Dagblaðið - 03.11.1979, Qupperneq 6
6
DAGBLAÐIÐ. LÁUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 1979.
Basar — Basar
Basar Blindrafélagsins verður haldinn að Hamra-
hlíð 17 í dag kl 2. Sjaldan eins mikið vöruúrval
svo sem prjónles — jólavörur — svuntur —
kökur og okkar vinsæla skyndihappdrœtti.
Styrktarfélagar.
Brosmildir en vasklegir slökkviiiðsmenn i Reykjavfk. Þetta er vakt Sigurgeirs. Hann
er þriðji frá vinstri.
„Þeir eru margir stærri en þessi sem
koma hingað inn,” segir Vilmundur
og hampar einum af hinum óvel-
komnu gestum.
segja manni bara að þegja ef maður
skammar þá,” sagði Vilmundur.
Lögreglan í Hafnarfirði hefur lítið
skipt sér af þeirri skemmdarverka-
starfsemi sem þama fer fram. Ná-
grannarnir hafa og látið það
átölulaust þó skríll æði þarna um um
hverja helgi og hendi stærðar
hnullungum. ,
-DS.
K
Vilmundur Hansen, starfsmaður
gróðrarstöðvarinnar Hraunbrúnar,
stendur hér við gróðurhúsið sem verst
er farið. Sjá má gat eftir vel stóran
hnullung og bót á bót ofan.
DB-myndir Bj. Bj.
Slökkviliðsvarðstjóri kveður eftir 37 ára starf:
„Hér eru tveir gamlir
en gangfærir þó”
— sagði Sigurgeir Benediktsson og settist upp í slökkvibíl frá 1923
„Þetta eru þá tveir gamlir en þó
gangfærir,” sagði Sigurgeir Benedikts-
son brunavörður er hann settist upp i
elzta bíl Slökkviliðs Reykjavíkur svo
við mættum festa hann á mynd.
Tilefnið var að um síðustu helgi stóð
Sigurgeir sínar síðustu varðstjóravaktir
hjá Slökkviliði Reykjavíkur. Þar með
lauk hann 37 ára starfsferli hjá
slökkviliðinu. Kvaðst Sigurgeir vilja
notfæra sér gamla réttinn tii eftir-
launanna, þ.e. samanlagðan aldur og
starfsaldur, en Sigurgeir er þrátt fyrir
langt starf hjá slökkviliðinu ekki nema
65 ára gamall.
Sigurgeir sagði að það væri ekki til-
finningalaust að kveðja kæran vinnu-
stað og starfsfélaga eftir svo langan
tíma en hann hefði stigið skrefið er
honum bauðst þægilegt starf til að
sinna að degi til. Breytingin að starfa
aðeins á hefðbundnum vinnutírra í stað
eilífra vaktastarfa og þeirrar streitu
sem varðstjórastöðu fylgdu yrði án efa
mikil.
„Ég verð eiginlega andlit útvarpsins
út á við,” sagði Sigurgeir. „Ég tek að
mér sendiferðir fyrir þá í banka og milli
stofnana. Ég hef alltaf haft gaman af
gönguferðum og þetta verður held ég
ágætt.”
„Og svo verður önnur breyting. í
símaskrána kemur væntanlega „út-
brunninn brunavörður” í stað
stöðuheitisins brunavörður,” sagði
Sigurgeiroghló.
Hann kvaddi vaktfélaga sina og
fleiri með góðu kaffi og meðlæti. A.Sl.
Sigurgeir Benediktsson við stýrið á slökkvihilnum frá 1923.
DB-mvnd S.
ÁMAN,
GRENSÁSVEG113,
SÍMI84425.
Hin frábæra
músíkmynd
með
LIZA MINELLI
Sýnd kl. 3, 6 og 9.
Eigum fyrirliggjandi
MIG160
kolsýru- og argon-
rafsuðuvélar.
Mjög hagstætt verð, kr.
474.593 með hlöðnum
kút, rafsuðuvír og tveim
mælum.
0. ENGILBERTSSON HF.
Auðbrekku 51.
Kópavogi, simi 43140.
Gróðurhúsin fá ekki að vera í friði:
Skríll veidur skemmd-
um í Hafnarfírði
Iðnkynning
„Það er íslenzk iðnkynning í Ámunni, Grensás-
vegi 13.”
Næstu daga verða seld á kynningarverði bæði öl-
gerðarefni og þrúgusafar, sérstaklega framleidd
fyrir íslenzkar aðstæður. Komið og kynnizt hvers
íslenzkur efnaiðnaður er megnugur. Við ábyrgj-
umst gæðin.
„Það er svo sem nógu slæmt að
rúður hér séu brotnar. Við þær
gerum við með því að líma plast yfir
gatið en límið gulnar mikið með
aldrinum og hleypir æ minni sól inn.
Það er það versta. Plönturnar fá þá
ekki nóga birtu,” sagði Vilmundur
Hansen starfsmaður gróðrarstöðv-
arinnar Hraunbrúnar í Hafnarfirði.
Eigandi stöðvarinnar er Magnús
Jónasson sem keypti hana um ára-
mót. Síðan hefur varla liðið sú helgi
að óprúttnir menn yllu honum ekki
stórtjóni með því að brjóta rúður í
gróðurhúsum hans. Einu helgarnar
sem húsin hafa fengið að vera i friði
eru þær þegar vakt hefur verið höfð
um þau nætur og daga.
Tjónið er ekki sízt fjárhagslegt.
Gróðurhúsin eru úr bylgjuplasti og
kostar hver plata af því um 15
þúsund krónur Misjafnt er eftir
helgarnar hversu mikið þarf að bæta
en greinilegt er á húsunum að þar
hefur verið harkalega komið við og
oft því sums staðar er bót á bót ofan.
Hjá Hraunbrún fer aðallega fram
ræktun sumarblóma en einnig er
ræktað þar grænmeti í útibeðum.
Jafnvel útisvæðið fær þó ekki að
vera í friði því krákkar í Víðistaða-
skóla hafa fundið út að styttra sé að
fara yfir lóðina við gróðurhúsin á
leiðinni heim og í skólann.
Girðinguna um svæðið rífa þeir niður
jafnóðum og hún er sett upp. „Þeir
•kraytlngar unnar af fa0-
, mönnum.
3
•»» MlulaM a.M.k. é kvöMia
«LÓM©ÁÆXI1R
HAFNARSTRÆTI Simi 12717