Dagblaðið - 28.02.1980, Qupperneq 28
Heímilissýnmgin „stuðlar að fjölbreyttara mannlífi”:
Tívolí á5000 fermetrum
i Laugardalnum í sumar
—gæti orðið undanfari varanlegrar starfsemi
„Það er búið að tala um það í ára-
raðir að fá tivolí hingað til landsins.
Meðal annars hefur verið talað um
í tívolíinu verður bilabraut, 6—7 hringekjur (m.a. þessi), draugahús, speglasalur,
skotbakkar og ýmislegt fleira.
það innan ýmissa borgarstófnana.
Það er hins vegar ljóst að umtalið eitt
dugar ekki og því höfum við nú
ákveðið að gera þessa tilraun,” sagði
Bjarni Ólafsson, framkvæmdastjóri
Kaupstefnunnar, i samtali við Dag-
biaðið í gær.
Það verður i sambandi við sýning-
una Heimilið ’80 sem Kaupstefnan
hf. ræðst i þetta mikla fyrirtæki.
Sýningin stendur frá 22. ágúst til 7.
september næstkomandi.
„Við höfum séð hvað þetta lífgar
mikið upp á svona sýningar á
Norðurlöndum og eykur aðsókn.
Þetta er líka hlutur sem alveg hefur
vantað hér i fábreyttu borgarlífinu.
Ef reynslan af þessu verður góð gæti
þetta hugsanlega orðið undanfari
varanlegrar starfsemi af þessu tagi,”
sagði Bjarni.
Kaupstefnan hefur verið i sam-
bandi við norskt kaupstefnufyrir-
tæki, Norshow, við undirbúning
þessa máls en hér er um sænsk-norskt
tivolí að ræða sem heitir Cederholms-
Tivoli. Þetta norska kaupstefnu
fyrirtæki hefur sett upp þetta ferða-
tívoli í sambandi við sýningar sínar
og hefur þaðgefizt ákaflega vel.
Tívolíið samanstendur af bíla-
braut, 6—7 mismunandi hringekjum,
bæði fyrir börn og fullorðna, drauga-
húsi, speglasal og skotbökkum af
ýmsum gerðum.
Tækin vega um 300 tonn og
flutningskostnaðurinn einn verður
líklega um 60—70 milljónir. Svæðið
undir tækin yrði um 5000 ferm fyrir
áustan Laugardalshöllina.
Bjarni sagði að heildarkostnaður
við þetta fyrirtæki væri enn það
óljós að hann vildi engar tölur nefna
í þvi sambandi. ,,Við erum nú á bóla-
kafi í öllu kerfinu,” sagði Bjarni,
„og vissulega tökum við mikla
áhættu en samstarfsaðilar okkar úti
munu taka á sig hluta af áhættunni.
Þetta er einnig ákveðin áhætta í sam-
bandi við veðrið. Það er ljóst að eig-
endur tækjanna fá allar tekjur sem af
þessu kunna að verða. Okkar ávinn-
ingur yrði aðeins aukinn fjöldi
sýningargesta og fjölbreyttara mann-
líf í borginni.”
Bjarni sagði að ákveðið hefði verið
að reyna að fá þessi tæki frá Norður-
löndum vegna þess að öryggiseftirlit
væri þar mjög strangt og tækin mjög
örugg. „Við vildum ekki flana út í
neitt sem er hættulegt,” sagði hann
aðlokum.
-GAJ.
Búkamarkaðurinn árlegi i Sýningahöllinni hófst i morgun. Þegar um kl. niu voru fyrstu bökaormarnir mættir og hugðust gera góð kaup. Það ætti að vera hægt — á
bökamarkaðinum f ár eru um sex þúsund titlar og elztu bækurnar allt frá siðustu aldamótum. Hann Guðjón var að stafla siðustu bókununi um það bil sem opnað var
f morgun. Markaðurinn verður opinn til 9. marz. DB-mynd: Hörður.
Forsendur hæstaréttardómsins íGuðmundar-og Geirfinnsmálunum:
Samsæri um manndráp
af stórfelldu gáleysi
ásetning-
urekki
sannaður
„Þegar hin rækilega rannsókn
bæði fyrir og eftir uppsögu héraðs-
dóms varðandi meint harðræði og
ólögmæta rannsóknarhætti er virt,
verður ekki séð, að játningar ákærðu
hafi verið fengnar með ólögmætum
hætti af hálfu þeirra, er fóru með
rannsókn málsins,” segir í forsend-
um Hæstaréttar fyrir dómi í Guð-
mundarmálinu.
Þetta á við um forsendur fyrir,
dómunum í Geirfinnsmálinu einnig.
Játningar ákærðu eru því ásamt
öðrum sakargögnum lagðar til
grundvallar dómsniðurstöðum og
afturköllun framburða ekki mark-
tæk.
Kinnhestur sá sem sannað er að
fangavörður hafi lostið ákærða
Sævar, var greiddur honum 5. maí
við samprófun, alllöngu eftir að hann
játaði atferli sitt að Hamarsbraut 11,
þar sem Guðmundi Einarssyni var
ráðinn bani.
