Dagblaðið - 31.10.1979, Blaðsíða 14
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1979.
Ji----
íslendingar eiga
einnig snilling
—Jón Sigurdsson ásamt Marvin Jackson heilluðu áhorfendur
í gær þrátt fyrir84-104tap gegn Caen
,,I.áttu mig seftja þér það að maður
kvöldsins hér verður Marvin Jackson,"
satíði bandaríski umboðsmaðurinn Bob
Starr við undirritaðan áður cn leikur
KR og Caen hófst i gær. Þessi ummæli
stóðu eins og stafur á bók á mcðan
Jackson var inn á. Hann, ásamt Jóni
Sijjurðssyni, sýndi stórgóðan leik gegn
frönsku bikarmeisturunum Caen i
Laugardalshöllinni í gærkvöld en engu
að síður máttu KR-ingar þola 84—104
tap fyrir þessu stórgóða liði.
Frammistaða KR-inganna var mjög
góð og var þáttur þcirra Jackson og
Jóns Sigurðssonar mestur. Þcir héldu
öllu spili KR gangandi og þegar
Jackson varð að hverfa af leikvclli með
5 villur tók Jón við og skoraði þegar
honum hcntaði að því er virtist. Hann
varð einnig að yfirgefa völlinn þegar 7
minútur voru eftir og þá lókst Caen að
siga örugglega fram úr. Hetjulegri
baráttu gamla góða KR var lokið. I.eik-
mcnn vantaði allt frumkvæði undir
lokin og það var aðeins Arni
Guðmundsson sem þorði að skjóta og
gerði svo með góðum árangri. Þá kom
Garðar Jóhannsson mjög vel frá loka-
kaflanum en var svo óvænt skipt út af
þegar hann virtist vera búinn að finna
sig í leiknum.
Frakkarnir náðu
strax öruggri forystu
Frakkarnir tóku strax forystuna i
lciknum og eftir rúmlcga tvær og hálfa
minútu var staðan orðin 8—4 þeim í
hag. Það varð Ijóst strax i upphafi að
hér voru cngir aukvisar á ferðinni því
þrátl fyrir mikla hæð voru flestir leik-
manna Caen kattliprir og fljótari i
flestum tilvikum cn KR-ingarnir. Mun-
urinn jókst nokkuð ört og eftir aðeins 6
min. og 40 sek. var munurinn orðinn 15
stig — 25—10 Caen í hag. Þá sögðu
KR-ingar hingað og ckki lengra!
Frökkunum tókst ekki að bæta við for-
skot silt hvað sem þeir reyndu og þrátl
fyrir þá staðreynd að dómararnir væru
þcim ákaflega hliðhollir i fyrri hálf-
lciknum. Dæmið snerist siðan alveg við
i þeim siðari.
„Það, sem fyrst og frcmst gerir út-
slagið i þcssum leik er hin mikla hæð
leikmanna Caen," sagði
Ármenningurinn Danny Shous.
„Frakkarnir eru miklu hærri en KR-
ingarnir og það cr ekkert scm getur
komið í stað hæðarinnar i
körfubolta.” Kannski ekkt alveg en
KR-ingarnir börðust grimmilega og
munurinn minnkaði niður í 10 stig eftir
að Marvin Jackson, sem kom í fyrsta
skipti fyrir augu almennings i gær,
hafði skorað glæsilega körfu. Jackson
kom fyrir í gær sem ákaflega heil-
steyptur leikmaður en fékk á sig
nokkuð klaufalegar villur í upphafi
leiksins vegna ákafa síns í vörninni.
Sömu sögu var að segja um Jón
Sigurðsson. Þessir tveir voru báðir
komnir rneð 3 villur fljótlega í leiknum
en ckki var að sjá að það háði leik
þcirra nokkuð því þeir gáfu Frökkun-
um ekki þumlung eftir. Undirrituðum
er til cfs að Jón hafi leikið miklu betur
um.ævina en hann gerði í gær. Knatt-
meðferð hans og sendingar eru hrein-
asta gull og vissulega sannaði Jón
ennþá einu sinni að hann cr lang-
fremstur allra islenzkra körfuknatt-
leiksmanna.
