Dagblaðið - 30.05.1980, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 30.05.1980, Blaðsíða 14
\ t 18 f DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1980. VERTIÐARLOK TónleHcar SJnfónfuhljómsveitar íslands í Háskólabfói 22. maL Stjómandi: Qllbart Levine. Elnleikaran Guðný Quflmundsdóttir, fifllu- lalcari og Unnur 8velnb|amardóttir, vkilu- tolcari. Varkefni: Jón Nordal: Tvböngur fyrir flfllu, vlólu og hljómsvelt; Wolfgang Amadeus Mozart: Konsart-einfónia I Es-dúr, KV-364- JOhannas Brahms: Skifónia nr. 4 í e-moD, op. 98. Síðasti róðurinn á hinni hefð- bundnu vertíð Sinfóníuhljómsveitar- innar var róinn með Levine við stýrið og konse.-tmeistarann ásámt stöllu úr útlendingahersveitinni í stafni. Vertíðin í Háskólabíói er búin að vera aflasæl, ekki síður en á öðrum miðum í vetur. Góflur söngur vel fluttur Úr vör var ýtt með Tvísöng Jóns Nordals. Tvísöngur finnst mér vera með skýrustu verkum, sem ég hef heyrt frá hendi Jóns. Gaman er hvernig hann leikur sér að hending- um úr gömlum þjóðlögum, lætur þær vinda upp á sig og hverfa í djúpið. Þannig er ýjað að lögum eins og Móðir min í kví kví og Sofðu unga ástin mín. Einleiksraddirnar eru skemmtilega ofnar saman og hljóm- sveitarþátturinn vel samsvarandi. Bæði hljómsveit og einleikarar unnu vel saman, svo að leikurinn var í heild firnagóður. Konsertsinfónían var ekki síður vel leikin. Þar naut hinn ljóðræni leikmáti og safaríki tónn Unnar sín makalaust vel. Guðnýju hef ég varla áður heyrt leika af slíkri mýkt. — Sannkölluð meistaraspilamennska. — Og hornin Ég get ekki látið hjá liða að minn- ast á frábæran leik hornanna. í for- föllum Viðars Alfreðssonar var feng- inn einniaf frumherjum hljómsveitar- innar, !\lois Spach, nú fyrsti horn- ieikari i Frankfurt-óperunni. Jafn góðan leik og í Konsertsinfóníu Mozarts hef ég ekki heyrt hjáhorna-' liðinu i vetur. Ekki vil ég þó með þessu væna hornin um slælega frammistöðu í vetur, því veikindi hafa hrjáð liðið svo illa að hending hefur verið, ef allir hafa verið með heilli há samtímis. Það var því tví- mælalaust hárrétt ráðstöfun að ná í góðan mann með hraði, þegar þrír af fastamönnum hornanna voru komnir á sjúkralistann fyrir jafn mikilvæga tónleika. Miklir menn erum vifl Ég ætlaði þvi vart að trúa eigin augum, þegar lánsmaðurinn tók sér stöðu á fjórða horni í fjórðu Brahms. En svona er það, þegar einn hefur bréf upp á að eiga að vera fyrsti maður, þá verður ekki einhver láns- karl úr öðru útlandi settur í hans 'stað. Og merkilegt nokk — sá með bréfið slampaðist í gegnum hlutverk sitt nær áfallalaust, sem er mun meira en ég átti von á úr því horni. — Já, miklir menn erum við, að hafa efni á svona ráðslagi. En raunar gleymdi ég þessari furðan minni um stund, því að hljómsveitin lék að öðru leyti svo makalaust vel. Hún er nú einu sinni þannig, blessunin, að sé hún í stuði með dugandi stjómanda (að maður tali nú ekki um þræla- písk, eins og Levine), þá getur hún spilað svo ótrúlega vel. Þannig lauk þessari vertíð með hreint frábærum tónleikum, þegar á heildina er litið. -EM. Kvik myndir Hin foma ímynd ástarinnar Kvikmynd: Fyrata ástin (First Love) Leikstjóri: Joan Dariing Handrit: Jaqa Stgnton Hitchcock og David Freeman Obyggt á skáldsögunni „Sentimental Education" eftir Harold Brodkey) Meflal leHcenda: WHIIam Katt, Susan Day Sýningarstaflur: Háskólabió Fyrsta ástin er ósköp ljúf mynd. Hún segir frá Elgin, háskólanema, sem er orðinn æði þreyttur á skyndi- samböndum v^jð stúlkur og leitar nú eftir hinni einti sönnu ást. Þetta er ekki óalgengt umfjöllunarefni í kvik- myndum og á stundum mætti ætla að ekki sé gerð svo kvikmynd að í henni sé ekki eitthvert