Dagblaðið - 28.02.1980, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 28.02.1980, Blaðsíða 3
I DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1980. 3 Áskorun til Vedurstofunnar: Takið upp veðursvæðaskipt- ingu og stormviðvaranir H.Ó. loftskeytamaður hringdi: „Ég hef verið starfandi loftskeyta- maður um langan tíma og því haft náin kynni af aðstæðum sjófarenda bæði hér við land og erlendis. Vegna hinna hryllilegu sjóslysa, sem nú hafa orðið og eiga sér mjög lika hliðstæðu í slysum er urðu á rækjubátum á Axarfirði, langar mig að spyrja for- ráðamenn Veðurstofunnar hve margir sjómenn þurfi að farast áður en hafizt verði handa um úrbætur í þeim efnum að koma aðvörunum um óveður til sjómanna á hafi úti? Ég tel að Bretar standi i þessum efnum framar öðrum og til þeirra gætum við sótt fordæmi. í stjórn- Raddir lesenda Fjórír bátar laskast í brotsjóum: Svamlaði á kaf i í sjó í átt til ,K finnst nu táðátijjSJL |t>rígÖaraeK*1 klefum allra skipa í Bretlandi hanga uppi kort sem sýna skiptingu haf- og landsvæða í veðurreiti. Þegar von er á stormi, óveðri, svo ekki sé talað um fárviðri, er um slíkt þegar í stað gefin viðvörun og veðursvæðið tilgreint í útsendingum frá útvarpsstöðvum í landi. Slikt er gert vegna þess að vitað er að sjómenn eru ekki allir að hlusta á talstöðvarbylgju, en oftast er út- varpstæki haft opið. Til að vekja at- hygli hlustenda er gefinn út sérstakur tónn áður en stormaðvörunin fyrir tiltekin og afmörkuð veðursvæði er lesin. Veðursvæði Bretanna eru mjög misstór en mest skipt niður þar sem skipaumferð er mest. Sjófarendur þurfa síðan að koma boðum til veðurstofu þegar veður- breyting verður snögg til hins verra, svo koma megi boðum til annarra sjófarenda sem veðrið á síðar eftir að ganga yfir. Mætti með þessu mörgum forða e.t.v. frá miklum raunum og í það minnsta koma í veg fyrir að sama veðurlægðin dynji yfir alla jafnilla undirbúna. Togarasjómaður á Vestfjörðum: „HÆTTIÐ ÞESSARIVITLEYSU í GUÐANNA BÆNUM” Sjómaður á togaranum Gylli símar: „Við erum mjög óhressir yfir því togarasjómenn þegar verið er að birta skrá um aflahlut okkar einstöku sinnum. Þetta er aldrei gert nema þegar vel gengur. Þetta er algert einsdæmi með sjómenn, enginn önnur stétt er sett upp við vegg og birtar tölur um tekjur bara þegar vel gengur. Sjómenn, sem mánuðum saman hafa ekki annað en tekjutryggingu, er ekki minnzt á. En komi góð hrota þá erþetta útbásúnað.m.a. nú síðast birt skrá um hásetahlut Vestfjarðatogar- anna einna. Það gera sér fáir, sem ekki þekkja vel til, grein fyrir hve geysileg vinna liggur að baki þegar vel aflast. Það eru næsta fáir sem hafa úthald til þess að fara marga túra í röð þegar vel veiðist. Menn verða að fá hvíld. Og þegar einum túr er sleppt jafnast laun annarra veiðiferða yfir lengra tímabil og skýrslur um hásetahluti þegar orðnar skakkar og beinlínis rangar. Ég hringi ekki í Dagblaðið vegna þess að þessar aflahlutaskýrslur birt- ist einungis þar heldur af því að ég vona að þessari mettöluvitleysu verði hætt, því þær eru í flestum tilfellum „Þetta er einsdæmi með sjómenn. Enginn önnur stétt er sett upp við vegg og birtar tölur um tekjur bara þegar vel gengur,” segir bréfritari. FALLEGT OG STERKT Þú getur valið um 11 gerðir eldhúsa frá NOREMA í mismunandi verðflokkum. Allar eiga þær það sameiginlegt, að vera fallegar og sterkar. Við gerð þessara innréttinga hefur verið lögð sérstök áhersla á að þær þyldu mikla notkun. Við veitum þér allar ráðleggingar og gerum þér verðtilboð þér að kostnaðarlausu og án nokkurra skuldbindinga. Hringdu eða komdu, og fáðu litprentaðan bækling frá Norema innréttingahúsiö BNOREMA Háteigsvegi 3 Verslun sími 27344 Spurning dagsins Fylgist þú með Reykjavíkur- skákmótinu? Garðar Jónsson: Nei, ég fylgist ekkert með mótinu. Þó hef ég dálitinn áhuga á skák. Þorfinnur Þórðarson: Ég fylgist bara með mótinu í sjónvarpinu. Ég hef dálit- inn áhuga á skák en ég treysti mér ekki til að spá um úrslit á þessu móti. Stefán Arnarson: Já, ég fylgist með mótinu í sjónvarpi og blöðum. Ég held að Miles eða Browne séu líklegustu sigurvegararnir. Ingólfur Stefánsson: Ég fylgist bara með þessu móti í gegnum sjónvarpið og ég hef takmarkaðan áhuga á skák. Þór Bjarkar: Ég fylgist mjög takmark- að með því. Þó kannast ég við nöfn eins og Jón L. Árnason. Óskar Eyjólfsson: Nei, ég fylgist alls ekkert með þessu móti. Ég hef gaman af því að tefla en ég hef engan áhuga á svona mótum. (

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.