Um miðjan hálfleikinn tók Caen
mikinn kipp á ný og munurinn varð 20
stig — 46—26, en þá skipti Gunnar
Gunnarsson þjálfari KR Ágústi Lindal
út af fyrir Gunnar Jóakimsson ,Cióð
skipting þetta,” sagði Boh Slarr. KR
hóf þegar að minnka mut ' nn og i hálf-
leik munaði aðeins 14 sligum a liðunum
54—40 Caen i hag.
Góður fyrri hluti s.h. hjá KR
Mcnn biðu því spcnntir cftir siðari
hálfleiknum. Myndu KR-ingarnir
springa eða tækist þeim að halda í við
frönsku risana? Þá er rétt að minnast á
dómgæzluna. Velsku dómararnir virt-
ust vera ákaflega hlutdrægir i fyrri
hálfleiknum og var dæmt á KR-ingana,
fyrir minnstu sakir. „Svei mér ef ég hef
séð eins hlutdræga dómara hér á
landi,” sagði Danny Shous. „Sjáöu til,
dómararnir eiga eftir að styðja bétur
við bakið á KR í seinni hálfleiknum.
Þetta cr alkunn taktik hjá dómurum.”
Og viti menn. Þetla gerðist nákvæm-
lega. '
Strax i upphafi siðari hálfleiksins
tóku dómararnir að dæma stíft á
Frakkana og i nokkrum tilvikum var
ákaflega erfitt að gera sér grein fyrir á
hvað var verið að dæma. Frakkarnir
settu niann til höfuðs Marvin Jackson,
en sá kappi réð ckkert við hann og var
cins og Jackson gæti gert hvað sem
sem hann vildi með knöttinn oft á
tíðum. ,,KR verður að rcyna að
halda Frökkunum fyrir utan teiginn og
fá þá til að skjóta þaðan. Það er þeirra
einasti möguleiki til að sleppa vel frá
þessum leik. Frakkarnir eru með góðar
skyttur vissulega en það er dauðadóm-
ur að hleypa þeim inn í teiginn,” sagði
Shous einnig.
Það háði KR nokkuð að Dakarsta
Webster fann sig aldrei i leiknum og
satt að segja virkuðu tilburðir hans oft
á tiðum klaufalegir. Honum tókst illa
upp í vörninni og blokkeraði fá skot
þrátt fyrir að hann væri hærri en allir
aðrir á vellinum.
Glæsileg tilþrrf Jóns
Frökkunum tókst að auka muninn i
19 stig eftir tæpar 6. min. af siðari hálf-
leiknum. Staðan var þá 69—50 og Jón
Sigurðsson var kominn með sina 4.
villu og rétt á eftir fékk Jackson sina
fjórðu villu einnig. Þeir félagar voru
greinilega ákveðnir i því að sýna
Frökkunum hvað þeir gætu og hófu að
skora grimmt, einkum var glæsilegt að
sjá hvcrt langskot Jóns Sigurðssonar á
fætur öðru rata beinustu leið ofan i
körfuna. Munurinn minnkaði jafnt og
þétt og Frakkarnir misstu tvo leikmenn
út af með skömmu millibili með 5
villur. Stemmningin i Höllinni
geysilega góð og KR ákaft hvatl til
dáða af rúmlega 2000áhorfendum.
Þegar 8 og hálf minúta voru liðnar
af seinni hálfleiknum var munurinn
orðinn aðeins 10 stig, 72—62, og KR-
ingar i miklum ham. Vörnin var mjög
þétt fyrir og hélt Frökkunum fyrir utan
og þá fór það að gerast að skot þeirra
fóru að bregðast öllum á óvart. Einn
leikmanna, Caen, Didier Dobbels, lét
þó ekkert á sig fá og skoraði hvar scm
var af vellinum. Hreint ótrúleg skytta.
„Öll lið hafa slikan mann innan sinna
raða,” sagði Bob Starr. „Þessir leik-
menn eru ekki endilega neinir
vinnsluhestar eða miklir töframenn
með knöttinn en þeir gela skotið betur
cn allir aðrir í liðinu og eru kallaðir
„Golden Arm” í liðinu”.
Sannkallaður „gullarmurl’ þessi
Dobbels, sem skoraði 32 stig i leiknum.
En vendipunkturinn kom hjá KR rétt
fyrir miðjan siðari hálfleikinn. Þá varð
Marvin Jackson að vikja af velli með 5
villur og rétt á eftir Jón Sigurðsson
einnig. Áhorfendur1 klöpp’uðu þessum
snillingunt lof i lófa og það ekki að á-
stæðulausu. Grcinilegt er að KR verður
afar sterkt i vetur með Jackson í broddi
fylkingar.
