Dagblaðið - 08.04.1980, Síða 6
6
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. APRlL 1980.
Allar skreytingar unnar af fag-
mönnum.
AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um framtalsfresti.
Ákveðið hefur verið að framlengja áður aug-
lýstan frest einstaklinga, sem hafa með hönd-
um atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi,
frá 15. apríl til og með 30. apríl 1980.
Reykjavik 2. april 1980
Ríkisskattstjóri
Hef kaupanda að 4ra herb. íbúð, vestan
Kringlumýrarbrautar. Uppl. í síma
28874 eftir kl. 15 í dag.
SKÚLI THORODDSEN
lögfrœfllngur
*■! blla»tc*ðl a.m.k. é kvöldla
mOYlíAYIXnH
HAFNARSTRÆTI Slmi 12717
ísetningar á staðnum.
SKOLAGÖTU 26
SÍMAR 25755 0G 25780
interRent bílaleigan býður yður fulltryggöan bíl á
næstum hvaða flugvelli erlendis sem er - nýja bíla
af þeirri stærð, sem hentar yður og fjölskyldu yðar.
Vér útvegum yður afslátt - og jafnvel er leiguupp-
hæðin lægri (ekkert kílómetragjald) en þér þurfið
að greiða fyrir flutning á yðar bíl með skipi - auk
þess hafið þér yðar bíl að brottfarardegi hér heima.
Verði óhapp, tryggir interRent yður strax annan bíl,
í hvaða landi sem þér kunnið að vera staddur í.
interRent er stærsta bílaleiga Evrópu, vér veitum
yður fúslega allar upplýsingar.
interRent
interRent á Islandi / Bílaleiga Akureyrar
Reykjavík - Skeifan 9 - Símar: 86915, 31615
Akureyri - Tryggvabr. 14 - Símar: 21715, 23515
Akureyri:
15 ára piltur beið
bana í umferðinni
Eilt dauðasiys varð á landinu um
páskahelgina. Lézt 15 ára piltur í um-
ferðarslysi á Akureyri á föstudaginn
langa. Var hann á bifhjóli á leið
norður Byggðaveg á Akureyri og
lenti á Renault sendiferðabíl sem ók
vestur Hamarsstíg og átti þarna um-
ferðarrétt.
Talið er að piiturinn á hjólinu hafi
verið á upp undir 50 km hraða og að
hjálmur hans hafi verið óspenntur á
höfði hans. Pilturinn lenti á sendi-
bílnum framanverðum og mátti sjá
dæld eftir hjálminn ofan við fram-
rúðu bílsins. Eftir höggið barst
hjálmurinn með bílnum en pilturinn
fór aftur með hlið bílsins. Er talið að
hann hafi látizt við áreksturinn á bíl-
inn.
Hinn látni hét Ragnar Ragnarsson,
til heimilis að Skarðshlíð 40 F. Hann
varð 15 ára 26. janúar sl.
- A.St.
Róleg páskahelgi hjá lögreglunni:
Erill á laugardags-
kvöldið að vanda
—20 ökumenn grunaðir um ölvun við akstur
Páskahelgin í höfuðborginni varð
með rólegasta móti. Afskipti þurfti
ekki að hafa af mörgu fólki og fanga-
geymslur voru aldrei nálægt þvi að fyll-
ast. Einna mest varð umferðin á
laugardagskvöldið í miðborginni en fáa
þurfti að taka úr umferð.
I erlinum í miðborginni á laugar-
dagskvöldið var rúða brotin i gler-
augnaverzluninni Linsunni í Aðalstræti
9. Vist þykir að eitthvað af gleraugna-
umgjörðum hafi verið tekið úr glugg-
anum, en það mál er í rannsókn.
Frá því á miðvikudagskvöld voru 20
ökumenn grunaðir um ölvun við
akstur. Gefur þessi tala nokkra hug-
mynd um litla umferð í höfuðborginni,
því talan alla helgina frá miðvikudegi
til mánudags er lægri en oft er um
venjulegar helgar.
- A.St.
Þá eru páskamir búnir og vorið hiýtur aó vera l nánd. Veðrið var ekki of gott fyrir þá sem œtiuðuað bregða sér á skiði eða í
gönguferð, a.m.k. ekki sunnanlands, en það verður að hafa það. Pulsan bœtir skapið, hvað sem öilu veðri liður.
DB-mynd: Hörður.
L0GANDIBÍLL í
BÍLAGEYMSLU
Stærðar bílageymsla, dimm og lág til
lofts, að Hamraborg í Kópavogi, var
orðin full af reyk á páskadag kl. 18.24
er hringt var i slökk viliðið.
Reykkafarar voru i skyndi sendir i
bilageymsluna til að kanna aðstæður
og fundu eldsupptök i bensintanki bils
sem stóð í dimmasta hluta hennar.
Klukkan var 15 mínútur gengin í tvö
í fyrrinótt þegar íbúar að Hjaltabakka
16 urðu varir við mikinn reyk i stiga-
gangi hússins. Kallað var í skyndi á
slökkvilið, en orsaka eldsins jafnframt
leitað.
við Hraunbæ kl. 7.32 að morgni föstu-
dagsins langa þegar hringt var í
slökkvilið og beðið um aðstoð. Er liðið
kom á vettvang reyndist eldur hafa
verið kominn í rúmdýnu, en íbúar voru
að mestu búnir aðslökkva með vatni.
Eftir það tók slökkvistarf stuttan tima
en lengur tók að lofta út. I öryggis-
skyni var hurð logandi bílsins brotin
upp, ef vera kynni að einhver væri i
honurn, en svo reyndist ekki.
Miklar skemmdir urðu á bilnum.
Getgátur eru uppi um að um ikveikju sé
að ræða. -A.St.
íbúarnir fundu póstkassa í fordyri
logandi og gátu sjálfir slökkt áður en
slökkvilið kom. Ljóst þykir að þarna
hafi visvitandi verið kveikt í á eldfim-
um stað.
Maður sem sofið hafði á brennandi
dýnunni var eitthvað miður sin vegna
reyksins og var fluttur í slysadeild.
Ekki voru i gær spurnir af því að
reykur i öndunarfærum hans hefði haft
alvarleg eftirköst.
- A.St.
Kveikt í póst-
kassa f Breiðholti
Fluttur í slysadeild
með reykeitrun
Talsverður eldur var kominn í íbúð