Dagblaðið - 12.12.1979, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 12.12.1979, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1979. Lifi lýðræði og f relsi Njáll Gunnarsson, 2. stýrimaður m/s Bakkafossi skrífar: Föstudaginn 23. nóvember silaðist Bakkafoss upp að bryggjunni í Portsmouth, USA. Fljótlega komu einkennisklæddir útverðir frelsisins um borð, svo sem venja er, mennirnir, sem gæta skulu þess að persónur, hættulegar frelsi og lýðræði, komist ekki inn í frelsis- álfuna. Þessir menn koma ekki tómhentir. Þeir bera meðal annars með sér skipshafnarskrá viðkomandi skips, sem farið hefir um hendur starfsmanna bandaríska sendiráðsins í Reykjavík. Skipshafnarskráin hafði sloppið gegnum þann hreinsunareld með einni undantekningu: Við nafn mitt hafði verið sett tákn, sem „tyggi- gúmmihetjan” réð svo; „He has had some trouble with the immigradon”, þ.e. hann hefir átt í útistöðum við útlendingaeftirlitið. Það lá við að hrollur færi um mig. I tæpt ár hafði ég siglt á USA og valsað þar um að eigin geðþótta. Voru varðmenn frelsis og lýðræðis ekki betur vakandi á verðinum en svo að skröksögu heiman úr Reykjavík þyrfti til að koma i veg fyrir að hinn hættulegi maður træði guðseigin- þjóðarland fótum? Skröksögu, því hvorki ég né þeir, sem með mér hafa siglt, kannast við þessar útistöður mínar við útlendingaeftirlit banda- ríska rikisins. En einu gildir: ef framtak þess „íslendings”, sem komið hefir sögunni á framfæri við bandaríska ‘sendiráðið, má verða til þess að ‘lýðræði og frelsi standi fastari fótum í heiminum, þá ervel. Og nú skyldi tekið fast í taum. „The second mate” skyldi geymdur sem fangi um borð i skipi sinu á meðan það væri í bandarískri höfn. Af sinu alkunna örlæti bauð „Sam frændi” lögregluvörslu, sem var þó afþökkuð af skipstjóra, sem að sjálfsögðu vildi ekki níðast á banda rískri gestrisni. Skipstjóra var þá tjáð, að hann bæri ábyrgð á að fanginn stigi ekki á land og skyldi hann sæta að minnsta kosti 10.000 dala sekt, ef út af brygði. Trúlegt er, að ýmsum lýðræðis- sinnum hafi þótt ógætilega að farið að fela önnum köfnum skipstjóra vörslu manns, sem vafalaust er út- farinn í djöfullegum vélabrögðum lýðræðisandstæðinga, þótt ekki hlytist slys afí þetta sinn. , Að líkindum munum við Bakka- foss fljótlega halda í vestur á ný, til landsins „þar sannleikur ríkir og jöfnuður býr”. Vonandi verður þó séð svo um, að frelsinu í heiminum stafí ekki hætta af. Lifilýðræði ogfrelsi. N / Spurning dagsins Hvaða bók er eigulegust af jóla- bókunum? Bjarni Þór BJörgvlnsson: Leyndar- dómur Snæfellsjökuls. Elin Andrésdótlir: Ég hef lítið hugsað um það. Ég gef bækur í jólagjöf og fínnst þær nokkuð dýrar. Hannes Pétursson Þórarinn Eldjám KVÆÐAFYLGSNI ERINDI Stefán Hörður Grímsson LJÓÐ Gunnar Gunnarsson GÁTAN LEYST í þessari bók fjallar Hannes Péturs- son um líf og list Jónasar Hallgrínis- sonar. Bókin er reist á vandlegri könnun heimilda og snilldarvel rituð. „Lestur bókarinnar er skemmtun og hátíð sem heldur áfram allt kvöldið og alla nóttina...“ (J.S./Tíminn). „Utkoma Kvæða- fylgsna er mikill bókmenntalegur viðburður." Q.Þ.Þ./Timinn). „Eins og vænta mátti er öll bók Hannesar hin læsilegasta enda skrifar þar skáld af umhyggju og ástúð um annað skáld.