Dagblaðið - 14.08.1980, Page 12
12
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1980.
I
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST1980.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Sþróttir
Iþróttir
íþróttir
13
I
Enski Sheffield-stúdentinn, Sebast-
ian Coe, hljóp glæsilegt 1500 m hlaup I
Ziirich I gærkvöld. Var aðeins sekúndu-
broti frá heimsmetinu i 1500 m hlaup-
inu eftir að hafa haft forustuna siðustu
sjö hundruð metrana i hlaupinu. Coe
varð ólympiumeistari á þessari vega-
lengd i Moskvu.
Coe rétt við heimsmetið
— Hljóp 1500 m á 3:32,19 í Sviss í gær. Heimsmet í1500 m hlaupi kvenna
Ólympiumeistarinn ensld, Sebastian
Coe, var rétt vlð heimsmet sitt og Steve
Ovett i 1500 m á miklu frjálsiþrótta-
móti i Zurich i sviss i gær. Hljóp vega-
lengdlna á 3:32,2 min. — sekúndubroti
lakara en metið og sigraði þá Steve
Scott, USA, og Johnny Walker, Nýja-
Sjálandi, auðveldlega. írinn Ray Flynn
hélt uppi hraðanum framan af og 800
m voru hlaupnir á 1:52,55 min. Siðan
varð Coe að hlaupa á eigin spýtur þvi
Flynn hætti. Coe tók siðan endasprett
200 metra frá markinu en tókst ekki að
bæta heimsmetið.
Tatyana Kasankina, Sovétríkjunum,
setti glæsilegt heimsmet i 1500m hlaupi
kvenna, hljóp á 3:52,47 mín. Hafði
forustu allt hlaupið. Bætti heimsmetið
um 2,53 sek. Bandariska stúlkan, Mary
Decker, sem setti heimsmet i mílu-
hlaupi fyrr á árinu, var langt á eftir.
Setti þó bandarískt met, 3:59,43 mín.
Bandariski spretthlauparinn Stanley
Floyd tókst nú loks að sigra skozka
ólympíumeistarann Allan Wells. Hljóp
á mjög góðum tíma, 10,19 sek., í 1,2
sm mótvindi. Wellshljópá 10,30.
Úrslit i mótinu urðu annars þessi:
1500 m hlaup
1. Sebastian Coe, Bretl., 3:32,19
2. Steve Scott, USA, 3:33,33
3. John Walker, N-Sjál., 3:33,49
100 m hlaup:
1. Stanley Floyd, USA, 10,19
2. Allan Wells, Bretl., 10,30
3. Harway Glance, USA, 10,34
4. Mel Lattany, USA, 10,36
5. Steve Williams, USA, 10,37
400 m hlaup:
1. Billy Kochellan, Kenýa, 45,69
2. Walter McCoy, USA, 45,85
3. James Atuti, Kenýa, 45,93
UOmgrindahlaup:
1. Renaldo Nehemiah, USA, 13,21
2. Greg Foster, USA, 13,36
3. Rod Milburn, USA, 13,67
Langstökk:
1. Larry Myricks, USA, 8,31
2. Frank Paschek, A-Þýzk., 8.05
3. Arnie Robinson, USA, 7,95
Spjótkast
1. Michael O’Rourke, N-Sjál., 82,66
2. Rod Ewaliko, USA, 82,28
3. Miklos Nemeth, Ungverjal., 80,34
Valur vann
á Seyðisfirði
Valur, Reykjavik, varð íslands-
meistari i 2. flokki kvenna á útimótinu f
handknattleik, sem háð var á Seyðis-
firði um siðustu helgi. Aðeins þrjú
félög tóku þátt i mótinu, auk Vals Fim-
leikafélag Hafnarfjarðar og Huginn,
Seyðisfirði. Tvöföld umferð var leikin.
Úrslit i fyrri umferðinni.
Valur — FH
FH — Huginn
Valur — Huginn
10—4
8—6
8—2
Sex ár í spilavítum — Vikan rœðir við íslenska stúlku sem vann
í spilavítum í Afríku ★ Hverjir vetða eiturlyfjaneytendur?
★ Pönnusteikt smálúða í eldhúsinu ★ Hin spennandi
framhaldssaga: HOLOCAUST, 4. hluti
Jafntefli
Einn leikur var háður i 2. deild
íslandsmótsins i knattspyrnu i gær. Sel-
foss og Völsungur gerðu jafntefli 0-0 á
Selfossi. Selfoss misnotaði vítaspyrnu i
leiknum.
Síðari umferð:
Valur — FH
FH — Huginn
Valur — Huginn
13—6
6—4
8—1
-VS
3%
V*
Oddur bætti
23 ára met
Hilmars
— og Helga Halldórs-
dóttir setti þrjú
íslandsmet
Oddur Sigurðsson, hlauparinn
snjalli i KA, setti i gær nýtt íslandsmet i
300 m hlaupi á innanfélagsmóti KR á
Fögruvöllum. Hljóp á 34.0 sek. og
bætti 23ja ára gamalt íslandsmet Hilm-
ars Þorbjörnssonar, Ármanni, um þrjú
sekúndubrot. Stefán Hallgrimsson,
UÍA, náði einnig ágætum tima i hlaup-
inu. Hljóp á 35.6 sek. sem er nýtt Aust-
fjarðamet.