Þetta var mannfall sem KR mátti
ekki við og Frökkunum tóksf að auka
flokksmunur á honum og landa hans Marvin Jackson. DB-mynd Hörður.
Jón Sig. reynir hér körfuskot i gær úr
erfiðri aóstööu. Frammistgða hans var
einkar glæsileg í leiknum.
DB-mynd Hörður.
nntninn jafnt og þétt. Þó var aldrei um
að ræða að KR væri yfirspilað. Árni
Guðmundsson og Garðar ásamt Geir,
Ágúsl, Birgi Guðbjörnssyni og Gunn-
ari Jóakimssyni héldu merki KR á lofli
siðustu minútur leiksins og þá skoraði
Árni t.d. tvær mjög fallegar körfur
með langskotum, en hann hafði lítið
fengið að vera með i leiknum þar lil i
lokin. Þá var Garðar orðinn fjallhress
undir lokin og sýndi mikið öryggi í vita-
köstunum en var svo óvænt skipt út af
honum sjálfum grcinilega til mikillar
gremju.
Lokatölur í leiknum urðu 104—84
Frökkunum i vil en ekki er gott að
segja hvernig leikurinn hefði þróazt ef
þeirra Jóns Sigurðssonar og Jackson
hefði notið við allan tímann. Sumir
vildu halda þvi fram i gær að Caen
hefði aðeins leikið upp á tiltölulega
litinn sigur til þess að fá einhverja
áhorfendur á heimaleik sinn i næstu
viku. Vel má vera að svo hafi verið en
hitt er vísl að KR-ingar heilluðu alla
með frámmistöðu sinni í gærkvöld.
ígær
Það var viðar leikið i Evrópukeppni bikarhafa í
körfubolta í gær en bara í Reykjavik. í Luxemburg
áttust við Amicale Seyinsel frá Luxemborg og
Hapoel Ramat frá ísrael. ísraelsbúarnir sigruðu
105—91 eftir að hafa leitt 54—48 í hálfleik. Kom
frammistaða Luxemborgarliðsins mjög á óvart þar
sem ísraelar eiga á að skipa mjög sterkum
körfuknattleiksliðum
Stigin skiptust þannig hjá KR.
Marvin Jackson 30, Jón Sigurðsson 20,
Dakarsta Webster 15, Garðar Jóhanns-
son 6, Árni Guðmundsson 4, Gunnar
Jóakimsson 4, Geir Þorsleinsson 3,
BirgirGuðbjörnsson 2.
-SSv.
SBC Ostende frá Belgíu vann Doncaster frá
Englandi í sömu keppni i gær, 73—67, eftir að
staðan i hálfleik hafði verið 35—33 Belgunum i vil.
Þá vann Uppsala i Svíþjóð sigur á Lugani frá Sviss
93—67 eftir að hálfleiksstaðan hafði verið 40—25.
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1979.
undir samning litist honum vel á aðstæður
Teitur Þórðarson, landsliðsmiðherj-
inn eitilharði, hélt seint í gær álciðis til
Þýzkalands til æfinga og viðræðna við
1. deildarliðið Werder Bremen. Þessu
til staöfestingar náði DB sambandi við
eiginkonu Teits eldsnemma í morgun
og spurði hana um þetta. „Jú, jú, hann
fór til Þýzkalands i gær en hvernig í
ósköpunum vitið þið um þetta,” sagði
eiginkona hans, Ásdís Dóra Ólafs-
dóttir, er við spjölluðum við hana.
„Brottför hans var haldið eins leyndri
og hægt var og það veit varla nokkur
sála hér í Svíþjóð að hann fór til Þýzka-
lands í gær.”
Brottför Teits var haldið leyndri
vegna þess að í raun er ferð hans til
Werder Bremen brot á lögum
Allsvenskan. Þar er kveðið á um að
leikmenn megi ekki hafa samband við
erlend félög fyrr en í fyrsta lagi 1.
desember. Keppnistímabilinu i Svíþjóð
,er að vísu lokið — lauk nú um helgina
—þannig að varla verður þetta tekið
óstinnt upp enda gert með fullu sam-
þykki Oster. Mörg félög hafa á undan-
förnum vikum verið á höttunum eftir
Teiti og hafa Derby County, Luton
Town og hollenzku liðin Roda
Kerkrade og FC Den Haag, svo einhver
séu nefnd, sýnt honum mikinn áhuga.
