Dagblaðið - 30.05.1980, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 30.05.1980, Blaðsíða 1
6. ÁRG. — FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1980.- 120. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMI27022. Hæfileikakeppni Dagblaðsins og hljómsveitar Birgis Gunn- laugssonar hefst í kvöld i Sjálf- stæðishúsinu á Akureyri. Auk þess sem þrír keppendur sýnalistir sínar kemur Páll Jóhannesson, sigurvegari síðasta sumars.fram og einnig frumsýnir Dansflokkur JSB poppóperuna Evitu. Verkið verður siðan sýnt á hæfileika- kvöldum sumarsins á Hótel Sögu. DB-mynd: Þorri Sjá bls. 8 miok sjanstæðis- manna um kjör { ffúsráðismálastjórn: Gunnars- menn komu manni í stjómina Til hvassra orðaskipta kom á Alþingi í gær við kjör íHúsnæðis- málastjórn. Alþingi kýs sjö manna stjórn og ASÍ tvo og átti Sjálfstæðisflokkurinn rétt á 3 mönnum, Framsóknarflokkurinn 2 og Alþýðuflokkur og Alþýðu- bandalag I hvor flokkur. Stuðningsmenn Gunnars Thor- oddsens neituðu að virða sam- þykkt þingflokks Sjálfstæðis- flokksins og fengu því Gunnar S. Björnsson formann húsnæðis- málanefndar Sjálfstæðisflokksins kjörinn í stað Ólafs Jenssonar eins og samþykkt þingflokksins sagði til um. Stjórnarliðar fengu því í sam- einingu fjóra menn, Sjálfstæðis- flokkurinn tvo og Alþýðu- flokkurinn einn. Ólafur G. Einarsson formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins og Sighvatur Björgvinsson formaður þing- flokks Alþýðuflokksins töldu að samkomulag hefði verið brotið og gagnrýndu „baktjaldamakk og óhreinlyndi.” Forsætisráðherra taldi hins vegar að þingmenn Sjálfstæðisflokksins yrðu að átta sig á raunveruleikanum. -JH. Hæfileikaralliðígang áný: PM IKVOLD Ef harðfeiti væri unrnn á íslandi fengist í FRUMSKÓGI? NQ, í HELUSGERÐI Nei, nei þessi mynd er ekki frá útlöndum heldur er hún tekin í Hellisgerði, skrúðgarði Hafnfirð- inga. Það er sól og sumarylur á ný hérna fyrir sunnan og i dag verður hægviðri um allt land. Það er þó kalt hjá þeim á Norðausturlandi 1—2 stig og skýjað og smávegis rigning er á Suðausturlandi. Ekki þorðu veður- fræðingar í morgun að slá því alveg föstú að gott veður yrði um helgina, smálægð er að stríða okkur. Útlit er þó fyrir að á Suður- qg Vesturlandi geti menn sólað sig, en það rigni eitt- hvað á mannfólkið á Norður- og Austurlandi. -EVI/DB-mynd: R. Th. 150 bjargað úr brennandi þotu — í„þykjustunni” á Keflavíkurflugvelli ! Eitt hundrað og fimmtíu manns ívar snarlega bjargað úr brennandi ífarþegaþotu sem brotlenti í þykjustunni á Keflavikurflugvelli í gærdag. Þarna var um stóræfingu að ræða — svonefnd viðbrögð við flugslysi — og tóku þátt í henni hundruð manna af Suðurnesjum og Stór-Reykjavíkursvæðinu. Að sögn þeirra sem stjórnuðu æfingunni tókst hún vel. „Við gerðum fjölda mistaka, en megum samt teljast ánægðir með árangurinn,” sagði Sveinn Eiríksson slökkviliðsstjóri að henni lokinni. -ÁT/DB-mynd: RagnarTh. Slg. — sjánánarábls.5

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.