Dagblaðið - 01.12.1979, Síða 9
leikjum. Reyndar átti Róbert einnig
lengstu skák mótsins, sem var um
150 leikir, en það er jú önnur saga.
Hér kemur sú styttri.
Hvitt: Róbert Harðarson
Svart: H. Gaarder (Noregur).
Tveggja riddara tafl.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. d4 exd4 4.
Bc4 Rf6 5. e5 Rg4 6. Bxf7 +
í byrjanabókunum er þessi leikur
talinn vafasamur og mælt með
6. De2.
6. — KxH 7. Rg5+ Kg8 8.
Dxg4 Bb4 + ?
Betra er 8. —h6 9. Rf3 d6 og
svartur má vel við una.
9. c3 dxc3??10. Dc4 +!
Svartur gafst upp, því hann er mát
í 3.leik.
Að endingu er hér skák úr viður-
eign íslendinga og Dana í 1. umferð.
Hvítt: M. Tettinek (Danmörk).
Svart: Jón L. Árnason
Enskur leikur.
1. Rf3 cS 2. c4 Rf6 3. Rc3 dS 4.
cxd5 Rxd5 5. g3 Rc6 6. Bg2 Rc7 7.
0—0e5 8.d3 Be7 9. Rel?
Virkara framhald er 9. Rd2 ásamt
10. Rc4, eða jafnvel9. Be3.
9. — Bd7 10. Rc2 0—0 11. f4 exf4
12. Bxf4
12. gxf4 kemur sterklega til
greina.
12. — Hc813.Bxc7?!
( Stofnar til vanhugsaðra uppskipta,
séfn verða einungis til að létta á
stíjðu svarts. Auk þess tapar hvítur
dýrmætum tíma.
13. —Dxc7 14. RdS De5 15. Rxe7
Dxe716. e4?
Afleitur leikur! Svartur nær nú
fullkomnum yfirráðum yfir svörtu
reitunum á miðborðinu, hviti
biskupinn lokast úti og d-peð hans
verður bakstætt og ákjósanlegt skot-
mark fyrir svörtu mennina. Verra
getur það vart verið.
Skárra er 16. Dd2 þó svartur hafi
eftir sem'áður þægilegt tafl. Hann
hefur tvær peðaeyjur gegn þremur,
eins og Capablanca orðaði það, og
getur í framhaldinu þrýst eftir hinum
hálfopnu e- og d-línum.
16. — De5 17. b3 Be6 18. Dd2 Hfd8
19. Hadl Hc7 20. Df4 Hcd7 21. Rel.
Eftir uppskipti á e5 er d-peðið
fallið.
21.—f6 22.Hd2 b6 23. Khl.
23. Bf3 með það fyrir augum að
koma biskupnum til hjálpar d-
peðinu, strandar á 23. —Dd4+ 24.
Khl g5! ogdrottningin fellur!
23. — Rb4 24. Hf3
24. —Dal!
Svartur gat unnið peð með 24. —
Dxf4 25. gxf4 c4 o.s.frv., en texta-
leikurinn er jafnvel enn sterkari. Svar
hvíts er þvingað.
25. Hfl Dc3 26. Hf3 Hd4
Ekki gekk 26. — Rxd3 27. Rxd3
Hxd3 28. Hxd3 Hxd3 29. Hxd3 Dxd3
vegna 30. Db8+ Kf7 31. Dxa7+ og
26. — Rxa2 er svarað með 27. d4!
27. Bfl?
27. De3 var eini möguleiki hvíts,
en eftir t.d. 27. — Bf7 með hug-
myndinni 28. — Hxe4! o.s.frv. hefur’
svartur vinningsstöðu.
27. — Rd5!
Stórfellt liðstap er nú fyrirsjá-
anlegt.
28. Hc2 Dxel og hvítur gafst upp.
Bikarmóti TR 1979 lauk sl.
miðvikudag. Samkvæmt venju var
fyrirkomulag mótsins þannig að
keppendur féllu úr eftir 5 töp (jafn-
tefli er hálft tap). Umhugsunartími
var 1/2 klst. á skák. Alls tóku 40
skákmenn þátt í mótinu, sem er
svipuð þátttaka og í fyrra og voru að
lokum aðeins 5 eftir uppistandandi.
Slegið var upp sérstöku móti milli
þeirra og féll enginn úr keppni fyrr
en að því loknu. Úrslit urðu þessi
(tölurnar í svigunum tákna
samanlagðan tapafjölda):
1. Jóhann Hjartarson4. v.
(3 1/2)
2. Guðmundur Ágústsson 2 v.
(5 1/2 v.)
