Dagblaðið - 30.05.1980, Qupperneq 3

Dagblaðið - 30.05.1980, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1980. ,3 Dauði prínsessu: SÝNUM ÖÐRUM ÞJÓÐUM SJÁLFSTÆÐA STEFNU MED SÝNINGU MYNDARINNAR Sigurður Haraldsson skrifar: Ég las grein Sigga flug í Dagblað- inu, þar sem hann telur öll tormerki á, og kemur með mótbárur gegn fyrirhugaðri sýningu sjónvarpsmynd- arinnar Dauði prinsessu í júníbyrjun. Þó ég telji Sigga flug oft hafa skrif- að góðar og gagnmerkar greinar i Dagblaðið, þá tel ég honum hér fat- ast flugið í grein sinni í andstöðu sinni og mótrökum gegn sýningu myndarinnar. Siggi flug telur myndina sýna mikla grimmd, sem er vafalaust rétt. En ég tel okkur sem siðmenntaðri þjóð ekkert skaða að kynnast mið- aldalegum hugsunarhætti í Saudi- Arabíu, sem og flestöllum öðrum múhameðstrúarríkjum. Hann kemur m.a. fram í villimannlegum refsing- um fyrir brot, sem hér þætti ekki stórvægilegt, eins og t.d. að höggva handlegg af fyrir þjófnað og opin- berri niðurlægjandi hýðingu fyrir vindrykkju, sem þykir þó vel sloppið. Þá má minna á auðmýkjandi og niðurlægjandi stöðu kvenna, kufl- ana, slæðurnar, og algert eignarhald eiginmannsins i stóru og smáu, með boði hans og bönnum. Með því er þeim frekar skipað á bekk með hús- dýrum en mönnum. Hvers vegna ættum við íslendingar að knékrjúpa fyrir þjóð og þjóðfélagi eins og því saudi-arabíska, sem sýnir af sér mannhatur og mannfyrirlitningu á flestum sviðum? Þá nefnir Siggi flug, að þetta geti skaðað olíuhagsmuni okkar gagnvart Saudi-Arabiu. A það má benda, að síðla vetrar undirritaði viðskiptaráð- herra olíukaupsamning við brezkt oliufyrirtæki, sem kemur að töluvert / miklu leyti til móts við olíuþarfir okkar næstu ár. Ef við eigum að hætta við sýningu myndarinnar af ótta við að olíufurst- arnir í Saudi-Arabíu, sem lifa í nán- ast ótakmörkuðum vellystingum og munaði, reiðist, þá er öðrum þjóðum þar með gefið vafasamt fordæmi um að hlutast til um okkar mál. Sjálf- stæðri smáþjóð eins og tslandi veitir ekki af að sýna öðrum þjóðum sjálf- stæði sitt í verki ef hún ætlast til að stærri þjóðir taki eitthvert mark a henni. Ég sé heldur ekki að spenna milli Vesturlanda og múhameðstrúarlanda komi sýningu myndarinnar við, né breyti neinu þar um. Ef ísland þorir aldrei að lyfta litla- putta af ótta við að móðga aðrar stærri þjóðir, eins og Siggi flug er hræddur um að við gerum með sýn- ingu myndarinnar, þá höfum við lítið við sjálfstæði okkar að gera. Þess vegna vil ég beina þeim ein- dregnu og ákveðnu óskum og til- mælum til ráðamanna Sjónvarpsins, að þeir haldi fast við fyrirhugaða sýn- ingu myndarinnar, og hlusti ekki á úrtöluraddir. Að lokum vil ég og beina því til ráðamanna Sjónvarpsins, að þeir geri; sitt til þess, að fyrirhuguð sýning á „Dauða prinsessu” í júníbyrjun rekist ekki á við landsleik islands og Wales 2. júní, ef mögulegt væri, þó slíkt sé alltaf vissum erfiðleikum bundið. VK) SITJUM UPPt MEÐ DÝRASTA BENSÍNIÐ 0G LÉLEGUSTU ÞJÓNUSTUNA Raddir