Dagblaðið - 26.02.1980, Page 9

Dagblaðið - 26.02.1980, Page 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1980. 9 Fyrsta aflvél í Hrauneyjafossvirkjun ígang haustið 1981 breytt í megavött Fallegum fossi Þá var tollheimta ríkisins af vinnu- vélum og tækjum gagnrýnd. Afleiðing 50—100% aðflutnings- gjalda á tækjum væri sú að þau væru nýtt mun lengur en eðlilegt gæti talizt með óhóflegu viðhaldi. „Söluskattsmálin eru lika í brennidepli hjá okkur. Um þau er ekki hægt að nota annað orð en sið- leysi,” sagði Ármann örn. Othar örn Petersen t.v. og Ármann örn Ármannsson: „Fjármagnsskortur og óvissa með verkefni er stærsti þröskuldurinn.” DB-mynd: -ARH. Þau eru yfirleitt I stærra og meira lagi verkfærin og tækin sem notuð eru við virkjunina. Þó brá fyrir gömlum og góðum verkfærum. Þessi glaðbeitti verkamaður brá sög á loft og er girtur klaufhamri. Tímarnir eru breyttir. Hann ber hamar þar sem víkingar báru sverð sín. Hann byggir hús, þeir afhausuðu á báðar hendur. Fyrsta 70 KW aflvélin fer í gang haustið 1981 og sú næsta ári síðar. Aflað verður vatns til virkjunar- innar með því að stífla Tungnaá hálf- um öðrum kílómetra ofan við Hraun- eyjafoss og veita ánni þar í skurð. Verður þar með skrúfað að mestu fyrir fossinn. Hrauneyjafoss er ákaf-* lega fagurt og tilkomumikið náttúru- fyrirbæri. Mörgum þykir því erfitt að kyngja því að honum skuli nú fómað áaltari raforkunnar. Venjulegt vatnsborð Tungnaár hækkar úr 417 í 425 metra yfir sjávarmáli. 3ja km löng jarðvegs- stífla teygir sig eftir hraunflákanum á vinstri bakka árinnar upp að aflíð- andi melöldum við Sigöldu. Lóniö ofan stíflu verður tæplega 9 ferkíló- metrar. Virkjunarstaður við Hrauneyja- foss er um 5 km neðan við Sigöldu- virkjun. Mest áberandi jarðmyndanir á svæðinu eru móbergsöldur, sem orðið hafa til við sprungugos undir jökli á ísöld. Mikil eldgos á Tungna- áröræfum eftir ísöld hafa stíflað fyrri farveg Tungnaár, svo hún hefur rutt sér farveg í gegnum móbergsöld- urnar. Sigölduvirkjun og Hrauneyja- fossvirkjun munu nýta fall árinnar í Þeir höföu snör og örugg handtök verkamennirnir hjá Fossvirki þegar þeir tóku á móti hverju steypusilóinu á eftir öðru og tæmdu i mótin. eyjafoss við Fossvirki upp á 6,5 millj- aröa og við Hraunvirki hf. upp á 4,7 milljarða. Auk þess er Landsvirkjun að kanna tilboð í flóðgáttir og skurð- inntak sem opnuð hafa verið. Þau lægstu eru frá Aðalbraut hf. og Vörðufelli hf. Með vorinu fer starfsmönnum á virkjunarsvæðinu að fjölga verulega og verða þeir um 600 talsins þegar flest er. Enn hefur ekki verið gengið frá mannaráðningum til starfa 1 sumar. Samkvæmt sérstökum samn- ingi gengur verkafólk í Rangárvalla- sýslu fyrir öðrum í flest störf. Meðal- mánaðarkaup ófaglærðs verkamanns við Hrauneyjafoss í fyrrasumar var 800 þúsund kr. Var unnið á tvískipt- um vöktum eftir bónuskerfi. Vinna hófst við Hrauneyjafoss vorið 1978. Ákveðið var að skipta byggingarvinnunni í. nokkra áfanga og bjóða þá út hvern í sínu lagi. Gerði það íslenzkum verktakafyrir- tækjum kleift að bjóða í verkin. Þau höfðu ekki haft bolmagn til að bjóða í framkvæmdir við fyrri stórvirkjanir hér á landi. Séó yfir virkjunarsvæöið. Ibúðarskálar starfsmanna eru fjær á myndinni. Stöðvarhússbyggingin er næst til hægri. " :a Mennirnir sem eru við vinnu eru eins og smápeð á myndinni miðað við mannvirkið sem þeir eru að reisa. Þetta er sjálft stöðvarhúsið. Þar verða 1 framtíðinni hýstar 3 70 MW túrbinur. Sú fyrsta fer i gang haustið 1981. Þegar framkvæmdir hófust við að grafa fyrir stöðvarhúsinu var yfirborð jarðar 1 svipaðri hæð og þverbóma kranans í miðið! 