfir kennsluhættir —opið bréf til f ramhaldsskóla—fyrra bréf í bréfi þessu ætla ég að gera örlitla grein fyrir kennsluháttum á framhaldsskólastiginu og ýmsum leiðum til úrbóta á þessum máía- flokki. Mörgum stæði eflaust nær að semja þetta bréf en mér. Hér verður þó einhver að ríða á vaðið því að það er einlæg skoðun mín að breytinga sé þörf og þær þoli ekki bið. Ég hef aldrei skilið til fulls hvers vegna svo er háttað, að því ofar sem komið er í menntastigann því meiri er tilhneigingin til einhæfra kennsluhátta. Þetta gildir bæði um tækjanotkun og kennslufyrir- komulag. Vafalaust á kennara- menntunin sinn þátt í þessu. Á framhaldsskólastiginu er mikið um „sérfræðinga” við kennslu. Stund-\ um hættir þeim til að einangrast í fagi sínu hverjir gagnvart öðrum en einnig gagnvart nemendum sínum. Þannig eiga kennarar oft erfitt með að átta sig á þekkingarstigi nemenda sinna og koma til móts við þá. Einnig hættir „sérfræðingi” stundum til að einblína á þekkinguna sjálfa fremur en framsetningu hennar. Við skulum þó vona að á þessu verði einhver breyting til batnaðar með hinum nýju lögum um uppeldisfræðimenntun framhaldsskólakennara, en þau lög ná ekki til háskólakennara, því miður vil ég segja. Til viðbótar þéssu má nefna þá skoðun, sem virðist býsna útbreidd, að þegar komið er á framhaldsskóla- stig sé ekki lengur höfuðatriði hvernig námsefni er sett fram, vegna þess að þroskastig nemandans geri hann „ónæman” fyrir mis-' munandi framsetningu náms, hann sé fuilfær um að greina aðalatriði frá aukaatriðum og hafi auk þess þær skyldur við sjálfan sig að bæta sér upp það sem hann fer á mis við í kennslunni með sjálfstæðri vinnu. Hvernig skyldi framhaldsskólinn mæta þessum furðulegu kröfum? Því svari hver fyrir sig. Kennslufyrirkomu- lag — fyrirlestur Víkjum nú að kennslufyrir- komulaginu sjálfu. Það fyrirkomulag sem langvinsælast er meðal íslenskra framhaldsskólakennara er fyrir- lesturinn. Ef til vill er skýringin meðal annars sú að þannig telja ,kennarar sig geta haldið uppi „ákveðnum kröfum”, stundum án t Kostir 1) Hægt að fara yfir mikiðefni á skömmum tíma. 2) Tiltölulega auðvelt að semja kennslu, .áætlun og fylgja henni. 3) Tiltölulega auðvelt að koma við kennslugögnum. Gallar 1) Einhæft fyrir- komulag (nemandinn finnur ekki hvöt hjá sér til almennrar umræðu umefnið). 2) Athygli nemandans fremurlítilenmikil. 3) Nemandinn „kemst upp með” slælegan undirbúning heima fyrir. ' Athugum nú nánar kosti fyrir- lestrar samkvæmt töflu 1. Fyrsti kosturinn er ótvíræður. í fyrirlestri ríkir jafnan einstefnumiðlun (kennari — nemandi) og slíkt gerir að sjálf- sögðu alla yfirferð greiðari en ella væri. Sama er að segja um annan kostinn. í fyrirlestri getur efnisyfir- ferð næstum verið eftir höfði kennar- ans og er því öll skipulagning náms- ^ „Því ofar sem komið er í menntastigann því meiri er tilhneigingin til einhæfra kennsluhátta.” þess að hafa mikið fyrir þeirri kröfugerð sjálfir. Sjálfsagt eru þeir kennarar einnig til sem sjá það sem kost við fyrirlesturinn að geta leikið ,aðalhlutverkið