Dagblaðið - 03.01.1980, Síða 4

Dagblaðið - 03.01.1980, Síða 4
4 A DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1980. DB á ne ytendamarkaði Fasteignagjald þegar húsið erorðið fokhelt — sömu reglur um allt land, en vatnsskattur getur verið mismunandi hár 11úsmöAir og vinkona okkar á Siglu- l'irði skrifar: „Þá sendi ég þér annan seðilinn. Þakka þér fyrir birtinguna á bréfinu um hitaveituna. Það var fróðlegt að sjá livað hún er ódýr hjá ykkur! Mig langar til þess að spyrja hvort greiða eigi fasleignagjald, ef húsið er í byggingu og ekki flutl í það. Viltu athuga það fyrir mig. Sjálfsagt er það öðru vísi fyrir sunnan en á Siglufirði. Vatnsskattur-. inn er hér t.d. 0,25% af fasteigninni og lóðinni. Matarreikningurinn minn var anzi hár. Ég keypti kjötskrokk á 20 þús- und og sekk af hveiti og sykri og bök- unarvörur á 30 þúsund (var með rúm- lega43 þús. á mann að meðalt.). Við borðum feiknalega mikið af osti, eiginjega ekkert annaðálegg. Ég kaupi alltaf hálfan ost í einu. Ég fór með nærri 18 þúsund kr. í ost í mánuðinum. En ég er ein af þeim, sem þarf aldrei að kaupa fisk, fæ hann gefins frá föður mínum á haustin. Þá geri ég að honum og frysti.” Sömu fasteignaskattar alls staöar Hjá Guttormi Sigurbjörnssyni hjá Fasteignamati ríkisins fengum við þær upplýsingar að samkvæmt reglu- gerð frá 1978 fer hús fyrst í mat þegar það er fokhelt. Þá fer húsið á fast- eignaskrá. Fasteignagjöld ber að greiða af öllum húsum, sem eru á fasleignaskrá l.janúarsl. Það má því segja að greiða eigi fasteignaskatt af húsi sem er fokhelt, — þ.e. eftir I. janúar. Gilda sömu reglur um allt land, einnig á Siglu- firði. Sömu reglur gilda um fasteignagjöld hvar sem er á landinu. Hins vegar gilda aðrar reglur um vatnsskatt, en hann er lagður á sam- kvæmt reglugerðum hvers sveitar- félags fyrir sig og getur þvi verið mis- munandi i hinum ýmsu sveitarfélög- um. - A.Bj. ELDHÚSKRÓKURINIM 19 Rúmlega 30 þúsund þótt ekki þyrfti að kaupa kjöt eða fisk Hlutun og hagnýt- ing á lambakjöti Vinkona okkar á Húsavík skrifar: ,,Þá er nú nóvemberseðillinn tilbú- inn. Mér finnst hann nú nokkuð hár, þar sem ekki var keypt kjöt, fiskur, kartöflur né kaffi og mjög lítið af hreinlætisvörum, þar sem þær voru fiestar til. Það sem keypt var, var aðallega mjólk og mjólkurvörur, ávextir og brauð. Ég er hrædd um að upphæðin verði há þar sem þarf að kaupa allt — ef það er þá allt skrifað niður. Kær kveðja, G.S.” G.S. var með rúmlega 30 þúsund kr. í meðaltal á mann en hún er með fjögurra manna fjölskyldu. Það er rélt athugað hjá G.S. að upphæðin hlýlur að vera geigvænlega há hjá þeim sem þurfa allt að kaupa jafn- óðum og hafa marga munna að melta. l.ambakjöl er til dæmis nýlt á eflirl'arandi hált: Lambshöfuð eru oftast notuð i sultu eða soðin svið. Ilálsinn cr soðinn nýr, saltaður, notaður i smásteikur, úrbeinaður og steiktur i heilu lagi. Framhryggur er skorinn í kólelettur, heilsteiklur eða saltaður. Afturhryggiir er hciIsteiklur, satlaður eða hogginn i ýntsar pönnusteikur, t.d. kótelettur.: Kúgur cr úrbeinaður og steiktur hcill, nolaður i smásteikur eða soðinn nýr eða saltaður. Bringa og siöa eru notuð í smásleikur, soðnar nýjar eða saltaðar. I.æri er soðið eða steikt í lieilu lagi. Innanlærisvöðvinn er notaður í sneiðar. Slögin l'ara i rúllu- pylsu eða aðra vinnslu. I.ambs- skrokktirinn er oft sallaður eða reyktur i hangikjöt. Næsl liggttr leiðin um hagnýtingu ásvínakjöti. Eyðir mun minna ef allt er skrifað niður G.H.Þ. á Akureyri skrifar: ,,Ég sendi hér með minn fyrsta seðil. Ég hef haldið saman því sem ég hef eytt i matarinnkaup öll mín bú- skaparár, sem orðin eru tíu. Liðurinn „annað” er ekki alveg á hreinu, en verður vonandi um ára- mótin og ég held áreiðanlega áfram að scnda inn seðil. í nóvember var ég með eyðslu upp á It.9.045 kr. og þar sem við erum fjögur gerir það 27.261 kr. á mann að meðaltali. Það er heldur hærra en vanalega, því ég var búin að kaupa í allan jólabaksturinn og baka mikið fyrirjólin. Vonandi verður neytendasíðan áfram á sínum stað. Hún er alveg frá- bær. Margt mjög nytsamlegt og gaman að bera sig saman við aðra og reyna að vera lægst. Mér finnst ég eyða mun minna er ég skrifa hjá mér í hvað peningarnir j fara. Takk fyrir hjálpina og allar góðu uppskriftirnar.” Við bjóðum G.H.Þ. á Akureyri velkomna í hóp þeirra sem eru það sem við köllum „fastir viðskipta- vinir” okkar. Því miður vill það stundum brenna við að fólk sendir seðlana dálítið stopult, aðeins einn og einn mánuð. En hafið hugfast að eftir því sem seðlarnir eru fleiri því meira er að marka meðaltalið sem við . reiknúm út. Meðaltalið hjá þessari Akureyrar- fjölskyldu var svo sannarlega í lægri kantinum á þeim seðlum sem bárust fyrir nóvember. Það er gott til þess að vita að einhverjum tekst að spara við sig i þessu neyzluþjóðfélagi sem viðlifumí. Við þökkum gullhamrana og góðar óskir. - A.Bj. Raddir neytenda Upplýsingaseðill til samanburðar á heimiliskostnaði Nafn áskrifanda Heimili Sími Hvaö kostar heimilishaldið? Vinsamlega sendið okkur þennan svarseði). Þannig eruð þér orðinn virkur þátttakandi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið þér von i að fá fria mánaðarúttekt fyrir fjölskyldu yðar. Kostnaður í desembermánuði 1979. Matur og hreinlpetisvörur kr. Annaö kr. Alls kr. m YIKIX Fjöldi heimilisfólks

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.