Dagblaðið - 03.11.1979, Page 13
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 1979.
13
Þegar veðrið fer versnandi
og skammdegið lengist, kemur
oft leiði í fólk. Litir verða^
þungir og draga mann niður,'
hinir fallegu litir haustsins
hvetfa og grámygla miUi haust-
og vetrarríkis verður alls
ráðandi Hárið verður okkur
til ama vegna þess að það er
upplitað og nœringarlaust eftir
sumarið. Það er því tilvalinn
tími til að breyta um háralit.
Að fá sér hressandi lit í hárið
og nýja greiðslu virkar eins og
vítamínsprauta og bœtir
andleg ástand okkar.
Hvað segir þú um að breyta
um háralit?
Viltu til dœmis vera með
(jóst, kastaníubrúnt eða jafnvel
rautt hár? Eina ráðið til þess
að komast að því er að lita á
sér hárið. Hœgt er að skipta
hárlitunum í nokkra megin
flokka.
Skammtímalitun
Viijirðu fá aðeins skerpingu
á þínum eigin lit er þessi
litaraðferð tilvalin. Litarefni
þetta sezt utan á hárið og
þvæst þess vegna auðveldlega
úr. Ef skammtímalitur er
notaður of oft er hœtta á þvi
að hann safnist fyrir í hárinu
og verði óraunverulegur.
Skammtímaliturinn litar
best Ijóst hár. Hann gefur því
djúpan tón. Hœgt er að fá
hann í sjampói, blástursvökva,
lagningarvökva og úða.
Hálfvaranlegur
litur
Þessi litur er mitt á milli
þess að vera varanlegur og
skammtímalitur. Hann gefur
djúpa ogfallega tóna og er oft-
ast með nœringu, sem gerir
hárið glansmikið og áferðar-
fallegt. Þessi litunaraðferð
getur aðeins dekkt hár, ekki
lýst það. Liturinn þvœst úr í
4—6 þvottum og er mjög
heppilegur að því leyti að ekki
þarf að hafa áhyggjur af litar-
mismun þegar nýtt hár vex.
Varanlegur
litur
Ef þú vilt varanlega
breytingu á háralit þínum, lit
sem endist þar til nýtt hár
vex, er varanleg litun rétta
aðferðin. Með þessum lit er
bœði hægt að lýsa og dekkja
hárið, en þarsem litaskil verða
oft mjög skörp, þegar nýtt hár
vex, er nauðsynlegt að endur-
taka litunina reglulega. Það
kostar bœði tíma og fyrirhöfn,
en það er sannarlega þess
virði ef manni líkar við litinn.
-TB.
Amina hertir höfundur þessarar greiðslu og er 1 London. Litunina
annaðist Daniei Galvin, sem talinn er einn færasti fagmaðurinn é sinu
sviði.