Dagblaðið - 18.03.1980, Page 5
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1980.
ATLI RUNAR
HALLDORSSON
Stærsta hraunið í Mý-
LJÓSMYNDIR:
RAGNAR TH
SIGURÐSSON
vatnseldum hinum nýrrí
Hraunið var mjög þunnfljótandi og breiddist hratt út. Mökkurinn stigur upp af heitu hrauninu, þótt skán hafl setzt ofan á.
I nýja hrauninu eru ótal kynjamyndanir og verður snjórinn að hopa undan
hitanum.
— rekstrartruflanir hafa ekki orðið í Kröfluvirkjun, Kísiliðjunni eða gufuvirkjuninni við Bjarnarflag
Frá Atla Rúnari Halldórs-
syni í Reynihlíð við Mývatn
í gærdag:
Jarðfræðingar vinna nú ötullega
að rannsóknum á gossvæðinu i jaðri
Mývatnsöræfa. Að sjálfsögðu er
hraunið ennþá vel heitt og stutt ofan
á glóandi eðju eins og DB menn
fengu að finna, þegar þeir námu
staðar nærri einum gígnum í hraun-
inu. Gúmmiiykt, sem gaus upp
reyndist nefnilega vera runnin frá
stigvélum blaðamanns, sem hélt hið
skjótasta áfram ferð sinni.
Komið er i Ijós að hraunrennslið
nær yl'ir stærra svæði en talið var i
fyrstu og er hið langmesta sem orðið
hefur i Mývatnseldum hinum nýju.
Enginn hefur þó treyst sér til þess að
áætla hraunflötinn að svo komnu
máli.
Guðmundur Sigvaldason, forstjóri
Norrænu eldfjallamiðstöðvarinnar,
fór í morgun i Gjástykki norður
undir Hrútafjöll. Kom þá i Ijós að
þar hafa sprungur myndazt i jarð-
skorpuna. Af þessu er Ijóst að áhrif
jarðhræringanna hafa ekki eingöngu
verið rétt við sjálft gossvæðið eins og
sumir hafa kannski vonað í fyrstu.
Skjálftar hafa bæði fundizt hér við
Mývatn í dag og einnig mælzt á mæl-
um. Er það aðeins það sem venjulegt
er á þessu stigi jaröhræringanna.
Samkvæmt fregnum frá Kröflu-
virkjun og einnig frá Kísiliðjunni og
gufuvirkjuninni við Bjarnarflag
hefur ekkert þar gerzt sem gefur til-
efni til þess að tii rekstrartruflana
Jarðskjálftamælar tóku hcldur
betur viö sér cr hrinan gekk yfir.
Gamlar borholur tóku að blása af miklum krafti er þrýstingur óx.
Vonir standa til þess að rekstur mannvirkja í námunda við gossvæðið geti haldið áfram án stórra breytinga.
geti komið vegna jarðhræringanna.
Ekki er heldur kunnugt um að neinar
breytingar hafi orðið á hverasvæðum
hér i nánd.
-ARH/ÓG
Litið yfir nýja hraunið.