Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 07.05.1980, Qupperneq 1

Dagblaðið - 07.05.1980, Qupperneq 1
6. ÁRG. — MIÐVIKLDAGUR 7. MAÍ 1980. — 103. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMI 27022. rr Íslenzka nefndin tilJan Mayen-viðræðnanna í dag: pKKI MMLA1RU A SAMKOMULAGINÚ” ff segir Steingrímur Hermannsson sjávarútvegsráð- herra. Viðræður við Dani undirbúnar vegna fyrirhug- aðrar útfærslu við Austur-Grænland „Ég hef ekki mikla trú á sam- komulagi nú,” sagði Steingrímur Hermannsson ráðherra í viðtali við DB i morgun um Jan Mayen- viðræðurnar við Norðmenn. „Spurningin er, hvort Norðmenn vilja sýna sanngirni,” sagði Stein- grímur. „Það er ósanngjarnt að ætlazt til þess, að Jan Mayen, óbyggð eyja, hafi efnahagslögsögu. „Svo er byrjað kapphlaup um föðurlandsástina hér heima,” sagði Steingrimur. „Allir viljum við vera föðurlandsvinir.” „Ég held að það sé æskilegt að ná samningum. Mér lizt ekki á ástandið í hafréttarmálum. Ég get verið sam- mála stífustu kröfum okkar en tel, að heldur hafi hallað undan fæti í hafréttarmálum,” sagði Steingrimur. Steingrímur Hermannsson sagði, að byrjað væri að undirbúa viðræður við Dani vegna fyrirhugaðrar út- færslu Dana við Austur-Grænland. Hann kvaðst telja sjálfsagt, að form- legar viðræður yrðu við Dani, þvi að þar væru jafnvel stærri hagsmunir í húfi en við Jan Mayen. islendingar >æru tilbúnir til slikra viðræðna strax ig færi gæfist. -HH. Lendingarpallur fyrir „Græna ris- ann" byggður vid Borgarspítalann inni. Ekki var hún á sveimi l neinum hernaðartilgangi að þessu sinni, heldur var verið að œfa aðflug að Borgarspitalanum. Þar á von bráðar að byggja þyrlupall til að ekki þurfi að selflytja sjúklinga, sem koma með flugi, frá Reykja vík urflug vetli á spltala, heldur verði þeirjluttir milliliðalaust beint I slysamóttöku spltalans. Víða erlendis tlðkast að byggja þyrlupalla á þök sjúkrahúsa. Ekki þykir það ráðlegt i þessu tilfelli, þvl að fullhlaðinn vegur Grœnn risi um níu tonn. — Endanleg staðsetning þyrlupalls Borgarspltalans verður ák veðin nœstu daga og ef allt gengur að óskum œtti hann að verða tilbúinn I sumar. -Á T/DB-mynd: Sveinn Þormóðsson Jan Mayen-viðræðurnar hefjast í Osló á morgun: Nordmenn munu ákveða einhliða efnahagslögsögu — náist ekki samkomulag á fundinum nú, segja norsk blöð Arbeiderbladet og Aftenposten í Noregi skrifa i morgun um Jan Mayenviðræðurnar sem hefjast opinberlega í Osló á morgun. En i dag munu utanrikisráðherrarnir Ólafur Jóhannesson og Knut Frydenlund eiga einkaviðræður. Bæði blöðin gera ráð fyrir harðri afstöðu íslendinga og Arbeider- bladet segir, að íslendingar muni ekki ganga til samninga nema þeir hafi tryggingu fyrir framtíðar- réttindum á landgrunni Jan Mayen, og þeir telji þýðingarlaust að reyna samkomulag nema Knut Fryden- lund hafi óskoraða samnings- heimild frá Stórþinginu varðandi nýtingu landgrunnsins. Þá segir blaðið, að íslendingar muni ekki gefa eftir þá kröfu sina, að þeir hafi síðasta orðið þegar Ioðnuveiðikvótar eru ákveðnir. Blaðið segir ennfremur, að íslendingar muni á fundinum leggja fram tillögu um norsk-islenzka nefnd sem hafi yfirumsjón með rannsóknum og hugsanlegri auðæfavinnslu á landgrunninu. Ef ekki næst samkomulag að þessu sinni er Ijóst, að Norðmenn munu einhliða ákvarða efnahagslögsögu kringum Jan Mayen. GAJ/SJ., Osló. s Brrrrrr! Vetrarveður á landinu og 5 stigafrostfrá Vestfjörðum til Austfjarða. DB-myndR. Th. Gróðurinníhættu: SUMARIÐ ER FARK) AFTUR „Það sem hefur gerzt er að komin ina. Ennþá snjóar t.d. í Vestmanna- er mikil hæð yfir Grænlandi sem er eyjum. Í öllum meginatriðum hefur 1045 millibör. Hún kemur til með að sumarið yfirgeFtð okkur i biii. Næstu ráða ríkjum næstu daga með norð 2—3 daga, jafnvel 4, má búast við lægri átt og frosti um allt land.” norðlægri átt, kulda og éljagangi. sagði Bragi Jónsson veðurfræðingur i Vorið var komið rúmum mánuði á samtali við DB í morgun. Komið er undan vcnjulegum tima en því er frost um allt land og snjókoma víða lokið i bili. Það má með sanni segja en fyrir nokkrum dögum var sumar- að það sé vetrarveður á landinu þessa blíða um mestallt landið. dagana og 5 stiga frost frá Vest- „Lægöardrag, sem við köllum, er fjörðum til Austfjarða. Þá er 2—4ra fyrir sunnan landiö en hefur ekki haft stiga frost á sunnanverðu landinu,” nein teljandi áhrif. Það hefur þó sagði Bragi. orsakað snjókomu við suðurströnd- -ELA.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.