3. Róbert Harðarson 1 l/2v.
(6 v.)
4. Jóhannes Gísli Jónsson 1 1/2 v.
(6 1/2 v).
5. Benedikt Jónasson 1 v.
(6 1/2 v.)
Þetta er í 3. sinn í röð sem Jóhann
verður bikarmeistari og er það
glæsilegur árangur, ekki síst ef haft
er í huga að hann er aðeins 16 ára
gamall. Þess má og geta að gamla
kempan Guðmundur Ágústsson varð
einnig í 2. sæti á bikarmótinu í fyrra.
Firmakeppni TR í hraðskák hófst
fyrir nokkru og hefur þátttaka verið
heldur dræm. Eru stjórnarmenn TR
furðu slegnir yfir því að ekki einu
sinni félagsmenn skuli mæta til leiks.
Undanrásum verður fram haldið á
morgun, sunnudag, og hefjast þær
kl. 14. Þátttaka er ókeypis og öllum
heimil.
Giorgio Belladonna — 16 sinnum
heimsmeistarí.
fá níu slagi. Eðlileg spilamennska i
hjartanu að svína gosanum. Það
gengur ekki eins og spilin liggja.
Það færist bros á andlit itölsku
áhorfendanna þegar vestur spilar út
tígulniu. Þeir sjá á sýningartöflunni að
hægt er að láta litið úr blindum og fá
slaginn á gosann. Það er hins vegar
ekki augljóst fyrir þig. Eftir nokkra
umhugsun biður þú um kónginn í
blindum. Aðdáendur þínir stynja en þú
heyrir ekki til þeirra.
Þú spilar lauftíu og vestur fær
slaginn á kónginn. Vestur á í vanda og
ákveður að spila spaðatíu. Lítið úr
blindum og austur gefur. Slæm mistök.
Þú færð slaginn á drottninguna og
líður betur. Austur lét laufníu á lauf-
tíuna — greinileg mistök sem gefa þér
vissar upplýsingar. Ef hann hefði átt
laufdrottningu meðal laufspila sinna
hefði hann ugglaust lagt hana á tiuna.
Þú tekur því á laufás og uppskerð laun
þín þegar drottningin kemur.
Ef þér tekst að fá fjóra slagi á hjarta
er sögnin í húsi. En hvor mótherjinn á
drottninguna? Vestur spilaði ekki
hjarta, svo þú ályktar að hann eigi
drottninguna. Spilar gosanum, sem
ekki er samkvæmt bókinni en það
heppnast að þessu sinni. ítalarnir i
áhorfendasalnum fagna ákaflega — og
þú færð tíu slagi í spilinu. Fékkst
slaginn á hjartagosa þegar vestur lagði
ekki á. Fimmta laufið verður slagur.
Þú vinnur tiu stig á spilinu því á hinu
borðinu spila Bandaríkjamennirnir
stubb í brandi.
Það gengur vel í flestum öðrum
spilum. Þú gengur ti! reykmettaða
sýningarsalarins og veizt að þú hefur
spilað þinn bezta leik um ævina. Ef
sveitarfélagar þínir hafa gert það
sæmilega gott gæti sigur hafa unnizt á
móti öllum líkum.
En sveitarfélagar þínir hafa ekki
staðið sig nógu vel. Þú hefur unnið 50
stig á en misst af heimsmeistaratitlinum
á einum litlum fimm impum. Þú ert
italskur — og þú grætur.”
(Lausleg endursögn á grein Alan
Truscott úr The New York Times).
Frá Bridgefólagi Kópavogs
Sl. fimmtudag lauk 4 kvölda
hraðsveitakeppni hjá Bridgefélagi
Kópavogs. Spilað var i 2 sjö sveita
riðlum. Bezta árangri kvöldsins náðu
þessar sveitir:
A-riflill siig
Bjami Pétursson 567
Jón Andrésson 558
Guðbrandur Sigurbergsson 552
B-riðill stig
Grímur Thorarensen 597
Guðjón Sigurðsson 562
Jörundur Þórðarson 556
Úrslit keppninnar urðu þau að sveit
Jóns Andréssonar (npc) varð sigur-
vegari. í sveitinni spiluðu Guðmundur
Þórðarson, Valdimar Þórðarson,
Haukur Hannesson og Þorvaldur
Þórðarson.