tilbrigði ástarinnar þar að finna. Hitt mun víst ekki eins algengt að mynd fjalli um ástina einvörðungu; í svipinn man ég aðeins eftir myndinni Love Story, sem sýnd var hér fyrir nokkrum árum. Enn fátíðara er að sjá slíka mynd gerða af konu — en bæði leikstjórinn, Joan Darling og annar handritshöfunda, Jane Stanton Hitchcock eru konur. Myndin segir frá því hvernig Elgin hittir Caroline og verður yfir sig hrif- inn af henni og gerir allt hvað hann getur til að vinna ást hennar og traust. Það tekst, ogallt virðist stefna í lukkunnar velstánd, en þá hringir fyrrverandi elskhugi Caroline í hana og vill fá hana á nýjan leik. Og þar sem hann var fyrsta ást hennar, getur hún ekki annað en látið undan. Þetta fannst mér reyndar verða býsna veik röksemd í myndinni, og skiln- aður elskendanna tveggja næsta ^ótrúverðugur. En Elgin bregður sér á fund þess, sem kallaði Caroline til sín, og hann veitir henni frelsið á nýjan leik En þegar hún kemur aftur til Elgins, finnst honum allt orðið ómögulegt, samband þeirra getur aldrei orðið það sem var, og þau skilja. Ég segi nú fyrjr mig, að ég hefði kosið að allt fengi lukkulegan endi og að þau næðu saman á nýjan leik. Að mínu viti var það sem á undan hafði gengið ekki nægilegur stuðningur við þessi endalok ástarsögunnar. Að sumu leyti er endirinn skýrður með tilvísun til ástarhugmyndarinnar eins og hún er sett fram í fornum bók- menntum — í þessu tilviki hinni guðdómlegu kómedíu Dantes. En sú hugmynd gengur í stuttu máli út frá ímyndinni um hina göfugu ást, sem á ekkert skylt við lystisemdir holdsins. Þetta finnst mér mistakast; leikstjóri og handritshöfundar valda ekki þeirri annars svo ágætu hugmynd sem er kveikjan að myndinni. Myndin endar á skilnaði elskend- anna, karlmaðurinn stendur uppi með öll heiðarlegu viðhorfin, en minna verður hins vegar úr konunni kvikmyndaleikstjórn hennar. Hún hefur áður séð um stjórn sjónvarps- mynda, t.d. á nokkrum Mary Tyler Moore-þáttanna, sem sýndir hafa verið hér og eins nokkrum hinna margfrægu M.A.S.H.-þátta. Og það er vel þess virði að berja þessa mynd augum. en efni stóðu til, og enga vísbendingu að finna um það, hvers vegna hún hvarf aftur til síns fyrri elskhuga, né heldur hvers vegna hún sneri aftur. Myndin er þó býsna snoturlega gerð, og það er greinilegt, að Joan Darling er enginn viðvaningur sem leikstjóri, en þessi mynd er fyrsta Hin þyrnum stráða framabraut Kvikmynd: fskastalar (lce Castios) Leikstióri: Donald Wrye Handrit: Donald Wrya og Gary L. Baim 'eftir ■kátdsögu Gar> L. Baim) Kvikmyndataka: BUI Butier Tónlist Marvin Hamlisch Meflal toikanda: Robby Benson, Lynn-Holly Johnson, Colleen Dewhurst, Tom Skerritt Sýningarstaður: Stjömubfó Kvikmyndin ískastalar segir frá ungri stúlku, sem er uppgötvuð vegna hæFileika sinna á skautum, hlýtur frægð, frama og allra lof eftir að hafagengist undir langa og miskunn- arlausa þjálfun, sem hefur meðal annars kostað hana fjölskyldubönd og vinatengsl. Og spurningin vaknar: Hverju er fórnandi fyrir glæsta framtíð í sviðsljósum heims- athyglinnar? Þeirri spurningu er reyndar ekki svarað, stúlkan fellur á skautasvellinu, slasast illa og missir sjónina. Hún lokar sig inni, en vinir hennar fá hana út úr einangruninni og koma henni til keppni á nýjan leik, blindri. Þessi söguþráður er velþekktur úr Hollywood-kvikmyndaverunum, og má segja að hér sé á ferðinni enn eitt tilbrigðið við sama stefið og svo oft áður. En þó hefur þessi mynd ýmis- legt til síns ágætis fram yfir margar aðrar áþekkar myndir. Það er þá fyrst að nefna, að leikur er með ágætum, enda er að finna í leikara- hópnum einn hinna betri yngri Holly- wood-leikara, Robby