Teitur hefur sjálfur lýst því yfir að
hann hafi mestan áhuga á að leika í V-
Þýzkalandi og allar líkur eru því á að
hann geri samning við þýzka liðið,
kunni hann vel við aðstæður hjá
félaginu. Teitur mun dveljast hjá
Werder fram á föstudag en kemur
siðan heim. Hann mun þóekki stoppa
nema örstutta stund heima þvi hann
fer með fjölskyldu sinni í fri til
Kanarieyja strax á föstudagskvöld.
DB spurði Ásdísi i lokin hvernig
henni litist á að flytja til V-Þýzkalands.
„Ég hef í sjálfu sér ekkert á móti þvi að
flytja þangað en það þarf að taka tillit
til margra hluta áður en gengið er að
samkomulagi. Við eigum dóttur sem er
að byrja skólagöngu og það er dálitið
erfitt að rifa hana úr skólanum og fara
með hana í land þar sem hún skilur
ekki tunguna. Við höfum haft það
ákaflega gott hér í Váxsjö og fari svo
að við flytjum til Þýzkalands mun ég
kveðja Sviþjóð með söknuði.”
Teitur Þórdarson hélt til
Werder Bremen í gær
—mun dveljast hjá félaginu út vikuna og væntanlega skrifa
Tap fyrir Dönunum
—vonin um 3. sætið þar með rokin út f veður og vind
íslenzka unglingalandsliðið í hand
knattleik mátti í gærkvöld þola 19—22
tap fyrír gestgjöfunum Dönum, í milli-
riðli heimsmeistarakeppni unglinga.
Eftir þetta (ap má segja að vonin um 3.
sætið i keppninni sé endanlega fyrir bí
og er þá gert ráð fyrir að Sovétmenn
hafi unnið Ungverja i leik þeirra í gær-
kvöld en ekki náðist í fararstjóra
ísienzka liðsins í morgun. Leikurinn i
gær var að sumra mati slakasti leikur-
inn sem liöið hefur sýnt i keppninni og
greinilegt er nú að þreytu er farið að
gæta hjá strákunum enda engin furða.
Leikurinn í gær var sjötti landsleikur-
inn á aðeins 8 dögum og enn einn leikur
er i kvöld. Þá leika íslendingar við
Ungverja og jafntefli gæti nægt til að
leika um 5. sæti keppninnar. Það er
árangur sem vel væri hægt að una við
og i raurf hefur liðið sýnt miklu meira
heldur en við var búizt áður en út var
haldið.
Leikurinn í gær var mjög jafn
framan af og jafnt var allar tölur upp í
4—4. Fyrst skoraði Sigurður Gunnars-
son og þá hann aftur. Guðmundur
Magnússon skoraði þriðja markið og
Sigurður Sveinsson hið fjórða. Þá kom
sá kafli i leiknum hjá íslenzka liðinu
sem gerði út um leikinn. Danirnir skor-
uðu næstu 4 mörk og breyttu stöðunni í
8—4. Með frábærum dugnaði og elju
tókst strákunum að jafna metin en
mikil orka fór í að vinna upp þennan
mun og það kom niður á liðinu í siðari
hálfleiknum.
Alfreð Gíslason skoraði 5. markið,
og þá Andrés hin tvö næstu mjög
fallega. Guðmundur Magnússon
jafnaði svo metin 8—8 en Danir leiddu
i hálfleik 9—8. Kristján Arason hóf
síðari hálfleikinn á því að jafna 9—9 og
síðan var jafnt allar tölur upp i 12—12.
Þá tókst íslandi að komast yfir i fyrsta
skipti en það reyndist örlagarikt mark.
Andrés Kristjánsson, sem hafði átt frá-
bæran leik með islenzka liðinu sveif
glæsilega inn úr horninu þegar mark-
vörður danska liðsins kom æðandi á
móti honum og rak hnéð í andlit hans.
Höggið var mikið og þrjár tennur
brotnuðu í Andrési auk þess sem báðar
varir hans sprungu. Leikurinn var
stöðvaður í einar 10 mínútur við þetta
atvik og það var tími sem nægði til þess
að draga „tempóið" úr strákunum.