Röð efstu sveita varð:
1. Jón Andrésson Stig 2363
2. Bjarni Pétursson 2272
3. Ármann J. Lárusson 2265
4. Guðbrandur Sigurbergsson 2262
5. Sigurður Sigurjónsson 2235
Barðstrendingafélagið í Reykjavík
Fyrir síðustu umferðina í
hraðsveitakeppninni er sveita þessi: árangur efstu
Sveit stig
1. Ragnars Þorsteinssonar 2323
2. Sigurðar Krístjánssonar 2303
3. Sigurbjöms Ármannssonar 2226
4. Sigurðar ísakssonar 2187
5. Krístjáns Krístjánssonar 2145
Aðalsveitakeppnin hefst mánudag-
inn 10. des. og verða spilaðir tveir 16
spila leikir á kvöldi. Ákveðið er að spila
meira út á við í vetur en gert hefur verið
undanfarin ár, m.a. er ákveðið að spila
við Patreksfirðinga í vor. Tilkynna skal
þátttöku í sveitakeppninni til Ragnars
(simi 41806) eða Sigurðar (sími 81904) í
síðasta lagi föstudaginn 7. des.
Bridgedeild
Breiðfirðinga
Úrslit í Butler-tvímenningskeppni,
félagsins.
1. GbH Vighmdsson, Þórarinn Áraason 482
2. Eggert Benónýsson, Hans Nieisen 469
3. Jón Steíánsson, Ólafur Gisiason 450
4. HaUdór Helgason, Sveinn Helgason 440
5. Kristin Þóróardóttir, Jón Pálsson 438
6. Magnás Oddsson, Þorsteinn Laufdal 435
7. G uöbjörn H elgason, J ósep Sigurósson 430
8. Ása J óhannsdóttir, Sigríóur Pálsd. 426
9. Bjarni Bjarnason, Hreinn Hjartarson 426
10. G uólaugur Karlsson, óskar Þráinsson 425
Næsta keppni er sveitakeppni, sem
hefst á fimmtudag. Spilaðir verða tveir
sextán spila leikir á kvöldi.
Orðiðer
laust
Útvarp:
TVEIR EINÞATTUNGAR
oftir Jón Don.
1. Slggi og foflur hano
LoHcolJóri: Stoindór HlörioHoson
z. Logl og braoóur hans
Loltstjóri: Þorstoinn Gunnarsson.
Af blá-upphafinu á fyrra leikriti
Jóns Dans á fimmtudagskvöld, svo
sem tveimur fyrstu senunum,
samtali kennara og nemanda,
kennara og skólastjóra, var torvelt
að ætla að taka ætti leikinn á
orðinu sem raunhæfa lýsingu á
samskiptum fólks í skóla. Si-svona
talar áreiðanlega ekki nokkur lif-
andi maður í neinum skóla né
nokkrum öðrum stöðum í bænum.
Nema þá í bókum. Og ekki voru
þeir atburðir og orðræður líkinda-
legri sem síðan tóku að ske. En
skollann var Jón Dan þá að fara?
Um laungetnaði
Það kom á daginn að efnið var
þesslegt að það þyrfti raunsæislegr-
ar úrlausnar við. Leikurinn sagði
frá samskiptum skóladrengs og
kennara hans sem frá byrjun ber
upp á sker, drengurinn fyllist andúð
og þvermóðsku og reynir eftir
megni að taka kennara sinn á
tauginni eins og sagt er. Og þessu
lýkur með því að kennarinn
hrökklast burt úr skólanum, eða
það lætur hann sjálfur í veðri vaka.
Það skrýtna var í þessu dæmi að
hér er ekki um barn að ræða heldur
hálffullorðinn mann, 19áragamlan
og á síðasta ári í menntaskóla, þótt
allt hátterni og viðbrögð hans
(nema auðvitað orðfærið) sé
þesslegt að hann væri í rauninni svo
sem tíu árum yngri.
Fyrr en varði kom á daginn
hverju allt þetta sætti: drengurinn í
leiknum var reyndar laungetinn
sonur kennarans, og það sem fyrir
honum vakti var að hefna á föður
sínum sviksemi við sina sáluðu
móður. Það var að skilja að hún
hefði látist með heiftarorð á
vörunum um barnsföður sinn
gamla eftir fimmtán ára hjúskap
með öðrum manni. Um ívar
þennan pípulagningamann sem
gekk Sigga litla í föðurstað og vissi
víst ekki betur en hann ætti
strákinn sjálfur fengum við, því
miður, fátt að vita í leiknum.