Benson. Hann hefur fengið góð tækifæri og þykir standa sig vel i hlutverkum unglinga- sjarmöra. Eins má nefna Colleen Dewhurst, sem þykir afburðagóður leikari á sviði, og hefur einnig getið sér gott orð fyrir þær fáu kvikmyndir sem hún hefur leikið í, en þeirra á meðal er Annie Hall, sem sýnd var hér fyrir skemmstu. Myndatakan stendur einnig fyrir sínu og er á köflum alveg ljómandi snotur. Skautaíþróttin gefur enda ýmis góð tækifæri til skemmtilegrar staðsetningar myndavélarinnar, og slik tækifæri eru ágætlega nýtt. Ég tel það einnig myndinni til tekna, að leikstjórinn, Donald Wrye, gefur sér ágætan tíma til að segja og sýna okkur sitt af hverju og atburðarásin er laus við allan æsing og óróleika. Árangurinn er enda sá, að hér er á ferðinni kvikmynd, sem vel er hægt að horfa á sér til skemmtunar. Nick (Robby Benson) hjálpar vinkonu sinni, Alexis (Lynn-Holly Jöhnso’n) að komast til keppni á nýjan leik eftir slys, sem kostaði hana sjónina. Ástin flækist dálitið fyrir i myndinni, sem er þó vel þess virði að sjá hana. Söngleikurúr Vesturbænum Kvikmynd: Saga úr Vasturbœnum (West Side Story) Ldksljóm: Robert Wise og Jerome Robbins ,Handrit: Emest Lehman 1 Dansar: Jerome Robbins Tóniisfc Leonard Bemstein LJÓfl: Staphen Sondheim Kvikmyndataka: Daniel L. Fapp Sýningarstaður: Tónabfó Á sínum tíma náði söngleikurinn West Side Story almenningshylli, og þótti því sjálfsagt að kvikmynda hann. Það var gert, og árangurinn varð ekki lítill: 10 óskarsverðlaun — sem besta mynd ársins (1961), fyrir bestu leikstjórnina, bestu mynda- tökuna, besta aukaleikara í karlhlut- verki, besta aukaleikara í kvenhlut- verki o.fl., o.fl. West Side Story á að mjög mörgu leyti þessa velgengni skilið. Mynda- takan, til dæmis að taka, er afbragðs- góð, og má m.a. nefna upphaf myndarinnar því til stuðnings. Betri staðsetningu á umhverfi sögunnar get ég vart ímyndað mér en þá sem sýnd er með loftmyndinni af Manhattan í New York. Og á augabragði erum við komin niður á jörðina, þar sem Þot- urnar, ein af klíkum hvítra í vestur- hluta Manhattan, heyja baráttu sína við klíku innflytjenda frá Púertó Ríkó, Hákarlana. Þær myndir sem sýndar eru af klíkunum tveimur, dansar þeirra og tónlist Bernsteins sýna okkur strið þessara hópa á list- rænan og sannfærandi hátt. Einkum eru dansar Jerome Robbins aðdáunarverðir fyrir það hversu blæ- brigðaríkir þeir eru og hve vel þeir lýsa þeim anda er þarna ræður ríkj- um í samskiptum hópanna — anda, sem knýr báða hópana að endingu til 'óhæfuverka. í kjölfar frumsýningar myndar- innar árið 1961 fylgdu langar og oft heitar umræður um, hvort myndin væri að einhverju leyti félagsleg úttekt á drengjaklíkum stórborgar- hverfa og því ástandi sem þarf, til að slíkar klíkur verði til. West Side Story á slíka umræðu varla skilið, myndin er gagnslaus sem viðmiðun til að draga félagslegar ályktanir. Að sumu leyti kemur meira að segja fram i myndinni ákveðin ráðþægni gagn- vart þvi ástandi sem söguefnið er unnið úr — ef menn á annað borð vilja einskorða sig við umhverFið sem er í raun alger óþarfi. Höfundar nýta sér hins vegar ákeðnar aðstæður á listrænan hátt. Á þessu tvennu er munur, þó hann sé i mörgum tilvik- um ekki ýkja greinilegur. Ætla má, að hægt sé að fara í Tónabíó á næstunni sér til ágætrar skemmtunar. Eldri kynslóðin mun áreiðanlega kunna vel við að rifja upp kynnin af myndinni, og yngri kynslóðin hefur þarna færi á að kynnast dálitlum hluta kvikmynda- sögunnar — a.m.k. hafa ýmsir erlendir gagnrýnendur haldið þvi fram um kvikmyndina West Side Story að hún væri eitt af stórverkum kvikmyndaiðnaðarins. / \ /

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.