Dagblaðið - 14.08.1980, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1980.
Verzlunar-
mannahelgi:
Kaktus skrifar:
Mikil ferðamannahelgi, verzlunar-
mannahelgi. Eða svoer a.m.k. látið í
fjölmiðlum. í hljóðvarpi er varla
hlustandi svo á þátt í tali eða tónum,
að ekki sé verið að ítreka „varúðar-
ráðstafanir” fyrir þá sem eru úti á
þjóðvegum. FÍB (þessir sem reka upp
óp við bensínhækkanir en heyrisl
siðan varla í) er með bíla sína hér og
þar — og lögreglan er spurð að því
hvernig „fylliríin” gangi í þessum
eða hinum skóginum eða útivistar-
svæðinu.
Annars er það einkennilegt að
nokkur skuli nenna að leggja sig
niður við þau harmkvæli að fara með
bíl sinn og fjölskyldu út á svokallaða
þjóðvegi, þar sem ekkert er nema
rykmökkurinn endalausi og drullu-
pyttir þegar honum sleppir.
Og þegar kemur á svokallaða
skemmtistaði eða útivistarsvæði þá
taka við þær ógeðslegustu aðstæður
sem hvergi myndu liðnar, frá hrein-
lætislegu og viðskiptalegu (vegna
'
ísland
átti
aldrei að
ganga
í NATO
NATO-andstæðingur skrifar:
Alveg dæmalaust finnst mér hug-
takið þátttaka íslands í varnarsam-
starfi vestrænna þjóða mikil blekk-
ing. Höfum við her? Er verið að
ráöast á landið? Það átti aldrei að
koma til greina að ísland gengi í
NATO og ástæðan er þessi: Frá
stríðslokum hafa Bandaríkjamenn
dembt sprengjum og herjað i eftir-
töldum löndum: Grikklandi, Kóreu,
Víetnam og Dóminikanska lýðveld-
inu. Ekki er öll sagan sögð þar, því
bandarískir auðhringar hafa fjár-
magnað hershöfðingjavaldarán í S-
Ameríku og víðar. Milljónir manna
hafa farizt í öllum þessum löndum.
Og alltaf var tilgangurinn sá að gæta
bandarískra hagsmuna, koma sínum
mönnum til valda.
Ég nefni fjöldamorð Portúgala í|
Angóla og Mosambík. 1956 ætluðu
Egyptar að taka öll yfirráð yfir Súez-
skurði í sínar hendur. En Bretar og
Frakkar, sem réðu þar fyrir, skárust i
leikinn með hervaldi. Allt þetta
höfum við íslendingar verið aö
styðja, því Bretar, Frakkar, Portú-
galir og Bandaríkjamenn eru í
NATO, eins og við. NATO-sinnar
kunna að svara þessu og segja að ís-
land sé með hlutleysisstefnu. En hún
er hræsni. Að vera í hernaöarbanda-
lagi og vera samt hlutlaus er hræsni.
Sumir hafa þær skoðanir að allt
þetta sé réttlætanlegt. Þegar Kaninn
stráði sprengjum og eiturefnum yfir
Víetnam heyrði ég sumt fólk réttlæta
það með því aö stjórn N-Vietnam
vildi ekki semja frið. En átti alþýða
landsins, sem átti enga sök á striðinu,
aðgjalda þess?
Sama fólkið fyllist óhug og gagn-
rýnir innrás Rússa í Ungverjaland,
Tékkóslóvakíu og Afganistan.
Margir gleyma að fólk er alveg jafn-
dautt hvort sem það fellur fyrir
skotum og sprengjum Rússa eða
Kana. Það eru engin rök, hvorki frá
vinstra né hægra sjónarmiði, sem
réttlæta hernaðarbrölt af neinu tagi.
ísland úr NATO — herinn burt.
HVER VILL FARA
ÚT ÚR BÆNUM?
verðlagningar) sjónarmiði, nema hér
á landi.
Þeir sem tjalda á slíkum svæðum
verða fyrir ótrúlegri reynslu er kvölda
tekur og stendur sú reynsla venjulega
alla nóttina. Unglingar frá 12 og 13
ára aldri rangla um dauðadrukknir,
stelandi eða ælandi, eftir því sem við
á, og framkvæma hvers kyns athafnir
sem hvergi er að finna nema í því
dýraríki sem talið er vera stiginu
lægra en mannskepnan tilheyrir.
Það hljóta að vera einkennilegir
einstaklingar sem hafa löngun til þess
að fara úr Reykjavík um helgar. Þar
er þó tiltölulega hreint umhverfi og
reyklaust að mestu, miðað við þá
hörmung sem við tekur þegar út fyrir
borgarmörkin er komið. Þá þarf lög-
reglueftirlit til að halda lífi.
„Þar sem ekkert er nema rykmökkur-
inn cndalausi og drullup.vttir þegar
honum sleppir.”
