Dagblaðið - 23.02.1980, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 1980.
TVÖFELDNI í AFSTÖDU
TIL KANNABISMÁLA?
sektirnar koma sér vel fyrir ríkissjóð
íj.M. skrifar:
Það hefur í gegnum mannkynssög-
una hótt sjálfsagt að gagnrýna ungu
kynslóðina fyrir gerðir hennar ýmsar
og nú i dag eru uppi háværar raddir,
hérlendis og annars staðar, um hina
miklu skemmtanafýsn og spillingu
hinna yngri.
Gjarnan er spjótunum beint gegn
kannabisneyzlu og gengur ríkið þar
framarlega í flokki, stutt afar furðu-
legum aðgerðum lögreglu og dóms-
kerfis. Lögin banna alla meðhöndlun
og neyzlu kannabisefna, á sama tíma
og alkóhól er löglegt til neyzlu. Samt
eru nokkuð sterkar likur fyrir þvi að
alkóhól sé skaðmeira líkamlega, and-
lega og einnig félagslega. Aljrjóð veit
að ÁTVR er ekkert annað en lög-
bundin okurstofnun til stuðnings rík-
inú fjárhagslega og er þá litið fram
hjá margvíslegú böli er fylgir áfengis-
neyzlu.
Getur verið að ríkishítin sé svolítið
tvöföld í afstöðu sinni til kannabis-
mála og þyki kannski bara ágætt að
sem flestir neyti kannabisefna og
verði teknir af fikniefnadeild lögregl-
unnar og siðan dæmdir af fíkniefna-
dómstólnum? Já, það er hugsanlegt
að hinar fáránlega háu sektir sem
neytendur og grunaðir fá, komi sér
vel fyrir blankan ríkissjóð. Dæmi
þekkjast einnig þar sem fólk hefur
„Einnig verður að auka mjög fræðslu
legt böl enn,” skrifar G.M.
lent í erllðleikum á vinnustað, vegna
skyndilegrar handtöku í vinnu vegna
gruns unr meint fíkniefnamisferli.
eiturlyf sem vart eru orðin þjóðfélags-
Það er ekki gott i þjóðfélagi þar senr
réttar einstaklingsins skal gætt i hvi-
velna.
um
Ekki hvarflar að mér að halda
fram skaðleysi kannabisefna en eins
og vikið er að hér að framan, eru
líkur fyrir að alkóhól sé skaðmeira, í
það minnsta i likamlegum skilningi.
Sú varð niðurstaða dóms i Sviss nú
á dögunum, el'tir að rétturinn kvaddi
til þrjá sérfræðinga í þessum máluni.
Lögbrot er slænnir hlutur og ætti
enginn að stunda slikt. En þar sem
staðreyndin er sú, að verulega stór
hópur fólks kýs fremur að nota
kannabis en alkóhól, ætti þá ekki að
fyrirbyggja lögbrot nreð lagabreyt-
ingu? Einnig verður að auka mjög
fræðslu um eiturlyf (heróin, LSD,
englaryk o.fl.) sem eru vart orðin
þjóðfélagslegt böl enn, en gætu
mögulega átt auðveldara með að
skjóta rótum, ef ekki verður staðið
að þeirri fræðslu af heilum hug og
sanngirni.
Islendingar cru vel menntuð þjóð,
sem fylgist. vel með og vill og á
reyndar rétt á, áreiðanlegum og
kreddulausum upplýsingum um
l'ikni- og eiturlyfjamál, svo sem önn-
ur þjóðfélagsmál, sem el'st eru á
baugi hverju sinni.
Að lokum langar mig til að spyrja,
hvað fólki finnst um hinn gifurlega
hlutfallamun milli drukkinna annars
vegar og reyktra (stoned) hins vegar í
rol'beldi ýmiss konar, svo sem morð-
um og likamsmeiðingum.
Æskunni verði kynntir Passíusálmarnir
Kristín Jakobsdóttir hringdi:
Brýna nauðsyn ber til að kynna
Passíusálmana meðal skólafólks á
öllum aldri, sem yfirleitt er opið fyrir
öllu fögru og góðu.
Passíusálmarnir eru eilt af okkar
mestu bókmenntaafrekum og eru vel
þess virði að kynna þá i ræðu og riti á
föstuinngangi. Það er slælegt að sýna
þeim ekki meiri sóma en gert er.
ALls slags bókmenntum er haldið
að unga fólkinu, miður skemmti-
legum, um þessar mundir. Þessu
mætti að ósekju breyta, æskan er
stolt okkar lands.
