Dagblaðið - 08.04.1980, Blaðsíða 26
26
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. APRlL 1980.
Aðalfundur
Flugleiða hf
verður haldinn mánudaginn 28. apríl í Kristalsal
Hótels Loftleiða og hefst kl. 13:30. Dagskrá: I. Venju
lega aöalfundarstörf skv. 10. gr. samþykkta félagsins
2. Breytingar á samþykktum félagsins. 3. önnur mál.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir hlut
höfum á aðalskrifstofu félagsins, Reykjavíkurflugvelli
frá og með 21. apríl nk. og lýkur laugardaginn 26.
aprll. Athugið að atkvæðaseðlar verða afgreiddir
laugardaginn 26. apríl kl. IQ,— 17.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aöalfundi.
skulu vera komnar í hendur stjórnarinnar eigi siðar en
7 dögum fyrir aðalfund. Tekið skal fram að fyrri um-
boð til að mæta á aðalfundi Flugleiða hf. eru fallin úr
gildi og er því nauðsynlegt að framvísa nýjum
umboðum hafi hluthafar hug á að láta aðra mæta fyrir
sig á aðalfundinum.
Fundur um
sérkennslu
Laugardaginn 15. marz gekkst Fél. isl. sérkennara
fyrir opnum fundi á Hótel Borg og ráðgjafar- og sál
fræðiþjónustu í skólum og fyrirkomulag sérkennslu.
Þar sem þessi mál eru nú víða til umfjöllunar var
sérstaklega boðiö á fundinn öllum skólastjórum, alm.
kennurum, skólahjúkrunarfræðingum, skólalæknum.
starfsfólki á fræðsluskrifstofum, foreldrum. sál
fræðingum og félagsráögjöfum, ásamt öðrum þeim
sem áhuga hefðu á þessum málum.
Stutt framsöguerindi fluttu: Magnús Magnússon
sérkennslufulltrúi mcnntamálaráðun.. Grétar
Marinósson sálfræðingur, Áslaug Friðriksdóttir skóla
stjóri, Kristín Andrésdóttir alm. kcnnari, Guðjón
ólafsson sérkennari, Þórunn Óskarsdóttir félagsráð
gjafi, Þorsteinn Sigurösson sérkennslufulltrúi Reykja
vikurborgarogSturla Kristjánsson fræðslustjóri.
I framsöguerindunum kom fram að Fræðsluráð
Rvikur hefur skipað nefnd til að fjalla um endur •
skoðun á ráögjafar- og sálfræðiþjónustu og skipan sér
kennslumála innan höfuðborgarinnar. Snerust
umræður að framsöguerindum loknum aðallega um
þessi atriði og kom fram að skoðanir manna eru
skiptar varöandi framtíðarskipan þessara mála.
I umræðunum tóku þátt: Sigtryggur Jónsson sál
fræðingur, Guðrún Kristinsdóttir félagsráðgjafi, Helgi
Þorláksson skólastjóri, Gunnar Árnason sálfræðing
ur, Kári Arnórsson skólastjóri, Kristin Aðalsteins
dóttir sérkennari og Jónas Pálsson skólastjóri, auk
nokkurra framsögumanna.
Ný deild innan
Handíða- og myndlista-
skólans
Nú upp úr áramótum var sett á stofn höggmynda og
myndmótunardeild við Myndlista- og handiðaskóla
íslands, og er þar með náð langþráðum áfanga í mynd
mennt íslendinga.en til þessa hafa listnemar ekki átt
neinna kosta völ á þvi sviði utan kvöldnámskciða. Slik
deild var eitt sinn til við skólann, þótt vanbúin væri
að tækjum, en lagðist niður illu heilli vegna þrengsla
og annarra húsnæðisvandræða skólans.
Hin nýja deild má hcita þolanlega úr garði gerð
hvað snertir vinnuskilyrði, en samkomulag hefur
orðið um, að nemendur fái þjálfun i logsuðu og
lóðningu i Iðnskólanum. Þegar í upphafi voru niu
nemendur innritaðir í hina nýju deild.