lesenda Til hvers aðhafa Lögunga fólksins? — þeim er hvorteðer alltaf sleppt, segir reiður unglingur íbréfi sínu Reiður unglingur og útvarpshlust- andi skrifar: Nú er ég orðin meira en litið reið. Á endalaust að bjóða unglingum upp á þessa frekju. í gærkvöldi (19. maí) var þáttunum Við og Lögum Unga fólksins sleppt vegna útvarps frá Alþingi. Var ekki hægt að setja þann þátt á einhvern annan tíma. Ef fimmtudagsleikritinu eða hljómleikum hefði verið sleppt hefðu margar konur úr Vesturbænum hringt eða skrifað í blöðin. Við unglingarnir opnum sjaldnast munninn eða kvörtum, enda alveg sjálfsagt að sleppa þáttunum okkar. Ég skil satt að segja ekki hvers vegna þeir eru. Er það kannski til að fylla upp í dagskrána þegar ekki er útvarpað frá Alþingi? í hverjum einasta þætti Laga unga fólksins (þeg ar hann er) er beðið um að hann verði lengdur, í næstum hverju bréfi. Það hefur auðvitað ekkert að segja, honum er bara sleppt. Hvað mundi gerast ef jafnmörg bréf bærust til út- varpsráðs um að Mælt mál eða Kvöldsagan yrði lengd um 60 mínútur? Yrði það ekki tekið til athugunar? Ólafur Þorsteinsson hringdi: Ég vil koma á framfæri alúðlegu þakklæti til olíufélaganna fyrir frá- bæra þjónustu nú sem endranær þessa eina af mestu ferðahelgum ársins. Þessum höfðingjum þókn- aðist að hafa lokað á hvítasunnudag. Smáglufa var hjá þeim á annan í hvítasunnu en öllu skellt í lás klukkan sex. Til að fullkomna sköpunarverkið þá lét lögreglan í Reykjavík loka fyrir bensínafgreiðslu á þeim tveimur stöðum, sem voguðu sér að halda uppi lágmarksþjónustu við Reykvikinga, þegar oliukóngamir treystu sér ekki til þess. Það er athygUsverð staðreynd, að þrátt fyrir eitt mesta bensínokur í veröldinni, þá sitjum við jafnframt uppi með lélegustu þjónustuna. Það kemur sér ærið oft illa fyrir bileig- endur þegar bensinstöðvar eru lokaðar á hátfðisdögum, eins og Ólafur talar um I bréfí sínu. Þá er einnig mikil um- ferð eftir lokum bensínstöðvanna á kvöldin og þá leita bileigendur til um- ferðarmiðstöðvarinnar, eins og sést á meðfylgjandi mynd. ^ DB-mynd RagnarTh. Spurning dagsins Hvernig finnst þór veöriö? (Spurt I rokinu á þriðjudag). Jóna Guðrún Jónsdóttir, 13 ára: Mér lizt nú ekkert sérstaklega vel á það. Ég vona bara að sumarið fari að koma. Hafrún Inga Uanlelsdóttir, 11 ara: ivier finnst það bara ágætt. Reyndar svolítið rok og frekar kalt en það á örugglega eftir að koma sumar. Erla Oskarsdóttir, húsmóðir i Þykkva- bænum: Mér finnst það frekar vont. Ég vona að það lagist svo ekki fjúki úr kartöflugörðunum. Páll Þór Ómarsson sjómaður: Mér finnst svolítið kalt. Frekar hvasst en að öðru leyti ágætt. Ég var að koma frá Bandarikjunum þar sem var 30 stiga hiti. Þórir Jónasson, vinnur i Hagkaupi: Mér finnst það nú ekkert sérstakt . Ég veit ekki hvort það verður nokkuð betra í sumar, en það er vonandi. Hanna Guðmundsdóttir húsmóðir: Hryssingslegt. Ég á von á að sumarið verðibetraen þetta. f

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.