Dagblaðið - 31.10.1979, Blaðsíða 17

Dagblaðið - 31.10.1979, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1979. Gróskumesta ár Hljómplötu- út£áfunnar hf. ti/ jþessa yjónrpiötur veröa gefnar útájóla- markaðinn Þrátt fyrir allt tal um slæmt árferði í hérlendri plötuútgáfu hafa aldrei komið út fleiri plötur hjá Hljóm- plötuútgáfunni hf. en einmitt nú. Alls verða titlarnir níu á þéssu ári. Á fundi sem útgáfan hélt með blaðamönnum til að kynna þær plötur er eftir eiga að koma út kom 1 Ijós að „jólaplöturnar” verða fjórar talsins auk endurútgáfu þriggja platna. Sú fyrsta, Glámur og Skrámur í sjöunda himni, kom út i síðustu viku og hefur þegar venð fjallað um hana í Dagblaðinu. A næstu vikum koma tvær plötur til viðbótar á markaðinn: Bráðabirgða- búgí með Spilverki þjóðanna og Brimklóarplatan Sannar dægurvísur. Bráðabirgðabúgí og dægurvísur Spilverk þjóðanna gekk til liðs við Hljómplötuútgáfuna hf. á þessu ári og er Bráðabirgðabúgí fyrsta afurðin sem flokkurinn skilar af sér síðan. A plötunni er fiallað um kynslóðabilið og sagt frá Valda skafara, konu hans og syninum Einbirni. Sannar dægurvísur — fimmta Brimklóarplatan — kemur síðan í kjölfar Bráðabirgðabúgís. Brimklóer tiltölulega nýkomin á samning hjá Hljómplötuútgáfunni hf., líkt og Spil verkið. Nýja platan er sú fyrsta sem kemur út .síðan þeir samningar náðust. Að vanda heldur Brimkló sig við dreifbýlisrokkið, sem segja má að sé vörumerki hljómsveitarinnar. Meirihluti laganna á Sönnum dægur-j vísum er eftir liðsmenn Brimklóar sjálfa. Þeir sjá einnig um allan hljóð- færaleik utan það að þeir fá saxófón- leikara hljómsveitarinnar Pónik lánaðan. Magnús og Jóhann meðnýja Þá mun Hljómplötuútgáfan hf. einnig eiga þátt í útgáfu plötunnar Magnús og Jóhann með samnefndum listamönnum. Plata þessi er um margt mjög sérstæð þó ekki nema Nýi bassasöngvarinn íDarts HLEYPUR A MILLI ENSKU BORGANNA Hljómsveitin Darts er á ferðalagi um England þessa dagana. Eins og lög gera ráð fyrir ferðast tónlistarfólkið í bifreið á milli hljómleikastað- anna. — Öll nema einn. ÍCenny Andrews, nýi bassa- söngvarinn í Darts, kýs að hlaupa milli ensku bæjanna á meðan félagar hans láta fara vel um sig. Þannig hljóp Kenny til dæmis frá Norwich tíl Ips- wich og frá Somerton til Taunton. , ,Að sjálfsögðu get ég ekki gert þetta á hverjum degi,” segir Kenny Andrews. ,,Stundum verð ég að sitja í með hinum, en ég reyni að hlaupa að meðaltali átta kíló- metra á dag á meðan hljóm- leikaferðin stendur yfír. Hvers vegna ég hleyp svona mikið? Jú, ætli það sé ekki af eintómri umhyggju fyrir sjálf- um mér.” Kenny Andrews, sem er 27 ára að aldri, fékk hlaupadell- una fyrst heima í Ohio. Hann ferðast nú i fyrsta skipti um England og segist ekki geta hugsað sér betri aðferð til að kynnast landinu en að hlaupa um það. SPILVERK ÞJÓÐANNA — Nýjustu listamenn Hljómplötuútgáfunnar hf. Plata þeirra, markaðinn innan skamms. Bráöabirgðabúgi, kemur á DB-mynd Árni Páll. væri