Dagblaðið - 28.02.1980, Síða 17
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1980.
Suzanne Brögger setti Danmörku á annan endann, þegar
hún gerði grín að hjónabandinu, en skrifar nú um gleðina
við einfalt líf:
Sálin i mér er
eins og kampavín
—segir heimskonan og býr ein með kettinum sfnum
íKnudstrup
Mikið af kvennabókmenntum í
dag eru kveinstafir einangraðra eigin-
kvenna. En ef segja má að af þeim
leggi sápulykt uppþvottabalans þá er
kampavínsangan af skrifum Súzönnu
Brögger. Hún er heimskona sem vill
njóta unaðssemda lifsins. „Flest fólk
gengur með lögregluþjón innan í .sér,
sem bannar því allt sem er skemmti-
legt,” skrifar hún, ,,en það er um að>
gera að losna við hann.”
Nýjasta bókin hennar, En gris som
har været oppe at slás kan man ikke
stege, er hrein perla, listilega skrifuð,
enda Suzönnu ekki að ófyrirsynju
líkt við Karenu Blixen. En hún
er nokkuð dýr, rúmar 7000 krónur
íslenzkar fyrir 94 síður.
Að éta aðra manneskju
upp til agna
Suzanne gaf út fyrstu bók sína árið
1973. Var það greinasafnið Fri os fra
kærlighedeneðaHlifið okkur við ást-
inni, sem skjótt hlaut mikla út-’
breiðslu.
Þar réðst hún á mörg heilög vé, og
einstæða móður, sem vinnur í verk-
smiðju?”
Kannski hefur hún þó tekið eitt-
hvert mið af þessari gagnrýni þvi í
þessari nýjustu bók, En gris
som . . . o.s.frv. er engin rómantík
heldur lýsir hún þar óbrotnu lífi ná-
granna sinna í Knudstrup. Knudstrup
er utan við Kaupmannahöfn og
þangað hefur Suzanne flúið úr
borgarglaumnum með kött sinn til að
vera í næði við að skrifa og hugsa.
Þar dregur hún upp hlýja og
fallega mynd af samvizkusamri og
góðri húsmóður að nafni Signe.
Signe skrifar tækifærisljóð eftir
pöntun og gengur með skýluklút og
falskar tennur, en verður ekki síður
lesandanum kær en glæsikvendið
sem flakkar mifli New York og
Rómar.
Að vísu er menningargjáin milli
þeirra talsvert breið og viðmiðun
ekki sú sama — en þær eru tveir regn-
bogar á sama himni .
- IHH
Suzanne finnst fólk,
sem ekki lifir sam-
kvœmt tilfinningum
sínum, vera dautt:
„Hvort haldiö þiö sé
meira lifandi, Ϛandi
járnbrautarlest eöa
þingmaöur hjá Efna-
hagsbandalaginu?”
spyr hún.
ekki sízt hjónabandið. í léttum tón
færði hún rök fyrir því að æðsta
form ástar hlyti að vera það að elska
sem allra flestar manneskjur. En að
setjast með eina manneskju út í horn
og taka sér á henni algjöran yfirráða-
rétt í nafni ástar og hjónabands, það
taldi Súsanna blátt áfram jafngilda
mannáti.
„Margt fólk er miklu hræddara
við framhjáhald heldur en kjarn-
orkusprengjuna,” sagði hún. Og til
að undirstrika að það mætti svo sem
einu gilda hver svæfi hjá hverjum
hikaði hún ekki við að lýsa því þegar
henni var nauðgað af nokkrum rúss-
neskum lögregluþjónum i Uzbekistan
ogfleiruisamadúr.
Hvort sem menn féllust á rök-
semdir hennar eða ekki þá varð því
ekki mótmælt að hún var bæði fynd-
in og hugrökk.
Læðist ekki
með veggjum
Hún sendi frá sér annað greinasafn
í svipuðum dúr, Kærlighedens veje
og genveje sem kannski mætti þýða
Beinar brautir og bugðóttar í ásta-
málum og síðan þykka og mikla
bók, sem er eins konar sjálfsævisaga
og heitir Creme Fraiche. Þar kemur
meðal annars fram að hjónaband
foreldra hennar var ófarsælt og end-
aði með skilnaði.
Suzanne er ógift kona og barnlaus,
um það bil 35—36 ára og með af-
brigðum fögur og glæsileg. Hún bjó
á unglingsárum á Malakkaskaga og
„Það bezta sem ég veit er að sitja í stól og hugsa
um óendanleikann...”
Suzanne Brögger
lærði þar að meta silkiefni og skæra
liti, og hefur mikið yndi af að búa sig
sem bezt. Hún er ekki sú manngerð’
sem læðist með veggjum. Ekki er hún
rík en hefur ferðast mikið, m.a. í
sambandi við ritstörf sín, en hún er
einn af fáum dönskum rithöfundum
sem útbreiðslu hafa náð í löndum
eins og Frakklandi og Bandaríkjun-
um. Meðal lesenda hennar eru leik-
konan Jeanne Moreau og rithöfund-
urinn Henry Miller.
Tveir regnbogar
á sama himni
Suzanne er stundum ásökuð fyrir
að skrifa of mikið um ástina í stað þess
að lýsa órómantísku hversdagslífi
flestra kvenna. En hún afsakar sig á
þessa leið: „Hvernig haldið þið að út-
slitin einstæð móðir, sem er orðin 45
ára og vinnur i verksmiðju, hafi
löngun til að lesa um aðra útslitna
„Fyrst var sagt ég
vœri hóra — og svo
stórskáld — en í raun-
inni veit ég ekkert um
ástina. ”
VÉLAVERKSTÆÐI
Egils Vilhjálmssonar H/F
SMIÐJUVEGI9 A - KÓP. - -SÍMI44445
• Endurbyggjum vélar • Borumblokkir • Plönum blokkir og head • Málmfyllum sveifarása, tjakköxla og aðra slitfleti m/ryðfríu harðstáli • Rennum ventla og ventilsæti. • Slípum sveifarása.
SÍMI 44445
FULLKOMIÐ MÓTOR- OG REIMNIVERKSTÆÐI
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njáisgötu 49 - Simi 15105
Bóka
mark
aóir
inn
Góðar
bækur
Gamalt
verð
Fimmtudaginn
Föstudaginn
Laugardaginn
Sunnudaginn
Mánudaginn
Þriójudaginn
Mióvikudaginn
Fimmtudaginn
Föstudaginn
Laugardaginn
Sunnudaginn
28. febrúar
29. febrúar
1. marz
2. marz
3. marz
4. marz
ð.marz
6. marz
7. marz
8. marz
9. marz
frá kl.
frá kl.
frá kl.
frá kl.
frá kl.
frá kl.
frá kl.
frá kl.
frá kl.
frá kl.
frá kl.
9-18
9-22
9-18
14-18
9-18
9-22
9-18
9-18
9-22
9-18
14-18
Bokamarkaðunnn
SÝNINGAHÖLLINNI
ÁRTÚNSHÖFÐA ,