Dagblaðið - 03.01.1980, Blaðsíða 24
óupplýst
Póslræninginn í Sandgerði er
ófundinn. Rannsóknarlögregla ríkisins
og rannsóknarlögreglan i Keflavik
vinna af kappi að rannsókn málsins.
Eins og fram kom í DB í gær var pósl-
meistarinn, Unnur Þorsteinsdóttir,
sleginn niður og komst ræninginn
undan með um 400 þúsund krónur.
Meira var af peningum í peningaskáp
og einnig ávisanir, en það lét ræninginn
kyrrt liggja.
Póstmeistarinn gat aðeins gefið tak-
markaða lýsingu á ræningjanum, en
einhverjir töldu sig hafa séð úlpu-
klæddan mann á ferli í Sandgerði í
gærmorgun. Sama pósthús var rænl í
janúar i fyrra oger það mál óupplýsl.
-JH.
17 millj. á 366
lukkudögum
— fyrstu númerín birt
7. janúar
Lukkudagar ^nefnist nýslárlegl
happdrætti, sem Knattspyrnufélagið
Víkingur efnir til í ár — og verður
dregið daglega út allt árið. Eru
vinningarnir 366 og samanlagt andvirði
þeirra í ársbyrjun sautján milljón
krónur.
Vinningsnúmerin verða birl daglega
í Dagblaðinu einu blaða. Fyrstu sjö
númerin verða birt á mánudaginn
kemur, 7. janúar, en siðan verða þau
birt daglega þar til 3 I. desember 1980.
Póstránið
irjálst, úháð dagblað
FIMMTUDAGUR3. JAN. 1980.
Dtííi
gangur
hjá Geir
— hefur ekki rætt við
Steingrím og Lúðvík
síðan fyrír helgi
„Geir er að reyna að gera mikið úr
þessu með því að gera þetta dular-
fullt,” sagði einn stjórnmálaforinginn í
morgun. Menn voru sammála um, að
tilraunir Geirs Hallgrimssonar til
stjórnarmyndunar væru mjög ,,i lausu
lofti”.
„Geir hefur ekki rælt við mig síðan á
föstudag. Það er tæp vika,” sagði
Steingrimur Hermannsson, formaður
Framsóknarflokksins, í viðtali við DB i
morgun. Ekki náðist í Lúðvík Jóseps-
son, formann Alþýðubandalagsins, en
að sögn Ólafs Ragnars Grímssonar
alþingismanns vissi hann ekki til að
Geir hefði rælt við Lúðvík síðan á
laugardag.
Hins vegar sagði Benedikt Gröndal
forsætisráðherra og formaður Alþýðu-
flokksins í morgun að Geir hefði hafl
simasamband við sig í gær.
Geir Hallgrimsson hefur látið að þvi
liggja að hann sé að kanna möguleika á
þjóðstjórn allra flokka. Lítill gangur er
þó á þeim viðræðum og menn vonlitlir
um að samkomulag verði um þjóð-
stjórn. Nánasl ekkert hefur verið rætl
hvaða málefnagrundvöllur gæti orðið
fyrir slíka stjórn. -HH.
Framarar rufu í gær langtíma einokun Valsmanna i innanhússknattspymumótum er Marteinn Geirsson, fyrirliði liðsins, tekur hér við verðlaununum Ur nenat utjars
þeir sigruðu strákana frá Hllðarenda 9—41 úrslitum Reykjavikurmótsins Igœrk völd. Þórðarsonar, formanns íþróttabandalags Reykjavlkur.
Framarar voru tvlmælalaust með jafnhezta liðið og voru vel að sigrinum komnir. DB-mynd: Ragnar Th.
Rannsókn
þingsins á
Flugleiðum:
Olafur Ragnar endur-
flytur tillögu sína
„Ég hefi ákveðið að fiytja aftur
tillögu til þingsályktunar um
rannsóknarnefnd þingmanna tii að
kanna rekstur, fjárfestingar og far-
og farmgjaldaákvarðanir Flugleiða
hf. þegar þing kemur saman á ný,”
sagði Ólafur Ragnar Grimsson
alþingismaður i samtali við DB í
morgun.
í framsöguræðu um þcssa tillögu
á Alþingi 7. desember 1978 ræddi
Ólafur Ragnar um hið gífurlega
verölagsstríð i flugrekstri og stöðu
Flugleiða hf. í því.
„Ef Flugleiðir tapa þeim leik á
næstu árum, drekkir það tap ekki
aðeins fjárfestingum félagsins i
tengslum við þennan samkeppnis-
markað, heldur einnig öllum
öðruni eignum félagsins," sagði
Ólafur Ragnar. ‘
Hann sagði enn frentur: „Allt
fiugkerfi landsins kynni að brenna í
því báli. Það er ntikil áhætta fyrir
íslenzka þjóð og stjórnvöld að láta
eins og sá möguleiki sé ekki til, að
Flugleiðir hf. biði ósigur i
verðstriðinu á Allantshafsleiðinni.”
