Dagblaðið - 26.02.1980, Blaðsíða 24
Þriggja rækjubáta með sex mönnum saknað:
Brak finnst nú
rekið á fjörur
Árnfinnur Jónsson skólastjóri (i Ijós-
um jakka) raeðir vifl DB um þaklekann.
DB-mynd: Bj.Sj.
Þakleki í
Hólabrekkuskóla
„Sorglegt
að sja i
nýju húsi”
— sagði Arnfinnur
skóiastjóri Jónsson
„Það er sorglegt að sjá þetta gerast í
nýju húsi,” sagði Arnfinnur Jónsson,
skólastjóri Hólabrekkuskólans, þegar
fréttamenn DB komu til þess að líta þar
þakleka sem vart varð við í vatnsveðr-
inu i gærmorgun.
Uppi yfir göngum skóians eru glugg-
ar sem veita birtu í húsið. Lekinn
virðist vera þar sem gluggar og þak
mætast, ef svo má segja þar sem glugg-
arnir eru í raun hluti af þakinu.
Ekki var Ijóst hvað lekanum olli.
Komu þar fleiri ástæður til en ein, að
sögn skoðunarmanns frá Fræðsluráði
Reykjavíkur.
Skemmdir eru ekki allar ljósar enn.
Mest ber þó á striga, sem losnað hefur
líming á og hætt er á því, að hann
breyti um lit við vætuna, þegar hann
þornar.
Hólabrekkuskóli í Breiðholti tók til
starfa í þessu nýja húsi síðastliðið
haust. Eru þar nú rúmlega tólf
hundruð nemendur.
- BS
í fárviðrinu sem gekk yfir Vestfirði
í gær var leit hafin að þremur rækju-
bátum, sem ekki náðu höfn eða landi
svo vitað sé. Var leitað í gær fram í
myrkur bæði á Arnarfirði, þar sent
m.b. Visir BA var að draga trollið er
síðast fréttist af honum, og á ísa-
fjarðardjúpi að m.b. Eiríki Finns-
syni og Gullfaxa. Hafa bátarnir enn
ekki komið fram.
Tveir menn eru á hverjum bátanna
þriggja, svo um líf sex sjómanna er
að tefla.
M.b. Vísir BA 44, 16 tonna eikar-
bátur frá 1943, var að toga innan við
Gíslasker á Arnarfirði síðast er vitað
var. Um kl. 2—3 var tekið að óttast
um bátinn og að sögn Hannesar
Hafstein hjá SVFÍ var þá fenginn
bátur til að huga að honum. Einnig
kom varðskip inn á Arnarfjörð og
hóf leit.
í gær fannst rækjukassi merktur
bátnum út af Rafnseyri og siðan
lestarlúga, talin úr Vísi. Bóndi á Auð-
kúlu fann svo einnig grámáluð stíu-
borð sem talin eru úr Visi.
Miklar símabilanir og truflanir
voru þarna í gær og fréttir litlar. En
varðskipið ætlaði að taka björgunar-
sveitarmenn á Bíldudal og flytja
norður yfir fjörðinn til leitar á
ströndum þar.
Á ísafjarðardjúpi var snarvitlaust
SA-veður. Allir rækjubátar voru á
sjó því ekki var búizt við veðrinu svo
fljótt sem raun varð á. Tveggja báta
er saknað.
Eiríkur Finnsson ÍS 26, 17 tonna
eikarbátur frá 1943, var innan Ögur-
hólma að hífa er síðast var vitað.
Gullfaxi, ÍS 594, 19 tonna eikar-
bátur frá 1943, var út af opnum
Álftafirði á heimleið er síðast sást til
hans. Bátur sem var á eftir honum, ca
3 sjómilur, fylgdist með honum.
Síðan kom dimmt él og er birti upp
aftur sást ekkert til Gullfaxa.
M.b. Guðný fór frá ísafirði með
björgunarsveitarmenn til Sandeyrar á
Snæfjallaströnd. Fóru 8 menn þar í
land og- leituðu með bændum úr
Unaðsdal fram I myrkur. Þessir
leitarmenn fundu gúmbát úr Eiríki
Finnssyni skammt undan Innra-
Skarði.
Nýir leitarflokkar fóru kl. 6 í
morgun með bát til Snæfjallastrand-
ar og sömuleiðis leitarflokkar frá
Bolungarvík til Hesteyrar. Er ætlunin
að leita allar strandir frá Straumnesi,
um Aðalvik, fyrir Rit, inn Jökulfirði,
fyrir Bjarnarnes og Snæfjallaströnd-
ina. Rakin vindátt var frá þeim stað
sem Eiríkur Finnsson sást síðast að
þeim stað þar sem gúmbáturinn
fannst.
i
í dag munu einnig 15—20 skip og
bátar leita á ísafjarðardjúpi og í
fjörðum eftir því sem veður leyfir.
Ráðstafanir höfðu verið gerðar
strax er veður tók að versna í gær til
að fá staðsetningu allra báta á sjó.
Gekk Tilkynningskyldan fram í því.
Jafnframt voru bátarnir Orri og Vík-
ingur fengnir til að fara smábátun-
um til aðstoðar og voru þeir komnir
út fyrir Arnarnes er veðrið varð sem
vitlausast.
