Dagblaðið - 31.10.1979, Side 28
Harðræði lögreglumaniis í rannsókn hjá RLR:
„HENGDUR” 5 SINNUM
AF LÖGREGLUÞJÓNI
„Það er alveg Ijóst, að ef talað er
um eitthvert hengingartak þá er það
áreiðanlega ekki eitt af þeim tökum
sem mönnum er kennt í lögreglu-'
þjálfun og gefið fyrirma;li um að
beita,” sagði William Th. Möller,
aðalfulltrúi lögreglustjóra, er DB
spurði hann í hvaða tilfellum
lögreglumönnum væri heimilt að
beita svokölluðu „hengingartaki”
gagnvart þeim er gerzt hafa brotlegir
við lögin.
Tilefni spurningarinnar var rann-
sókn er nú fer fram hjá Rannsóknar-
lögreglu ,rikisins vegna kæru sem
borizt hafði á hendur ákveðnum
lögreglumanni um óvenjulegt harð-
ræði í starfi. Sá er kærði kveðst hafa
verið „hengdur” fimm sinnum áður
en hann var settur í fangageymslur
lögreglunnar.
„Ég er ekki alveg klár á því hvað
átt er við með þessu taki,” sagði
William. „Það er þó alveg á hreinu,
að þetta tak er ekki kennt i lögreglu-
þjálfun.”
Heimildir DB segja þó þetta tak
alþekkt innan lögreglunnar og einnig
eigi dyraverðir öldurhúsanna til að
beita því. Takið byggist á því að
þrýsta á hálsæðarnar þannig að
fórnarlambið missi meðvitund um
stund.
„Það eru ákvæði um það í lögum
að lögreglumenn mega ekki beita
meira harðræði i starfi en nauðsyn er
til að vinna bug á mótþróa,” sagði
William.
Hann staðfesti að borizl hefði
kæra á hendur ákveðnum lögreglu-
manni fyrir harðræði í starfi og væri
málið í rannsókn hjá Rannsóknar-
lögreglu ríkisins.
Hins vegar sagði William það ekki
rétt að viðkomandi lögreglumaður
hefði verið færður til i starfi meðan á
rannsókninni stæði, eins og heimildir
DB greindu.
Njörður Snæhólm rannsóknar-
lögreglumaður staðfesti í samtali við
DB að þessi rannsókn hefði staðið
yfir að undanförnu en visaði að öðru
leyti á Þóri Oddsson vararannsóknar-
lögreglustjóra. DB tókst ekki að ná
tali af honum í morgun.
-GÁJ.
„Menn sætti
sig við þessar
niðurstöður”
— segirGunniaugur
Stefánsson
„Mér er efst í huga, að menn
sætti sig við þessar niðurstöður
og styðji við bakið á þessum
framboðslista,” sagði Gunnlaug-
ur Stefánsson í viðtali við DB í
morgun. Gunnlaugur fellur nú
greinilega út af þingi, þar sem
hann tapaði fyrir Ólafi Björns-
syni í kosningum um þriðja sæti á
A-lista á Reykjanesi á kjördæmis-
þingi í gærkvöldi.
„Þetta hefur verið lærdóms-
rikur tími,” sagði Gunnlaugur
um hina stuttu veru sina á
Alþingi. „Ég hef kynnzt nýjum
mönnum og nýjum málefnum.
Þetta hcfur verið mjög
viðburðarríkt.”
Miklar deilur höfðu staðið í
Alþýðufiokknum á Reykjanesi
um gildi atkvæða sem höfðu
ráðið því að Ólafur Björnsson var
talinn hafa hreppt 3. sætið.
Til viðbótar var tilkynnt i
Alþýðublaðinu og Alþýðublaði
Kópavogs að kjörstaðir yrðu
opnir lengur á sunnudag en þeir
voru, og lokuðust nokkrir úti. Sú
aðferð var viðhöfð á kjördæmis-
þinginu í gærkvöldi að kjósa þar
milli Ólafs og Gunnlaugs og láta
það ráða. Ölafur fékk 71 at-
kvæði og Gunnlaugur 63. Listinn
verður þannig: 1. Kjartan
Jóhannsson. 2. Karl Steinar
Guðnason. 3. Ólafur Björnsson.
4. Guðrún Helga Jónsdóttir. 5.
Ásthildur Ólafsdóttir. 6. Örn
Eiðsson. 7. Ragnheiður
Ríkharðsdóttir. 8. Jórunn
Guðmundsdóttir. 9. Gunnlaugur
Stefánsson. 10. Emil Jónsson.
-HH.
llnnið að skiptum á undirlagi undir hinn nýja íshokkivöll.
DB-mynd S.
p
'tm 1 sM jitmmmi
•jmrnn ím*
#ii* \ "m &*#&> .#?#
—tilbumn ef tir hálfan mánuð
„Við reiknum með að geta tekið
hann i notkun cftir svona hálfan
mánuð eða jafnvel skemmri tíma,"
sagði Hreiðar Ársælsson umsjónar-
maður Melavallar, er hann var
spurður um ishokkivöil sem verið er
aðbúa til á Melunum.
„Völlurinn verður 60 sinnunt 30 á
stærð sem er lögleg stærð á ishokki-
velli. Battning verður í kring um völl-
inn og liann verður malbikaður. Þá
cr hægt að lcika á honum tennis og
handbollaásumrin.
Tekin var sú ákvörðun að gcra
þennan vðll þar eð ekki var talið ráð-
legt að láta ishokkimenn leika á stóra
svellinu vegna slysahættu. Við
lögðunt undir völlinn svæði sem er
sunnan við fótboltavöllinn, til móts
við Hótel Sögu. Þar voru áður æfðar
kastgreinar en nú er æfíngaaðstaða
fyrir þær í Laugardal.