á leiksviðinu. Þeir kennarar eru vonandi fáir. Fyrir- lestrarnir hafa ýmsa kosti og galla. Lítum á töflu 1 til skýringar: yfirferðar fremur auðveld. Mjög er hins vegar misjafnt hvernig kennarar uppfylla þessar skyldur. Mörg dæmi eru til um það að yfirferð námsefnis verði slík, er styttast fer i próf, að nemendum reynist örðugt að fylgjast með því sem fram fer og sjá sér ekki fært að varpa fram spurningum. Að Kjallarinn RúnarVilhjálmsson sjálfsögðu eru slíkar kennslustundir gagnslitlar. Hvað varðar þriðja kostinn, þ.e.a.s. notkun kennslugagna, verður það því miður að segjast að víða er þar pottur brotinn í islenska fram- haldsskólanum. En það er ekki sist að því er varðar notkun kennslugagna sem fyrirlesturinn á rétt á sér. „Kennslugagnaleysið” er að stórum hluta sök kennara sjálfra. Mönnum hættir ótrúlega fljótt til að steinrenna i fagi sínu og lokast fyrir fjölbreytni og nýjungum. Hins vegar er fjárveitingavaldinu einnig hér um að kenna. í stuttu máli má þvi segja að þó fyrirlesturinn sé alls ekki eina fyrir- ikomulagið, sem völ er á, eru kostir hans hvergi nærri nýttir sem skyldi, ekki síst vegna skorts á notkun kennslugagna. Kennslugögn 1. Skólataflan nýtur (mikilla) for- réttinda í framhaldsskólanum. Má það heita nokkuð merkilegt því oft er að notkun hennar timatöf í saman- burði við önnur kennslugögn, bæði fyrir nemendur og kennara. Oft mætti auka á fjölbreytni og skilning námsefnis með notkun kríta (penna) í fleiri en einum lit, sérstaklega ef um skýringarmyndir er að ræða á töflu. 2. Myndvarpi er kennslugagn sem Skyndiþjónusta lækna- kandídata og önnur dreifbýlisvandamál Vegna umræðu í Dagblaðinu hinn 19. október sl. um skylduþjónustu læknakandídata á heilsugæslustöðv- um skal eftirfarandi tekið fram: 1. Hlutverk landlæknis í sambandi við ráðningu lækna út á land er samkvæmt 4. gr. reglugerðar um landlækni „að leitast við að fá lækna til að gegna störfum á þeim stöðum, sem erfitt hefur reynst að halda uppi læknisþjónustu”. 2. Heilbrigðisráðuneytið er vinnu- veitandi lækna á heilsugæslu- stöðvum og eiga læknakandí- datar því undir ráðuneytið að sækja um öll atriði er varða kjör þeirra. 3. Um 30 læknakandídatar bíða nú setningar í störf við heilsugæslu- stöðvar á tímabilinu 1/11 1979 — 1/9 1980. Allir óska þeir eftir stöðum á heilsugæslustöð þar sem starfa fleiri en einn læknir. 4. Lækna vantar til starfa á Þing- eyri, Flateyri, Ólafsfirði, Raufar- höfn og Djúpavogi nú þegar og fram á vor. Eins og stendur verður Ólafsfirði gegnt af læknum frá Akureyri, Raufarhöfn er gegnt frá Þórshöfn, Djúpavogi frá Höfn og Þingeyri og Flateyri frá ísafirði. Á ísafirði eru fjórir heilsugæslu- læknar og gegna þeir um 4.500 manna svæði. Á framangreindum stöðum hafa ekki setið fastráðnir læknar sl. 10— 12 ár, nema um styttri tíma á Ólafs- firði og Djúpavogi. Ég hefi sjálfur starfað á fjórum framangreindra staða og get fullyrt, að aðbúnaður er víðast hvar góður og jafnvel mjög góður, svo sem á Ólafsfirði, Þingeyri og Raufarhöfn. 