Dagblaðið - 08.04.1980, Page 19
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 1980.
I
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Jimmy Greenhoff kom; sá og
sigraði er United vann Liverpool
—United er nú aðeins tveimur stigum á eftir meisturunum
eftir 2-1 sigur í viðureign liðanna á Old Trafford á laugardag og gððan sigur á Bolton f gær
Með Iveimur górtum sigrum um
páskahelgina tóksl Manchesler United
a(I minnka muninn á toppnum á ensku
1. deildinni úr 6 stigum niður í 2 og nú
er aftur komin talsverð spenna í topp-
baráttuna þótt Liverpool standi óneit-
anlega mun betur að vígi ennþá. Aðal-
leikur hátíðanna var viðureign Man-
chester United og Liverpool á Old
Trafford. Gifurlegur áhugi var fyrir
leiknum og uppselt var á hann nær heil-
um degi áður en hann átti að hefjast.
Um 57.000 manns höfðu komið sér
fyrir í áhorfendastæðunum er blásið
var til leiks en áhorfendum til mikillar
skelfingar var það Liverpool sem hafði
tögl og hagldir í lciknum framan af.
Hinir 15.000 aðdáendur Liverpool voru
þó vel með á nótunum og fögnuðu inni-
lega er Kenny Dalglish skoraði gott
mark á 14. minútu. Liverpool herti
sóknina allt hvað af tók og þrívegis
fóru þeir Dalglish og Johnson hroða-
lega að ráði sinu fyrir opnu marki.
United tókst hins vegar að jafna metin
með marki Micky Thomas fyrir leikhlé.
Að sögn fréttamanna BBC stefndi allt i
sigur Liverpool, ef svo héldi fram sem
horfði, en leikmenn United voru ekki á
þeim buxunum að láta bæði stigin af
hendi átakalaust. Þeir vissu að ef Liver-
pool sigraði væri titilvonin endanlega
farin út um þúfur svo að það voru
grimmir Manchester United leikmenn
er gengu inn á völlinn í siðari hálfleik.
framan af hálfleiknum gerðist litl
markvert en á 64. minútu fékk United
hornspyrnu — sina fyrstu í leiknum.
Steve Coppell gaf vel fyrir markið og
þar stökk Joe Jordan hærra en allir
aðrir og skallaði þrumufast að mark-
inu. Knötturinn virtist vera á öruggri
leið í netið er Jimmy Greenhoff þrum-
aði honum til frekara öryggis upp i
þaknetið, 2—I, og allt ætlaði vitlaust
að verða á vellinum. Greenhoff, sem
hafði ekki leikið með síðan í bikarúr-
slitaleiknum á Wembley í fyrra, var
manna ánægðastur og ætlaði varla að
trúa þvi að honum hefði tekizt að
skora. Markið var þó gott og gilt og
United hafði tekið forystu.
Strax á næstu mínútu greip Cleni-
ence snilldarlega inn í leikinn og rétt á
eftir varði hann mjög glæsilega. Leik-
menn Liverpool vildu þó ekki leggja
árar í bát án frekari baráttu og David
Johnson smeygði sér laglega framhjá
tveimur varnarmönnum og spyrnti að
markinu. Bailey missti af knettinum en
varnarmaður bjargaði á linu. United
geystist í sókn og Ray Wilkins þrumaði
knettinum í þverslá Liverpool-marksins
svo hún nötraði lengi á eftir. Þrátt fyrir
að leikurinn gengi hratt markanna á
milli tókst hvorugu liðinu að skora og
United hirti því bæði stigin. Liverpool
varð fyrir því óhappi í þessum leik að
Alan Kennedy meiddist illa. Sammy
Lee kom inn á sem varamaður og tók
stöðu Jimmy Case á miðjunni. Case fór
í stöðu hægri bakvarðar og Phil Neal
færði sig yfir völlinn í stöðu vinstri
bakvarðar.
