Dagblaðið - 30.05.1980, Qupperneq 4
4
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1980!
DB á ne ytendamarkaði
Fyrsta platan er fest við stoðir i lofti og
i gólfi og við bita sem festur er á
vegginn.
handtak í einu eftir því sem smíði
veggjarins miðar áfram.
Eitt atriði enn er ótalið og getur
það þó líklega sparað hús-
byggjendum meira fé en flest annað.
Það er að dyrnar sem eiga að vera á
veggnum eru reistar fyrst og
veggurinn síðan smíðaður utan um
þær.Þá þarf ekki aðmiða hurðina við
vegginn heldur miðast veggurinn við
hurðina. Allt erfiðið við að festa
sjálfar dyrnar við stoð er því úr
sögunni. Ekki þarf heldur að setja
upp dyrafalda (geretti) því ekkert bil
verður milli dyranna og stoðanna.
6 þúsund á
fermetra
Hannes telur að með öllu þessu
töldu sé hægt að spara að minnsta
kosti 6 þúsund krónur á hvern fer-
metra milliveggs. Miðað við það að i
venjulegum litlum einbýlishúsum eru
■oft hundrað fermetrar af
milliveggjum, er því hægt að spara
600 þúsund krónur. Hreint ekki svo
litið. Sparnaðurinn fyrir þjóðarbúið i
heild yrði einnig gífurlegur. 30%
sparnaður í milliveggjum þýðir að
minnsta kosti 1,2 milljarða króna á
ári. Jafnvel meira.
Einangrunin
heft í
Þessa nýju milliveggi er hægt að
einangra með því að hefta
einangrunina með venjulegri
heftibyssu við plöturnar áður en þær
eru settar upp. Þvi má reisa svona
veggi við útveggi og einangra á milli
og eins má fara að með loftin. Þessi
lausn er verulega athyglisverð fyrir
þá, sem ætla að lækka loftin hjá sér
því öll pússningarvinna sparast.
-DS.
I x>., 'i;,;
Svona lita veggirnir út ofan frá séð.
Stoðin er dökk en veggirnir ljósir.
DB-myndir Þorri.
Um það bil 200 þúsund fermetrar
af milliveggjum eru reistir hér á landi
árlega. Venjulega eru veggirnir
smiðaðir þannig að fyrst er reist grind
gildra stoða og síðan eru spónaplötur
lagðar utan á grindina og negldar í
stoöirnar. Þetta kostar mikla vinnu,
við það að reisa grindina, negla þá
100 nagla sem fara svona um það bil i.
hverja stoð, síðan þarf að fela nagla-
götin með sþarsli sem svo þarf að
slípa niður. öll þessi mikla vinna
gerir það að verkum að þegar verð
milliveggja er reiknað út, sést að hrá-
efnið kostar um 30%, en vinna um'
70%.
Hvert handtak, sem hægt er að
spara við uppsetningu milliveggja er
því ákaflega mikilvægt og bein
lækkun á verði veggjarins.
Nú hefur komið fram aðferð sem
þeir sem reynt hafa telja að geti
sparað allt að helmingi af allri þessari
vinnu og með því lækkað kostnaðinn
við milliveggi um fjórðung, jafnvel
meira.
Einangrunin er heft á plötuna með venjulegri heftibyssu.
Höfundur þessa nýja kerfis er
fyrirtækið Ráðgjöf og hönnun, sem
naut aðstoðar Iðnþróunarsjóðs, Hús-
næðismálastofnunar og Landsbanka
tslands. Hannes Gunnarsson í Þor-
lákshöfn sér hins vegar um að hrinda
hugmyndinni i framkvæmd og hefur
hann þegar sett upp svona milliveggi
i nokkrum húsum þar eystra. Við
skruppum í heimsókn til Hannesar
meira en helming
„Þetta er ennþá sniðugra en það
lítur út fyrir að vera í fyrstu,” sagði
Hannes. „Ég tel að það geti minnkað
vinnuna við uppsetningu um helming
eða meira. Notað er minna efni en í
venjulega milliveggi en efnið er ívið
dýrara. Ég held þó að það jafni sig
út.”
Hinir nýju milliveggir byggja á
snjallri hugmynd. Bitar eru reistir í
loft og lagðir á gólf. Síðan er mjó
stoð sett við enda hins nýja
veggjar. Fyrsta spónaplatan er siðan
negld við þessa stoð og í bitana i lofti
og gólfi. Þessi plata er 60 sentimetra
breið, eða helmingur af venjulegri
Sniðið er úr vegg og einangrun fyrir spónaplötu og því þægilegri i
rafmagnsdós. meðferð.
Raflagnirnar eru eins og frumskógur á hvolfi áður en veggurinn er smiðaður utan um þær.
Þá er að koma fyrir næstu stoð i
veggnum. í stað þess að negla hana
með hundrað nöglum er stoðinni
einfaldlega smellt við plötuna og
næstu plötur svo aftur við stoðina.
Þessi stoð er raunar það sem allt
kerfið byggist á. Hún er mjórri en
þær stoðir sem við venjulega notum í
milliveggi þar eð ekkert þarf að negla
I hana. Úr hliöum hennar og úr
spónaplötunum eru fræstar raufar,
sem síðan smella saman. Ekkert þarf
að negla og ekkert að líma en
veggurinn stendur svo lengi sem
nokkur kærir sig um hann. Vilji
maöur hins vegar færa hann til
seinna er einfaldlega hægt að smella
honum sundur og setja hann saman
afturánýjum stað.
Byrjað á
raflögninni
En þessir milliveggir fela i sér
fleiri nýjungar en þær að þurfa
hvorki að negla eða líma. önnur
nýjung er sú að byrjað er að vinna þá
raflögn sem í vegginn á að koma áður
en byrjað er á veggnum að nokkru.
Eins er farið að ef pípur eiga að
liggja i veggnum. Veggurinn er síðan
reistur utan um þennan skóg pipna
og röra og sniðinn til eftir þörfum.
Þetta sparar enn vinnu sem ekki er
talin með í vinnusparnaði þeim, sem
Hannes minntist á. Með þessu getur
rafvirkinn lokið sínu verki og farið
síðan í stað þess að þurfa að koma
aftur og aftur til þess að gera eitt
þar sem hann var að fást við uppsetn
ingu hinna nýju veggja.
Vinnan minnkar um
Ef dyr eiga að vera á veggnum er byrjað á að reisa þær og veggurinn slðan
smelltur við þær.
I ‘
Nýgerdaf
milli-
veggjum:
Hægt að spara
allt að f jórðungi