Dagblaðið - 08.04.1980, Page 15
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. APRlL 1980.
íþróttir Iþróttir íþróttir Iþróttir
„Stærstur, fljótastur
og skallaði knöttinn bezt”
—skrifa þýzku blöðin um Atla Eðvaldsson, Udo Lattek, þjálfari Borussia Dortmund,
var mjög hrif inn af Atla. Allar líkur til að hann skrif i undir samning við Borussia um næstu helgi
„Udo Lallek var mjög hrifinn af is-
lenzka landsliðsmanninum i Vai,
Reykjavík, Atla Eðvaldssyni — líkti
honum við Horsl Hrubesch, hinn
snjalla miðherja Hamburger SV, og þó
er Eðvaldsson fjótari,” skrifar dag-
hlaðið Dortmunder í síðustu viku. Eins
og kunnugt er af fréttum hér i DB æfði
Atli hjó Borussia Dortmund i síðustu
viku — og ef að likum lætur gerist
hann atvinnumaður í knattspyrnu hjá
félaginu strax og hann lýkur námi í
íþróttaskólanum að Laugarvatni í júni.
Það vakti mikla athvgli í Vestur-Þýzka-
landi að Atli (Attila eins og þýzku
blöðin kalla hann) æfði með Dort-
mund. Þjóðverjarnir eru greinlega yfir
sig hrifnir af þessum sterka leikmanni
og Udo Latlek, einn kunnasti þjálfari i
Vestur-Þýzkalandi og stjóri Borussia
Dortmund, er ekki vanur því að hlaða
hrósi á leikmenn eins og hann gerði að
þessu sinni.
,,í samanburði við Hrubesch hefur
Atli frábæra tækni,” skrifar Bild —
,,og hinn íslenzki risi, 1,89 m, var fljót-
ari en allir leikmenn Dortmund á æf-
ingunum.”
„Atli Eðvaldsson var mest i sviðs-
ijósinu af öllum á æfingunum hjá
Borussia Dortmund — miðpunktur
alls,” skrifaði Westfalische Rundschau
,um eina æfinguna hjá knattspyrnu-
mönnum Borussia. „Hann var
stærstur, fljótastur og skallaði knött-
inn bezt. Frábærlega leikinn,” og
þannig má halda áfram með umsagnir
þýzku blaðanna hvað Atla viðkemur.
Greinilegt að hann hefur slegið i gegn i
Vestur-Þýzkalandi — og að enn einn
okkar beztu knattspyrnumanna er nú á
leið í atvinnuknattspyrnu.
Eftir því sem DB hefur frétt er for-
niaður Borussia Dortmund og fleiri af
forustumönnum félagsins væntanlegir
til Islands um næstu helgi. Ef að likum
lætur verður þá endanlega gengið frá
samningum milli Atla og félagsins.
i -hsím.
—Yuri Sedov, sem var þjálfari sovézka landsliðsins
Dusseldorf 27
Leverkusen 27
Bremen 27
Bochum 27
Duisburg 27
Braunschweig 27
10 5 12 51—60 25
9 7 11 32—48 25
10 3 14 44—65 23
8 6 13 26—34 22
7 6 14 32—48 20
6 7 14 28—49 19
„Við erum að reyna að skapa meiri
spennu og skemmtilegheit fyrir leik-
menn og áhorfendur með þessum
hreytingum — aukastiginu ef lið skorar
þrjú mörk eða fleiri og bráðabana ef lið
verða jöfn að venjulegum leiktíma
loknum," sagði Ólafur P. Erlendsson,
formaður Knattspymuráðs Reykja-
vikur, i samtali við DB. í kvöld hefst
Reykjavikurmótið í knattspyrnu með
leik Vals og Þróttar á Melavellinum.
Leikurinn hefst kl. 20.
Sjö knattspyrnufélög i Reykjavik
taka þátt í mótinu, Arrnann, Fram,
Fylkir, KR, Valur, Víkingur og Þrótt-
ur. Fyrsti leikurinn er í kvöld, eins og
áður segir. Á miðvikudag leika KR og
Fram, Fylkir og Valur á laugardag, 12.