Borgin vcr á milli 10 og 12 milljón-
um i þennan nýja völl. Dýrast varað
skipta um undirlag undir malbikið,”
sagði Hreiðar.
-DS.
Ámi felldi Braga í prófkjöri Alþýðuflokks á Norðurlandi eystra:
Ráðherrann ekki með
á framboðslistanum
—staða f lokksins mjög erfið án fuHtrúa launþega íþremur efstu sætunum,
segir Ámi Gunnarsson
„Ég þakka þessi úrslit mikilli
vinnu margra góðra manna,” sagði
Árni Gunnarsson fv. alþingismaður í
morgun, en Árni sigraði Braga
Sigurjónsson ráðherra i prófkjöri
alþýðuflokksins i Norðurlandskjör-
dæmi eystra. Árni hlaut 709 atkvæði
i fyrsta sæti en Bragi 452. Báðir buðu
sigaðeins fram í fyrstasæti.
„Ég vona og treysti því að hugur
sé í mönnum fyrir aðalátökin og hef
ekki áhyggjur af særindum vegna
prófkjörsins. Það grær fljótt um.
Staða Alþýðuflokksins er afskaplega
erfið þar sem við höfum ekki fulltrúa
launþega í þremur efstu sætunum, en
Jón Helgason formaður verkalýðs-
félagsins Einingar féll í baráttunni
um annað sæti í prófkjörinu.
„Ég neita því ekki að ég er von-
svikinn, en þó aðeins að vissu marki,
því að á hinn bóginn er ég feginn að
þurfa ekki að standa i slagnum,”
sagði Bragi Sigurjónsson, land-
búnaðar- og iðnaðarráðherra í viðtali
við DB i morgun.
„Þegar i Ijós kom hversu litið var
kosið í Akureyri í prófkjörinu taldi
ég líkur á að svona færi,” sagði
Bragi. Hann kvaðst þó feginn því að
úrslitin voru afdráttarlaus. Það
auðveldaði kosningabaráttuna.
„Það er einlæg von min að þetta
hafi engin áhrif á okkar fólk. Þeir,
sem hafa kosið mig eru traustir
flokksmenn. Ég vona að það fólk
skipi sér allt um listann i alþingis-
kosningunum,” sagði Bragi
Sigurjónsson.
Alls greiddu 1508 itkvæði i próf-
kjörinu. Jón Ármann Héðinsson
hlaut kosningu i annað sæti rneð
samtals 816 atkvæði i fyrsta og annað
sæti en Jón Helgason fékk 719 at-
kvæði í annað sæti.
-BS/JH.
frjálst, óháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 31-OKTÓBER 1979
Vestmannaeyjar:
Sjómaðunnn
talinn af
Leit að Birni Sigurbjörnssyni sem
týndist í Vestmannaeyjum aðfaranótt
miðvikudags i siðustu viku hefur nú
verið hætt og er Björn talinn af. Björn
var skipverji á Sigurbjörgu GK 212
sem gerð var út frá Suðureyri. Björn
var þritugur. -DS.
Eskifjörður:
Sfldarsöltun í
fullumgangi
I Votaberg SU 14 kom með 40 lestir af
jsíld tíl Eskifjarðar á mánudaginn.
Sildin verður söltuð hjá Söltunarstöð-
inni Sæbergi. Það er fyrsta söltunin hjá
Sæbergi á haustinu.
Votabergið er 150 tonna skip, eign
Austfirðings hf. Skipið er nýkeypt frá
Hornafirði, en fýrirtækið stofnuðu
nokkrir ungir menn fyrir nokkrum
árum. Skipstjóri er Friðrik Rósmunds-
|son, mikill aflamaður.
Votabergið fór á sildvciðar fyrir
hálfum mánuði og gekk heldur illa
framan af eins og oft vill verða með
nýkeypt skip.
Sigurbergur GK kom á ntánudaginn
með 1100 tunnur af sild, sem skiptist á
milli Auðbjargar og Friðþjófs hf.
Hjá Friðþjófi hf. er búið að salta
tæplega 3000tunnur.
-Regtna, Eskifirði/ARH.
Vestfirðir:
Taliðídag
Talning atkvæða i prófkjöri Alþýðu-
flokksins á Vestfjörðum — þar sem
baráttan stendur milli Sighvats
Björgvinssonar fjármálaráðherra og
Karvels Pálmasonar fyrrv. alþingis-
manns — fer fram á ísafirði í dag.
Vegna ófærðar í lofti og á landi var
ekki hægt að telja i gær og hafa þvi
atkvæðakassar verið fluttir sjóleiðina
til ísafjarðar. -ÓV.
Framsókn í
Reykjavík:
ÖlafurogGuð-
mundur G. í
toppsætum
Framsóknarflokkurinn i Reykjavík
gekk endanlega frá framboðslista
sinum á fundi í gærkvöldi.
1. Ólafur Jóhannesson fv. forsætisráð-
herra.
2. Guðmundur G. Þórarinsson verk-
fræðingur.
3. Haraldur Ólafsson dósent.
4. Sigrún Magnúsdóttir kaupkona.
5. Kristján Friðriksson iðnrekandi.
6. Kristinn Ágúst Friðfinnsson guð-
fræðinemi.
7. Bjarni Einarsson framkvæmda-
stjóri.
8. Árni Benediktsson framkvæmda-
stjóri.
9. Sigrún Sturludóttir skrifstofumaður.
10. Gcir Viðar Vilhjálmsson sálfræð-
ingur. -ARH.