Dagblaðið - 12.12.1979, Blaðsíða 27

Dagblaðið - 12.12.1979, Blaðsíða 27
27 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1979. <§ Útvarp Sjónvarp D ÆVIUGABUES - sjónvarp kl. 2125: ANTONIO FLYTIIR TILÞORPSINS Antonio Ligabue að störfum I fyrsta þætti myndaflokksins. Hann hljóp þó frá öllu saman þegar vinnufélagar hans höfðu hann að skotspæni. „Það sem gerist í þessum þætti er aðallega það að Ligabue flytur til þorpsins. Það er kunnur listmálari sem uppgötvar hæfileika hans og hann býður honum aö koma og búa hjá sér, að vfsu í gróðurhúsinu,” sagði Þuriður Magnúsdóttir, þýðandi ítölsku myndarinnar Ævi Ligabues. Það er annar þáttur af þremur sem sýndur verður í kvöld. „Samskipti Ligabues viö annað fólk reynast honum erfið. Hann langar til að eiga hlutdeild í því sem fólk er að gera en tekst það ekki. Það 'fer þvi þannig að Iokum að hann brotnar niður andlega,” sagði Þuríður. Myndin er á dagskrá í kvöld kl. 21.25 og er hún klukkustundar löng. - ELA Nú Bf Jóimgmtraun DB mrntrm an hUtnuö. Bsm/O sam þama ar að hálmhöggvm btúöumar sínarvílmð/aUdfyrlr*iradh*lahöggvmmigMfonurMktarþ0gmrhmnnvarO*tór. StriMðundbréttaswKKIdlpplðmyndhiaútoggaymÍðmaöþahnthnmaamþagarhafa bkxt / bhtðhtu. Þagar du gátur aru komnar akukrð þlð aanda þmr aðar I atnu tM DB. Draglð verður úr réttum lausnum sam barast fyrir 21. dasambar og sá aða sú sam vhtnur fmr myntlsagudhmnelstsald sam ar nssatum mðfón króna vhðí Og nú ar spumktgkt: Hvar ar grimmdarsaggurinn? a) Neró b) Jörundur hundadagakonungur c) Hinrik 8. MORGUNSTUNÐ BARNANNA —útvarp kl. 9.05 í fyrramálið: Margrét Helga Jóhannsdóttir leikkona byrjar lestur á sögunni Á jólaföstu eftir Þórunni Elfu Magnúsdóttur f fyrramálið f Morgunstund barnanna. DB-mynd Jim Smart. Jólaundirbúningur fyrir tuttugu áram „Sagan Á jólaföstu er eins konar heimid um hvað gerðist á þessu tíma- bili á heimili í Reykjavík fyrir rúmum tuttugu árum,” sagði Þórunn Elfa Magnúsdóttir, höfundur sögunnar Á jólaföstu sem Margrét Helga Jóhannsdóttiur byrjar að lesa i Morgunstund barnanna í fyrramálið. „Margt skemmtilegt skeði,” sagði Þórunn Elfa ennfremur. „Jólaundir- búningurinn var mikill og mamma var til staðar með frásagnir sínar og upprifjun á jólaljóðum frá ýmsum tímum.” Þórunn Elfa hefur skrifarð fjórar bækur fyrir börn og unglinga og hefur mikið af hennar efni verið flutt í barnatímum útvarpsins. Auk þess hefur Þórunn Elfa samið um tuttugu bækur, skáldsögur, smásögur og ljóð. Síðasta bók hennar, Vorið hlær, er að koma út núna. Það er skáldsaga um alþingishátíöarvorið 1930, viðhafnarútgáfa. -ELA

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.