Dagblaðið - 08.04.1980, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. APRlL 1980.
9
Washington:
Sadatá fund
Carters
Sadat Egyptalandsforseti er kominn
til Washington og hittir Carter forseta
til skrafs og ráðagerða i dag. Talsmenn
Bandaríkjastjórnar segja að á fundum
forsetanna verði rætt um hvernig megi
korna viðræðum Israelsmanna og
Egypta um stöðu Palestínumanna úr
Þeirri sjálfheldu sem þær nú eru í. Ekki
vænta menn þó mikils árangurs af
fundunum, né heldur væntanlegum
fundum Carters með Menachem Begin
forsætisráðherra Ísraels sem haldnir
verða i næstu viku.
Stavanger:
Fótur annars
íbúðarpalls
gaf sig
Allar horfur eru á þvi að öllum
ibúðarpöllum sem eru af sömu
gerð og Alexander Kielland, sem
sökk á Norðursjávarolíusvæði
Norðmanna fyrir nokkru, verði
nú lagt og þá jafnvel að íullu og
öllu. í fyrradag gerðist það að
systurpallur Kielland, Henrik lb-
sen, fór skyndilega að hallast þar
sem hann lá við festar i
Stavangerfirði skammt frá höfuð-
stöðvum BP-fyrirtækisins
hollenzka, sem á pallana.
Ekki tókst að stöðva sig palls-
ins út á eina hliðina fyrr en fótur-
inn þar á nam við botn. Þeim
mönnum hátt á sjöunda tuginn,
sem voru um borð þegar at-
burðurinn varð tókst öllum að
bjarga heilum á húfi til lands.
j ljós kom að ventill á fæti
pallsins hafði ekki lokast þegar
hann átti að gera það. Streymdi
þvi sjór óhindrað inn i hann.
Dýpi var ekki nenia tuttugu
metrar þar sem Henrik Ibsen lá.
Enn er unnið að rannsókn á
orsökum slyssins þegar ibúðar-
pallinum Alexander Kielland
hvolfdi og á annað hundruð
nianns fórust á oliusvæðinu í
fyrra mánuði.
Stef na Bani-Sadr íransforseta varð undir og gíslarnir verða áf ram í vörzlu
stúdentanna:
Harðlmuklerkam-
ir höfðu betur
— Carter Bandaríkjaf orseti sleit stjórnmálasambandi við íran og setti á
viðskiptabann
Jintmy Carter Bandarikjaforseti
hefur slitið öll stjórnmálatengsl
Bandarikjanna og írans og gefið í
skyn að valdi verði beitt nema stjórn
irans beiti sér fyrir frelsun gislanna
50 i sendiráðinu í Teheran. Forsetinn
tilkynnti ákvörðun sina i kjölfar yfir-
lýsingar Ayatollah Khomeini trúar-
leiðtoga írana í gær um að gtslarnir
skyldu áfram vera í vörzlu stúdent-
anna sem hálda þeim i gislingu í
sendiráðinu. Litið er svo á að Bani-
Sadr forseti í íran berjist um í póli-
tískum mótvindi heima fyrir. Hann
beitti sér fyrir því að stjórnvöld
tækju gíslana í sinar hendur af
stúdentunum herskáu. Stefna hans
varð undir og harðlinuklerkar sem
vilja hvergi gefa eftir gagnvart
Bandaríkjunum fögnuðu sigri. Deila
Bandarikjanna og íran er því komin
á nýtt og alvarlegra stig.
Carter tilkynnti nýjar hefndarað-
gerðir gagnvart íran, þar á meðal við-
skiptabann. ,,Aðrar aðgerðir kunna
að verða nauðsynlegar,” sagði for-
setinn án þess að tilgreina þær frekar.
Embættismaður einn i Hvita húsinu
sagði þó að Bandarikjastjórn útilok-
aði ekki valdbeitingu á grundvelli
ákvæða i sáttmála Sameinuðu þjóð-
anna um sjálfsvörn.
Ali Agah sendifulltrúi írans neitaði
að taka við formlegri tilkynningu um
brottrekstur hans og 34 annarra
íranskra sendimanna frá Bandarikj-
unum og rauk snúðugur á dyr.
Sendimennirnir verða að yfirgefa
Bandaríkin i dag og ferðafrelsi þeirra
er takmarkað við 3.2 km radius um-
hverfis heimili þeirra fram að brott-
förinni.
Edward Kennedy keppinautur
C'arters um útnefningu til forseta-
framboðs sagði i gær að nýju
liefndarráðstafanirnar gagnvarl fran
þörfnuðust viðtæks alþjóðlegs
stuðnings til að ná tilgangi sinunt.
Hann kvaðst vona að aðgerðirnar
bæru tilætlaðan árangur.
- ,/i
4*
„Sannleikurínn kemur,
falsið flýrafhólmr
segir i textanum á þessu póstkorti sem gefið er út I Iran. Þar i landi hafa öll póst
kort með mynd af keisarafjölskyldunni verið tekin úr umferð fyrir löngu en i staú
inn eru komin kort þar sem Khomeini erkiklerkur er I aðalhlutverkin
myndatextunum er gjarnan talað um hann sem fremsta baráttumann fyrir muh t
eðstrú i veröldinni.
fólk
komið út
Folk kemur ut vikulega — kostar aðeins 600krónur.
Efnið er fréttnæmt, ferskt og iétt Fjaiiar aðeins um fóik. Fóik i
sjónvarpi\ kvikmyndum, istarfi, að leik, ílistum.
Faðu þer emtak af Folki.
Á skrrftarsímar 82300 og 82302.
FRJALST FRAMTAK HF.