Dagblaðið - 03.11.1979, Side 7

Dagblaðið - 03.11.1979, Side 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 1979. 7 í þvottahúsi rfkisspftalanna á Tunguhálsi: Hagkvæmara fyrir Landakot að kaupa eigið þvottahús. DB-mynd: Ragnar Th. LANDAKOTSSPITALI KAUPIR OG LEIGIR ÞVOTTAHÚSIÐ EIMI — og hættir viðskiptum við þvottahús ríkisspítalanna á Tunguhálsi „St. Jósefsspítali, Landakoti, hefur keypt vélar þvottahússins Eimis og samið um leigu á húsnæði þvotta- hússins i Síðumúla 12,” sagði Logi Guðbrandsson framkvæmdastjóri sjúkrahússins í viðtali við DB. ,,Gert er ráð fyrir því að Landakots- spítali hefji rekstur þvottahúss í Síðu- múlanum um næstu áramót og samtímis hættir það þvottahús að taka á móti almennum þvotti. Frá sama tima verður eigið þvottahús Landa- kotsspítala í kjallara sjúkrahússins við Túngötu lagt niður og starfsemi þess hafin í Síðumúla. Samtímis verður hætt viðskiptum við þvottahús ríkis- spítalanna sem að undanförnu hefur séð um þvott á öllum stærri línstykkj- um Landakotsspítala,” sagði Logi. Ástæður fyrir þessum breytingum kvað Logi vera tvær. í fyrsta lagi hefði sjúkrahúsið mjög nauðsynlega þurft að fá það húsnæði sem þvottahúsið í kjall- ara sjúkrahússins hefur haft til nota fyrir aðrar deildir spítalans. í öðru lagi hefði þetta einkaþvottahús Landakots þurft endurnýjunar við og athugun hefði leitt í Ijós að hagkvæmast hefði verið að kaupa vélar þvottahússins Eimis og leigja húsnæði þess og auka. síðan viðfangsefni þvottahúss spitalans svo að það annaðist allan þvott sem til fellur fráspitalanum. DB skýrði frá þvi á dögunum að þvottahús ríkisspítalanna væri dýrasta þvottahús á höfuðborgarsvæðinu. Þvottur sem þar er unninn kostar að sögn kunnugra 15—20% meira en gjaldskrá almennra þvottahúsa í borg- inni kveður áum. DB skýrði einnig frá því að þvotta- húsið Fönn hefði gert Landakotsspítala tilboð um þvott fyrir spítalann. Var það tvíþætt, annars vegar fast kíló- verð, 220 kr. á kg, eða hins vegar 30% afsláttur frá gildandi gjaldskrá. Logi Guðbrandsson sagði að þetta tilboð hefði verið til viðmiðunar en ekki gert ráð fyrir því að á því byggðist einhver viðskiptasamningur. Tilboðinu hefði verið svarað munnlega. Kvaðst Logi vilja taka fram að sú breyting sem nú væri gerð á þvottamálum Landa- kotsspilala væri ekki gerð í illindum við þvottahús ríkisspítalanna. Nýskipan þvottamálanna væri þó ótvirætt talin fjárhagslega hagkvæmari fyrir Landa- kotsspítala. -A.St. Valfrelsi vill þjóðar- atkvæði Félagið Valfrelsi biður ríkisstjórnina að sjá til þess að kjósendur verði látnir kjósa um eitt mál annað samhliða þing- kosningunum. Málið er hvort koma skuli á löggjöf um almenna þjóðarat- kvæðagreiðslu og auka þar með mjög mikilvægi slikrar atkvæðagreiðslu. Verði ekki undir þetta tekið segjast forráðamenn Valfrelsis nmnu safna undirskriftum um spursmálið og snúa sér með tilmæli um það til allra kjós- enda. Valfrelsi vill breyta 25. grein stjórnarskrárinnar. Hafi einn af hundr- aði kjósenda undirritað ósk um þjóðar- atkvæðagreiðslu um tiltekið mál skuli slík atkvæðagreiðsla fara fram á næsta almennum kjördegi. 