Dagblaðið - 19.07.1980, Page 14
14
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ1980.
Lengi lifir í gömlum glœöum:
Hljómar
áttu
kvöldið
Gömlu Hljómahjörtun slógu
hraðar á miðvikudag í Klúbbnum
er fornu átrúnaðargoðin stigu upp
á svið og léku lög á borð við Fyrsta
kossinn og Bláu augun þín. Var
Hljómum tekið með kostum og
kynjum, en þetta er í annað skipti
sem þeir hafa verið endurreistir í ár.
Fyrra skiptið var á Stapahátíðinni,
sem haldin var fyrir nokkrum vikum.
Leikur Hljóma var hápunktur
SATT-kvölds, þar sem fram komu
margir góðir gestir. Að visu for-
fallaðist hljómsveitin Chaplin frá
Borgarnesi en vonandi spilar hún
eitthvert næsta kvöldið. Fyrsta atriði
kvöldsins var djamm, sem þeir
Friðrik Karlsson, Brynjólfur
Stefánsson og Eyjólfur Jónsson
stóðu fyrir. Þar á eftir fylgdi ný
hljómsveit, Instrumental Trio,
skipuð áðurnefndum Brynjólfi og
Eyjólfi og Stefáni Stefánssyni. Var
þetta í fyrsta skiptið sem hún kom
opinberlega fram, en vonir standa til
að hún spili víðar á næstunni.
Guðrún Hauksöóttír kom fri Svíþjóð og sðng Ijúf/ög.
DB-myndir Sig. Þorri.
Brosmndi antHit og fófaklapp.
Þegar minnst varði tók Rúnar undir sig sttikk og i nœstu andré var hann
kominn nitiur afsvitiinu og óðþar um, svaiflandibassanum íallar áttír.
Gallinn er bara sá að tónlist tríósins
á ekki upp á pallborðið hjá mörgum,
það eru helzt staðir á borð við Djúpið
og Félagsstofnun stúdenta, sem tríóið
getur troðið upp á.
Pétur Kristjánsson kynnti næst
stúlku, að nafni Guðrún Hauks-
dóttir, sem hefur stundað tónlistar-
nám i Svíþjóð. Hún bauðst til að
koma fram á kvöldinu og var boðinu
tekið fegins hendi. Guðrún söng
fjögur róleg lög á borð við Big
Yellow Taxi og spilaði sjálf undir á
kassagítar. Síðasta atriðið á undan
Hljómum var svo Mezzoforte, sem
lék nokkur ný lög.
En það voru Hljómar, sem allir
biðu eftir og þegar þeir loks birtust á
sviðinu var þeim fagnað lengi og
innilega. Þeir Gunnar Þórðarson,
Rúnar Júlíusson, Erling Bjömsson
og Engilbert Jensen báru gömul lög,
bæði frumsamin og önnur, á borð
fyrir áheyrendur, sem nutu þess að
rifja upp daga bítlaæðisins.
-SA.
Saman i nýjon Mk og ihorfandur kunnu velati meta „upprisuna".
DB-myndlr Sfg. Þorri.
„Fyrstíkossinn, igkysstírjóða vanga."
FÓLK