Dagblaðið - 02.07.1980, Blaðsíða 1
Ekkert samkomulag við Flugleiðaf lugmenn:
ff
Flugleiðamenn gátu ekki
skýrt tOboð srtt siáffir”
— reynt að gera f lugmenn tortryggilega í augum almennings, segir for-
maður Félags íslenzkra atvinnuflugmanna um viðbrögð Flugleiða
„Sáttafundi var slitið kl. 11 í gær-
kvöldi án þess að nokkurt samkomu-
lag næðist,” sagði Kristján Egilsson,
formaður Félags islenzkra atvinnu-
flugmanna.
Hann sagði að umræður hefðu
snúizt um verkfallsboðun flugmanna
Flugieiða næstu tvo laugardaga, en
með því eru flugmenn félagsins að
leggja áherzlu á að þeir hafi forgang
að verkefnum Flugleiða.
„Sáttafundurinn byrjaði kl. 9 i
gærmorgun og stóö til kl. 12. Þá
komu Flugleiðir ekki með neins
konar tilboð til lausnar deilunni.
Báðu aðeins um að flugmenn hættu
við verkfallið,” sagði Kristján. Hann
bætti við að eftir matarhlé hefði verið
komið með eitthvað á blaði sem átti
að heita tilboð til sátta. Það hefði
verið illskiljanlegt og Fiugleiðamenn
ekki einu sinni getað skýrt það sjálfir
fyrir flugmönnum svo ófullkomið
var það. Eftir mikið. þjark hefði
sáttafundinum svo verið slitið án þess
að nýr fundur væri boðaður.
„Ég vil lýsa undrun minni á þeim
upplýsingum Sveins Sæmundssonar
biaðafulltrúa Flugleiða að verkfallið
hefði áhrif á leiguflug erlendis eins og
flugið með John Anderson. Þetta er
alrangt, og gerir okkur aðeins tor-
Uryggilega í augum almennings,”;
sagði Kristján. „Þess var sérstaklega
getið um leið og boðað var til verk-
fallsins að það hefði ekki áhrif á
leiguflug erlendis.”
- EVI
Búnadarhankinn hi'lt i gicr upp ú húlfrar aldar starfsafma'li sitt, mct) því at) hjt'túa
viiiskiptavinum bunkuns i afmtcliskaffi. Fleira veróurgert til at) minnast afmidisins.
t.d. vcrtiur sagu hankans ritut) og vcittar vcrtia 10 milljitn kritnur til eflingar trjú-
rtcktar. Kttnan hér ó myndinni var i óita iinn at) hcra glicsilegar afmœlistertur út i
hll, cn siitan voru krtcsingarnar fluttar nióur i aóalhanka Búnaóurhankans, þar scm
langhttró svignuóu undan veitingunum. -SA OB-mynd Bj. Bj.
Bessastaðakökurnar
bráðnuðu í munni
—litið inn hjá forsetaef ni íslendinga Vigdísi
Finnbogadóttur -sjábis.5
Skoðanakannanir
áfram ísviðsljósi:
„Maður beyg-
irsigfyrir
staðreyndum”
„Hið opinbera þarf ekki að koma
á fót neinu eftirliti með aðferðafræði
skoðanakannana,” segir í leiðara DB
t dag. Ekki hefur komið I ljós nein
bilun i aðferðafræðinni. „Þeir, sem
hafa gífurlega ást á boöum og bönn-
um ættu fremur að hugleiöa lagasetn-
ingu um starfsemi kosningastjóra,
fullyrðingar slikra ut I loftiö um fals-
,anir i skoðanakönnunum, sem siðan
reyndust hárnákvæmar.” í leiöaran-
um er bent á að tölfræðilegar líkur á
„fjórföldu glópaláni” i skoðana-
könnunum séu aðeins sex af hundr-
aði.
„Sannarlega verður maður aö
beygja sig fyrir staðreyndum, en
þessar staðreyndir lágu bara ekki
fyrir, þegar ég viöhafði kannski
nokkuð harkaleg ummæli um skoð-
anakannanir Dagblaðsins fyrir for-
setakjörið,” segir Indriði G. Þor-
steinsson, kosningastjóri Alberts
Guðmundssonar, í DB i dag. Einnig
er rætt við Gerði Steinþórsdóttur, úr
hópi stuðningsmanna Vigdisar Finn-
bogadóttur.
í leiöara I DB á morgun verður
fjallað um kosti og galla simakann-
ana. Þar segir: „En vilji reynslan
ekki laga sig að vísindunum, verða
visindin að laga sig að reynslunni.
Hún ein veit, hvað eru visindi og
hvaðer þoka.”
- HH
— sjáviðtölábls.9og
leiðara á bls. 10
Ameifskuráróðurs-
maður Kennedys
íheimsókn:
Barátta Kennedys
ogAibertsgjörólík
— sjá FÓLK á bls. 14
TAKIÐ ÞATT I KEPPMNNI UM SUMARMYND DB 1980 g/æsileg verðlaun i hoði