Dagblaðið - 08.04.1980, Side 7

Dagblaðið - 08.04.1980, Side 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 1980. Guðlaugur efstur í Landsvirkjun Skoðanakönnun um fylgi frambjóð- enda í forsetakosningunum var gerð hjá Landsvirkjun i fyrri viku. Úrslit voru þessi: Guðlaugur..................22 atkvæði Vigdís..............21 Pétur............... 7 Albert.............. 3 Rögnvaldur.......... 0 Vigdís efst í Víghólaskóla Könnun á fylgi við forsetaframbjóð- endur var gerð meðal kennara og starfsfólks Víghólaskóla í Kópavogi. Niðurstöður urðu þessar: Vigdís 15:42% Guðlaugur 14:39% Albert4:l 1% Pétur Thorsteinsson 1:3% Rögnvaldur 0 Auðir seðlar 2:5% - BS Guðlaugur efstur í saltf iskverkun KASKáHöfn Tuttugu og fjórir starfsmenn Salt- "‘A^J er búið að stilla Ijósin? UMFERÐARRAÐ Antwerpen alla fimmtudaga Hafóu samband EIMSKIP SIMI 27100 fiskverkunar Kaupfélags Austur-Skaft- fellinga, KASK, tóku þátt i könnun um fylgi forsetaframbjóðenda. Niður- stöður: Albert 3, Guðlaugur 12, Pétur 0, Rögn- valdur 0, Vigdís 8. Einn seðill var auður en 24 starfsmenn af 26 tóku þátt í könnuninni. - BS Vigdís efst hjá Vegagerðinni á Reyðarfirði Efnt var til skoðanakönnunar meðal starfsmanna Vegagerðar ríkisins á Reyðarfirði. Þrjátíu áttu kost á að kjósa. Tuttugu og fjórir tóku þátt í könnuninni. Þar af fékk Albert Guð- mundsson eitV atkvæði, Guðlaugur Þorvaldsson fimm, Pétur Thorsteins- son sex, Rögnvaldur Pálsson ekkert, og Vigdis Finnbogadóttir 10 atkvæði. Auðir og ógildir voru tveir. Guðlaugur efstur hjá Álfélaginu Guðlaugur Þorvaldsson rikissátta- semjari nýtur mests fylgis stgrfsmanna íslenzka Álfélagsins af frambjóðend- um til embættis forseta, ef marka má niðurstöður skoðanakönnunar er þar hefur verið framkvæmd undanfarna fjóra daga. I könnuninni tóku þátt starfsmenn úr báðum kerskálunum. Atkvæði greiddu 111. Guðlaugur hlaut 52 atkvæði, Vigdís Finnboga- dóttir 28 atkvæði, Albert Guðmunds- son 20 atkvæði, Pétur Thorsteinsson 7 atkvæði og Rögnvaldur Pálsson 1 at- kvæði. Auðir seðlar voru þrír. - GAJ Sparisjóður Haf narfjarðar: Vigdís efst Fjörutiu tóku þátt i prófkjöri vegna forsetakosninganna í Sparisjði Hafnar- fjarðar. Úrslit urðu sem hér segir: Albert Guðmundsson 6 Guðlaugur Þorvaldsson 10 Pétur Thorsteinsson 4 Vigdís Finnbogadóttir 16 Auðir seðlar voru 4. - JH Prentsmiðjan Oddi: Guðlaugur efstur í Prentsmiðjunni Odda greiddu 61 atkvæði af u.þ.b. 70 starfsmönnum. Atkvæði á forsetaframbjóðendur skiptust svona: Guðlaugur Þorvaldsson 26 Vigdís Finnbogadóttir 22 Albert Guðmundsson 8 Pétur Thorsteinsson 1 Rögnvaldur Pálsson I Auðir seðlar voru 3. - JH Lokar þú augunum íyrir staðreyndum? „Kaupmaður kaupir 10 egg á 100 krónur. Hann selur þau aftur á 120 krónur. Hvemikill er gróði kaupmannsins?“ Þeita gamla skólabókardæmi er aðeins örlítið brot af þeim misskilningi, sem ríkt hefur hérlendis um viðskipti og verslun. Það er nefnilega ómögulegt að reikna út gróða, án upplýsinga um kostnað verslunarinnar. Alíka misskilningur hefur einnig ríkt um inn- lenda heildverslun. Akaflega margir loka beinlínis augunum fyrir staðreyndum varð- andi hlutverk heildverslunar í nútíma þjóð- félagi. Það er staðreynd að samkeppni í heildverslun er grundvöllur vöruúrvals og vörugæða. Það er líka staðreynd, að ranglát löggjöf um heildsöluálagningu hefur staðið innlendri heildverslun fyrir þrifum. Það er ekki hægt að loka augunum fyrir því, að heildverslunin einfaldar vörudreifingu og gerir hana ódýrari; um leið og samkeppnisfær heildverslun stuðlar að hagkvæmu vöruverði, skapar hún atvinnu í atvinnugreinum, sem flest okkar líta á sem sjálfsagða þjónustu. Frjáls atvinnurekstur í lýðræðisríkjum er trygging þín fyrir daglegri þjónustu, sem öllum finnst sjálfsögð. Betri þjónusta og fjölbreyttara vöruúrval, með öflugri heildverslun, er stór hluti þeirrar tryggingar. Stundum gleymist bara hve heildverslun er nauðsynleg. viöskipti &verzlun

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.