Dagblaðið - 08.04.1980, Page 10

Dagblaðið - 08.04.1980, Page 10
10 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. APRlL 1980. BIAÐIÐ hjálst, úháð dagblað Útgefandi: Dagblaðið hf. Framkvnmdastjóri: Sveinn R. Eyjótfuon. Ritstjórí: Jónas KríStjénuon. Ritstjómarfulitrúi: Haukur HelgaSon. Fréttastjórí: Ómar Valdimarsson. Skrífstofustjórí rítstjóman Jóhannes Reykdai. Íþróttir. Haflur Simonarson. Menning: Aflalsteinn Ingótfuon. Aflstoðaifréttastjórí: Jónas Haraidsson. Handrit: Asgrímur Pálsson. Hönnun: Hilmar Karisson. Blaflamenn: Anpa Bjamason, Atli Rúnar Halidórsson, Afji Steiríarsson, Ásgeir Tómauon, Bragi Sigurflsson, Öóra Steférísdóttir, Elín Albertsdóttir, Erna V. IngóHsdóttir, Gunnlaugur A. Jónsson, ólafur Geiruon, Sigt^rflur Sverrísson. Ljósmyndir Ámi Páll Jóhannuon, Bjamlerfur Bjamlelfsson, Hörflur Vilhjélmuon, Ragnar Th. Sigurðs- son, Sveino Pormóflsson. Safn: Jón Saavar Baldvinuon. Skrífstofustjórí: Ólafur Eyjólfsson. Gjaldkerí: Þréinn Þorieifuorí. Sölustjóri: Ingvar Sveinuon. Drerfing Ststjórí: Mér E.M. Haildóruon. Ritstjóm Siðumúla 12. Afgreiflsla, éskríftadeUd, auglýsingar og skrífstofur Þverholti 11. Aflslsiml blaðsins er 27022 (10 Mnuri. Setning og umbrot; DagMaflM hf., Siflumúla 12. Mynda- og plötugerfl: Hilmir hf., SiAumúla Í2. Prentun Arvakur hf., Skedunni 10. Askríftarverfl á mánufll kr. 4800. Verfl f lausasölu kr. 240 eintakifl. Andóf stjórnarliða Nokkrir stjórnarþingmenn andæfðu 'fíj fyrir páskana gegn ríkisstjórninni í ýms- um þingmálum og gátu í sumum tilvik- um knúið fram breytingar. Ljóst er, að ríkisstjórninni veitir ekki af rökréttu andófí úr þingliði stjórnar- flokkanna. Ríkisstjórnin hefur verið á villigötum í ýmsum mikil- vægum málum. Tilhneiging hefur komið fram hjá sumum ráðherrum að æða áfram í skattheimtu í tillits- leysi. Ráðherrar hafa gjarnan gengið frá málum sín í milli og ætlað óbreyttum þingmönnum að rétta upp hendur samkvæmt fyrirmælum að ofan. Tvö prósent hækkun á söluskatti vegna hins nýja orkujöfnunargjalds var skattlagning, sem keyrði úr hófi fram. Bæði fólst í henni of hár olíustyrkur og mik- ill hluti teknanna af gjaldinu átti að renna í almenna eyðslu ríkisins til viðbótar þeirri ofsköttun, sem áður hafði verið ákveðin. Sumir þingmenn stjórnarliðsins voru frá upphafi andvígir þessari skattlagningu af þess- um ástæðum. Einnig kom í ljós, að skattlagningin mundi skila mun meiri tekjum til ríkisins en reiknað hafði verið með, þegar frumvarpið var lagt fram. Varð þá „uppreisn” í liði stjórnarinnar. Nokkrir þingmenn, einkum Guðmundur G. Þórar- insson (F), Albert Guðmundsson (S) og Guðmundur J. Guðmundsson (AB) knúðu fram lækkun á skattlagn- ingunni úr 2 í l ,5 söluskattstig. Þetta var breyting til mikilla bóta, en þó er um ofsköttun að ræða. Enn stefnir í, að 1—2 milljarðar af tekjum af þessum skatti renni í ríkishítina til almennrar eyðslu. Eftir að stjórnin hafði borið fram frumvarp um skattstiga, kom í ljós reikningsskekkja, þannig að talið var stefna í, að tekjur ríkissjóðs af tekjuskatti yrðu 2— 3 milljörðum minni en áður hafði verið talið. Ráðherr- ar vildu þá vaða beint áfram til að hækka enn skattstig- ana. Skattstigarnir voru of háir fyrir, þar sem reiknað var með, að um 65 prósent af nettótekjum einstaklinga yfir sex milljónir rynnu til hins opinbera. Framgangur þessarar hækkunar skattstiganna