Dagblaðið - 28.02.1980, Síða 9
DAGBLAÐiÐ. FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1980.
Hreinn Halldörsson,
kúluvarpari, staddur í
Bandarflijunum:
Iþrótta-
menn hér
á báðum
áttum
— égstefni ótvírætt
að þátttöku
,,Ég vil eiginlega sem minnst uni
þetta segja, maður kveikir ekki svo á
sjónvarpi eða útvarpi hér að ekki sé
verið að ræða um þetta mál og ég er
hreinlega orðinn dauðleiður á þvi.
Annars er ég fylgjandi þvi að l'arið
vcrði, bæði svo pólitík og íþróttum
verði ekki blandað saman um of og
svo upp á framtíð ólympiuleikanna.
Ef margir ákveða að fara ekki nú, i
mótmælaskyni, óttast ég um framtið
lcikanna,” sagði Hreinn Halldórsson
cr DB náði sambandi við hann i
Bandarikjunum i gær, þar sem hann
dveiur við æfingar.
Hreini heyrðist á þarlendum
iþróttamönnum að þeir skiptust
nokkuð í tvo hópa og væri mikil
umræða um málið.
Sjálfur stefnir hann ótvírætt að
þátltöku í leikunum og er hann var
spurður um árangur nú, svaraði
hann: „Þetta er allt að koma". -(iS.
Hreinn Hulldórsson: „Hreinlega
orðinn dauðleiður á þe.ssu máli."
BBnMiaBBnaBnaaraannniBaBBBanBanBBanaai^^
Atli Steinarsson, blaðamaður og fyrrum OL-fari: - -
„Til slíkrar áróðurshátíðar
eigum við ekkert erindi”
,,Eg er á móti islenzkri þátttöku á
ólympíuleikununt i Moskvu þvi eins
og nú er í pottinn búið verða þeir
ekki annað i höndum Rússa en
áróðurshátíð,” sagði Atli Steinars-
son, þátttakandi i OL í London 1948,
íþróttafréttaritari Morgunblaðsins í
rúm 20 ár og nú blaðamaður á DB.
,,Ég meðtók ólympiuhugsjónina
í bernsku, þekkti velflesla ól-
ympiumeistara í Berlín 1936 af
kaffimyndaseríum, sent fylgdu
Kaabers kaffipökkunum, en skynjaði
þá ekki þann áróðurshátiðarbúning
sem Þjóðverjar klæddu þá í. Hin
óntengaða OL-hugsjón lifði á
lcikunum i l.ondon, sent haldnir voru
innan um rústir heimsstyrjaldarinnar
siðari. Hugsjónin lifði enn í
meðförum Finna, Ástralíumanna
og llaln á lcikununt. Fn siðan 1960
hel'ur ntargt gerzl — ckki sí/t i
íþróttaheiminum," sagði Atli.
Hann laldi að i dag væri l'jar-
stæðukennt að tala um að iþróttir
Alli Steinarsson: „Síðan 1960 hefur
margt gerzt — ekki sízt í íþrótta-
heiminum."
væru eitl og pólilik annað. Slík væri
ekki einu sinni raunin á hér á íslandi,
Itvað þá meðal stærri þjóða.
„Rússar hafa keppt að þvi i ára-
tugi að fá untsjón ólympiuleika.
Stuðning hlutu þeir ekki til þess lyrst
og l'remst af því að íþróttaleiðtogar
vissu að þar yrði áróðri fyrst og
frentst haldið á lofti og nota ætti
íþróttirnar og íþróttafólkið i áróðri
inn á við og út á við til upplyfting-
ar fyrir hið sovézka þjóðskipulag
Hvergi hafa íþróttir verið jafn ger-
nýttar l'yrir þjóðskipulagið og i >.ovet
og austrænum ríkjum. Þar eystra
mvndi enginn skilja þá röksemd að
iþróttir séu eitt og pólilik annað.
Með svikráðin í Alganistan og niður-
keyrslu andólsmanna á samvizkunni
mundu leiðtogar Rússa enn herða
áróðursgildi ólympiuleikanna. Til
slíkra OL-leikja eiga hvorki íslenzkir
iþróttamenn néannarra þjóða erindi
til Moskvu," sagði Atli Stcinarsson.
-ARH.
y
\
Halldór Guðbjörnsson, júdómaður:
ÞAÐHAFA ALLTAF VERIÐ
STRIÐ SAMHUÐA LEIKUNUM
því út i hött að blanda pólitíkinni inn í einmitt núna
„Það hafa aldrei l'arið Iram
ólympiuleikar án þess að strið eða
styrjaldir geisuðu einhvers staðar i
heintinum um leið, svo ég tel fráleitl
að blanda pólitík i málið nú,” sagði
Halldór Guðbjörnsson, júdómaður.
„Auk þess gæti slikt þýtl enda-
lok ólympiuleikanna og hugntyndin
um að færa þá nú, er kjaftæði, það
er ekki hægt að færa til leika, sem
hefur lekið mörg ár að undirbúa,”
sagði hann.
Þá minnti hann á orð bandaríska
skautakappans Eric Heiden, sent
varð fintmfaldur ólympiumeistari á
vctrarólympiuleikunum i Banda-
ríkjunum nú. „Það er Irálcitt að
styrjöld réttlæti að íþróttamönnum
sé bannað að taka þátt í
ólympiuleikunum ef þeir sjálfir vilja
það, til slíks þyrfli lagasetningu er
hefti persónufrelsi.”
Halldór sagðist stefna að þátttöku
i Moskvu, en annars leiddi
Irammistaða sin i Íslandsmeistara-
tnótinu um næstu helgi og Norður-
landaméistaramótinu um mánaða-
inótin i Ijós hvört ástæða vrði til far-
arinnar.
-(;s.
Verðlaunasamkeppni
Skilafrestur í samkeppni sjómannablaðsins Vík-
ings um sögu eða frásögn úr lífi sjómanna fram-
lengist til 1. apríl.
Sjómannablaðið Vfkingur
INNKAUPASTJÓRAR
Beztu kaupin í
mannbroddum / dag
Eigum fyrirliggjandi mikið úrval mann-
brodda — hentuga fyrir allar gerðir af skóm.
Ath.: Verð út úr búð
Teg.A kr. 2.660.-
Teg. B - 2.240.-
Teg. C — 3.220.-
Teg. D — 1.905.-
Domus Medica
Egilsgötu 3
Sími 18519
Hafnarstraeti 16 - Reykjavfk - Sfmi 24338
ÚTSALAN
HEFST
Á
MORGUN
vicror huGO'
PARIS ROM LONDON
Hafnarstreeti 16 - Reykjavfk - Sfmi 24338