Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 08.04.1980, Qupperneq 32

Dagblaðið - 08.04.1980, Qupperneq 32
Pillar af ungHflgalieimilinu valda stórtjóni í Stykkishólmi: SKimj SKIPARAKETTU Á BARNAHEIMIUB — Mildi að ekki urðu slys á fólki Nokkrir piltar af unglingaheimili rikisins í Kópavogi ollu talsverðu tjóni í Stykkishólmi síðastliðinn laugardag er niu þeirra voru þar á skemmtiferð ásamt þremur gæzlu- mönnum. Um miðjan dag brutust þrír pilt- anna inn á a.m.k. fimm stöðum í Stykkishólmi og ollu skemmdum á flestum staðanna. Síðár um daginn fóru tveir þeirra síðan út í leyfisleysi og brutust þá inn á tveimur stöðum. Úr húsnæði björgunarsveitarinnar á staðnum stálu þeir neyðarblysum og skutu á loft. Meðal annars skutu þeir upp mjög öflugum flugeldi sem notaður er til að draga björgunar- línur. Skipti engum togum, að flugeldur- inn fór inn um glugga á barnaheimili sem systurnar í Stykkishólmi reka í tengslum við spítalann. Fór hann í gegnum stóra tvöfalda rúðu, þvert i gegnum stofu þar fyrir innan og í gegnum tvöfaldan vegg og endaði í fatahengi og kveikti þar eld. Það~ vildi til að systurnar voru staddar í húsinu og tókst þeim að hefta út- breiðslu eldsins. Jafnframt má teljast mildi, að þær skyldu ekki verða fyrir rakettunni. Um talsvert tjón varð á barnaheimilinu. Piltarnir náðust að loknum þessum „afrekum” og voru þeir fluttir til yfirheyrslu. Um nóttina voru þeir hafðir í strangri gæzlu og á páska- dagsmorgun var þeim vísað úr bænum að sögn Ingólfs lngvars- sonar, yfirlögregluþjóns á staðnum. -GAJ. Rænt og ruplað á 15 stöðum yfir páskana — Á einum stað hurfu 500 þúsund kr. Innbrotsmenn og þjófar gerðu sig heimakomna á minsta kosti 15 stöð- um yfir páskahelgina, en virðast ekki hafa haft mikið upp úr krafsinu og i sumum tilfellum ekkert. Átta menn voru handteknir vegna þessara inn- brota en mörg þeirra eru enn óupp- lýst. Einna stærsti þjófnaðurinn virðist vera hjá manni einum sem kærði siuld á um 500 þúsund krónunt. Það mál og önnur eru i rannsókn. -A.Sl. Pétur efstur í Sigtúni Skoðanakönnun um fylgi fram- bjóðenda í forsctakosningunum i sumar var gerð mcðal starfsfólks i Veitingahúsinu Sigtúni. Úrslit urðu þessi: Pélur Thorsteinsson.20atkvæði Guðlaugur Þorvaldsson 13 atkv. Vigdís Finnbogadóttir 8 atkv. Albert Guðmundsson 2 atkv. Auðir seðlar3. - BS Vigdís efst á Vífilsstöðum Starfsfólk Vífilsstaðaspítala gerði með sér skoðanakönnun um fylgi forselaframbjóðenda. Af 180 starfs- mönnunt greiddu 112 atkvæði, 94 konur og 18 karlar. Einn seðill var ógildur, sex auðir. Atkvæði féllu þannig: Vigdts Finnbogadóttir 55 atkvæöi Guðlaugur Þorvaldsson 38 atkv. Pétur Thorsteinsson 6 atkv. ^AIbert Guðmundsson 4 atkv. Rögnvaldur Pálsson 2 atkv. -ÓV Jóhann Hjartarson, ungi íslandsmeistarinn okkarlskák, þakkar Taflféiagi Reykjavikur, að mestu, frama sinn í skákheimin- um. „Þetta byrjaði 1974, ” sagði hann. „Ég œtlaði varia að þora á œfingu, kom einn og þeir i Skákféiaginu fundu þegar annan til að tefla við. Mér er sagt að ég hafi verið 6 ára, þegar lítil frœnka mln kenndi mér mannganginn. Innfellda myndin er af þeim Jóhanni og Elvari Guðmundssyni. DB-myndir: Bjarnleifur. Jóhann Hjartarson, skákmeistari íslands: Les skákbækur fram á nótt Hinn nýbakaði ungi skákmeistari íslands, Jóhann Hjartarson, gat bara alls ekki hætt að tefla i gær. Við lit- um inn heima hjá honum eftir mótið. Níu vinninga fékk hann.takk. Sein- ustu skák sína tefldi hann við Elvar Guðmundsson og sömdu þeir um jafntefli