Dagblaðið - 19.07.1980, Side 4

Dagblaðið - 19.07.1980, Side 4
4 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. jOLÍ 1980. METVERTÍÐ í HUMRI HIÁ EYRBEKKINGUM — en „við sömu vandamál að etja varðandi freðfiskinn og annars staðar” „Varðandi freðfiskinn er við sömu vandamál að etja hjá okkur og ann- ars staðar og ailt geymslurými er að verða fullt. Hins vegar hefur veriö metvertíð i humri hjá okkur og höfum við þegar fengið 54 tonn af humarhala en á allri vertíðinni í fyrra vorum við með 46 tonn, sem þó var mjög góð vertíð,” sagði Páll Jóns- son, framkvæmdastjóri Hraðfrysti- stöðvar Eyrarbakka, er blaðamenn DB hittu hann að máli nú i vikunni. „Humarinn fer að langmestu leyti á Bandaríkjamarkað og mér er ekki kunnugt um að þar séu neinir sölu- erfiöleikar. Við erum alls ekki með færri í vinnu en undanfarin sumur og hér starfa nú á milli 130 og 140 manns, þar á meðal er mjög mikið af skólafólki. Við höfum náð í skóla- fólk upp á Selfoss þannig að við höfum gert meira en að útvega okkar fólki vinnu. Við erum mjög ánægðir með okkar m----------------------► Þegar eru komin 54 tonn af humri á land á Eyrarbakka, sem er mun meira en á allri vertiðinni i fyrra. DB-mynd: Bjarnleifur. Páll Jónsson: Hefói humarinn. brugðizt þá væri ástandið ekki gott. DB-mynd: Sigurður Þorri. hlut í humarvertíðinni. Hér hafa sjö humarbátar landað, fimm héðan, einn frá Þorlákshöfn og einn frá Vestmannaeyjum. Hins vegar er lausafjár- og rekstr- arfjárstaðan hroðaleg hér eins og annars staðar og hefði humarinn brugðizt þá væri ástandið ekki gott. Við erum með níu þúsund kassa af fiski i geymslum sem taka tíu þúsund kassa og ef við værum á fullri ferð í þorski og ýsu, þá væri þetta viku- pláss. Við höfum hins vegar reynt að halda þessari freðfiskframleiðslu í lágmarki og lagt aðaláherzlu á hum- arinn,” sagði Páll Jónsson. -GAJ „SVARTSÝNIN í FISKVEHN- MÁLUM ER TÍMABUNDIN” — segir Þór Hagalín, sveitarstjóri á Eyrarbakka „Viö höfum losnað blessunarlega við atvinnuleysi til þessa, hvort svo sem menn eigi eftir að eiga einhverja nauöung í því sambandi. Alla vega er ég ekki eins bjartsýnn og vinnumála- deild félagsmálaráöuneytisins,” sagði Þór Hagalín sveitarstjóri á Eyrarbakka er DB leitaði frétta af at- vinnuástandi þar á staðnum. „Það er búið að vera ljómandi gott atvinnuástand það sem af er árinu og raunar hefur brugðið mjög til betri vegar í þeim efnum á síðari árum. Hér um slóðir hefur það hins vegar verið landlægt að haustið er ákaflega erfiður tími til sjóróðra og þaö hel'ur færzt í vöxt að bátum er lagt á haustin. Þegar þar við bætist erfiðbr rekstrargrundvöllur er fátt eftir lil aö auka manni bjartsýni í sjávarútvegi á næstu mánuðum. Freófiskbirgðageymslur frystihússins á Eyrarbakka eru þvl sem nxst fullar. DB-myndir: Sigurður Þorri. Svigrúmið er ákaflega lítiðog þaö er alveg óhætt að segja það, að þær orsakir sem liggja að baki erfiðleik- unum verða ekki hafnar upp í einu vetfangi. Spurningin er um þaö hvert taprekstri þjóöfélagsins sé varpað. Þessa stundina hefur honum verið varpaðá aðalatvinnugrein þjóðarinn- ar. Hvert veröur honum varpað næst? Þetta er eins og boltaleikur þar sem það gildir að láta boltann ganga nógu hratt á milli því að það fylgir því tap að sitja uppi með boltann hverju sinni. Það fer hins vegar ekki á milli mála aðsvartsýnin varðandi fiskveiðimálin er tímabundin svartsýni. íslenzka þjóðfélagið er orðið „specialiserað” í þvi að fleygja tapboltanum á milli sín. Þaðererfiðurárstími framundan hjá okkur í sjávarútvegi hér á Eyrar- bakka og það hljóta að verða erfið- leikar hér síðari hluta árs. En við Þór Hagalin, sveitarstjóri á Eyrar- bakka: „Fátt til að auka manni bjart- sýni á næstu mánuðum.” treystum þvi að Eyjólfur hressist með hækkandi sól og nýju ári, og það er hægt að slá þvi föstu að atvinnulífið í fiskvinnslunni hér á Bakkanum stendur sterkara að vígi en áður til að nýta sér þá möguleika sem utanað- komandi aðstæður leyfa. Það gefur ekki ástæðu til svartsýni þegar til lengri tima er litið,” sagði Þór Haga- linaðlokum. -GAJ r HerniilisbókhaM vikuna: tQ Mat- og' <±t’ykkjaj*vörur, hreLnlætisvarur ogþ.t I • L* • Sunnud Mánud Þridjud Midvikud Fimnitud Föstud Laugard Saxnt Sanrt Samt. SamL SamL Samt önnur útgjöld: Sunnud Mánud Þridjud Miðvikud Fimmtud Pöstud Laugard > V. Samt Bftirrt. Sanrt SamL Samt Samt Samt Óbökuð lifrarkæfa KJÖTBÚÐ SUÐURVERS STIGAHLÍÐ - SÍMI35645

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.