Dagblaðið - 07.05.1980, Síða 24

Dagblaðið - 07.05.1980, Síða 24
Guðlaugur Þorvaldsson forsetaframbjóðandi og kona hans, frú Kristín H. Kristinsdóttir rœða við unga Eyrbekkinga í kaffipásu í frystihúsinu þar. Forsetaf ramboð '80: DB-mynd G.G. „AUKIÐ VALD FORSETA ER MJÖG ÓÆSKILEGF Fylgjum við nágrannaþjóðunum? „TOLLKRITIN” MUNDI SFARA ÞRJÁ MILUARDA — samkvæmt niðurstöðum í athugun Félags íslenzkra stórkaupmanna Ef íslenzk stjórnvöld fengjust til að taka upp svokallaða „tollkrít” og ýmiss konar hagræðingu við inn- flutning mætti spara samtals 3000 milljónir króna í vöruverði hér á landi. Er þá um að ræða að fara í sömu spor og nágrannaþjóðir okkar gerðu fyrir tveim áratugum. Tollkrít er greiðslufrestur á aðflutningsgjöldum — tollum — i ákveðinn tima og samkvæmt hugmyndum forsvarsmanna innflytj- enda ættti hún til dæmis að vera í tvo mánuði gegn einhverjum trygging- um. Við núverandi aðstæður eru inn- fluttar vörur leystar úr tolli eftir sex vikna geymslu í vöruskálum skipa- félaganna að meðaltali. í nágranna- löndunum Danmörku og Noregi er geymslutími þeirra þar aðeins frá sjö til fimmtán dagar. Þetta kom fram á fundi Félags íslenzkra stórkaupmanna með frétta- mönnum I gær. Þar upplýstist einnig að tollkrít eða hagræðið við hana byggist einkum á nútímalegri vinnu- brögðum stjórnvalda. Félag íslenzkra stórkaupmanna hefur látið fara fram rannsókn á sparnaði sem mætti koma I kring á þennan hátt, unna af hlut- lausu ráðgjafarfyrirtæki. Á fundinum upplýstist að samfara hagræðingu á farmflutningi til landsins með gámum og hagræðingu við uppskipun verður óhjákvæmilegt að taka upp aðra hætti við skjala- afgreiðslu í bönkum og við toll- afgreiðslu. Sparnaður vegna tollkrítarinnar yrði aðallega fólginn í þvi að geymslukostnaður yrði 1100 milljón- um lægri á ári við innfluttar vörur en nú. Auk þess mundi sparast verulegt fé við skrifstofu- og af- greiðslukostnað auk erlendra vaxta. -ÓG. — sagði Guðiaugur Þorvaldsson ríkissáttasemjarí á fyrsta opinbera kosningaf undi sínum Fyrsti opinberi kosningafundur Guðlaugs Þorvaldssonar ríkissátta- semjara var haldinn á Minni-Borg í Grimsnesi í fyrrakvöld. Að sögn Guðbjarts Gunnarssonar, kosningastjóra Guðlaugs, var fundurinn vel sóttur og voru fundar- gest'>- um hundrað talsins. Nokkrar ræður voru fluttar og mikill og almennursöngurvará fundinum. Guðlaugur svaraði spurningum fundarmanna og var hann meðal annars spurður að því, hvcrnig hann hygðist standa að stjórnarmyndunum yrði hann forseti. Hann kvaðst ekki vilja gefa neina algilda reglu um það, en sagði að þar yrði lýðræðið að sitja i fyrirrúmi þó stundum gæti tekið dálítinn tíma að framfylgja því. Aðspurður sagðist Guðlaugur telja mjög óæskilegt, að forsetinn tæki sér aukið vald miðað við það sem verið hefur. í fyrradag heimsótti Guðlaugur éinnig vinnustaði í Þorlákshöfn, Hveragerði, á Stokkseyri og Eyrar- bakka. Að sögn Guðbjarts Gunnarssonar hafa stuðningsmenn Guðlaugs nú sett á stofn starfsnefndir í öllum sveitar- félögum sýslunnar og mikill hugur