eftir 21 leik. Elvar er enginn aukvisi í skákinni, vann unglinga- meistaramótið í fyrra. Jóhann og Elvar voru einmitt að semja um jafn- tefli eftir 2ja mínútna skák, þegar Bjarnleifur smellti af á heimili Jó- hanns. ,,Ég átti alls ekki von á því að vinna,” sagði Jóhann, „hafði ekkert æft mig sérstaklega, en ég var í góðri þjálfun, kannski heppinn. Nei, ætli það, jú kannski. Ég er ekki búinn að ákveða neitt,” svaraði hann spurningu okkar um hvort hann ætlaði nú fyrir alvöru að Ieggja fyrir sig skákina. Hann heldur a.m.k. áfram í Menntaskólanum í Hamra- hlíð og stefnir í stúdentinn eftir 2 1/2 ár. Hann sagði að erfiðasta skákin hefði verið við Jóhannes Gísla Jóns- son (son Jóns Þorsteinssonar fyrrv. alþm., mikinn skákmann). „Hún var anzi hættuleg, en ég vann að lokum. Haukur Angantýsson alþjóðameist- ari var erfiður. Ég fékk strax leiðin- lega byrjun og tapaði,” sagði Jó- hann, sem les skákbækur fram á nótt og hefur svo mikið fyrir stafni yfir- leitt að hann má varla vera að þvi að sofa. - EVI — Sjá úrslit mótsins á bls. 26. Eltinga- leikur við bflþjófa Lögreglan var á þönum í nótt út af stuldi tveggja bíla. Var í öðru tilfell- inu um að ræða leigubil sem stolið var i gærkvöldi frá kaffivagninum á Grandagarði. Fannst bíllinn skömmu síðar og nálægt staðnum maður sent grunaðurer um þjófnaðinn. Á hinum stolna bilnum voru teknir fjórir menn. Var sá bíll stöðvaður í Breiðholtinu. Málin voru til rann- sóknar i morgun. -ASl. Srjálst, úháð dagblað ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 1980. 1 s 11 11 “ '■ Ríkisútvarpið: Starfs- menn að lognast út af? — Frétta- og tæknimenn frábiðja sérhléog torkennileg hljóð ígufuradioinu Varla hefur það farið fram hjá neinum yfir páskana að í útvarpinu, þegar fréttasendingar stóðu yfir, fóru að heyrast hin torkennilegustu hljóð. . . síðan steinhljóð. Svo kom skýring: Þetta var hvorki fréttamönn- um né tæknimönnum að kenna heldúr bilun í tækjabúnaði hjá þeim á Skúlagötunni. ,,Jú, sjáið þið til. Það er mörgu ábótavant hér, eins og allir vita. Meðal þess, sem rætt er um er að sum tæki sem upptökumenn útvarpsins þurfi að nota, séu yfir 20 ára gömul. Ekki nóg með það, heldur hafi á þeim tíma átt að fleygja þeim á haugana, en íslendingar fengu þau. Það var til bráðabirgða.” Þetta sagði okkur einn af fréttamönn- um útvarps er vlð könnuðum málið. Og annar sagði aðbúnaðinn á Skúlagötunni slíkan, að hann væri ekki bjóðandi almennilegu fólki í vinnu. Tæknimenn sitjandi yfir tækjum sínum i litlum skonsum, eins væri með frétta- stjóra. Ekki væri óalgengt að 12 manns sætu i þröngri fréttastofu með jafn- marga síma, kannski allir hringjandi i einu. Alls konar aðrar truflanir væru á fréttastofu eins og frá telexi og ef einhver þyrfti að tala við einhvern aðkomumann væri ekkert sér afdrep til. „Sannleikurinn er sá, að þetta venst aldrei. Þetta kemur fram í minni gæðum. Eina ráðið er einfaldlega að minnka starfsemina eða þá að fá viðbótarhúsnæði, en það er vist lítil von um það,” sagði einn viðmælandi okkar. „Þetta er að gera okkur vitlausa og hlýtur að hafa hinar verstu afleiðingar. Það hljóta margir hreinlega að gefast upp og hætta. Ekki kannski margir í senn, heldur lognast menn út af einn og einn." -EVI. LUKKUDAGAR: 3. apríl 2265 Philips vekjaraklukka með útvarpi. 4. APRÍL 8418 Vöruúttekt að eigin vali fyrir kr. lOþúsund. 5. APRÍL 20021 Skil 1552H verkfærasett. Vinningshafar hringi ísíma 33622.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.