10 af hundraði kjósenda þurfi til að sérstök atkvæða- greiðsla fari fram um mál á öðrum degi en almennum kjördegi. Úrslit í slíkri atkvæðagreiðslu skuli verða bindandi ef meirihluti kjósenda er málinu hlynntur en ella ráðgefandi. Til að auðvelda kosningu skuli kjós- endur fá sýnishorn af kjörseðli fjórum vikum fyrir kjördag. Framkvæmdanefnd félagsins stendur að þessu. í henni eru Hilmar Guðjónsson, Lárus Loftsson, Smári Stefánsson og Sverrir Runólfsson. -HH. 34,5 milljarðar söf nuðust til f lóttafólks í SA-Asíu VANTAR ÍSLENZKT HJÚKRUNARLIÐ TIL THAILANDS — til að hjálpa flóttafólki f rá Kampútseu Alþjóðasamband Rauða krossins hefur sent fyrirspurn til Rauða kross íslands um hvort hægt sé að fá lækna og hjúkrunarlið héðan til starfa í flóttamannabúðum í Thai- landi þar sem flóttamenn frá Kampútseu dvelja. Er nú verið að kanna undirtektir við þessari mála- leitan en viðbrögð enn ókunn. Hvað sem úr því verður munu íslendingar koma þessu fólki óbeint til hjálpar því alls söfnuðust tæpar 34,5 milljónir króna í fjársöfnuninni til hjálpaj flóttafólki i Suðaustur Asíu. Frá þessari upphæð dregst kostnaður við söfnunina, svo sem auglýsingakostnaður, upp á tæpar 3 milljónir þannig að til skipta á milli Hjálparstofnunar kirkjunnar og Rauða krossins koma tæplega 31,5 milljónir. Kirkjan mun verja sínum hlut til hjálparstarfs á vegum Lút- erska heimssambandsins í Suðaustur Asíu en Rauði krossinn til hjálpar á sama stað í samráði við Alþjóðasam- band Rauða krossins í Genf. -GS. Karlakórinn kveður fyrir Kínaförina á þrennum hljómleikum Eftir helgina — á þriðjudag, mið- vikudag og fimmtudag — heldur Karlakór Reykjavíkur þrenna hljóm- leika í Háskólabíói. Hefjast allir kl. 10. Stjórnandi kórsins eins og undan- farin ár er Páll Pampichler Pálsson. Einsöngvarar með kórnum í ár eru óperusöngvararnir Sieglinde Kah- mann og Sigurður Björnsson, svo og tveir kórfélagar, Hjálmar Kjartans- son og Hreiðar Pálmason. Píanó- leikari verður Guðrún A. Kristins- dóttir. Um næstu helgi heldur svo kórinn í mesta ferðalag sitt til þessa — boðs- ferð til Kína — og verður sungið vítt og breitt um landið. _óv Hárgreiðslustofan Sparta Norðurbrún 2 Sími 31755 Höfum opnað nýja hárgreiðslustofu. Veitum alla almenna þjónustu, ath. opið laugardaga. Gústa Hreins. — Inga Gunnars. Mhú/u. mynclir a minutunm í öll skfrteini AAinútui . VD LŒKJARTORG myndir s/mi 12245 Nn bjóðum við talstöðvar I bila, báta og 1 veiðiferðina.Einnig úrval af loft- netum fyrir CB. Bilaútvörp og segulbönd. Öll þjónusta á staðnum, send- um I póstkröfu. ÍTTÐMIP Einholti 2 - Reykjovík - Slmi 23220 77/ sö/u BMW 528 automatic árg. '77 BMW 520 árg. '77 BMW 316 árg. '78 Renault 20 TL árg. '77 Renault 16 TL árg. '76 Renault 4 Van árg.'74 og'78 Renault 4 Van F6 árg. '78 og '79 Ford Fairmont Decor automatic árg. '78 Opið laugardaga kl. 1-6. Kristinn Guðnason hf. bifreiða- og varahlutaverziun, Suðurlandsbraut 20, sími 86693. Fjöldigóðra muna— Ekkert happdrætti Engin niíll LUTAVELTA #KVENNADEILDARSLYSAVARh Athugið að strætisvagn, leið 2, ekur niður á Granda á hálftíma fresti. verður í Slysavarnafélagshúsinu á Grandagarði sunnudaginn 4. nóvember kl. 13,30. KVENNADEILDARSLYSAVARNAFÉLAGSINS í REYKJAVÍK STYRKIÐ STÖRFSLYSAVARNAFÉLAGSINS Kvennadeildin

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.