í ræðu sinni taldi þingmaðurinn
ekki fráleitt, að undir slikum
kringumstæðum myndu eigendur
Flugleiða hf. vegna ciginhagsmuna
freista þess að flytja áherzluþungann
til alþjóðlegra fyrirtækja. Nefndi
hann í þvi sambandi Cargolux, Air
Bahama og Hekla Holdings og ef til
vill til annarra fyrirtækja.
-BS.
Ágæt frammistaða íslenzkra skákmanna erlendis:
Margeir efstur í Prag
og Haukur í Stokkhólmi
Margeir Pétursson er í hópi efstu
manna að loknum 4 umferðum á
alþjóðlega skákmótinu i Prag.
Margeir hefur hlotið 2,5 vinninga.
Hann gerði í gær jafntefli við Jón L.
Árnason sem hefur hlotið 1,5
vinning.
Haukur Angantýsson er. í efsta
sæti A Riltón Cup mótinu í Stokk-
hólmi. Hann hefur 5,5 vinninga að
loknum 7 umferðum og á auk þess
jafnteflislega biðskák.
Jóhann Hjartarson, sem teflir á
Evrópumeistaramóti unglinga í Holl-
andi, vann í gær skák sína gegn Pól-
verjanum Ratinivski og hefur hann
sótt sig mjög eftir heldur slaka
byrjun. Jóhann hefur 6,5 vinninga að
loknum 12 umferðum. Síðasta um-
ferð mótsins verður tefid á morgun.
Páll Þórhallsson hafði hlotið 4
vinninga eftir 8 umferðir á opna
unglingamótinu í Skien er einni
umferð var ólokið. DB tókst ekki að
ná sambandi við hann í morgun til að'
spyrjast fyrir um úrslit siðustu skák-
arinnar.
Elvar Guðmundsson vann í gær
Haraldsson frá Svíþjóð á unglinga-
mótinu í Hallsberg í Svíþjóð og hefur
hann hlotið 4 vinninga af 7 mögu-
legum. Elvar sagði í samtali við DB í
morgun.að hann væri ekki alls kostar
ánægður með frammistöðu sína á
mótinu þó þetta væri vissulega mjög
sterkt mót. Skotinn MacNab er lang-
efstur með 6,5 vinninga.
-GAJ.
Björgunarsveit Mosfellinga kaupir vélsleða:
Herínn borgar þriðjung
a við björgunarsveitina
— fyrir sleöa sem keyptur er til skemmtunar á Vellinum
„Sleðinn kostar okkur 3,3
milljónir króna. Þar af er innkaups-
verð hans 1,3 og er það sú upphæð
sem hann kostar Ameríkana á
Vellinum. Þeir borga þvi aðeins um
þriðjung þess sem við borgum,”
sagði Erlingur Ólafsson, formaður
björgunarsveitarinnar Kyndils í Mos-
fellssveit.
Sveitin hefur átl óútleystan í tolli
vélsleða til björgunarstarfa og vinnur
nú að þvi hörðum höndum að safna
fyrir andvirði hans. Sleðinn hefði
komið i ákaflega góðar þarfir ef hann
hefði verið kominn í gagnið er hin
sögufrægu flugslys urðu á
Mosfellsheiði á dögunum. Með
sleðanum fylgir yfirbyggður pallur
sem hægl er að draga sjúklinga í. Fer
þá mun betur um þá en i sjúkra-
bílum, sem hossast þurfa á mis-
jöfnum vegum í snjó svo ekki sé lalað
um hversu miklu fijótari vélsleðinn er
í förum en bílar þegar snjórinn er eins
mikill og hann var á heiðinni á
dögunum.
Kyndill hyggst fara fram á niður-
fellingu eða minnkun aðfiutnings-
gjalda en á sliku hafa björgunar-
sveitir oft fengið neitun áður. En i
gær, er Kyndilsmenn fóru á fund
innflytjenda sleðans í þeim tilgangi
að semja um greiðslur á honum, voru
þar staddir nokkrir Bandaríkjamenn
úr herliðinu á Keflavíkurflugvelli.
Þeir fengu þegjandi og hljóðalaust
niðurfellda alla tolla og flutnings-
gjöld af vélsleða sem þeir eru að
kaupa sér til skemmtunar, auk þess
sem þeir geta keypt á hann helmingi
ódýrara bensín en Kyndilsmenn eiga
kost á.
Tollur af vélsleðum var fyrir tveim
árum hækkaður úr 45% í 130%. -DS.
*