„Mér lizt vel á það, sem ég hef séð
hér á íslandi, og fólkið er alveg einstak-
lega vingjarnlegt,” sagði nýi Víkings-
þjálfarinn í knattspyrnunni, Yuri
Sedov, þegar DB ræddi við hann i gær.
Sedov kom til íslands á laugardag og
þar hefur Víkingur áreiðanlega fengið
góðan mann — Sedov er einn kunnasti
knattspyrnuþjálfari Sovétríkjanna og
hefur meðal annars þjálfað sovézka
landsliðið í knattspyrnu. Sedov talar
mjög góða ensku.
Yuri Sedov var kunnur knattspyrnu-
maður hér á árum áður. Lék með
Spartak Moskvu og varð sovézkur
meistari 1952, 1953 og 1958, og auk
þess tvivegis bikarmeistari. Spartak er
vinsælasta knattspyrnufélagið i Sovét-
rikjunum — skyggir þar á Dynamo
Moskva, og félagið er núverandi Sovét-
í knattspymu í tvö ár
meistari. Þá lek Sedov í sovézkum úr-
valsliðum, m.a. við landslið Sví-
bjóðar, Ungverjalands og Indlands.
Þá fór hann með Spartak í keppnisferð
til Englands 1954 og lék m.a. við
Arsenal og Wolverhampton.
Eftir að leikferli hans lauk gerðist
Sedov þjálfari. Hafði áður stundað
nám í þeim fræðurn — einkum tækni-
hlið þjálfunarinnar. Sedov hefur
þjálfað víða — verið með félagslið í
Sovélríkjunum og einnig landslið
Afganistan. Árið 1976 var hann ráðinn
þjálfari sovézka landsliðsins i knatt-
spyrnu ásamt Armeníumanninum
Simonian. Bar þar ábyrgð á tæknihlið
þjálfunar landsliðsmannanna. Hann
annaðist það starf í tvö ár.
Þegar við spurðum Sedov um
mjnnisstæðasta atvik á knattspyrnu-
ferli sínum var hann fljótur að svara:
„Það var í Búdapest i Ungverjalandi
1953 við opnun NEP-leikvangsins
mikla. Spartak lék þá við Honved, hið
fræga ungverska lið, sem hafði Ference
Puskas í broddi fylkingar og fjölmarga
aðra ungverska landsliðsmenn. Ég
skoraði fyrsta markið í leiknunt —
fyrsta markiðá hinum fræga NEP-leik-
vangi,” sagði Sedov.
Yuri Sedov, sem er 51 árs að aldri og
býður af sér mjög góðan þokka, byrjar
að þjálfa hjá Viking á-morgun en þá
koma meistaraflokksmenn félagsins úr
keppnisför til Englands. Eiginkona
Sedovs — Galia Sedova að nafni —
kom með manni sínum hingað til lands.
„Mér lizt mjög vel á manninn, hann
er ræðinn og skemmtilcgur og há-
menntaður þjálfari,” sagði Sigurður
Bjarnarson, formaður knattspyrnu-
deildar Víkings, i stuttu samtali við DB
en hann lók á móti Sedov ásanil tveim-
ur öðrum kunnum Víkingum, Ólafi
Erlendssyni, formanni KRR, og
Ásgciri Ármannssyni, stjórnarmanni t
knattspyrnudeildinni, þegar Yuri
Sedov kom til íslands á laugardag. Ef
að líkum lætur verður Sedov þjálfari
hjá Viking næstu tvö árin. Tekur við af
landa sínum dr. Yuri Ilitchev, sem
þjálfaði Víkinga í fyrrasumar með
góðum árangri. Eftir að llitchev hvarf
heim til Sovétríkjanna hefur Bogdan
Kowalczyk, Pólverjinn snjalli, sem
þjálfað hefur handknattleiksmenn Vik-
ings undanfarin ár, séð um þrekþjálfun
Ólafur Erlendsson, Yuri Sedov, Sigurður Bjarnarson og Ásgeir Ármannsson við Víkingsheimilið.
DB-mynd Bjarnleifur.
Atli Eðvaldsson og Udo Lattek á æfingu hjá Borussia Dortmund I siðustu viku.