Passíusálmunum er lítill sómi
sýndur í Ríkisútvarpinu
Útvarpshlustandi hringdi:
Ég vil aðeins koma því á framfæri
að mér finnst sem Ríkisútvarpið sýni
Passíusálmunum harla litla virðingu
með því að láta lesturinn yfirleitt ekki
hefjast á réttum tima. Þeim er hent til
eftir lengd liðanna á undan eða eftir,
þó þeir séu flestir þess eðlis að mínu
mati, að þeir ættu að víkja fyrir
Passiusálmunum. Þetta finnst mér
einnig virðingarleysi við Árna
Kristjánsson tónskáld, sem leggur sig
allan fram við að skila þessu merka
verki frá sér fallega og með viðeig-
andi virðingu.
Árni Kristjánsson tónskáld er nú
bráöum hálfnaöur með leslur Passiu-
sálmanna i ár.
sítna
27022
Augnaráðið
afhjúpar
Khomeinf
Húsmóðir hringdi:
Ég held, að allir þeir er sáu fyrrver-
andi íranskeisara í sjónvarpinu urn
daginn hafi séð að hann fór með rétt
mál.
Ekki þarf annað en bera saman
augnaráð keisarans og Khomeinis til
að sjá, hvor þeirra segir sannleikann.
Ef Khomeini er ekki glæpamaður þá
er það enginn. Það ætti að leiða hann
og alla hans klerka fyrir rétt vegna
þeirra fjöldamorða er þeir hafa látið
fremja.
Khomeini mætti gjarnan svara því
fyrir rétti, hve marga hann hefut; látið
drepa.
Dodge Aspen SE 4d . 1979
DodgeOmni.......1979
DodgeAspen......1977
Simca 1307 GLS 1978,
ekinn 26 þús. km, út-
varp, vetrardekk.
Rauður.
Simca Horizon GLS. . 1978
Simca 1508 GT . . . . 1978
Simca 1508 GT ... . 1977
Simca 1100 LE 5d . . 1977
Simca 1100 special. . 1974
Simca Tröll sendib.. . 1980
Dodgesportsman. . . 1977
Dodge 300 Van. ... 1977
Ford Econoline .... 1978
Lada 1600 . . 1979
Fíat 127 900 L 1978
Fíat 128 . . . 1977
Datsun 160 J 1977
Austin Allegro 1977
MBM Galant 1974
Volvo 244 DL 1976, ek-
inn 65 þús. km, útvarp.
segulband. aukadekk.
Ljósbrúnn.
Bronco Ranger sjálfsk. 1976
Chevrolet Blazer CST 1973
Dodge Ramcharger. . 1974
LadaSport.........1979
Jeep Cherokee S 1976,
ekinn 54 þús. km,
styrktur, 6 cyl., bein-
skiptur, vökvastýri. Fall-
egur bíll.
Volvo 244 DL..........1978
Volvo 144 DL sjálfs. . 1974
Volvo 144 DL..........1972
Volvo 142 ............ 1971
Plym. Volaré station . 1978
Le Baron T&C station .1978
Ford Maverick 2d.
Ford Fairlane 2 d.
Fyrir skattpínda:
Peugeot 504. . .
Toyota Carina. .
Saab96........
Volkswagen 1300
Volkswagen 1300
1974
1970
1970
1972
1970
1972
1971
CHR YSLER-SA L URINN
SUÐURLA NDSBRA UT 10 — SÍMAR 83330 - 83454
Hvaða dagur í
vikunni finnst þér
skemmtilegastur ?.
Sigurbirno Ágústsdóltir nemi: Mér
finnst sunnudagur, af þvi að þá er
Húsið á sléttunni í sjónvarpinu.
Anney Ágústsdóttir nemi: Þriðjudag-
ur, af því að mér þykir Dýrlingurinn
svo sljemmtilegur.
Jóhanna Þórisdóttir húsmóöir:
Laugardagur, af því að þá eru allir i
fríi.
Dagbjört Halldórsdóttir húsmóöir:
Sunnudagarnir, af þvi að ég bíð alla
vikuna eftir þættinum j Hertogastræti
sem ersýndurásunnudögum.
Rósa Guömundsdóttir húsmóöir: Mér
finnst allir dagar ágætir.
Hrefna Loftsdóttir starfsstúlka i Hag-
kaup: Laugardagar langskemmtileg-
astir, þá er tími til að vera með sinni
fjölskyldu og slappa af.