1 byrjun april kemur hingað danskur maður. Jörgen
Bruun Hansen, scm kenn mun ýmiss konar vegg
myndatækni, sem hann hefur lengi kennt við Lista
akademiuna í Kaupmannahöfn. Mun hann kcnna við
höggmyndadeild skólans og jafnframt kenna á kvöld
námskeiði, sem skólinn efnir til fyrir starfandi lista
menn. Jörgen Bruun-Hansen hefur áður komið
hingað og kennt á vegum skólans við miklar vinsældir.
en tækniþekking hans er mjög viðtæk og fjölbreytt.
Handmenntasýning 1 Hvera-
gerði til ágóða fyrir Noregs-
för nemenda
1 byrjun mai fara nemendur 9. bekkjar Grunnskól
ans i Hveragcrði i 11 daga ferð til Sigdal i Noregi.
vinabæjar Hveragerðis. Sjóðurinn „Þjóðhátiðargjöf
Norðmanna” hefur veitt myndarlegan styrk til farar
innar. Að auki gangast nemendur sjálfir i samvinnu
við kcnnara og foreldra fyrir ýmsum uppákomum i
fjáröflunarskyni.
íslandsmót í minni-bolta
Körfuknattleikssambandið hefur ákveðið að halda
Islandsmót í minni-bolta i samvinnu við KR og munu
þeir verða framkvæmdaaðilar að mótinu.
Mótið verður haldið í Fellaskóla i Reykjavík
dagana 11. og 12. april og verður nánari dagskrá send
síöar.
Þátttökugjald er kr. 17.000 á lið og þátttökutil
kynningar bcrist skrifstofu KKl eða i sima 85949 fyrir
5. april nk.
Útboð
Hitaveita Suðurnesja óskar eftir tilboðum i
lagningu fyrsta áfanga dreifikerfis á Keflavík-
urflugvelli. í fyrsta áfanga eru steyptir stokk-
ar, um 1200 m langir með tvöfaldri pípulögn,
pípurnar eru 300, 350 og 400 mm í þvermál.
Verkinu skal lokið á þessu ári. Útboðsgögn
verða afhent á skrifstofu Hitaveitu Suður
nesja, Brekkustíg 36 Njarðvík, og Verkfræði-
stofunni Fjarhitun hf., Álftamýri 9 Reykjavík,
gegn 50 þús. kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Hitaveitu
Suðurnesja þriðjudaginn 22. apríl kl. 14.
. IÞróttir
Reykjavíkurmótið —
Meistaraflokkur:
Valur— Þróttur kl. 20.
Veðrið
Veðurfrœflingamir okkor spá sufl-
vestan átt fram eftir degi, en sifldegis
gengur í vestan átt og slydduól.
Klukkon sex í morgun var í Reykja-
vi< suflvestan 3, súld og 6 stig, Gufu-
skálar sunnan 5, rigning og súid og 6
stig, Galtarviti austsuflaustan 3, rign-
ing og 7 stig, Akureyri suðsuflvostan
2, skýjafl og 4 stig, Roufarhöfn aust-
suflaustan 2, alskýjafl og 1 stig, Dala-
tangi sunnon 1, skýjafl og 0 stig, Höfn
í Hornafirfli norflnorflvestan 2, skýjafl
og 3 stig, Stórhöffli I Vestmannaeyj-
um suflvestan 5, rigning og súld og 6
stig.
Þórshöfn í Fœreyjum hálfskýjafl og
1 stig, Kaupmannahöfn skúr í grennd
og 3 stig, Osló þoka I grennd og -1
stig, Stokkhólmur skýjafl og 1 stig,
London skýjafl og 4 stig, Hamborg
skúr og 3 stig, París lóttskýjofl og 5
stig, Madrid heiflskirt og 0 stig, Lissa-
bon heiðskirt og 11 stig og New York
alskýjafl og 8 stig.
Aðaifundir
Aðalfundur
Neytendasamtakanna
verður haldinn að Hótel Loftleiðum laugardaginn I2.
apríl. Þar fara fram venjuleg aðalfundarstörf og
stjórnarkjör.