Stefán Halldórsson skoraði að visu úr
vitakastinu en liðið var ekki það sama
og áður. Danir gengu á lagið og náðu
að skora þrjú næstu mörk en strákarnir
neituðu að gefast upp og tókst að
minnka muninn í 19—18. Þá komu
tvenn slæm mistök i sókninni — Danir
komust tvívegis inn í sendingu — og
skoruðu tvö mikilvæg mörk. Staðan
breyttist á skömmum ttma í 21 —18 og
of lítill timi var eftir til að jafna metin.
Hvort lið skoraði eitt mark undir lokin
og lokatölur urðu því 22—19.
í sjálfu sér ekki svo slæm úrslit en
leiðinlegt að íslenzka liðið skyldi ekki
ná góðum leik gegn Dönunum. Andrés
var að allra dómi bezti maður íslenzka
liðsins i gær og dreif félaga sína áfram
af miklum dugnaði. Sigurður Gunnars-
son var mest áberandi í sókninni en
lítið bar á Sigurði Sveinssyni og hefur
slakt gengi hans í leikjum keppninnar
valdið vonbrigðum. Stórgóður leik-
maður á góðum degi. Vörnin var sterk-
ari hluti islenzka liðsins og þar voru
þeir Atli Hilmarsson, Guðmundur
„Dadú” Magnússon og Alfreð Gísla-
son beztu menn. Markverðirnir
Brynjar Kvaran og Sigmar Þröstur
vörðu litið í leiknum og hafa báðir
leikið miklu betur.
Mörkin í gær skiptust þannig: Sig-
urður Gunnarsson 6, Guðmundur
Magnússon 3, Stefán Halldórsson 3/1,
Andrés Kristjánsson 3/1, Sigurður
Sveinsson I, Alfreð Gislason 1, Kristján
Arason 1 og Atli Hilmarsson 1 mark.
Fyrir Danina skoraði Erik Rassmussen
mest eða 8 mörk og Morten Stig Christ-
iansen, sem lék hér með A-landsliði
Dana í fyrra, skoraði 5 mörk.
í kvöld leikur íslenzka liðið gegn
Ray Clarke.
Ray Clarke
Alan Mullery, framkvæmdastjóri
Brighton, festi i gær kaup á Ray Clarke
frá FC Brugge fyrir 20.000 sterlings-
pund. Clarke lék áður með Tottenham
þegar Mullery var enn þar. Hann hélt
síðan til Ajax og náði mikilli frægð þar
og skoraði mikið. Síðan lá leiðin til FC
Brugge og nú er hann aftur kominn í
félagsskap Mullerys.
Ungverjum og fæst þá úr því skorið
hvort fsland leikur til úrslita um 5. eða
7. sæti keppninnar. Með góðum leik
ætti að vera hægt að leggja Ungverjana
en hugsanlega hafa meiðsli Andrésar
haft slæm mórölsk áhrif á hópinn.
Allar likur eru á að Teitur Þórðarson skrifi undir atvinnumannasamning hjá
Werder Bremen.
Hibbitt jafnaði í restina
—og Úlfamir fá annað tækifæri gegn QPR
Kenny Hibbitt jafnaði metin fyrir
Úlfana gegn QPR á þriðju mínútu i
meiðsltíma i gærkvöldi er liðin mættust
i 4. umferð — 16 liða úrslitum — ensku
deildabikarkeppninar. QPR hafði náð
forystunni á 39. minútu með gull-
fallegu marki Clive Allen. Hann tók
aukaspyrnu af um 25 metra færi og
sendi knöttinn framhjá varnarveggnum
og i gegnum klofið á Paul Bradshaw
markverði. Fögnuður leikmanna QPR
mikill en Úlfarnir hófu þegar látlausa
sókn í þeirri von að jafna metin. Svo
mikill var ákafinn i sókninni að sjálfur
Emlyn Hughes var eilt sinn dæmdur
rangstæður, en hann ersem kunnugt er
einn helzti varnarmaður liðsins. Hvorki
gekk né rak fyrr en undir lokin að
Hibbitt jafnaði. Liðin munu mætast á
ný i næstu viku. I.ið QPR er,skipað
mörgum góðum leikmönnum og greini-
legt er að Tommy Docherty er á réttri
leið með strákana sína. Áhorfendur
voru 20.894 á Loftus Road í gær. Áður
en iengra er haldið er rétt að líta á
úrslitin í gær.