var stöðvaður, að minnsta kosti í bili. Sumir óbreyttir stjórnarþingmenn vildu ekki auka skattheimtuna upp úr því, sem fólst í fyrri ákvörðun um skattstiga. Þeir vilja fremur draga úr endurgreiðslum á skuldum ríkisins við Seðlabank- ann. Vel væri, ef niðurstaðan yrði sú, að skattstigarnir yrðu ekki hækkaðir, en til þess þurfa þeir stjórnarþing- menn, sem andæfa, að halda fast á sínu. Æskilegast væri, að þá yrði dregið úr ríkisútgjöldum almennt fremur en að minnka endurgreiðslur til Seðla- banka. Ágreiningur kom upp í ríkisstjórninni um fyrirhug- aða bensínhækkun. Sú skoðun átti þar mikið fylgi, að rétt væri að draga úr gífurlegri skattlagningu ríkisins á bensínið. Frægt var í tíð vinstri stjórnarinnar, þegar Tómas Árnason, þáverandi fjármáíaráðherra, stóð einn ráð- herra á því, að skattlagningarprósenta ríkisins á bensínið skyldi ekki lækkuð, og hafði sitt fram. Nokkuð svipuð staða hefur nú komið upp, þótt staða Tómasar sé veikari en þá, þar sem hann er við- skiptaráðherra en ekki fjármálaráðherra. 1 Þeir stjórnarþingmenn, sem einkum eru i Alþýðu- bandalaginu og liði Gunnars, sem vilja í alvöru draga úr skattpíningunni á bensínið, fá nú tækifæri til að sýna, hvað í þeim býr. r V r „Ekki víst aó Thatcher takist að snúa við" — segir Friedrich A. Hayek forystumaður „nýju hagfræðinganna” Hin sjálfvirku öfl markaðarins eru vænlegust til að halda jafnvægi í at- vinnu- og efnahagslífinu en rikisaf- skipti þar hljóta ávallt að vera til ills. Þannig er meginkjarninn í þeim hug- myndum, sem nóbelsverðlaunahaf- inn Friedrich A. Hayek hagfræð- ingur heldur fram og vakið hafa si- fellt meiri athygli, í það minnsta á Vesturlöndum. Hayek var hér á íslandi í síðustu viku og flutti erindi og sat málþing Félags frjálshyggjumanna. Hagfræðingarnir Hayek og annar nóbelsverðlaunahafi, Milton Fried- man, eru í forustu þeirra, sem á síðari árum hafa sífellt aukið gagn- rýni sína á efnahagskenningar, sem gera ráð fyrir að efnahagslifi þjóða verði bezt fyrirkomið með skynsam- legri stjórn ríkisfjármála. Höfuðtalsmaður þeirrar skoðunar og helzta stjama í efnahagsvísindum hefur verið talinn hagfræðingurinn Keynes. Stefna Keynes hefur ráðið mjög miklu varðandi efnahagsmál Vesturlanda alveg frá því í kreppunni á fjórða áratugnum. Á fundi með Hayek, þegar hann kom hingað til lands, sagði hann að Bretland nútímans væri eitt bezta dæmið um hvernig sívaxandi rikisaf- skipti hefðu fært eitt land nær og nær fátækt. Afskipti ríkisins þar hefðu ekki einvörðungu beinzt að yfirtöku eigna heldur einnig að því að veita verkalýðsfélögum mun meiri völd en eðlilegt væri, ef efnahagslífið ætti að verða rekið á sem hagkvæm- astan hátt fyrir þjóðfélagið. Samkvæmt kenningum Hayek hagfræðings hlýtur markaðurinn ávallt að ráða og með því næst mestur og beztur efnahagslegur ávinningur. Hann telur Bretlands- dæmið sýna að þau réttindi sem verkalýðsfélögum þar, eða réttara sagt stiórnendum þeirra, hafi verið ATTUYSU ÍS0DIÐ? Það er deginum ljósara að við ís- lendingar stígum nú hvert skrefið af öðru innar og innar i stress og tækni- flækju iðnaðarþjóðfélagsins sem nefnt er og eins og við var að búast þá er sú þróun alls ekki öllum að skapi. Svo mikið er víst, að hverfandi horfur eru á að þessi þróun taki nein- um afgerandi breytingum i næstu framtíð. Eitt af því sem er í undarlegri þver- sögn við þessa