5. Landlæknisembættið er nú í þann veginn að komast að sam- komulagi við Félag ungra lækna um tilhögun ráðninga lækna- kandídata út á land, með það fyrir augum að manna fyrr- greindastaðiívetur. Um dreifbýlisþjónustu Staðreynd er að erfitt hefur reynst að fá lækna og annað langskóla- gengið fólk, svo sem tannlækna, hjúkrunarfræðinga, kennara, verk- fræðinga og annað tæknimenntað fólk til þess að gegna þjónustu i dreif- býli. Orsök vandamálsins er marg- þætt og snertir félagslegan aðbúnað, menntunaraðstöðiu, samgöngur, fjármál og fleiri þætti þjóðlifsins. Dreifbýlið býður ekki sömu aðstöðu í þessu tilliti og þéttbýlið. Lækna- skort í dreifbýli ber að skoða aðeins sem hluta þessa vandamáls, og verður það ekki leyst með einhliða aðgerðum. Lagaákvæði um skylduþjónustu kandí- data á heilsugæslustöð Heimildarákvæði í Læknalögum frá 1942 veitir ráðherra rétt til að gera það að skilyrði fyrir almennu lækningaleyfi að umsækjendur hafi starfað á heilsugæslustöð allt að 6 mánuði að loknu námi. Hann getur stytt eða numið úr gildi þessa skyldu- þjónustu, allt eftir því sem aðstæður bjóða á hverjum tíma. Ráðherrar hafa beitt þessu ákvæði til að ráða fram úr læknaskorti í dreifbýli og sinnt þannig skyldum sinum við fólkið í landinu. Til þess að tryggja fólki í dreifbýli læknisþjónustu eru til ýmsar aðrar leiðir. Benda má á eftirfarandi: 1. Aukin hlunnindi einsetulækna, svo sem lengt orlof og leyfi til að ráða sér aðstoðarmann. 2. Bættur aðbúnaður heilsugæslu- lækna. 3. Breyting á menntun lækna í það horf, að þeir séu betur í stakk búnir til að takast á hendur störf heilsugæslulæknis en nú er. Bættur aðbúnaður Með tilkomu Laga um heilbrigðis- þjónustu, nr. 56/1973, var hafist handa um að stórbæta starfsaðstöðu lækna úti á landi. Uppbygging heilsu- gæslustöðva hefur viða verið hröð. Starfandi læknum í dreifbýli hefur á síðustu 10 árum fjölgað verulega, þó ekki eins og í þéttbýlinu. Hjúkrunar- fræðingum og aðstoðarfólki hefur einnig fjölgað. Betur má þó ef duga skal. Um 60% heilsugæslulækna í héruðum landsins eru lausráðnir. Menntun lækna Einn þáttur þessa vandamáls er, að menntun lækna hér á landi er ekki að öllu leyti í samræmi við þróun í heilbrigðismálum. í lögum Háskól- ans er þó gert ráð fyrir að skólinn mennti embættismenn fyrir þjóðina. Læknar eru nær einhliða menntaðir til þess að sinna fólki; er vistast á sjúkrahúsum. Enda eru langflestir kennarar deildarinnar eingöngu menntaðir á sjúkrastofnunum. Þó er vitað að 80—90% af heilsufars- vandamálum fólks er unnt að leysa með utanspítalaþjónustu. Kennsla í heilsugæslugreinum er að vísu hafin við Læknadeild Háskóla Íslands, en henni er hespað af á einum og hálfum mánuði i 7 ára kennsluáætlun. Kandidatar eru þvi ekki vel i stakk búnir til þess að taka að sér héraðs- þjónustu að námi loknu. Hér þarf að verða breyting á. Viðbrögð lækna við héraðsskyldu Skiljanlega eru flestir læknakandi- datar á móti héraðsskyldu, enda heftir hún frelsi þeirra. Ungir læknar og læknar í Reykja- vík eru yfirleitt mótfallnir skyldunni, en margir héraðs- og heilsugæslu- læknar í dreifbýlinu eru henni