4. umferð deildabikarsins
Brighton — Arsenal
Bristol C — Nottingham F
Grimsby — Everton
Liverpool — Exeter
QPR — Wolves
Wimbledon — Swindon
Ensk/skozki bikarinn
Sheffield U — St. Mirren
4. dcild
Aldershot — Peterborough
0—0
1 — 1
2—1
2—0
1 — 1
1—2
0—0
2—0
Mikill fögnuður brauzt út i fiski-
borginni Grimsby í gærkvöldi er
heimaliðið náði að leggja 1. deildarlið
Everton að velli í spennandi leik. Langt
er síðan Grimsby var á meðal 1.
deildarliðanna en leikmenn litla liðsins
voru alls óhræddir við milljónaleik-
menn Everton. Brian Kidd náði foryst-
unni fyrir Mersey-Iiðið á 21. minútu en
ekki liðu nema tvær minútu þar til
Mike Brolley hafði jafnað metin fyrir
Grimsby. Brolley skoraði siðan aftur á
31. minútu og tryggði sigur Grimsby.
Everton sótti látlaust það sem eftir lifði
leiksins en ekki vildi knötturinn i netið
. og Everton virðist seint ætla að takast
að rífa sig upp úrdeyfðinni.
-Hvorki gekk né rak hjá Liverpool
gegn Exeter í fyrri hálfleiknum á
Anfield. Framlinumönnunum gekk
ekkert að komast áleiðis gegn sterkri
vörn Exeter og Bob Paisley brá þá á
það ráð að taka Kenny Dalglish út af í
hálfleik til mikillar gremju fyrir hina
21.000 áhorfendur á Anfield. En
dæmið gekk upp. David „supersub”
Fairclough, sem enn hcfur ekki tekizt
að vinna sér fast sæti i Liverpool-liðinu
þrátt fyrir spádóma flestra þar um,
kom inn á og leikur liðsins gerbreyttist
til hins bctra. Leikmenn tóku lífinu létt
og það \ar aðeins tímaspursmál
hvenær I.iverpool skoraði.
Það vat enginn mnar en Fairclough
sem skoraöi þegar að þvi kom að hann
skallaði i netið eftir fyrirgjöf á 60. min.
Hann var síðan aftur á ferðinni á 77.
mínútu og innsiglaði sigur Liverpool,
en ekki virkar liðið nógu sannfærandi
þrátt fyrir ágætan árangur siðustu
vikuna.
Nottingham Forest náði jöfnu gegn
Bristol City á Ashton Gate eftir að
John O’Hare hafði náð forystunni á
28. mínútu. Forest var sterkari aðilinn í
leiknum allan timann en Gerry
Sweeney, bakverði, tókst að -jafna
metin þegar aðeins 4 minútur voru til
leiksloka. Jimmy Mann átti skot i stöng
í leiknum og Bristol varð fyrir því
óhappi að miðvörðurinn David
Rodgers var borinn af leikvelli með
brotið nef á 15. minútu. Forest hefur
nú ekki tapað leik í deildabikarkeppn-
inni síðan 20. september 1976 er liðið
var slegið út á heimavelli af Coventry.
Coventry sigraði i þeim leik 3—0 og
Búlgarir
unnu Dani
Búlgarar sigruðu Dani, 1—0, í
landsleik leikmanna 21-árs og yngri i
Sofiu í gær. Þessi leikur var liður I
Evrópukeppni landsliða leikmanna 21-
árs og yngri og skoraði Lachicv eina
mark leiksins að viðstöddum 10.000
áhorfendum.
siðan hefur Forest ekki tapað leik i
keppninni. Vann hana 1978 og einnig
sl. vor. Það er e.t.v. dálitið skemmtileg
tilviljun að John O’Hare, sem aldrei
hefur tekizt að vinna sér fast sæti i
liðinu, skuli einnig hafa leikið gcgn
Coventry fyrir þremur árum. Aðrir
leikmcnn sem léku þá og eru nú hjá
Forest voru þeir John McGovern,
Martin O’Neill, lan Bowyer og John
Robertson.
Andy Rowlands náði forystunni fyrir
Swindon gegn Wimbledon en Perkins
jafnaði metin. Bates tryggði svo
Swindon sigurinn meðgóðu marki.
Leikur Arsenal og Brighton þótti
slakur og liðin verða að leika santan á
ný. Tveir leikir cru á dagskrá i deilda-
bikarnunt i kvöld.