ÍA vann sigur
á Ármanni
Fyrri úrslitaleikurinn um efsta sætið
í 2. deild kvenna fór fram á Akranesi í
siðustu viku. Áttust þar við lið ÍA og
Ármanns. ÍA sigraði 17—15 eflir að
Ármann hafði leitt 7—4 í hálfleik.
Siðari leikurinn mun fara fram i
l.augardalshöllinni um helgina. Akra-
nesstúlkunum nægir jafntefli lil að
komasl í 1. deildina. Troðfulll hús
áhorfenda fylgdist með leiknum á
Akranesi á miðvikudag og handknalt-
leiksáhugi er nú orðinn mjög mikill i
þessum gamla rótgróna knatlspyrnu-
bæ.
HAMBURGER SV
í EFSTA SÆTIÁ NÝ
Hamburger SV náði forustu á ný í
Bundesligunni i V-Þýzkalandi á laugar-
dag, þegar liðið vann stórsigur á
Hertha, Berlin, í Hamborg. Úrslit 6—
0. Það var eini leikurinn i Bundeslig-
unni á laugardag. Þeir Holger Hiro-
nymus og Willi Reimann, tvö, skoruðu
fyrir Hamborg á fyrstu 60 min. leiks-
ins. Þannig stóð þar til á 83. mín. og
áhorfendur voru farnir að yfirgefa leik-
vanginn, að Hamborg bætti við þremur
mörkum á stuttum tima. Fyrst skoraði
Jurgen Milewski, síðan Kevin Keegan
og að lokum Diejmar Jakobs.
Bikarkeppnin réð rikjum i Vestur-
Þýzkalandi á laugardag. Þá voru háðir
leikirnir í átta-liða úrslitum. L'iðin i
Bundeslígunni stóðu með pálmann í
höndunum eftir leikina. Úrslit urðu
þessi:
Dortmund — Stuttgart 3—1
Hamburg — Köln 1—4
Schalke—Bayreuth 3—1
K.Offenbach — Dusseldorf 2—5
Staðan i Bundesligunni er
HamburgerSV 27 16 6 5
Bayern
Stuttgart
Köln
Kaisersl.
Schalke
Frankfurt
Dortmund
Múnchen
Uerdingen
Gladbach
27 16 6
27 14 5
27 12 8
27 13 4
\27 II 7
27 14 0 13
27 12 4 11
27 9 8 10
27 11 4 12
27 8 9 10
nú þannig:
68—28 38
57—28 38
60—41 33
62—45 32
52—42 30
35— 34 29
54—46 28
50—44 26
36— 36 26
36—44 26
44—52 25.
á Melavelli íkvöld
Vikingur og Armann kl. 17.00. Mólinu
lýkur 6. maí.
Á siðasta ársþingi KRR var sam-
þykkt til reynslu i meistaraflokki 1980,
aðverði lið jöfn aðloknum venjulegunt
leiklima skal háður bráðabani. I.eik-
maður úr liði A byrjar við miðlinu leik-
vallar og til varnar er markvörður úr
liði B. Hlutkesti skal ráða hvort liðið
byrjar. Leikmaður hefur 15 sekúndur
við lilraun sína til að skora. Fari knötl-
urinn út af vellinum, eða brjóti leik-
maður A af sér, er tilraun hans lokið.
Brjóti markvörður af sér skal dæmd
vitaspyrna. Fimm leikmenn úr hvoru
liði geri lilraun til markskorunar og ef
þá er enn jafnt skal haldið áfrant þar til
úrslit fást. Mörk skoruð i bráðabana
skulu ekki teljast í heildarúrslitum né
til aukastigs.
Þá verður eins og undanfarin ár veitt
aukastig fyrir að skora þrjú cða fleiri
mörk i leik i keppni rrteistaraflokks. I
Reykjavíkurmótinu í öllum flokkum er
leylilegt að skipta fjórum leikmönnum
inn á allan leiktímann. Þar af skal einn
vera markvörður. Þessi regla gildir
einnig um alla flokka á miðsumars- og
haustmótum KRR.
EINN KUNNASTIÞJÁLFARI
S0VÉT K0MINN TIL VÍKINGS
Þarf „bráðabana”
hjá Val og Þrótti?
— Reykjavíkurmótið í knatts jyrnu hefst