Áður en við höldum lengra skulum
við líta á úrslitin í Englandi allt frá þvi
á miðvikudag.
Miðvikudagur, 1. deild
Leeds — Middlesbrough 2—0
Manchester City — Everton 1 — 1
Norwich — Arsenal 2—1
Nottingham Forest — Man. Utd. 2—0
n
Tottenham — Ipswich 0—2
2. deild
Chelsea — QPR 0—2
Newcastle — Notts County 2—2
Manchester United fékk mikinn mót-
byr í seglin við tapið gegn Forest á City
Ground. Mikil læti urðu á 78. mínútu
er dæmd var vítaspyrna á Sammy Mcll-
roy. Sammy sjálfur, sem þekktur er
fyrir flest annað en kjafthátt, gat þó
ekki stillt stig um að rifa kjaft og dóm-
arinn, hinn heimsfrægi Clive Thomas,
var ekkert að tvinóna og sendi Mcllroy
i bað. Það likaði Tommy Cavanagh
ekki betur en svo að hann sendi dómar-
anum kveðju. Fyrir vikið fékk hann
gult spjald. Allur móður virtist úr leik-
mönnum United eftir þennan dóm
Thomas og Gary Birtles skoraði annað
mark Forest 6 min. siðar.
Ipswich lék sinn 19. leik i röð i 1.
deildinni án taps og sigraði Tottenham
sannfærandi á White Hart Lane með
mörkum Paul Mariner og Russell
Osman — eitt í hvorum hálfleik.
Arsenal tapaði mjög óvænt i Norwich
og þar varði Roger Hansbury, vara-
markvörður Norwich, glæsilega víta-
spyrnu frá Liam Brady. Rix kom þó
Millwall — Wimbledon 2—2
Oxford — Southend 1—0
Reading — Plymouth 1—0
Sheffield U — Sheffield W 1 — 1
4. deild
Bournemouth — Aldershot 3—1
Bradford — Darlington 3—0
Doncaster — Walsall 1 — 1
Huddersfield — Halifax 5—0
Lincoln — Rochdale 0—0
Jimmy Greenhoff skoraði sigurmark Manchester United gegn Liverpool — 11 mán-
uðum eftir að hann lék sinn siðasta leik með United. Siðasta mark hans var einnig
gegn Liverpool — í undanúrslitum bikarsins í fyrra.
Arsenal yfir í leiknum en David Jones
jafnaði metin. Justin Fashanu tryggði
Norwich síðan sigurinn á 79. mínútu
með fallegu marki. Chelsea tapaði
ákaflega mikilvægum leik á Stamford
Bridge og Newcastle lækkar flugið
óðum og er nú orðið nær vonlaust með
að endurheimta sæti sitt í I. deildinni.
Ekkert var leikið á fimmtudag en á
föstudag voru þrír leikir í 2. deildinni.