Aðalfundur
Arnarflugs h/f
verður haldinn i Snorrabæ við Snorrabraut (Austur
bæjarbíó) föstudaginn 11. april kl. I4. Dagskrá: Aðal
fundarstörf samkvæmt I3. grein samþykkta félagsins.
Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins sam |
kvæmt I5. grein samþykktanna. i tilefni nýrra lagu
um hlutafélög, önnur mál. löglega upp borin.
Illlllllllllllllllllll
Ökukennsla—æfingatímar.
Kenni á Galant 79. Ökuskóli og öll
prófgögn ef þess er óskað. Nemendur
greiði aðeins tekna tíma. Jóhanna
Guðmundsdóttir, ökukennari, sími
77704.
Ökukennsla-æfingatím'ar.
Kenni akstur og meðferð bifreiða, kenni
á Mazda 323 árg. 79. Ökuskóli og öll
prófgögn fyrir þá sem þess óska.. Helgi
K. Sesselíusson, sími 8I349.
Ökukennsla-æfingatímar.
Kenni á Volvo árg. '80. Lærið þar sem
öryggið er mest og kennslan bezt. Engir
skyldutímar. Hagstætt verð og
greiðslukjör. Ath: nemendur greiði
aðeins tekna tíma. Simi 40694. Gunnar
Jónasson.
Folalda-
gúllasið
KJÖTBÚÐ
SUÐURVERS
STIGAHLÍÐ - SlMI 35645
Góð frammistaða ungu mannanna á Skákþingi íslands:
Jóhann Hjartarson
næstyngsti íslands-
meistarinn f rá upphafi
Jóhann Hjartarson varð Íslands-
meistari í skák á Skákþingi íslands sem
lauk í gær. Jóhann er næstyngstur
þeirra sem unnið hafa titilinn, nýorð-
inn sautján ára. Aðeins Jón L. Árna-
son var yngri er hann vann titilinn
1977, þá sextán ára. Þeir Friðrik Ólafs-
son og Guðmundur Sigurjónsson voru
einnig sautján ára er þeir unnu titilinn
en aðeins eldri en Jóhann.
Jóhann þótti mjög vel að sigrinum
kominn og vinningshlutfall hans, 9
vinningar af 11 mögulegum, er mjög
glæsilegt. Titilinn tryggði hann sér í 10.
umferð sem tefld var á laugardag þegar
hann lagði alþjóðlega meistarann
Helga Ólafsson að velli í mjög harðri
og tvísýnni skák.
Lokastaðan i landsliðsflokki varð
þessi: l. Jóhann Hjartarson 9 v., 2.
Helgi Ólafsson 7,5 v., 3.—4. Ingvar
Ásmundsson og Jóhannes Gisli Jóns-
son 6,5 v., 5. Ásgeir Þ. Árnason 6 v.,
6— 7 Elvar Guðmundsson og Haukur
Angantýsson 5,5 v., 8. Gunnar
Gunnarsson 5 v., 9. Júlíus Friðjónsson
4,5 v., 10. Björn Þorsteinsson 4 v., 11.
Benedikt Jónasson 3,5 v., 12. Bragi
Halldórsson 2,5 v.
Athygli vekur góð frammistaða ungu
mannanna en þeir Jóhannes Gísli og
Elvar eru aðeins 16 ára, og Karl Þor-
steins sem er aðeins 15 ára tryggði sér
rétt til að tefla í landsliðsflokki að ári
með því að hreppa 2. sætið í áskor-
endaflokki með 8 v. Þar sigraði Ásgeir
Ásbjörnsson með 8,5 v.
íslandsmeistari í kvennaflokki varð
Birna Norðdahl, hlaut 4,5 v. af 6
mögulegum. í opna flokknum sigraði
Haukur Arason með 8 v. af 9 og i
drengja- og telpnaflokki sigraði
Þröstur Þórisson með7,5 v. af9.
- GAJ
Skilafrestur skattaframtala
framlengdur
Rikisskattstjóri hefur ákveðið að framlengja áður
ákveðna skilafresti skattframtala einstaklinga, sem
hafa með höndum atvinnurekstur eða sjálfstæða starf-
" semi, frá 15. apríl til og með 30. april 1980.