Enginn spurði hvað honum þætti.
Aftur á móti var að sjá að ærleg
viðbrögð kennarans er vék á burt
úr skólanum til að sonur hans gæti
lokið námi sínu, hafi læknað strák
af haturshugunum, sem móðir hans
lét honum í arf. Hann byrjaði sem
sé háskólanám nú í haust. Og
innritaði sig í íslensk fræði. Eins og
pabbi!
Um fóstur-
eyðingar
Hvað sem öðru líður mátti af
leikriti þessu ráða þá almennu
skoðun, sem sjálfsagt er rétt, að
óhreinskilni um faðerni óskil-
getinna barna sé stórlega varhuga-
verð og geti síðar meir haft afdrifa-
ríkar afleiðingar fyrir alla þá sem
hlut eiga að slíku máli. Seinna leik-
ritið virtist mér að héldi á loft
annarri skynsamlegri skoðun: að
óhreinskilni og pukur um kynlíf og
kynferðismál geti haft skaðvænleg
áhrif á sálarlíf ungra barna, ef illa
tekst til.
Leikritið um Loga og bræður
hans var að því leyti hönduglegar
samið en hið fyrra að fram eftir öll-
um leik var viðhaldið forvitni
áheyranda um framvindu efnisins,
heimilisböl fjölskyldunnar sem lýst
er í leiknum. Logi litli, 11 ára
gamall, vaknar upp af martröð á
hverri nóttu, skelfingu lostinn og
viti sinu fjær. Hvernig skyldi
standa á því? Ekki nema von að
foreldrar hans séu áhyggjufull út af
heilsu drengins, ekki síst móðir
hans, 42ja ára gömul, útivinnandi
húsfreyja, nýlega orðin skrifstofu-
stjóri í stóru fyrirtæki. Og það kom
eitthvað fyrir hana nýskeð sem
gekk ansi nærri henni. Enda sækir
nú sektarkennd að konunni. Er hún
ekki að bregðast barninu sinu með
allri þessari vinnu og fjarvistum frá
honum? Er ekki bara best að hætta
að vinna? En ef það skyldi nú vera
of seint, hvað þá.
Það var nú um síðir upplýst skil-
merkilega hvemig í öllu þessu lá.
Móðir Loga litla hafði sem sé ekki
Jón Dan.
alls fyrir löngu gengist undir fóstur-
eyðingu, treysti sér ekki til að ala
barn á ný vegna aldurs síns, atvinnu
og heimilishaga. Aðgerðinni var að
vísu haldið vendilega leyndri bæði
fyrir Loga og stóra bróður hans,
Stefáni, sem orðinn er 18 ára og
kominn til sjós. En ótuktar-
strákurinn Stjáni frændi þeirra,
sem alltaf er að klæmast við Loga,
komst samt að öllu saman. Og
auðvitað kjaftaði hann frá! Síðan
dreymir Loga á hverri nóttu að
móðir hans standi galvösk við rúm-
stokkinn og ætli að rífa hann í
tætlur, hvorki meira né minna. Er
nú nema von að konubeinið
skammist sín, yfirkomin af hugar-
angri og örvæntingu út af því sem
hún hefur gert? Enda er henni, þeg-
ar hér er komið sögu snarlega
vippað út úr leikritinu, og karl-
mennirnir á bænum leysa vandann
sín á milli.
Eða réttar sagt leysir Stefán stóri
bróðir vandann. Fyrst huggar hann
Loga. Svo tekur hann karl föður
sinn til bæna og les honum
óþveginn pistilinn fyrir að fórna
nýgetnu lífi fyrir lífsþægindi sín,
sólarlandaferðir og nýlegan Volvo.
Var það kannski tóm slysni að við
bræður urðum til, af því ekki tókst
að eyða okkur í tíma? spyr hann
með þjósti og verður fátt um svör.
Sjálfur ætlar Stefán að vera kyrr í
landi, því að hjá honum er Logi litli
öruggur um sinn hag. Enda ætlar
stóri bróðir við fyrstu hentugleika
að finna sér góða og hrausta stúlku
og geta við henni fullt hús af
börnum.
Enginn spurði að vísu hvernig
konuefninu litist á þessa ráðagerð.
Enda er Stefán, satt að segja, enn
ekki búinn að hafa upp á stúlkunni.
Enorðiðerlaust.
Leiklist
ÓL/tFUR
JÓNoRON