Bristol R — Fulham I—0
Charlton — Luton 1—4
Wrexham — Burnley I—0
Á laugardag var svo leikin heil unt-
ferð í öllum umferðum. Úrslit urðu
sem hér segir:
l.deild
Arsenal — Southampton 1 —1
Bristol C — WBA 0—0
Aston Villa — Nottm. For. 3—2
Crystal P — Brighton 1 — 1
Derby — Leeds 2—0
Everton — Bolton 3 — 1
Ipswich — Norwich 4—2
Manchester U — Liverpool 2—1
Middlesbröugh — Coventry 1—2
Stoke City — Manchester C 0—0
Wolves —Tottenham 1—2
2. deild
Bumley — Shrewsbury 0—0
Leicester — Chelsea 1—0
Luton — Watford 1—0
Notts Co — Charlton 0—0
Oldham — Cambridge 1 — 1
Preston — Wrexham 0—0
QPR — Birmingham 1 — 1
Sunderland — Newcastle 1—0
Swansea — Bristol Rovers 2—0
West Ham — Orient 2—0
3. deild
Barnsley — Grimsby 0—1
Bury — Rotherham 1—0
Carlisle — Chesterfield 0—2
Chester — Brentford I —1
Exeter — Swindon 4—1
Gillingham — Colchester 2—2
Hull — Blackpool 3-1
Mansfield — Blackburn 1—0
Newport — Torquay 3—0
Portsmouth — Hereford 0—0
Scunthorpe — Port Vale 1—0
Tranmere — Crewe 2—0
Wigan — Peterborough 2-1
York — Hartlepool 2—1
Hörkuleikur var á Villa Park þar sent
Aston Villa og Nottingham Forest
mættust. Des Bremner skoraði fyrst
fyrir Villa á 12. minútu en Gary Birtles
jafnaði á 28. minútu. Allan Evans
skoraði síðan gullfallegt skallamark á
41. mínútu og færði Villa forystuna á
nýjan leik. Larrý Lloyd sendi síðan
knöttinn i eigið net á 47. mínútu áður
en lan Bowyer tókst að minnka muninn
á 77. mínútu.
Skemmtilegur leikur var einnig á
dagskrá á Portman Road i Ipswich er
þar mættust Anglíu-liðin Ipswich og
Norwich. John Wark, skozki mið-
vallarleikmaðurinn, var heldur i stuði
því hann skoraði þrjú marka Ipswich í
leiknum. Hann náði forystunni á 22.
minútu og þannig var staðan þar til i
hálfleik. Wark bætti síðan öðru marki
við á 70. mínútu og nú úr vítaspyrnu.
Kevin Bond minnkaði muninn skömmu
siðar en Paul Mariner svaraði strax
fyrir Ipswich aftur og staðan var orðin
3—1. Áhorfendur tóku að tinast út af
vellinum enda litið eftir en það hefðu
þeir betur látið vera. Þegar minúta var
komin fram yfir venjulegan leiktíma
skoraði Wark þriðja mark sitt — aftur
úr vitaspyrnu. Leiknum var ekki lokið
þar með því Keith Robsons náði að
laga stöðuna í 2—4 fyrir sína menn rétt
áður en flauta dómaransgall.
Ef við förum hratt yfir aðra Ieiki þá
náði Alan Sunderland forystunni fyrir
Arsenal gegn Southampton en Phil
Boyer jafnaði á 60. mínútu — hans
fyrsta mark fyrir Dýrlingana í tvo mán-
uði. Brighton krækti í gott stig á Sel-
hurst Park gegn Crystal Palace. Peter
Ward — hans 15. mark í vetur — náði
forystunni fyrir Brighton en Jim
Cannon, fyrirliði Palace, jafnaði i
síðari hálfleiknum.
Derby vann góðan sigur á Leeds á
Elland Road með mörkum þeirra Barry
Powell og Keith Emson. Everton vann
öruggan sigur á Brighton með mörkum
þeirra Megson, Eastoe og Kidd en
Whatmore skoraði eina mark Bolton
eftir að Everton hafði komizt í 2—0.
Middlesbrough tapaði óvænt á heima-
velli fyrir Coventry og þar skoraði Ian
Wallace sem aftur er farinn að teika,
bæði mörk gestanna. Hið fyrra á 17.
mínútu. Gordon Hodgson hafði þó náð
forystu fyrir Boro á 2. mínútu. Úlfarnir
töpuðu óvænt fyrir Tottenham á Moli-
neux. Chris Jones og Galvin skoruðu
rnörkin fyrir Spurs en John Richards
það eina fyrir Úlfana. Seint i leiknum
varð Richards að fara út af vcgna
meiðsla.
Larry May skoraði sigurmark
Leicester gegn Chelsea á 64. minútu
eftir að Leicester hafði sótt nær látlaust
allan tímann. Alan Young fékk a.m.k.
