Dagblaðið - 26.02.1980, Page 8
8
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1980.
...,im"“
Kreppa ífiskiðnaðinum:
10 milljarða halli í ár
—og af urðalánin líka lækkuð
Formaður Félags
Sambandsfrystihúsa
um kreppuna í
fiskiðnaðinum:
Fyrst stöðvast
launagreiðslur
— ogþálíðurekkiá
löngu þar til frystihúsin
lokaeittaföðru
„Hrácfni, laun, umbúðir og vexlir
af afurðalánum, allt liðir sem
greiðast nær jalnóðum, eru nú
komnir i 95% tekna og jiá eru ekki
eftir nema 5% til að mæta öllum
öðrum kostnaði. Venjulega er gengið
út frá hvi að fiskiðnaðurinn sé rekinn
á núlli og miðað við það mega (ressir
liðir ekki fara umfram 85% svo við
núvcrandi aðstæður getum við ekki
greitt annan kostnað og segjunt þvi
upp fiskverði frá 1. marz,” sagði
Árni Benediktsson, formaður Félags
Sambandsfryslihúsa, í viðtali við DB
i gær.
„Afurðalánin hafa i raun verið of
lág um langt skeið vegna verðbólgu,
|iau þurla að nægja fyrir hráefni,
vinnulaunum, umbúðum og al'urða-
lánavöxtum. Þau eru nú 75% en
verði þau lækkuð niður i 70%, eins
og jalnvel stefnir að nú, eru þau
orðin 15% of lág þar sem þörfin |{|
að mæta áðurnefndum þáttum er
85%. Þau verða þvi skilyrðislaust að
haldast óbreytt,” sagði hann.
Vexlir og andvirði umbúða eru
drcgin af Iánunum áður en fyrirtækin
fá þau i hendur og í mörgum tilvikum
andvirði hráefnis lika. Samkvæml
því kemur fjárskortur fyrirtækjanna
fyrst fram á þann liátt aðckki verður
til fyrir launum.
,,Við núverandi aðstæður verður
innan mjög skamms tinia ekki liægl
að greiða vinnulaun og þá fara
Irystihúsin að loka eitt al' öðru svo
nú veltur allt á stefnumörkun rikis-
stjórnarinnar,” sagði Árni að lokum.
-<;s.
Viðskiptaráðherra
kannarafurða-
iánamöguleika
bankanna
v
Tómas Árnason viðskiptaráðherra
gekk i gær á fund stjórnar Seðla-
hankans vegna ákvörðunar bankans
um að lækka afurðalán til út-
nutningsatvinnuveganna um 5,5% á
næstunni.
Þá stóð til að hann kannaði af-
stöðu viðskiptabankanna til þess að
hækka sin afurðalán til að brúa bilið
en eins og fram kom í DB i gær höfðu
bankarnir ekki tekið afstöðu til hess
og jalnvel var talið ólíklegt að jreir
teldu sig hala bolmagn til jress.
DB er ekki kunnugt um árangur
ráðherra en unt hann átti nt,a. að
fjalla á ríkisstjórnarfundi, sem hólsl
nú fyrir hádegi. -CíS.
Sefllabankastjóri
kennir ríkinu um afl skulda
svo mikið að bankinn þurfi að
skerða lán til atvinnuveganna en
sjávarútvegsráðherra átelur bankann
fyrir að fara svo að þótl of miklir
peningar séu i umferð.
DB-myndir: R. Th/Bj.Bj.
Bæði f iskkaupendur og seljendur segja upp fiskverði:
Erfiðustu samningar
til þessa framundan?
seljendur vilja hækkun, kaupendur lækkun
Bæði fiskkaupendur og
fiskseljendur hafa sagt upp gildandi
fiskverði frá og með I. ntarz. Ef það
er ekki einsdæmi að báðir segi upp
verði er a.m.k. mjög langt siðan og
þykir það mjög afleitur fyrirboði um
erfiða samningagerð þar sem
seljendur segja upp til að krefjast
hærra verðs og kaupendur til að
krefjast lægra verðs. Að auki hefur
verðið venjulega gilt út maí svo
harkan virðist óvenjuntikil nú.
Verðlagsráð sjávarútvegsins
kemur saman til fyrsta fundar um
nýtt verð siðdegis í dag þar sem báðir
aðilar munu kynna málstað sinn.
Eftir því sem DB kemst næst segja
sjómenn, seljendur, upp verðinu þar
sem búast rná við almennum launa-
hækkunum 1. niarz og þeim þykir
eðlilegt að fylgja þeint.
Kaupendur, fiskiðnaðurinn, segir
upp vcrðinu þar sem lalið er séð fyrir
að við óbreytt ástand muni hann
tapa 10 milljörðum króna í ár.
