Dagblaðið - 01.12.1979, Síða 2

Dagblaðið - 01.12.1979, Síða 2
DAGBLAÐID. LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1979. ER ÞETTA HÆGT? Nokkrar reiðar fóstrur skrifa: Nú getum við ekki orða bundizt lengur. Við fóstrur, sem höfum setið á skólabekk í þrjú ár að loknu stúdentsprófi eða hliðstæðri menntun, erum í 10. launaflokki með kr. 269.921. Á meðan vinnur við hlið okkar ófaglært aðstoðarfóik sem tekur laun eftir Sóknartaxta. Laun þess hafa alltaf verið talin mjög lág. Nú er svo komið að ef þær hafa unnið í 5 ár eða lokið einu kjaranámskeiði — sem er 60 tímar — á launum, ef þær eiga að vera í vinnu, og bera auk þess á- byrgð á deild, fá þær í laun 284.336 kr. sem er 14.415 kr. hærra en laun okkar. Dæmi er til um að fóstrur hafi sótt um að vinna sem aðstoðar- fólk en því hefur verið synjað. Eru þessi kjör sanngjörn? Hvar endar óréttlætið? „Lengi býr að fyrstu gerð”. Er nám okkar og þekking til að annast og undirbúa yngstu þegna þjóðfélagsins fyrstu sporin á lifsbrautinni einskis metiö? Ef við útlærðar fóstrur förum á námskeið til endur- eða viðbótar- r Það er stutt til jóla... ef þú ætlar að mála áður! Með Spread Satin færðu mjúka satináferð á veggina. Málningu sem auðvelt er að mála með og auðvelt er að þrífa. Málningu sem þekur vel og er sterk. Spred Satín í þúsundum töfratóna lífgar upp í skammdeginu Reykjavíkurflugvöllur. Reykjavíkurflugvöllur: Hvar á umferð- in að fara? Grétar Bergmann hringdi: Mig langar til að spyrja þann verkfræðing sem vill setja 10 þúsund manna bæ á Reykjavíkurflugvöll hvar umferðin út i þetta nýja hverfi eigi að fara. Ég get ekki séð að Hring- brautin eða Vesturbærinn geti tekið við slíkri umferð. Tæplega færi þessi umferð í gegnum kirkjugarðinn eða um Hafnarfjarðarveginn gamla. „EF STARFINU LINNIR ER HJARTANU HÆTT’ Þórður Halldórsson frá Dagverðará hringdi: Það er gaman að vera orðinn 74 ára eins og ég er orðinn. Þá fer maður að verða orðvar og gætinn. Þá fer ævin að styttast. En umhyggjan hjá hinu opinbera fyrir gamla fólkinu kemur fram í að hegna því fyrir að vinna. Gömul kona, 90 ára, sagði frá því í Morgunblaðinu að hún passaði börn og fengi peninga fyrir það. En það var stórskaði fyrir hana. Það var dregið svo mikið af ellilaununum. Eins er með okkur, þessa gömlu sjómenn, sem höfum unnið mikið af ævinni á sjónum. Við máttum vinna fyrir 120 þúsundum. Ef það var meira var tekið mikið af ellilaununum svo að við fórum lítið i vinnu, fórum á bát og veiddum steinbít, átum hann og svikum hann undanskatti. En kenningin segir að þeir sem svíkja undan skatti fari beint til V helvítis. Svo það er ekki ástæða til að við förum að hætta okkur í hálku þar sem slysafaraldur gengur um ilandið eftirlitslaus. Slysin eru að verða stór atvinnugrein i þjóðfélaginu og það vill enginn stöðva. Prestar hafa atvinnu af aö jarða og hugga hina hrelldu. Sál- fræðingar reyna að láta hina slösuðu sem lifa af ná andlegu jafnvægi. Tryggingar hækka gjöldin á bílum, læknar hafa nóg að gera við beinbrot, smiðir smíða líkkistur og svo þarf að reisa spítala fyrir alla þessa slösuðu svo að þetta er mikil atvinnugrein. ,,Ef starfinu linnir er hjartanu hætt, öll hvíld er þá drepandi þreyta.” „Við, gamlir kunnáttumenn, sem erum út af galdramönnum á Vest- fjörðum og Snæfellsnesi, höfum verið að tala um að setja upp vind- gapa og gera eins mikið fárviðri og þegar Ólöf mikla var jörðuð svo að aldrei verði aftur kosið á íslandi að vetrinum. menntunar fáum við það ekki metið til launa á meðan ófaglærðar Sóknarkonur fá þetta metið til launa, svo og margar aðrar þjóð- félagsstéttir. Hvað finnst ykkur, gott fólk? Er ekki mál til komið að vakna og leiðrétta þetta? Raddir lesenda Sleppti hótel- máltíöinni —og lét andvirði hennar renna í Kampútseusöf nunina Háskólanemi hríngdi: Ég hafði ætlað mér að bjóða konu minni út að borða á Hótel Holti um' helgina og hafði áætlað þann kostnað 25.000 kr. Þegar ég hins vegar sá i sjónvarpinu myndina Árið núll, sem fjallar um hungursneyð og aðrar hörmungar í Kampútseu, þá snerist mér hugur og ákvað í þess stað að láta þessa sömu upphæð í söfnun til hjálparstarfs í Kampútseu. Ég segi frá þessu í DB til að vekja athygli á því hvað við raunverulega höfum það gott hér á íslandi og eigum því aö geta neitað okkur einu sinni um munaö eins og þann að fara út að borða. Með þvi að neita sér um slíka skemmtiferð bjargar maður mannslífum. Ég held að menn mættu velta þessu fyrir sér. Ég hef séð það af blöðum, að ég er ekki einn um að hafa blöskrað hvernig komið er í Kampútseu. Það er skylda okkar að gera allt hvað við getum til hjálpar því fólki sem enn er á lífi þarna. „Það er skyida okkar að gera allt hvað við getum til hjálpar því fólki. sem enn er á lifi þarna,” segir bréfritarí.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.