Nýr formaður
Gigtarfélags íslands
Aðalfundur Gigtarfélags tslands var haldinn laugar
daginn I. marz. Helztu verkefni félagsins frá stofnun
hafa verið fræðslustarfsemi og erindaflutningur á
fundum félagsins og hafa þar fjölmargir úr heilbrigðis
stéttum upplýst félagsmenn um hinar ýmsu hliðar
gigtsjúkdóma.
Stórt verkefni hjá félaginu hefur verið tækjakaup
til rannsóknarstofu í ónæmisfræðum sem nú mun
vera á lokastigi.
Framundan er þó enn stærra verkefni sem er
stofnun æfinga og endurhæfingarstöðvar fyrir gigt
sjúka.
Til fjáröfiunar er félagið nú með í gangi sólarlanda
happdrætti sem dregið verður i siðasta vetrardag.
Heitir félagið á alla velunnara að styðja af alefii að
þessu verkefni.
. Formaður félagsins frá stofnun hefur verið Guðjón
Hólm. Hann baðst undan endurkosningu en i stað
hans var kjörinn Sveinn Indriðason.
Aðrir i stjórn eru:
Sigriður Gísladóttir sjúkraþjálfari, varaformaður, Jón
Árnason skólastjóri, ritari. Sigurður ólafsson.
kaupmaður, gjaldkeri, Guðrún Helgadóttir, sund
kennari, meðstjórnandi. Varastjórn: Jón Þorsteinsson
yfirlæknir, Kári Sigurbergsson læknir, Jóhanna
Magnúsdóttir skrifstofumaður. Ingvaldur Benedikts
son fyrrv. hótelstjóri. Svanhildur Sigurgeirsdóttir
stjórnarráðsritari.
Orðsending til félags-
manna S.Á.Á.
Samtök áhugafólks um áfengisvandamálið vilja þakka
þeim þúsundum félagsmanna sinna sem greitt ^hafa
félaggj., á undanförnum starfsárum, og þau hafa verið
S.Á.Á. ómetanlegur stuðningurog má i raun segja að
þau hafi veriðbjaghringursamtakanna til þessa.
Nú er hafin innheimta féalgsgjalda vegna starfsársins
1979—80 og er það von stjórnar S.Á.Á. að félags
menn bregðist vel við innheimtunni. nú sem fyrr.
Einnig vilja samtökin minna félagsmenn er búa
utan Reykjavikur og fengið hafa senda giró-seðla á að
greiða þá sem fyrst i næsta-banka. sparisjóði eða
pósthúsi.
Gíró-reikningur S.Á.Á. er nr. 300 i Útvegsbanka
Islands, Laugavegi 105 Rcykjavik.
Skrifstofa S.Á.Á. er að Lágmúla 9. Reykjavík.
síminn cr 82399.
Innri ró
Bókaútgáfan örn og örlygur hf. hefur nú gefið út
bókina Innri ró eftir Argentinumanninn Silo. Bókin er
þýdd af Hrafni Pálssyni félagsráðgjafa og fyrrverandi
hljómlistarmanni.
Innri ró fjallar um hagnýta lífsspeki og býður upp á
mörg holl ráð til að lifa heilsteyptu og tilgangsríku lifi.
Bókin er undirstaða fyrir nýja, hagnýta sálarfræði sem
dr. Pétur Guðjónsson ráðunautur hefur starfað við
kennslu á og er þessi heimspeki Silo einnig grund
völlur að bókum þeim er Pétur hefur skrifað, eins og
t.d. Bókin um hamingjuna sem út kom i Japan fyrir
um þaðbil ári.
Innri ró var fyrst gefin út á spænsku árið 1973 en
bókin hefur nú komið út á 10 tungumálum, þar af
flestum meginmálum Evrópu, nokkrum Austurlanda
málum, svo sem arabísku. kinversku, hindi og jap-
önsku.