650 þúsund rúmmetrar af jarðvegi voru fjarlægðir á hálfu ári og I holuna var plantað stöðvarhúsi. DB-myndir: -ARH. Verktakar skamma stjórnvöld: „SOLUSKATTSMAUN HREINT SIÐLEYSI” , ,Hér vinnum við á 12 tíma vöktuní í vetur og tökum frí um hefgar. Vetrarríkið hefur ekki verið mjög til trafala og verkáætlanir þvl ekki riðl- azt af jteim sökum,” sagði Sigfús Thorarensen staðarverkfræðingur Fossvirkis við Hrauneyjafossvirkjun við fréttamenn sem komu i heimsókn í liðinni viku. 80—90 manns eru á vegum Fossvirkis þessa dagana á virkjunarsvæðinu og vinna að upp- steypu stöðvarhússins. Þeir létu hríöarfjúk, nefsteytu og nærveru spurulla blaðasnápa litt á sig fá og unnu verk sín af kappi með um- burðarlyndissvip. Landsvirkjun hefur gert samninga um verkframkvæmdir við Hraun- gegnum Sigöldu og Fossöldu. Lægðin á milli þessara móbergs- hryggja hefur hálffyllzt af hrauni sem runnið hefur eftir ísöld. Tungnaá breiðir úr sér ofan á hrauninu og hefur þétt undir sig með framburði. Grunnvatnsborð er djúpt undir yftr- borði jarðar. - ARH „Almenningi er ef til vill ekki ljóst að verktakaiðnaðurinn er einn af höfuðatvinnuvegum þjóðarinnar. Það er engu að síður staðreynd. Fjár- munamyndun i verktakaiðnaði var um 130 milljarðar á síðasta ári og þá voru greiddir 4—5 milljarðar í vinnu- laun til 2000—3000 starfsmanna hjá fyrirtækjum innan sambandsins,” sögðu Othar örn Petersen fram- kvæmdastjóri og Ármann örn Ármannsson, formaður Verktaka- sambands jslands, við fréttamenn á fundi sem haldinn var í mötuneyti við Hrauneyjafossvirkjun á fimmtu- daginn. Þeir tvímenningarnir og fleiri full- trúar verktaka kynntu sérstaka stefnuskrá sambands verktaka sem er nýkomin út í fjölrituðum bæklingi. Fram kom hörð gagnrýni verktaka á stjórnvöld fyrir margra hluta sakir. Bent var á að andstætt því sem gerðist erlendis, þar sem stjórnvöld sæju sér hag í að bjóða út verkefni sín, tíðkaðist hér á landi að dreifa verkefnum í smáum hlutum hingað og þangað um Iandið. „Einn vega- spotti hér og annar þar ” er viðtekin venja, sögðu verktakar, og töldu at- kvæðaveiðar stjórnmálamanna koma illa við verktakastarfsemina i landinu. Því bæri að stefna að þvi að hið opinbera byði út allar opinberar framkvæmdir. 's>*. að handlanga mótafleka sökuskatts- laus, en ef krani hifir sama fleka skal greiða söluskatt. Fulltrúar verktakafyrirtækjanna sögðu að reynslan sýndi, svo ekki yrði um villzt, að íslenzk fyrirtæki gætu skilað verkefnum sómasamlega sem erlend fyrirtæki heföu áður annazt við fyrri virkjanir. Stærstu þröskuldar í veginum væm fjármagns- skortur og litil fjármagnsfyrir- greiðsla. Einnig ríkti stöðug óvissa með verkefni. Á milli ára gætu verið sveiflur í framboði á verkefnum sem gerði verktökum erfitt að skipuleggja starfsemi sína til lengri tíma. -ARH. „öll vinna á byggingarstað á að vera söluskattsfrjáls samkvæmt lögum, en er það ekki í raun ef verktaki hefur tæki á staðnum.” Var tekið sem dæmi að vinna manns sem hand- grefur skurð er án söluskatts, Hún er söluskattsskyld ef vélgrafa er notuð. Sömuleiðis er vinna 4—5 manna við ATLIRUNAR HALLDÓRSSON

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.