Dagblaðið - 07.05.1980, Síða 7

Dagblaðið - 07.05.1980, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR7. MAÍ 1980. 7 Erlendar fréttir REUTER Saudi-Arabía: OPEC-ríkin þinga Ráðherrar OPEC ríkja, samtaka olíuframleiðsluríkja, koma saman á fund í Saudi-Arabiu i dag. Að sögn verður aðal- lega rætt um horfumar í ob'umálum í framhaldi af spám sérfræðinga um að iðnríki Vesturlanda muni tæpast ná tökum á oliueftirspum sinni. Inn í umræðuna spila kröfur um, að Vesturland veiti þróunarríkjunum sanngjörn viðskipti. Stórsigrar Carters ogReagans Jimmy Carter Bandaríkjaforseti og Ronald Reagan unnu yfirburðasigra yfir andstæðingum sínum þeim Edward Kennedy og George Bush í for- kosningum fyrir forsetakosningarnar i Bandarikjunum. Þeir Carter og Reagan fengu um 3/4 hluta atkvæða í ríkjunum þremur sem kosið var í en það voru Indiana, Norður-Karólina og Tennessee. Páfi gagnrýnir spillingu í Afríku Jóhannes Páll páfi annar sem nú er á ferð í Afríku, gagnrýndi misnotkun valds, spillingu og harðstjórn við komuna til Nairobi í Kenya. Í ræðu sem páfinn flutti i Nairobi varaði hann einnig við hugmynda- fræðistefnum er byggðu á guðleysi. Sagði hann, að slíkar stefnur gætu ekki orðið lykillinn að auknum framförum í löndum Afríku. Spánn: FLUGRÆNINGINN AFHENTIBYSSUNA — og norrænu ferðamennirnir gátu haldið til sólarstranda Portúgalskur táningur sem rændi farþegaþotu í nótt gafst upp i morgun á flugvellinum í Lissabon. Afhenti hann lögreglunni skamm- byssu sína átakalítiö. Þegar pilturinn tók völdin um borð í þotunni var hún i innanlandsflugi í Portúgal. Um borð voru áttatíu og þrír farþegar og átta manna áhöfn. í fyrstunni krafðist ræninginn þess að flogið yrði til Sviss en snerist síðan hugur og sagðist vilja fara heim. í nótt lenti þotan í Madrid á Spáni. Þar fengu farþegarnir að fara frá borði. Þeir voru áttatíu og þrír, eins og áður sagði. Flestir voru þeir ferða- menn frá Norðurlöndunum en einnig nokkrir Portúgalir. Þotan var frá portúgalska flugfélaginu. Engan farþega sakaði. Flugumsjónarmenn á vellinum í Madrid féllust á að hlaða þotuna eld- sneyti og snemma í morgun fregn- aðist að hún hefði lent heilu og höldnu á flugvellinum við Lissabon og þar hefði pilturinn gefizt upp átakalaust. í fyrstunni bárust þær fregnir að hann krefðist tíu milljón dollara lausnargjalds en alvaran þar á bak við virðist ekki hafa verið mikil, áður en þotan hélt á brott frá Madrid. Á þeim tíma ræddi ræninginn meðal annars við portúgalska sendiherrann i Madrid umsendistöð. Að sögn flugvallarstarfsmanna tókst að telja piltinn á það að falla frá öllum sinum kröfum og að lokum stóð aðeins eftir sú krafan að fá að hverfa heim til Lissabon. Þegar Ijósmyndarar verða leiðir á átakamyndum þá setja þeir börn í forgrunninn og rústir í bakgrunn mynda ':inna. Danski Ijósmyndarinn Lars Hansen greip til þess ráðs I „styrjöldinni” i Niirrebrohverfi i Kaupmannahöfn. Verður loftbrú Flórída - Kúba — neyðarástandi lýst yf ir á Flórída Bandarísk stjórnvöld íhuga nú að koma á loftbrú milli Kúbu og Banda- rikjanna til að koma þeim flótta- mönnum sem vilja yfirgefa eyjuna heilum yfir sundið sem skilur löndin tvö að. Verði af þessu er væntanlega bundinn endi á siglingarnar með flóttamennina frá Kúbu til Flórída. Embættismenn hófu að ræða þessi mál í gærdag, stuttu eftir að Carter forseti lýsti yfir neyðarástandi á Flórida. Með því flýtti hann mjög fyrir tíu þúsund dollara upphæð úr opinberum sjóðum til að glíma við flóttamannavandamálið þar syðra. Dollaraupphæðinni verður skipt milli sjálfboðastofnana, sem tekið hafa að sér að hlúa að flótta- mönnunum. í neyðarástandi er mögulegt að yfirvöld á Flórída fái alla þá peninga, sem þau þurfa á að halda. Opinberlega er nú tala kúbanskra flóttamanna í Bandaríkjunum komin upp í 20.000. Það gerðist í gærkvöld er fleyta nokkur kom yfir sundið og lagðist að í Key West með 800 manns innanborðs. Það er mesti fjöldi, sem komið hefúr með einu skipi til þessa. Flestir koma flóttamennirnir í smá- bátum, um það bil 3.600 á degi hverjum. Victor Palmieri, sem sér um flóttamannamálið fyrir Bandarikja- stjóm, sagði í nótt að rætt hefði verið um loftbrúina en engar á- kvarðanir teknar ennþá. Ekki minntist hann heldur á það hvernig Bandaríkjamenn ætluðu að fá leyfi hjá Kúbönum til að lenda flugvélum til fólksflutninga á eyjunni. ÁRMÚLA 7 SÍMI81588 Bílasala Guðfinns auglýsir: HJÁ 0KKUR ER MIÐSTÖÐ HJÓLHÝSAVIÐSKIPTANNA Vantar hjólhýsi á söluskrá Athugið breytt heimilisfang: ÁRMÚLI7 - SÍMI81588

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.