5 dauðafæri en nýtti ekkert þeirra. Bob
Hatton skoraði eina mark f.uton gegn
Watford og Luton á nú enn möguleika
á sæti í 1. deild. Burke jafnaði metin
fyrir QPR á 91. mínútu eftir að Kevin
Dillon hafði komið Tottenham yfir á
36. mínútu. Birminghant átti sigur skil-
inn en sofandaháttur í vörninni undir
lokin kostaði þá annað stigið. West
Ham sigraði nú á nýjan leik en senni-
lega kemur sá sigur of seint til að þeir
geti krækt i eitt hinna eftirsóltu sæta i
I. deild að hausti. Nigel Gray kom
Hammers á sporið á 68. minútu með
sjálfsmarki en Trevor Brooking bætti
siðan öðru marki við. Stan Cummins
skoraði sigurmark Sunderland gegn
Newcastle og Sunderland á nú góða
möguleika á að komast upp í 1. deild-
ina á nýjan leik. Alan Waddle og Brian
Attley skoruðu mörk Swanseea gegn
Bristol Rovers.
í gær var síðan fjöldi leikja í öllum
deildum. Höfum ekki tleiri orð um þá
en litum á úrslitin.
l.deild
Bolton — Manchester U 1—3
Brighton — Bristol C 0—1
Coventry — Derby 2—1
Manchester C — Aston Villa 1 —1
Norwich — Crystal Palace 2—1
Noltm. Forest — Evcrton frestað
Souihampton — Wolves 0—3
Tottenham — Arsenal 1—2
WBA — Ipswich 0—0
2. dcild
Birmingham — West Ham 0—0
C'ardiff — Swansea 1—0
Cheslea — Luton 1 —1
Newcastle — Burnley 1 —1
Watford — Oldham 1—0
Wrexham — Sunderland « 0—1
3. deild
Blackburn — Sheffield U 1—0
Blackpool — Carlisle 2—1
Brentford — Mansfield 2—0
Chesterfield — Chester 2—0
Colchester — Bury 2—1
Grimsby — Hull 1 — 1
Plymouth — Exeter 2—0
Rothcrham — Barnsley 1 —1
Sheffield W — Gillingham 1—0
Southend — Millwall 1—0
Swindon — Oxford 1 —1
Wimbledon — Reading 1 —1
4. deild
Aldershot — Portsmouth 1—2
Crewe — Scunthorpe 1 — 1
Halifax — York 1 — 1
Northampton — Lincoln 0—0
Peterborough — Stockport 1 —1
Port Vale — Wigan 1 — 1
Rochdale — Bradford City 0—1
Torquay — Bournemouth 0—0
Walsall — Tranmere . 2—0
United vann góðan sigur á Bolton á
Burnden Park þrátt fyrir að 'Bolton
næði forystunni með marki Neil What-
more á 17. mínútu. Gordon McQueen
jafnaði metin á 40. mínútu með hörku
skallamarki — hans 9. mark i vetur.
Micky Thomas kom United síðan yfir i
síðari hálfleiknum — hans þriðja mark
í sl. 4 leikjum. L.okaorðið átti svo
Steve Coppell er hann skoraði undir
lok leiksins.
Southampton fékk Ijótan skell gegn
Últunum og lið Úlfanna veldur nú
mönnum miklum heilabrotum. Einn
daginn sigrar það topplið, þann næsta
tapar það fyrir botnliði. Árangur Ulf-
anna á útivelli i vetur er þó einkar at-
hyglisverður og liðið hefur sigrað í 10
leikjum af 17 á útivöllum. Andy Gray
skoraði tvö markanna i gær og hætt er
við að leikmenn Southampton hali enn
verið að nudda stirurnar úr augunum cr
leikurinn hófst kl. II, a.m.k. var vörn-
in ekki upp á marga fiska.
Arsenal hefndi sín grimmilega á
ólyrirleitni forráðamanna Spurs.