í mönnum að vinna að kjöri Guðlaugs. -GAJ. Alþjóðlega skákmótið íNew York: JÓN ENN í 2. SÆTI í níundu og næstsiðustu umferð skák- Jón i samtali við DB í gærkvöldi. hefur 5 vinninga og Lein 4,5 og eiga þeir mótsins í New York gerði Jón L. Ámason Stórmeistarinn Alburt jók enn forystu báðir 2skákir eftir. DzindchiashvUi hefúr 4 jafntefli við alþjóölega meistarann sína á mótinu er hann vann sigur i sinni rinninga og á 3 skákir eftir. Fedorovich ftá Bandarikjunum. skák. Hann hefúr 7,5 vinninga. Jón er enn í lokaumferöinniátti Jónað tefla við „Ég gerÁi mitt bezta, en það dugði 12. sæti með 5,5 vinninga. Baráttan um 2. Bandaríkjamanninn Valvo. Strax að ioknu bara ekki til siguts í þessari skák. Hún var sætíð gætí orðið mjög hörð ntílli Jóns, þessu mótí mun hann taka þátt í tveim steindautt jafntefli eftir 24 leiki,” sagði Kastners, Dándchiashivli og Lein. Kasmer öðrum skákmótum í New York. -íiAJ. frfálst, úháð dagblað MIÐVIKUDAGUR 7. MAI 1980. Skemmda jógúrtin: MANNLEG MISTÖK? ,,Það er því miður ekki Ijóst enn hvað oUi þessari skemmd en gerjun hefur komizt í hhita af einni lögun,” sagði Grétar Símonarson, mjólkurbússtjóri í Mjólkurbúi Flóamanna I samtali við DB. Eins og blaðið greindi frá í gær, hefúr Mjólkursamsalan nú innkallað talsvert magn af kaffijógúrt vegna gerjunar sem orðið hafði vart í vörunni. Grétar sagði sennilegast að gerlagróður hefði óhreinkazt í meðförum eða um einhvem manrtíegan þátt væri að ræða. Hann sagði að þetta væri nokkuð sem kæmi fyrir alltaf annað slagið. Grétar sagði að umrædd jógúrt væri nú í ræktun og kæmi því ekki i ljós fyrr en eftir nokkra daga hvað hafi valdið. -GAJ. Útsvarsálagningin: ll%íGarðabæ og Mosfellssveit Garðbæingar og Mosfellingar greiða 11 ®7o af kaupi í útsvar til bæjar- félaga sinna í ár, sama hlutfall og í fyrra. Þá hefur verið ákveðið að innheimta 11.44% í útsvar af Hafn- firðingum. Reykvikingar greiða 11.88% í útsvar en Seltirningar aðeins 10% eins og árið 1979. Akureyringar og íbúar margra annarra sveitarfélaga greiða 12.1% eða hæstu leyfilegu út- svarsálagninguíár. -ARH. Fljúgandi hálka á Húsavík Fljúgandi hálka var á götum Húsa- vikur í morgun. Þar eru bifreiðar- stjórar flestir búnir að setja sumarhjól- barðana undir bifreiðir sínar, þar eð skoðun stendur nú yfir og hvíti miðinn fæst ekki séu menn enn á nagla- dekkjunum. Að sögn lögreglunnar höfðu engin teljandi óhöpp orðið í umferðinni í morgun, aðeins nokkrar smáskrámur. Hins vegar höfðu þeir eftir bílstjórum að oft hefði munað mjóu á nokkrum gatnamótum. -ÁT- Höföu henduríhári þjófsíHárhúsiLeos Hárhús Leó í Bankastræti fékk í nótt óvænta og óvelkomna heimsókn. Fyllibytta sparkaði þar upp hurð og hefur væntanlega ætlað að láta þar greipar sópa, en áður en að því kom hafði lögreglan hendurí hári hans. Maður þessi, sem þekktur er úr faginu, var fluttur í fangageymslur og leyft að sofa þarúrsér. -ÁT- LUKKUDAGAR 7.maí 3529 Kodak Ek 100 myndavél. Vinningshafar hringi í síma 33622.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.