þróun er ástandið i þeirri verslunargrein sem flokkast undir nafnið „Fisksala v/innanlands- neyslu”. Undirritaður er fæddur og uppal- inn i sjávarplássi og hefur starfað meira og minna við aðaliðnað þjóðarinnar alla ævi. Eftir að hafa unnið við fisksölu í eitl ár auk þess að kanna ýmislegt i því sambandi í Dan- mörku og Sviþjóð síðastl. sumar þá hef ég eftirfarandi um máliðaðsegja: Stendur ekki undir kröfunum Hversu rómantiskir sem menn kunna annars að vera i garð eldri verkþátta þá stendur þessi verslunar- grein einfaldlega ekki undir þeim kröfum sem núverandi þjóðfélaggerir til hennar, nema með fáeinum und- antekningum. Í fyrsta lagi þá blæðir buddu neyt- andans fyrir ástandið á eftirfarandi hátt: Fjöldinn allur af mönnum, hver á sínum litla bil, safnar hver sinuni litla skammti og flytur síðan lengri eða skemmri vegalengdir á sölustað, m.ö.o. aðdrættir á hráefni eru hinir óhagkvæmustu. Þá hefur lengi tiðkast, að fisk- salar yfirbjóði aðra þegar þeir versla við útgerðina og að sjálfsögðu segir það til sín þegar selt er yfir búðar- borðið. i ofanálag má geta þess að vél- væðing í þessari grein þekkist vart. í öðru lagi — og það sem alvar- legra er, þá er meðferð á fiski marg- falt vandasamari en t.d. kjöti en santt viðhafa fisksalar ýmis vinnubrögð sem stranglega eru bönnuð við kjöt- sölu. Sem dæmi þá er það santi maðurinn sem pakkar inn fiskinum og tekur við greiðslunni. Einnig er geymslu hráefnisins mjög oft alvar- lega ábótavant. í þriðja lagi er þjónustan i þessari verslunargrein fyrir neðan allar hellur. Hver hefur t.d. ekki kontið hlaupandi rétt fyrir lokun og stunið móður upp úr sér hvort fisksalinn ætti nú ekki ýsusporð í kvöldsoðið en fengið svohljóðandi svar: „Þvi miður, elsku vin, þá kláraðist ýsan um hádegi. En má ekki bjóða þér gellur í staðinn?” Kaupandinn leggur hins vegar gellur ekki til jafns við ýsu og þrammar í illu skapi alla leið til næstu stórverzlunar og kaupir ýsuna úr frystiborðinu. Að sjálfsögðu eru þeir sem stunda fisksölu ekkert verra fólk en þú eða ég og það er staðreynd að margir þessara manna þræla myrkranna á milli án þess að uppskera annað en svita og tár. Engu að siður hefur fisksala dregist aftur úr annarri matvöruversl- un í þróun og ættu ofangreind rök að nægja til að sýna fram á að skipulag fisksölu (og neyslu) hér innanlands er algerlega í molum og framfarir á þessu sviði eru lygilega hægfara. Uppgjör í aðsigi Nú kann að vera að sumum finnist að fisksala komi þeim einum við sem hana stunda og fisksalarnir hljóta þá bara sjálfir að súpá seyðið af sínum gerðttm. Þvi miður er það alls ekki svo. Samkvæmt könnun Fisk ífélags íslands, og hún fór einmitt frant með aðstoð fisksala og þykir áreiðan- leg, er hrein neysla á fiski innanlands um 800 lestir á mánuði eða um 9600 lestir á ári en það er meira en árs- framleiðsla allra hraðfrystihúsa í Vestmannaeyjum á árinu 1977. Sé miðað við söluverð á heilli ýsu úr fiskbúð (650 kr/kg) þá er andvirði ársneyslu landsmanna um 6,2 millj- arðar og geta menn leikið sér að þvi að bera saman aðhald á þessu sviði annars vegar og öðrum sviðum svo sem bílakaupum ráðherra hins vegar. Það er samróma álit þeirra sent lagt hafa út á þá bráut að auka þjón- ustu í fisksölu með þvi að bjóða fisk- nieti til sölu i kjörverslunum (fisk-

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.