Þeir Kristján, Sævar og Tryggvi eru
allir taldir samvaldir að því að veita
Guðmundi þá áverka, að bani hlauzt
af. Árásin er talin hrottafengin. Er
þó sýknað af ákæru fyrir manndráp
af ásetningi. Talið er Ijóst, að líftjón
gæti hlotizt af árásinni, enda þótt
ásetningurséekki talinn fyrir hendi.
í Geirfinnsmálinu er rakinn að-
dragandi um fyrirhuguð vínkaup við
Geirfinn Einarsson. Er talið efalaust
að ákærðu hafi í sameiningu veizt að
Geirfinni í Dráttarbrautinni í Kefla-
vík i því skyni að knýja hann til sagna
um geymslustað smyglaðs áfengis.
„Eigi verður talið sannað, að með
ákærðu hafi búið fyrirfram sá ásetn-
ingur að svipta Geirfinn lifi, ef hann
léti ekki í té upplýsingar sem eftir var
leitað.” Árásin var hins vegar mjög
hrottaleg. „Kemur mjög til greina að
telja, að ákærðu hafi ekki getað dulizt,
að langliklegast væri að Geirfinnur
myndi bíða bana af henni, bæði
vegna ofsans í árásinni og þegar virt
er, að þeir þrír, þ.e. Sævar, Guðjón
og Kristján, sóttu að manninum á fá-
förnum stað seint að kvöldi," segir i
forsendum dómsins.
Þykir ekki vist, að árásarmönnun-
um verði gefin refsiverð sök á mann-
drápi af ásettu ráði. Mannsbani
hlauzt af ofsafenginni líkamsárás. Þá
afleiðingu ber að virða til stórfellds
gáleysis. Samtök árásarmanna eru
refsiþyngjandi.
Framburðir ákærðu leiddu til þess
að fjórir menn, sem þau báru sökum,
sættu alllangri gæzluvarðhaldsvist.
Við ákvörðun refsinga er litið til þess-
arar afdrifariku afleiðingar af broti
þeirra.
Dóminn kvað Hæstaréttur upp
þannig skipaður: Björn Sveinbjörns-
son dómsforseti, Logi Einarsson,
Benedikt Sigurjónsson, Ármann
Snævarr, Þór Vilhjálmsson.
- BS
frjálst, óháð daghlað
FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1980.
Sjór komst í fiskfarm:
Goðafoss
kom til baka
með 3200
fiskkassa
í Keflavík er verið að umpakka 3200
kössum af freðfiski sem skipað var upp
úr Goðafossi um síðustu helgi. Goða-
foss lestaði freðfisk á nokkrum höfn-
um og sigldi með farminn til Banda-
ríkjanna. Kom i ljós að sjór eða vatn
hafði náð að komast í lest i skipinu og
hluti farmsins, 3200 kassar, hafði
frosið saman í lestinni og umbúðir
skemmzt. Þurfti skipið að sigla heim til
Íslands með fiskinn.
Útlit er fyrir að sjálft innihald kass-
anna hafi ekki skemmzt við óhappið
heldur aðeins umbúðirnar. Sennilegt er
að sjórinn hafi komizt i lestina á Akra-
nesi. -ARH.
Leit hætt:
Sjómennirnir
taldiraf
Formlegri leit að sjómönnunum sex
sem fórust með rækjubátunum þremur
á Arnarfirði og ísafjarðardjúpi á
mánudag hefur nú verið hætt og sjó-
mennirnir sex eru taldir af.
Með Bíldudalsbátnum fórust Pétur
Valgarð Jóhannsson og Hjálmar
Einarsson. Með ísafjarðarbátunum
fórust bræðumir Ólafur S. Össurarson
og Valdimar Þ. Össurarson og Haukur
Böðvarsson og Daníel Jóhannsson.
Allir voru kvæntir nema Haukur.
Nítján börn hafa orðið föðurlaus.
í gær var leitað úr flugvél með
ströndum og fjörur gengnar án árang-
urs. Framhald verðurá slíkum könnun-
um. Víst þykir nú hvar flök ísafjarðar-
bátanna liggja á botni norður af Vigur.
-A.St.
Ríkisstjómin grípur inn
íafurðalánastefnu
Seðlabankans:
Lækkunar-
stefnan nú
endurskoðuð
Rikisstjórnin tók þá ákvörðun á
fundi sínum i gærmorgun að taka
þegar til endurskoðunar áform Seðla-
bankans um að lækka afurðalán til út-
flutningsatvinnuveganna um 3,5% á
skömmum tima. Bankinn hefur þegar
tilkynnt 1,5% lækkun, en ekki er
endanlega ljóst hvort bankanum verður
gert að hætta við þá lækkun, eða hvort
honum verða ekki heimilaðar frekari
lækkanir. -GS.
LUKKUDAGAR:
28.FEBRÚAR 5260
h,
Reiðhjól að eigin vali frá Fáik-
anum fyrir kr. 100 þús.
Vinningshafar hringr
isíma 33622. ’