SÖLUMAÐUR" ALL T ÁRIÐ
Notendur uppsláttarritsins islenzk fyrirtæki slá meðal
annars upp i bókinni til þess að finna ákveðna vöru meðal
þeirra 1500 vörufiokka sem eru i bókinni. Þeir eru stjórn-
endur fyrirtækja og einstaklingar sem þurfa að nýta tíma
sinn vel. Þess vegna slá þeir upp i Íslenzk fyrirtæki, einu
islenzku viðskiptaskránni og uppsláttarriti um íslenzk
fyrirtæki. félög og stofnanir.
Tölvuvinnsla upplýsinga
Allar upplýsingar i Íslenzk fyrirtæki eru unnar á tölvu.
sem gerir alla gagnavinnslu fijótari, öruggari og marg
faldar möguleika notenda. islenzk fyrirtæki er þvi mikil-
vægt heimildarrit, árangur margvislegrar upplýsingaöfl-
unar frá þvi árið 1968. Upplýsingar sem sifellt eru endur-
nýjaðar. i bókinni eru mestu og ítarlegustu upplýsingar
sem til eru á einum stað um islenzk fyrirtæki.
Sölumaður alft áríð
Á hverjum degi slá notendur upp i íslenzk fyrirtæki til að
finna þá vöru og þjónustu sem þeir þurfa að fá. Upphæðir
þeirra viðskipta geta verið ótrúlegar. upphaf fastra við
skiptasambanda sem getaenzt til margra ára.
Margra ára reynsla
Sífellt aukin notkun bókarinnar með tilkomu nýrra upp-
lýsinga er árangur margra ára reynslu notenda bókarmn-
ar. Forsvarsmenn fyrirtækja eru heimsóttir bæði i þéttbýli
og dreifbýli. Það tryggir öryggi upplýsinga og stöðugt
samband við notendur.
Hver selur hvað?
Notendur lslenzkra fyrirtækja geta fengiðsvör við marg
vislegum spumingum. Í umboðaskrá eru yfir fjögur
þúsund erlend umboð og umboðsmenn þeirra. Í vöru- og
þjónustuskrá eru 1500 vörur og þjónustugreinar. Þar eru
svörin viðspurningunni: Hverselur hvað?
Hvererhver?
í fyrirtækjaskrá bókarinnar eru upplýsingar um stjórn.
framkvæmdasljóra og helztu starfsmenn. Slíkar upp-
lýsingar eru dýrmætar jregar tala á við „rétta manninn".
Hver gerír bátínn út?
Nú i fyrsta sinn er komin út skipaskrá með viðskiptaleg-
um upplýsingum um útgerðaraðila allra skipa og báta á
Islandi niður að 12 tonnum, nafnnúmer þeirra og hvar sé
hægt að ná í jrá. Skrá sem margir þurfa að nota og hafa
beðiðeftir.
Dagbók með eríendum sýningum
Í bókinni er dagbók með kaupstefnu- og sýningaskrá.
Dagbók sem ekki er til annars staðar.
Icelandic firms
Jafnframt því að gegna mikilvægu hlutverki innanlands
er Íslenzk fyrirtæki eina uppsláttarritiðsem erlendir aðilar
hafa aðgang að. Þar eru allar mikilvægustu upplýsingar
sem erlendir kaupmenn þurfa á að halda um viðskiptalíf á
íslandi. 1 kafianum Iceland today. 1 útflutningsskrá.eru
ennfremur upplýsingar um útfiutningsvörur og útflytj-
endur.
Aukrtar upplýsingar um þitt fyrirtæki
Þeir sem áhuga hafa á að koma með ný fyrirlæki inn i
íslenzk fyrirtæki og itarlegri upplýsingar þurfa einungis
að hringja í ritstjóra bókarinnar i síma 82300 og 82302 og
hann mun aðstoða við vinnslu upplýsinga.
Vantar aukaeintök afbókinni?
Sifellt fieiri aðilar þurfa fieiri en eina bók vegna vaxandi
starfsemi fyrirtækja þeirra. Þess vegna sendum við not-
enduni samdægurs fieiri bækur á sérstöku verði — og
þeim sem vilja eina bók sendum við einnig samdægurs.
„Sláió upp í íslenzk
fyrirtœki og finnið svarið. ”
ÍSLENZK FYRIRTÆKI
FRJÁLST FRAMTAK HF.
ÁRMÚLA 18 - SÍMAR 82300 OG 82302
Hreinn Kristinsson skrifstofustjóri:
Mér lízt bölvanlega á hann, hann er
miklu hærri en ég átti von á.
Spurning
dagsins
Hvernig lízt
þór á skattinn
þinn f ár?
IngiDjorg GuOnason, matráðskona:
llla, hann er miklu hærri en ég bjóst
við.
Guðrún Helgadóttir ritari: Afskaplega
illa. Hann hefur hækkað um 70%,
meðan tekjurnar hækkuðu um-60%.
Mér líkar ekki vel að þurfa að borga
skattinn minn sjálf.
Benedikt Guðlaugsson verzlunar-
maður: Það er allt i lagi með hann og
ég hef yfir engu að kvarta.