fyrir þá sök að hún var hljóðrit- uð á aðeins nítján klukkustundum. Það verður að teljast mjög óvenjulegt nú á síðari tímum, þegar algengara er að tónlistarmenn verji 190 tímum í gerð hljómplatna. Nánar verður fjallað um plötu Magnúsar og Jó- hanns í DB innan skamms. Auk þessara fjögurra hljómplatna ráðgerir Hljómplötuútgáfan að endurútgefa þrjár hljómplötur, þegar nær dregur jólum. Þetta eru plöt- umar Jólastrengir, Brunaliðsplatan Með eld í hjarta og vandaðasta plata siðasta árs, Börn og dagar. Allar verða þær gefnar út i takmörkuðu upplagi. . Það sem af er þessu ari hefur Hljómplötuútgáfan hf. sent frá sér eftirtaldar- plötur, auk Gláms og Skráms: í góðu lagi (HLH-flokkur- inn), Útkall (Brunaliðið), Einn á ferð (Bjarki Tryggvason) og tveggja laga plöturnar Helena / Ég elska þig (Hver) og Reykingaplatan svonefnda sem gefin var út í samvinnu við Sam- starfsnefnd um reykingavarnir. -ÁT- CLIFF OGKATE STYRKJA LUNDÚNASINFÓNÍUNA Sinfóníuhljómsveit Lundúna, sem brátt hyggst halda upp á 75 ára af- mæli sitt, á í talsverðum fjárhags- erfiðleikum. Svo miklum að erfið- leikum er bundið að fjármagna af- mælistilstandið. Því er það að full- trúar „óæðri” tónlistar hafa ákveðið KENNY ANDREWS — hlaupagarp- ur og bassasöngvari i hljómsveitinni Darts. Aerosmith hættir Hljómsveitin Aero- smith er nú talin hætt þó að opinbera staðfestingu hafi ekki tekizt að fá á því. Talið er að gítarleik- ari hljómsveitarinnar, Joe Perry, muni hóa saman í nýtt band. Um fyrirætlanir aðalstjörnu Aerosmith, Steven Tyler söngvara, er ekki vitað. Ný breiðskífa Aero- smith er svo til tilbúin. Hún er væntanleg á markaðinn öðru hvorum megin við áramótin og hefur ekki hlotið nafn ennþá. Úr MELODY M AKER að hlaupa undir bagga, svo að hægt verði að minnast tímamótanna á verðugan hátt. Af þessum sökum hafa Kate Bush og Cliff Richard ákveðið að slá saman í hljómleika í Royal Albert Hall i London þann 18. nóvember. Að sjálfsögðu verður Lundúnasin- fónían einnig til staðar og aðstoðar söngvarana. Sömuleiðis kemur 150 manna kór sinfóníunnar einnig fram RodStewart sendir frá sérsam- safnsplötu Rod Stewart scndir á föstu- daginn fró sér nýja breiðskifu, — samsafnsplötu með tiu beztu lögunum sínum. Helmingur þeirra hefur komizt í fyrsta sæti enska vinsældalistans. Lögin á plötu Stewarts eru Maggie May, Sailing, Da Ya Think I’m Sexy, The Killing Of Georgie, Tonight’s The Night, Hot Legs, 1 Was Only Joking, You’re In My Heart, I Don’t Wanna Talk About It og First Cut Is The Decpest. Rod Stewart og hljómsveit hans hefja æfingar á nýju efni innan skamms. Áætlað er að 'næsta plata þeirra komi út um mitt næsta sumar. Henni verður fylgt eftir með stórri hljóm- leikareisu. Fram að því er ekki búizt við því að Rod og félagar komi mikið fram opinberlega. | Úr MELODY M AKER og tekur lagið með þeim Kate Bush og Cliff Richard. ÚrMELODY MAKER /2 ASGEIR TÓMASSON rx :í

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.