Tottenham neitaði að fresta leiknum
vcgna Evrópuleiks Arsenal gegn
Juventus á rnorgun. Arsenal mætti til
leiks með 6 varamenn og tókst að vinna
sigur. Alan Sunderland og Palu
Vaessen skoruðu mörkin en C'hris
Jones svaraði fyrir Spurs á lokaminút-
unni.
Tom Ritchie skoraði eina markið í
leik Brighlon og Bristol City og Bristol
liðið eygir nú smá glætu í fallbarátt-
unni. Ian Wallace og Steve Hubt
skoruðu mörk Coventry gegn Derby en
Aiden McCaffrey svaraði fyrir gestina.
Þetta tap var slæmt fyrir Derby sem
nauðsynlega þurfti á stigi að halda.
David Geddis færði Villa forystuna á
City Ground en Paul Power jafnaði
metin áður en yfir lauk. Geddis var
siðan rekinn af lcikvelli undir lok leiks-
ins fyrir Ijótt brot.
í 2. deildinni tapaði Chelsea enn
mikilvægu stigi og svo gæti hæglega
farið að liðið kæmist ekki upp úr 2.
deildinni. L.ið Sunderland, Birming-
ham og Leicester, virðast öll meira
sannfærandi. Sunderland vann nú
góðan sigur á útivelli gegn Wrcxham og
það eru tákn um betri tíð i þeint her-
búðum. Útisigrar hafa ekki verið
ntargir en koma nú þegar þeirra er mest
þörf. West Ham krækti i dýrmætt stig
á St. Andrews i Birgmingham og gæti
hugsanlega komizl upp.
1. dcild
1 iverpool 36 22 8 6 71-27 52
Manch. Uld. 37 20 10 7 55-30 50
Ipsw ich 38 19 9 10 62-37 47
Arscnal 36 16 13 7 46-28 45
Aston Villa 37 14 13 10 46-43 41
Wolves 34 17 6 11 48-36 40
Southampton 37 15 9 13 54-46 39
Nottm. l or. 35 16 6 13 54-40 38
WBA 38 11 16 11 53-48 38
Middlesbro 35 14 10 11 39-33 38
C'isstal P. 38 11 15 12 39-44 37
Coventry 36 15 6 15 51 -56 36
Norwich 38 11 14 13 51-58 36
Lottcnham 37 14 8 15 46-55 36
1 ecdsUtd. 37 11 13 13 40-46 35
Sioke City 36 11 10 15 40-49 32
Brighton 36 9 14 13 42-52 32
Everton 37 8 15 14 41-47 31
Manch. City 38 9 13 16 35-60 31
Derby 37 9 8 20 39-58 26
Bristol C. 36 7 12 17 27-53 26
Bolton 36 4 12 20 32-66 20
2. deild
Birmingham 37 19 9 9 51-32 47
Chclsea 38 21 5 12 60-50 47
1 nton 38 15 15 8 62-41 45
St.ndcrland 36 18 9 9 56-37 .45
l.cicester 36 16 12 8 50-35 44
Newcastle 38 15 13 10 49-41 43
QPR 37 16 10 11 65-46 42
West Ham 35 17 6 12 45-35 40
Preston 37 1 1 16 10 49-46 38
Oldham 37 14 10 13 46-46 38
Wrexham 38 16 6 16 40-42 38
C'ambridge 37 11 15 11 49-44 37
Cardiff 36 15 7 14 36-41 37
Shrewsburv 37 16 4 17 51 -47 36
Orient 36 12 12 12 43-48 36
Swansea 37 14 7 16 41-50 35
Notts Co. 37 10 13 14 43-43 33
Bristol R. 37 11 10 16 45-52 32
Watford 37 9 12 16 29-40 30
Burnley 38 6 13 19 37-65 25
Fulham 35 7 7 21 34-62 21
Charllon 36 6 9 21 34-66 21
-SSv.