Dagblaðið - 28.02.1980, Blaðsíða 16

Dagblaðið - 28.02.1980, Blaðsíða 16
16 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1980. ATLI RUNAR HALLDÓRSSOIM Öllum leitarmönnum var snúið þangað og leit hófst. Þar fannst maður fótbrotinn. Hann sagði frá félaga sínum, sem verið hafði ekki langt undan. Og sá fannst „látinn” á öðrum stað. Félagar mínir vissu ekkert um að í snjóskriðunni var grafinn lifandi maður til að gera þetta sem raunverulegast. Við grófum hann í snjóinn rétt áður en leitarmenn komu á staðinn og forðuðum okkur burt,” sagi Arngrímur, sem var i bækistöðinni í „Eljagangi” allan tímann og stjórnaði leitinni. \ Flugb jörgunarsveitin „kembdi” Hengilssvæðið í leit að 4 mönnum: Einn brenndist í hver — annar grófst í snjóskriðu —en allt í plati, þetta var bara æf ing „Tilkynning um 4 týnda menn er voru á leið frá Nesjavöllum að Kolviðarhóli og komu ekki fram þar eins og til stóð kl. 15.00. Fyrstu fréttir: Ekkert er vitað ennþá um klæðnað né útbúnað mannanna. Útkall hjá Flugbjörgunarsveitinni milli klukkan 19.00 og 20.00. Sveitin beðin að leita Hengilssvæðið. Ákveðið er að nota kvöldið og nóttina til að undirbúa leit, sem hefjast skal strax í birtingu. Einnig á að koma mönnum og búnaði sem næst leitarsvæðinu strax.” Þannig hljóðuðu skilaboð sem hópur vaskra manna í Flug- björgunarsveitinni fékk í hendurnar sl. föstudagskvöld. En sem betur fór var tilkynningin ekki öll þar sem hún sýndist. Mennirnir voru týndir ,,í þykjustunni”. Þetta var upphaf að björgunaræfingu félaga í Flug- björgunarsveitinni sem stóð frá föstudagskvöldi til síðdegis á sunnudag. „Ríkiö hirðir þetta margfalt af okkur" Allt björgunarstarf félaga Flug- björgunarsveitarinnar er unnið í sjálfboðavinnu. Félagarnir eiga sjálfir margvíslegan rándýran út- búnað sem þeir nota i starfi sveitar- innar. Sveitin á engan vélsleða sjálf.heldur eru sleðarnir sem notaðir eru allir í einkaeign félaga. „Við fengum samtals 1,3 milljónir í styrki frá ríki og borg árið 1979. Sú upphæð nægir ekki einu sinni fyrir bensíninu á tækin,” sagði Arngrímur. Þegar hlifOardúkurinn var tekinn frá andliti„iiksins”kom IIjóssprelHifandi og glottuleitt andlit. DB-myndir: A tli Rúnar. Einn fannst í snjóskriðu Við reyndum að gera æfinguna sem allra eðlilegasta. Æft var í fyrsta Snjóbíllinn Vlsill stóð sig með ágœtum á œjingunni. Hann er fertugur að aldri og gengur enn eins og klukka. Bllar af þessari gerð hafa verið notaðir I heimskautaleiðöngrum. V Einn hinna týndu fannst „látinn”og sést hér dreginn á sleða. sinn eftir norsku fyrirkomulagi sem reyndist vel. Fjarskiptamálin voru hins vegar ekki í nógu góðu lagi. Fjarskiptakerfið er úr sér gengið og við eigum í miklum fjárhagsvand- ræðum með að endurnýja það,” sagði Arngrímur. „Á laugardaginn kom einn hinna fjögurra „týndu” fram við Kolviðarhól og tilkynntu að þeir fjór- menningar hefðu skipt liði við rætur Hengils. Um tvo félga sina vissi hann ekkert. En sá sem með honum var hafði farið niður í hver í Innstadal og lá þar skaðbrenndur. Við sendum strax lið manna til að ná í hann. Þar var í öllu farið að eins og um raun- verulegt slys hefði verið að ræða. Á sunnudaginn héltleit áfram að hinum tveimur. Um hádegisbilið barst tilkynning um að fundizt hefði snjóskriða. Að henni lágu spor. Brynjólfur Erlingsson, annar af tveimur aðalradlómönnum Flugbjörgunarsveitar- innar, við tceki sln I „Éljagangi”.Einhverjir höfðu orð á þvl að þeir héldu grœjun- um gangandi með samblandi af þekkingu í útvarpsvirkjun og göldrum. Peninga- leysi og skattheimta hins opinbera setur sveitinni stól fyrir dyr við að endurnýja fjarskiptakerfið. Alls lögðu um 35 menn af stað frá Reykjavík á föstudagskvöldið áleiðis upp á Hellisheiðina með sitl hafurtask. Af. stærri tækjum sem í för voru má nefna snjóbíl (hann er fertugur að aldri og stóð sig eins og hetja, sbr. allt er fertugum færtl), vélsleða, talstöðvar, bæði stórar og smáar, sjúkrabörur, tjöld, teppi og ótal margt fleira. „Éljagangur" var miðstöðin Aðalbækistöð leitarmanna var skáli KFUM á Hellisheiði. Hann gengur undir nafninu „Éljagangur”. Óhætt er að segja að gengið hafi á með éljum og rúmlega það umhverfis skálann dagana sem æfingin stóð yfir. Veður var slæmt og því reyndi mikiðá þrek og þol í mannskapnum. „Við vorum alla helgina að leita að „týndu mönnunum fjórum” á Hengilssvæðinu,” sagði Arngrímur Hermannsson, einn af fjórum æfingarstjórum björgunarmanna, við Dagblaðið þegar við komum í heimsókn í „Éljagang” á Hellisheiði á sunnudaginn. Þá voru nokkrir veðurbarðir félagar úr Flug- björgunarsveitinni að draga „lík” manns á sleða i hlað. Hann var sá fjórði og síðasti sem fannst í leitinni. Hinir fundust lifandi. „Við höfum pantað nýtt fjar- skiptakerti og fallhlíf fyrir sveitina, auk þess stóran 2ja belta vélsleða sem kostar 3 milljónir. Við ráðum ekki við að kaupa þessa nauðsynlegu hluti nema ríkið gefi eftir tolla og aðflutn- ingsgjöld. Vélsleðinn myndi lækka um 1,5 milljón ef það gerðist. Það drepur áhuga mannanna að ríkið skuli hafa okkur fyrir féþúfu. Félagarnir skila ríkinu í sköttum af tækjum, sem þeir kaupa margfaldri þeirri upphæð sem hið opinbera lætur okkur í té sem styrk. Sú vinstri gefur 1,3 milljón, sú hægri tekur þá upphæð til baka og miklu meira til.” - ARH Þau eru ófá kllóin sem björgunarmenn bera á bakinu og þvl þatf llkamsþjálfunin að vera I góðu lagi. Þeir vinna störf sln af hugsjón og leggja hart að sér til að bjarga fólki sem er I nauðum statt. V

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.