Að stil og efni er þessi litla bók ef til vill likust bók
Lao Tze, Um veginn, en ber þvi vitanlega vitni að hún
er skrifuð 2500 árum siðar af manni sem áður en hann
gaf bókina út hafði aðeins talað opinberlega einu sinni
i miðri fjallshlíð hæsta fjalls Ameriku. Eftir þessa
ræðu var honum bannað að tala opinberlega af yfir
völdunum, herstjórninni i Argentínu og fylgisfólk
Silos ofsótt og fangelsað. Ákvað Silo að fiytja ekki
ræður opinberlega og sagði um þá ákvörðun sina: „Ef
það sem ég segi er ósatt hverfur það bráðlega.”
Nýr formaður Starfsmanna-
félags Reykjavíkurborgar
Starfsmannafélag Reykjavikurborgar hélt aðalfund
sinn 8. marz sl. Þórhallur Halldórsson lét nú af for-
mennsku eftir 14 ára starf. Eyþór Fannberg, kerfis-
fræðingur hjá Skýrsluvélum ríkisins og Reykjavikur-
borgar, tók við sem formaður félagsins. Hann hefir
setið i stjórn félagsins hin siðari ár. Ennfremur voru
starfsmaður félagsins hin siðari ár. Ennfremur voru
kjörnir 5 stjórnarmenn: Arndis Þórðardóttir, Hafdis
Gísladóttir, Ingibjörg K. Jónsdóttir, Sigrún Stefáns-
dóttir og Sjöfn Ingólfsdóttir. Fyrir i stjórn eru: Arnþór
Sigurðsson. Ingimar Karlsson, Sigurður Ingólfsson,
Úlfar Teitsson og ögmundur Stephensen.
Norrœni byggingardagurinn i
Stokkhólmi
XIV. Norræni byggingardagurinn verður haldinn i
Stokkhólmi dagana 7.-9. maink. Samhliöa ráðstefn
unni vcarður haldinn mikil alþjóðleg byggingavöru-
og tækjasýning.
Á ráðstefnunni í Stokkhólmi verður fjallaö um
efnið „ný tækni — betra umhverfi" og verða fyrir
lesarar frá islandi þeir Geirharður Þorsteinsson arki
tekt. Sveinn K. Sveinsson, verkfræðingur. dr. Öttar P.
Halldórsson prófessor og dr. Þorsteinn Helgason
dósent. Þessar ráðstcfnur eru haldnar til skiptist á
Norðurlöndunum og verður 15. norræni byggingar
dagurinn haldinn á tslandi 1983.
Stjórn NBD á tslandi hefur ákveðið að efna til hóp-
ferðar á XIV. Norræna byggingardaginn og bygginga
vöru- og tækjasýninguna dagana 7.-9. maí nk. Farið
verður héðan 5. mai til Stokkhólms. Þátttaka tilkynn
ist til Byggingaþjónustunnar, Hallveigarstig I, s.
29266, fyrir 10. april nk. Þar eru veittar allar frekari
upplýsingar.
1 stjórn NBD á íslandi eru Hörður Bjamason. fyrrv.
húsameistari rikisins, formaður, Guðmundur Þór
Pálsson arkitekt, ritari, ólafur Jensson framkvæmda
stjóri, gjaldkeri, Hjörtur Hjartarson forstjóri og Óttar
P. Halldórsson prófessor.
Veiöiferðin
Hljómplötuútgáfan hi. hefur nýverið sent frá sér 2ja
laga hljómþlötu, Veiðiferðina. Lögin eru úr sam
nefndri kvikmynd sem sýnd er um þessar mundir við
miklar vinsældir i Austurbæjarbiói og á Akureyri.
Lögin og útsetningar þeirra eru eftir Magnús Kjart-
ansson sem alfarið sá um tónlistarhlið myndarinnar.
Titillagið er flutt af hljómsveit undir stjórn Magnúsar
Kjartanssonar og stúlkum úr skólakór Garðabæjar.
Hinum megin á hljómplötunni er lagið Eitt litiðandar
tak sem Pálmi Gunnarsson syngur og er við texta
Andrésar lndriðasonar. Þetta lag verður á stórri
hljómplötu með Pálma sem nú er i bígcrð og Hljóm
plötuúgáfan hf. mun gefa út.