með- mæltir. Hvernig bregðast ná- grannaþjóðir við þeim vanda sem læknis- skortur í dreifbýli skap- ar? Norðmenn hafa sett lög um skylduþjónustu i héraði í allt að eitt ár. Svíar krefjast þjónustu á heilsu- gæslustöð meðan læknisefni eru við nám. Auk þess kalla þeir á lækna frá sumir nemendur fara nær alveg á mis við í framhaldsskólanum. Mynd- varpinn getur að sjálfsögðu oft komið í staðinn fyrir skólatöfluna, en hann krefst forvinnu af kennaranum. Hins vegar sparar slík forsjálni kennaranum sömu töflu- skrifin milli anna og eins milli náms- hópa með sama námsefni (fjölbrautaskólinn). Einnig má brenna ýmislegt efni á glærur úr bókum og blöðum og sýna í myndvarpa. 3. Fjölritað efni. Ef um óvenju- hraða yfirferð er að ræða í fyrirlestri af einhverjum ástæðum er oft mun lieppilegra að fjölrita efnið, sem fara á i, en að láta alla nemendurna starfa sem „hraðritara” við að glósa eilthvað, af töflu og frá kennara, sem enginn hefur tíma til að skilja til fulls. Mikið verk er oft unnið fyrir gýg með þessum hætti. Þá væri nær að skýra út fjölritað efni en eyða tímanum með því að skrifa efnið niður. 4. Skuggamyndavél/kvikmynda- vél má nota með góðum árangri til tilbreytingar í kennslunni, allt eftir efnum og ástæðum. Kannski á kcnnari meira að segja sjálfur skuggamyndir sem tengjast náms- efninu. Benda má á að sérstök stofn- un í Reykjavík, Fræðslumyndasafn ríkisins, hefur m.a. það verkefni að útvega skólum kvikmyndir til kennslu. Stórauka þyrfti fjárframlög til þeirrar stofnunar ef hún ætti að sinna hlutverki sínu sem skyldi. 5. Líkön ýmiss konar geta verið mjög gagnleg við kennslu. í líffræði mætti hafa til hliðsjónar líffæralíkan (plastlíffæri), í sálfræði heilalíkan, í efnafræði sameindalíkön (kúlulíkön) og svo mætti lengi telja. 6. Kort af ýmsum gerðum eru einnig gagnleg. Á það ekki síst við um greinar eins og landafræði, jarðfræði og sögu. Má oft með kortum sýna ýmiss konar breytingar sem verða frá einum tíma til annars (t.d. ríkjaskipan í sögu). í síðara bréfi mínu mun ég víkja að ókostum fyrirlestra og benda á leiðir til lausnar þeim vanda. Rúnar Vilhjálmsson félagsfræðinemi. J Kjallarinn ÓlafurÓlafsson Suður-Evrópu til norðlægari héraða Svíþjóðar. Bretar bjóða læknum aukin frið- indi ef þeir sinna dreifbýlishéruðum. Aðgerðir til úrbóta Ef héraðskylda verður afflumin kallar slíkt á: 1. Breyting á námi lækna. * 2. Stórbætta starfsaðstöðu í mörg- um héruðum. 3. Úrbætur á kjörum einsetulækna. Landlæknisembættið hefur ítrekað gert tillögur um úrbætur á högum og aðbúnaði einsetulækna: 1. Meiri aðstoð við lækna i starfi. 2. Aukin leyfi til námsferða og lengt orlof. 3. Aukinn þjónusturétt. Yfirleitt hafa þessar óskir strandað á handhöfum löggjafarvaldsins og skortir þó ekki dreifbýlisþingmenn i þær raðir. Fyrir tilstilli landlæknisembættis- ins eru þó í lögum heimildir til þess að tengja stöður á sjúkrahúsum við þjónustu á heilsugæslustöðvum, en þessar heimildir hafa ekki verið nýttar af sjúkrahússtjórnum. Ólafur Ólafsson landlæknir.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.