“ (H.P./Helgarpóstur- inn). MÁNASELFUR Gils Guðmundsson valdi efnið Hér er að ftnna úrvalskafla úr íslenskum endurminningum og sjálfsævisögum og er fyrirhugað að safnið verði í nokkrum bindum. I bókinni eru fjölbreytilegar frá- sagnir efitir fólk úr ýmsum stéttum, allt frá séra Jóni Steingrímssyni til núlifandi manna. Bráðskemmtileg bók og fróðlegt sýnishom íslenskrar frásagnarlistar. Jón Espólín og Einar Bjamason SAGAFRÁ SKAGFIRÐINGUM IV. bindi Með þessu bindi lýkur útgáfú hins stórmerka heimildarrits um tíðindi, menn og aldarhátt í Skagafirði „. . . ýmis erindi, bundin í erindi, öll brýn. Ég geng þeirra hér í kverinu og á þau við lesarann." - Þessi orð lætur Þórarinn Eldjám fylgja hinni nýju kvæðabók sinni. Þórarinn á stærri lesendahóp en flest önnur samtímaljóðskáld. Sá hópur verður ekki fyrir vonbrigðum með þennan beitta og skemmtilega kveð- skap. Thor Vilhjálmsson TURNLEIKHÚSIÐ Ný skáldsaga eftirThorVilhjálms- son, einn leiknasta piósahöfúnd vor á meðal. Lesandinn er leiddur að tjaldabaki í leikhúsi áður en sýning hefst. Við erum stödd í kyniegum heimi þar sem mörk draums og vöku em numin burt. Þetta er sýnishom af stílgaldri höfundar sem vafalaust þolir samanburð við hina fremstu meðal evtópskrar samtíðar sinnar. Haraldur Jóhannsson PÉTUR G. GUÐMUNDSSON og upphaf samtaka alþýðu Þessi bók fjallar um einn stofhenda Dagsbrúnar og helsta forustu- mann í verkalýðsbaráttu á upphafs- skeiði hennar. Markvert framíag til verkalýðssögu á Islandi. Þetta er heildarútgáfa á ljóðum Stefáns Harðar, eins sérkennilegasta og listfengasta skálds samtiðarinnar. Hér er hin torgæta fyrsta bók skáldsins, GLUGGINN SNÝR í NORÐUR, einnig SVARTÁLFA- DANS og HLIÐIN Á SLÉTT- UNNI. Bókin er prýdd myndum eftir Hring Jóhannesson og til útgáfúnnar vandað eftir fongum. „. . . ber vott um stolt og virðingu fyrir ljóðmu.“ (H.P. /Helgarpósturinn). Egill Egilsson SVEENDÓMUR Saga úr Reykjavík, lýsir lífi drengs á unglingsaldri, heima og í skóla. Hver em þau uppeldis- og þroska- skilyrði sem samfélagið býr honum? Áleitin og ögrandi bók, rauntrú lýsing á umhverfi okkar sem ekki verður vísað á bug. Tímabært innlegg til umræðna um kjör bama í samfélaginu. Ólafur Jónsson LÍKALIF Úrval blaðagreina Ólafs Jónssonar um samtímabókmenntir frá árunum 1963-79. Athyglisverð heimild um viðbrögð við nýjum bókmenntum: í þeim er LÍKA LÍF. Bók fyrir áhugasama lesendur. Þetta er fyrsta bókin í flokki sagna um rannsóknarlögreglumanninn Margeir. Nýjung á íslenskum bóka- markaði. GATAN LEYST er spennandi saga sem gerist í Reykja- vík og á Akureyri og leikurinn berst til Spánar. Umhverfið allt kunnug- legt og greint frá atvikum sem standa okkur nærri. Auður Haralds HVUNNDAGSHETJAN Þrjár öruggar aðferðir til að eignast óskilgetin böm Óvenjuleg reynslusaga, opinská og hispurslaus enda hefur hún þegar sætt miklum tiðindum: „.. . allmM nýlunda í íslenskum bókmenntum.. m.a. um rétt konunnar til að lifa óþvinguðu kynlífi... Auður Haralds er ágætlega ritfær höfúndur.“ (H.P./ Helgarpósturinn). „Ég spái að bók þessi veki verðskuldaða athygli." (E.J./Mbl.) Bræðraborgarstíg 16 Sími 12923 og 19156 Anna Hreindal Gunnarsdóttir: Dular- fullu bækurnar. Sólveig Þorvaldsdóttlr: Ég hef ekki mikinn áhuga á bókum og hugsa helzt ekki um aörar bækur en námsbækurn- ar núna í prófunum. Iðunn Gelrdal: Undir kalstjörnu eftir Sigurð A. Magnússon. Hann var farar- stjóri hóps sem ég var í í Grikklandi í sumar og stóð sig frábærlega vel. Erla Guðjónsdóttir: Einhver góö þjóð- sagnabók.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.