Sjóleiðin til Bagdad í Keflavík
Annað kvöld kl. 21 frumsýnir Leikfélag Keflavíkur i
Stapanum Sjóleiðina til Bagdad eftir Jökul Jakobsson.
Leikstjóri er Þórir Steingrímsson.
Kvenfélag
Hallgrímskirkju
Fundurinn verður fimmtudaginn 10. april kl. 20.30
(Ekki 3. april á skirdag).
Handbók bænda 1980
Fyrir nokkru kom út hjá Búnaðarfélagi tslands 30. ár-
gangur Handbókar bænda. Að vanda er bókin uppfull
af fróðleik um fiesta þætti landbúnaðar. Vtarleg skrá
er yfir öll helztu félög bænda og stofnanir landbún-
aðarins. Jarðræktarráðunautar Búnaðarfélagsins rita
greinar um áburð og heyverkun. Magnús Sigsteinsson
bútækniráðunautur skrifar grein um tækni við
hirðingu heybagga og aðra sem hann nefnir Létt og
auðveld votheysfóðrun. Búfjárræktarráðunautar
Búnaðarfélagsins birta yfirlit um helztu kynbótagripi
sem notaðir eru nú í landinu. Erlendur Jóhannsson
skrifar ýtarlega grein um fóðrun mjólkurkúa og Árni
G. Pétursson um fóðrun sauðfjár. Þá er grein um
bcitarþunga og beitarþol eftir dr. ólaf Guðmunds
son. Leiðbeiningar fyrir ullarframleiðendur eru i bók
inni eftir dr. Stefán Aðalsteinsson. Magnús H. Ólafs
son arkitekt skrifar um fjárhús. Margar stuttar
athyglisverðar greinar eru um garðrækt eftir garð
yrkjuráðunauta Búnaðarfélagsins.
Á vegum samstarfshóps nokkurra sérfræðinga eru
birtar leiðbeiningar um girðingar. I þessari grein er allt
það sem menn þurfa nauðsynlega að vita áður en
hafizt er handa um að girða. Vmislegt hagfræðilegt
efni er i bókinni eftir Ketil A. Hannesson hagfræði
ráðunaut. I lokakafia bókarinnar er skýrt frá helztu
lögum og reglum sem sett hafa verið á siðustu tveim
árum er varða landbúnaðinn.
í þau 30 ár sem Handbók bænda hefur verið gefi..
út hafa þrir menn verið ritstjórar, fyrstu 10 árin var
það Ólafur Jónsson fyrrverandi ráðunautur á Akur
eyri, siðan var Agnar Guðnason ritstjóri i 15 ára og nú
hefur Jónas Jónsson verið ritstjóri i 5 ár.
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING Ferðam.nna
NR. 64 — 1. APRÍL 1980 gjaldeyrir
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandarikjadollar 430,60 431,70* 474,87*
1 Storlingspund 920,60 923,00* 1015,30*
1 Kanadadollar 359,20 360,10* 396,11*
100 Danskar krónur 7027,90 7045,90* 7750,49*
100 Norskar krónur 8227,80 8248,80* 9073,68*
100 Sœnskar krónur 9528,20 9552,60* 10507,86*
100 Finnsk mörk 10956,70 10984,70* 12083,17*
100 Franskir frankar 9465,80 9490,00* 10439,00*
100 Bolg. frankar 1360,70 1384,20* 1500,62*
100 Svissn. frankar 23008,30 23087,10* 25373,81*
100 Gyllini 19949,00 20000,00* 22000,00*
100 V-þýzk mörk 21810,80 21866,50* 24053,15*
100 Llrur 47,28 47,40* 52,14*
100 Austurr. Sch. 3050,70 3058,40* 3364,24*
100 Escudos 831,60 833,70* 917,07*
100 Pesetar 585,30 586,80* 645,48*
100 Yen 169,91 170,35* 187,39*
1 Sérstök dráttarróttindi 536,25 537,63*
* Breyting frá siðustu skráningu. Sknsvari vegna gengisskráningar 22190.