Dagblaðið - 26.02.1980, Síða 6

Dagblaðið - 26.02.1980, Síða 6
6 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1980. Útboð Stjórn Verkamannabústaða óskar eftir tilboðum í gluggasmíði óg raflagnir í 60 íbúðir í raðhúsum í Hólahverfi, Breiðholti. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Verka- mannabústaða gegn 20.000 kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð mánudaginn 3. marz 1980 á Hótel Esju kl. 15.00. Stjórn Verkamannabústaða. Miðaldra starfsstúlka óskast Þarf að vinna tvær nætur í viku, aö öðru leyti dagvaktir. Upplýsingar á staðnum. Veitingastofa BSÍ UmferöarmkJstööinni. Tónlistarkennarar Skólastjóra og/eða kennara vantar við Tónlistar- skóla Raufarhafnar skólaárið 1980 til ’81. Æski- legar kennslugreinar píanó- og gítarleikur. Til greina kemur jafnframt kennsla við tónlistardeild á Þórshöfn. Uppl. í síma 96-51225 eða 96-51132. Tónlistarskófí Raufarhafnar. HAFNARBÍO i) symr: TIMES FiVE Executive Produc> J0R0AN WAN A BARRISTE PR0DUCTI0 A SEYM0UR B0RC _ and ASS0CIATE RELEASE Starring GENE EVANS S0RREL B00KE SHELLY MORRISON Color By DELUXE Ef taugarnar eru ekki í lagi, þá láttu þessa mynd eiga sig. — Viðureignin við „Börn satans” er enginn barnaleikur... Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 5,7,9ogll. Zimbabwe/Ródesía: Salisbury sem vígbúið virki Salisbury, höfuðborg Zimbabwe/- Ródesíu og aðrar borgir landsins hafa nú verið viggirtar og líkjast nú engu öðru en herbúðum að sögn fréttamanna þar. Allt er þetta gert til að koma í veg fyrir bardaga og óeirðir í almennum kosningum j>ar meðal svartra íbúa, sem hefjast á morgun. Eiga þær að standa í þrjá daga. Bifreiðar hlaðnar hermönnum aka um stræti borganna, vegatálmanir eru á götum í úthverfum og vopnaðir lögreglumenn eru á hverju götuhorni og við verzlanamiðstöðvar inni i borgunum. Er þetta síðasta ráðstöf- un ríkjandi afla í Zimbabwe/Ródesíu til að sjá um að kosningarnar fari fram án blóðsúthellinga og séu frjáls- ar en hvort tveggja var skilyrði sem báðir aðilar gengu að er friðarsamn- ingarnir voru undirritaðir i London í desember siðastliðnum. Þar meðlauk sjö ára borgarastyrj§l<J j landttftl.''T'-' Soames lávárður, landshöfðingi í Zimbabwe/Ródesíu og æðsti fulltrúi Breta þar, en þeir stjórna landinu nú, bannaði alla kosningafundi frá því að kjörklefar verða opnaðir í fyrramálið og þar til úrslit verða tilkynnt. Soames lávarður mun flytja ávarp til allra íbúa Zimbabwe/Ródesíu i kvöld og verður þvi bæði útvarpað og sjónvarpað. Þar mun hann reyna að fullvissa alla um að þeim verði tryggt að fá að kjósa án nokkurrar hættu á að aðrir viti hverjum þeir greiði atkvæði. Hann mun einnig hvetja alla flokka til að forðast beit- ingu ofbeldis. Leiðtogum þeirra niu flokka sem bjóða fram i kosningunum verður út- hlutað tveim mínútum í útvarpinu í kvöld til að flytja sín síðustu ávörp. Úrslit í kosningunum verða ekki til- búin fyrr en fjórum dögum eftir að kosningum lýkur. í ■ ' mmSÍ Það þvkir mjög vænlegt til sigurs f kosningum að fá mæður sinar til fylgis i kosningabaráttunni. Hafa til dæmis mæður þeirra Jimmy Carters forseta og Edwards Kennedys öldungadeildarþingmanns báðar verið ötular i baráttunni fyrir synina. Á myndinni sést Lillian Carter reyna að næla merki með nöfnum Carters og Mondale varaforseta hans i barminn á Jerry Brown rfkisstjóra i Kaliforniu en hann er einn þeirra sem berst gegn syni hennar um útnefningu sem forsetaefni demókrata. Bylting hers- ins i Surinam — uppreisnarmenn virðast hafa öll völd í þessari fyrrum hollenzku nýlendu Uppreisn hersins í Surinam á norðurströnd Suður-Ameríku virðist hafa tekizt og þjóðlega herráðið hefur tekið við völdum þar sam- kvæmt opinberri tilkynningu i höfuð- borginni Paramaribo. Surinam er fyrrum hollenzk nýlenda, sem byggir alla afkomu sína á báxít útflutningi. Landið er mjög háð Hollendingum. íbúar rétt um þrjú hundruð þúsund oghlautþað sjálfstæði árið 1973. í fregnum frá Venezuela var sagt í gær að Arron forsætisráðhera væri enn í forsætisráðherrabústaðnum en þeim fregnum var neitað af byltingar- ráðinu. í fregnum þess sagði að Arron, sem verið hefur forsætisráð- herra síðan 1973, væri ekki i höfuð- borginni. Ekkert var sagt um hvar hann væri niðurkominn. Sagt er að í það minnsta sex manns hafi fallið í átökum sem urðu er her- inn tók völdin. Upptök uppreisnar- innar voru þau, að þrír hermenn voru handteknir hinn 30. janúar síðastlið- inn fyrir að reyna að stofna laun- þegasamtök meðal hermannanna en þeir munu átta hundruð i landinu. í fyrstu fregnum var sagt að þrjú hundruð hermannanna hefðu tekið þátt í uppreisninni. Svo virðist sem her landsins sé nú einhuga í að- gerðunum gegn fyrri stjórn og allt er með kyrrum kjörum í Paramaribo. Ekki er ljóst hve byltingarráð hers- ins ætlar að vera lengi við völd og ekki er heldur vitað hvort kosningar sem Arron forsætisráðherra hafði boðað til hinn 27. marz næstkom- andi verða haldnar á þeim tima.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.