Dagblaðið - 31.10.1979, Blaðsíða 8
8
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1979.
Iðnkynning
„Það er íslenzk iðnkynning í Ámunni, Grensás-
vegi 13.”
Næstu daga verða seld á kynningarverði bæði öl-
gerðarefni og þrúgusafar, sérstaklega framleidd
fyrir íslenzkar aðstæður. Komið og kynnizt hvers
íslenzkur efnaiðnaður er megnugur. Við ábyrgj-
umst gæðin.
ÁMAN,
GRENSÁSVEG113,
SÍMI84425.
TOYOTA-SALURINN
NÝBÝLAVEGI 8 - KÓPAVOGI
Auglýsir
ÁRG. VERÐ.
Toyota Starlet 78 3.9
ToyotaMarkll 73 2.4
ToyotaCorolla 73 1.7
Toyota Corolla Station 73 1.8’
Toy ota Cressida 4-d 77 4.9
T oyota Cressida 2-D 78 5.5
Toyota Cressida Station sjálfsk. 78 6.0
TOYOTA-SALURINN
NÝBÝLAVEGI 8 - KÓPAVOGI - SÍMI 44144.
Opið alla daga frá 9—12 og 1 —6
Laugardaga frá 1 —5.
JUDO
Byrjendanámskeið. Innritun
Japanski þjálfarinn Yoshihiko lura kennir.
Innritun og upplýsingar í síma 83295 alla
virka daga frá kl. 13-22.
JÚDÓDEILD ÁRMANNS
Ármúla 32.
Rfldsendurskoðandi:
Aðeins hluti um-
beðinna gagna
kom f rá Alhingi
yf irskoðunarmanna að fá Alþingi til að af henda bókhaldið
„Við höfum fengið símareikninga
sem Alþingi hefur greitt Jóni G. Sól-
nes en ekkert nánar um það hvort um
er að ræða alla reikninga sem Alþingi
hefur greitt honum né þau gögn sem
við fórum fram á við Alþingi að ósk
yfirskoðunarmanna ríkisreikninga
sem var bókhald Alþingis fyrir árin
’76, '11 og ’78,” sagði Halldór V.
Sigurðsson rikisendurskoðandi í við-
tali við DB í gær.
Þær siðareglur gilda við endur-
skoðun reikninga að endurskoðendur
fái þau gögn sem um er beðið en ekki
einhverja skammta úr þeim.
Sagði Halldór að embættið væri
þegar búið að gefa yfirskoðunar-
mönnum skýrslu um málið og tjá
þeim að vilji þeir fara fram á frekari
rannsókn þurfi rikisendurskoðun að
fá þau gögn sem beðið var um. Áleit
hann það hlutverk yfirskoðunar-
manna í þessari stöðu að útvega þau.
Er hann var spurður hvort þeir
reikningar sem embættinu bárust frá
Alþingi hafi verið þeir sömu og
Kröflunefnd greiddi Jóni vísaði hann
aðeins til ummæla Jóns um það mál.
Jón hefur, sem kunnugt er, viður-
kennt að hafa látið tvígreiða sér
reikninga þar sem hann hafi ekki
fengið greitt fyrir afnot af einkabíl
sínuni fyrir Kröflunefnd.
- GS
Sólnes: Það var ósanngjarnt að hleypa málinu svona langt án þess að gefa mér
tækifæri til að skýra min sjónarmið.
Forseti Sameinaðs Alþingis um simareikninga Sólnes:
BRAUT EKKIAF SER
GAGNVART ALMNGI
— reikningamir til reiðu ef einhverjir vilja rannsaka þá
„Það er mitt mat og skrifstofu-
stjóra Alþingis að Jón G. Sólnes hafi
ekki brotið af sér gagnvart Alþingi.
Hann fékk sína reikninga greidda
eins og vera bar,” sagði Oddur Ólafs-
son, fyrrv. fórseti Sameinaðs Al-
þingis, i viðtali við DB í gær er blaðið
kannaði þróun símareikningamáls
Jóns G. Sólnes gagnvart Kröfluvirkj-
un og Alþingi.
Oddur tók fram að þetta væri túlk-
un sin á viðskiptum Alþingis og Jóns.
Hitt væri svo annað mál hvort ein-
hver þriðji aðili, sem rannsóknarað-
ili, sæi ástæðu til að kanna hvers
vegna Jón fékk sömu reikninga
greidda annars staðar líka.
Er hann var spurður hvort Alþingi
hafi farið að ósk yfirskoðunarmanna
ríkisreikninga þess efnis að rikis-
endurskoðanda yrðu send umbeðin
gögn sagðist hann ekki hafa séð
ástæðu til þess í Ijósi áðurnefnds en
ef rannsóknaraðili óski sérstaklega
gagnanna sé rétt að hann sæki þau,
þau séu til reiðu.
- GS
Stjómmálaflokkurinn býður ekki fram:
„KOSNINGARNAR KOMU
OKKUR í OPNA SKJÖLDU”
,,Við bjóðum ekki fram. Kosning-
arnar komu okkur í opna skjöldu og
við töldum okkur ekki í stakk búin til
að standa að framboði fyrirvaralítið,”
sagði Ólafur E. Einarsson, formaður
Stjórnmálaflokksins, við DB.
Stjórnmálaflokkurinn bauð fram í
Reykjavík og á Reykjanesi í síðustu
kosningum. Hann fékk samtals 486 at-
kvæði.
„Við ætlum síður en svo að leggja
upp laupana,” sagði Ölafur. „Nú
tökum við okkur tíma til að kynna
stefnuna og höfum opnað skrifstofu í
Reykjavík. Flokkurinn lætur ekki
koma sér á óvart aftur og stefnumálin
eiga hljómgrunn hjá fólki. Það sýna
daglegarhringingarí mig.”
Stjórnmálaflokkurinn hefur sent út
yfirlýsingu þar sem segir að hann vilji
vinna að stjórnarskrárbreytingu. Hún
sé fólgin í því að ákveðin prósentutala
fylgismanna nýrra flokka og sjónar-
miða gefi landskjörinn þingmann óháð
því hvort um kjördæmakosinn þing-
mann sé að ræða eða ekki. Með því
ntóti fengju nýir flokkar og ný sjónar-
mið flutningsmenn á þingi í réttu hlut-
falli við fylgi.
- ARH
Skfða-
vörur
f úrvali
flMI
Glœsibœ—Sími 30350