-GS.
Sjávarútvegsráðherra
um lækkun
Seðlabankans á
afurðalánum:
Einhliða
stefna
bankans
íafurða-
lánamálum
kemur
ekki
tilgreina
,,F.g álit einhliða stefnu Seðla-
bankans i afurðalánum ekki konia til
greina. I.ækki hann afurðalánin er
það mín skoðun að hann verði um
leið að tryggja samsvarandi aukningu
afurðalána viðskiptabankanna
þannig að afurðalán til útflutnings-
iðnaðar lækki ekki,” sagði Stein-
grímur Hermannsson sjávarútvegs-
ráðherra í viðtali við DB í gær.
Eins og DB skýrði frá i gær ætlar
Seðlabankinn að lækka afurðalánin í
áföngum úr 55,5% i 50% á fyrrihluta
þessa árs og láni viðskiptabankarnir
áfram í hlutfatjj við Seðlabankann
lækka alurðalánin samtals um 5%
sent fiskiðnaðurinn telur mjög alvar-
legt áfall.
Steingrimi sýndist sem Seðla-
bankinn fylgdi þarna einhliða
peningamálastefnu. Þótt of miklir
peningar væru í umferðdygði ekki að
snúa þeirri þróun við með þvi að
herða að útflutningsatvinnuvegun-
um.
Fulltrúar frystihúsa SH og SÍS
áttu fund með forsætisráðherra og
sjávarútvegsráðherra á föstudaginn
vegna margvislegs aðsteðjandi vanda
frystiiðnaðarins. Miðað við fyrirsjá-
anlegar aðstæður telja þeir frysti-
iðnaðinn vanta 10 milljarða króna á
árinu til að endar nái sarnan.
Þar var m.a. komið inn á aðgerðir
Seðlabankans og töldu þeir bankann
koma þar aftan að sér miðað við
samkomulag sem gert var fyrir tveim
árum er hluti lána var gengis-
tryggður. Átti það að tryggja að ekki
þyrfti að lækka upphæðir til
afurðalána þar sem þá yrði raunhæft
að taka erlend lán ef á þyrfti að
halda.
Þá telja þeir sig ekki hafa fengið
nægilegt gengissig eins og þeim var
nánast lofað við fiskverðsákvörðun i
janúar. Var þá talað um 5 til 6% en
hefur orðið nálega 2% síðan.
ÞURSAR LEGGJAI
LANDREISU
Hinn islenzki þursaflokkur— betur
þekktur sem Þursarnir — leggur i dag
land undir fót og niun troða upp á
fintmtán stöðum á næstu þremur
vikum.
I vrir háll'u öðru ári föru Þursarnir
um landið og léku þá nær eingöngtt i
skóium en að þessu sinni verður einnig
um "að ræða tónleika í félagsheimilum
þannig að allir geta nú séð og heyrt
Þu rsaflokkinn.
Þursarar hafa nú starfað i tvöár. Á
þeirn tíma hefur flokkurinn sent frá sér
tvær hljómplötur og leikið viða, svo
sent i Danmörku, Noregi, Svíþjóð,
Færeyjum, Álandseyjunt. Banda-
rikjunum, Finnlandi og Hollandi.
Þursarnir verða á eftirtöldum
stöðunt á landsreisu sinni að þessu
sinni:
26. febrúar: í Selfossbiói.
27. lébrúar: Menntaskólinn að I.augar-
vatni.
28. febrúar: Félagsheimilið i Vest-
ntannaeyjum.
29. lebrúar: Skógaskóli.
1. ntarz. Sindrabær, Hornafirði.
2. ntarz: Valaskjálf, Egilsslöðum.
5. ntarz: Egilsbúð, Neskaupstað.
6. ntarz: Mcnntaskólinn á Akureyri.
7. ntarz: Gagnfræðaskólinn á
Akureyri.
8. ntarz: Santkomuhúsið, Akureyri.
9. ntarz: Félagsheintilið, Húsavik.
10. ntarz: Stórutjarnaskóli, S-Þing.
11. marz: Rcykjaskóli, Hrútafirði..
12. marz: Santvinnuskólinn, Bifrösl.
15. marz: Fjölbrautaskólinn á Akra-
nesi.
Í ntarz og april munu Þursarnir
leika á Stór-Reykjavíkursvæðinu og
sömuleiðis er ráðgert að heintsækja
Vestfirði. -ÓV.
Þursaflokkurínn með Lðngu-mýrar-Skjðnu. Frá vinstri: Karl Sighvatsson, Skjóna, Tómas Tómasson, ROItgr
Vllbergsson, Þórður Amason, Egill Ölafsson og Asgeir Óskarsson. DB-mynd Ragnar Th.