Fjórir bátar laskast í brotsjóum:
Svamlaði á kafi
í s jó f átt til
stjómtækjanna
— sagði skip-
stjórínná
Gullborgu
— báturinn
lagðistá
stjómborðs-
síðuna svo
brúna fyllti
„Sjórinn reif sig skyndilega upp
bakborðsmegin aftan til við bátinn
og skall yfir okkur af svo miklu afli
að þungir netadrekar með keðjum,
50 kg hver, og allt annað lauslegt sóp-
aðist fyrir borð og báturinn lagðist
alveg yfir á stjórnborðshliðina. Þar
var opinn gluggi og fossaði sjóripn
þar inn svo ég og bróðir minn fórum
á kaf inni í brúnni. Þegar ég opnaði
augun sá ég ekkert nema sjó, en fór
að klóra mig að stjórntækjunum til
að reyna að keyra bátinn upp,” sagði
Friðrik Benónýsson, skipstjóri á 84
tonna netabátnum Gullborgu VE, í
viðtali við DB í morgun.
Þetta skeði í gær er báturinn var 4
mílur vestur af Surti. Við höggið
skall Friðrik í stýrið og marðist, en
aðra sakaði ekki.
„Þegar báturinn fór að rétta sig
aftur við, eftir nokkra stund, opnuð-
um við brúardyrnar og fossaði sjór-
inn þá aftur út úr brúnni. Gullborg er
afburða sjóskip og ég held að engum
hafi dottið í hug að yfirgefa hana á
meðan hún lá á hUðinni, en ég er
hræddur um að bátur með lakari sjó-
hæfni hefði farið verr út úr þessu,”
sagði Friðrik. Sjór fór ekki i vélar-
rúm og komst báturinn sjálfur til
hafnar.
Þá fékk Helga RE, 208 tonna stál-
bátur, á sig brotsjó í gærdag, er hún
var stödd undan Garðskaga. Sjór
flæddi þar inn í brúna eftir að hurð
og 2 gluggar í brú brotnuðu undan
brotinu. Sjórinn ruglaði meira og
minna sigUngatæki og fylgdi varð-
skip Helgu á lygnari sjó. Hún kom til
Reykjavikur í gærkvöldi. Engan
sakaði þar um borð.
Brot reið yfir netabátinn Bjarnarey
frá Eyjum í gær er báturinn var suð-
austur af Hjörleifshöfða á heimleið.
Flæddi sjór inn í brúna og skemmdi
tækjabúnað, en báturinn gat haldið
áfram hjálparlaust og engan sakaði.
Loks urðu svo talsverðar
skemmdir á 125 tonna netabátnum
Saxhamri frá Rifi er brotsjór reið yfir
hann á miðum Snæfellsnessbáta í
gærdag. Brúin laskaðist og urðu öll
stjórntæki óvirk um tíma svó skip-
stjórinn bað um aðstoð. Síðar tókst
að koma þeim í eitthvert lag og komst
báturinn heim í fylgd annarra báta á
heimleið.
Er brotið reið yfir slasaðist skip-
stjórinn, Sævar Friðþjófsson, en
ekki munu meiðsli hans alvarlegs
eðlis.
- GS
frjálst, úháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1980.
Reykjavíkurskákmótið:
Þýðingarmikil
umf erð í dag
— aukaferðir
strætisvagna
Miles og Vasjúkov eigast við í 3. um-
ferð Reykjavikurskákmótsins sem tefld
verður í dag. Þá tefla þeir Jón L. Árna-
son og Kupreishik, Schússler og
Browne, Guðmundur og Torre, Mar-
geir og Haukur, Helgi og Helmers,
Byrne og Sosonko. Kl. 5 hefst umferð-
in.
Úrslit í þessum skákum kunna að
skipa keppendum þannig í röð, sem
miklu varðar i keppninni um efstu
sætin i mótinu.
Þá verða tvær þýðingarmiklar bið-
skákir tefldar kl. 13 í dag: Vasjúkov —
Guðmundur, Miles — Hauknr.
Aukaferðir strætisvagna Landleiða
frá Loftleiðahótelinu verða kl. 22.20og
kl. 23.45. Fram til kl. 20fara vagnarnir
úr Lækjargötu 10 mín. fyrir heilan
tíma, og frá Loftleiðum 5 mín. yfir
hálfan tíma allan daginn til kl. 20.
- BS
ingólfur Arnarson:
Skipverji féll á
dekkið og lézt
Skipverji á togaranum Ingólfi Arnar-
syni féll á dekkið og lézt er skipið varð
fyrir sjó í gær. Skipið var að toga við
Víkurál um hádegi í vonzkuveðri er
slysið varð. Skipverjinn hét Ingimar
Halldórsson, 54 ára að aldri. Hann var
ókvæntur.
Togarinn sigldi inn á Patreksfjörð,
þar sem læknir og lögregla fóru um
borð og sóttu lik mannsins. Skipið hélt
siðan á veiðar en sjópróf fara fram í
Reykjavík.
- JH
Beið banaer
mjólkurbfllinn
fauk útafveginum
á Hálfdáni
Gestur Gíslason bóndi, Trostansfirði,
beið bana skömmu eftir hádegið í gær er
mjólkurbíll sem hann var farþegi í fauk
út af veginum á Hálfdáni. Hálfdán er
fjallið milli Tálknafjarðar og Bíldudals.
Bílstjórinn, Guðbjartur Þórðarson,
slapp lítið meiddur. Aftakaveður var er
slysið varð. Guðbjartur komst til Bíldu-
dals og fóru björgunarmenn á slysstað.
Slíkur var veðurhamurinn að mennirnir
gátu ekki ekið á staðinn og urðu að
skríða síðasta spölinn.
Bíllinn var á leið til Patreksfjarðar, en
hafði snúið við aftur til Bíldudals er
veðrið versnaði. -JH
LUKKUDAGAR
26.FEBRÚAR 20228
Hljómplötur að eigin vali frá
Fálkanum kr. 10.000.-
Vinningshafar hringi
í síma 3367.2.