Á sama móti setti Helga Halldórs-
dóttir, KR, þrjú ný íslandsmet. Hljóp
60 m á 7.6 sek. en eldra metið átti Lára
Sveinsdóttir, Á, 7.7sek. 80metrahljóp
Helga á 9.9 sek. Met Láru var þar 10.1
sek. og loks hljóp Helga 200 m grinda-
hlaup á 28.6 sek. Bætti met Ingunnar
Einarsdóttur, ÍR, verulega. Það var
30.6 sek. Logn var á vellinum en hins
vegar vantaði vindmæli — og ekki er
víst að þessi met fái staðfestingu sam-
kvæmt reglanna hljóðan. >að væri þó
heldur kjánalegt.
FH-KR íkvöld
Fram sigraði Öðin með 35-15 á
íslandsmótinu i útihandknattleik i gær-
kvöld. í kvöld verður úrslitaleikur FH
og KR i öðrum riðlinum i karlaflokki.
Leikurinn hefst kl. 19 við Austurbæjar-
skólann. Þá leika einnig FH og Breiða-
blik i meistaraflokki kvenna.
Sigurlás Þorleifsson, nr. 9 í hvíta búningnum, stekkur upp og skallar knöttinn í mark Breiðabliks. Fyrsta markið í leiknum 1 gærkvöld.
DB-mynd Einar Ólason.
Þrenna lása kom IBV
í úrslit bikarkeppninnar
,,Þetta var stórskemmtilegur leikur
og það er alltaf notaleg tilfinning að
hafa með þremur mörkum lagt drögin
að sigrinum,” sagði Sigurlás Þorleifs-
son, hinn snjalli miðherji ÍBV, eftir að
Vestmannaeyingar höfðu sigrað
Breiðablik 3-2 f undanúrslitum bikar-
keppni KSÍ. Vamarmenn Blikanna
réðu bókstaflega ekkert við landsliðs-
miðherjann Sigurlás, sem var stöðugur
ógnvaldur ef knötturinn nálgaðist vita-
teig Breiðabliks. Þrivegis sendi Lási
knöttlnn i mark mótherjanna eins og
ekkert væri auðveldara i helminum.
Fékk fjögur tækifæri i leiknum — auk
markanna þriggja skaut hann rétt
framhjá stöng i erfiðri stöðu. Vest-
mannaeyingar eru þvi komnir i úrslit
bikarkeppninnar. Leika þar annað
hvort við Fram eða FH sunnudaginn
31. ágúst, FH og Fram leika i undanúr-
slitum i kvöld Id. 19.00 á Kaplakrika-
velli. Vestmannaeyingar hafa tvivegis
orðið bikarmeistarar — sigruðu FH 2-0
i úrslitum 1972 og B-lið KR i úrslitum
1968 2-1. Þá komst ÍBV i úrslit 1970 en
tapaði fyrir Fram 2-1.
Leikurinn í gaerkvöld var mjög
skemmtilegur. Fyrri hálfleikur mjög
vel leikinn — einn bezti leikur íslenzkra
liða í sumar, ef ekki sá bezti. Hins
vegar var spennan talsvert ráðandi i
síöari hálfleiknum. Gæðin ekki ei.ns
HEiH
Sigurður Grétarsson jafnar fyrir Breiðablik i 2—2. Páll Pálmason, markvörður ÍBV,
kom ekki við neinum vörnum. DB-mynd Einar Ólason.
mikil og dómarinn, Eysteinn Guð-
mundsson, kallaði þá fyrirliða liðanna
til sín. Bað þá um að reyna aö róa
menn sína. Sigur Vestmannaeyinga var
verðskuldaöur — þeir voru betri — og
nokkuð fljótt komst maður á þá
skoðun, að þeir myndu sigra i leiknum.
Það byggðist á þvi hve auðveldlega
Lása tókst að komast frá gæzlumanni
sínum — og leika á aðra varnarmenn
Blikanna.
Breiðablik byrjaði þó betur. Fékk
nokkrar hornspyrnur en Páll Pálmason
var vel á verði í marki ÍBV. Svo fóru
Vestmannaeyingar að hræra í vörn
Blikanna. Einari Þórhallssyni tókst á
síðustu stundu að hindra fyrirliða ÍBV,
Tómas Pálsson, að skora. Sigurlás tók
síðan aukaspyrnu og knötturinn fór
rétt framhjá stöng Blika-marksins eftir
að hafa snert varnarmann. Horn-
spyrna. Knötturinn barst fyrir mark
Blikanna. Sveinn Sveinssonskallaði inn
í markteiginn og þar var Lási fyrir.
Skallaði glæsilega í mark. Þetta var á
21. min. Tveimur min. síðar höföu
Blikarnir jafnað. Siguröur Grétarsson
tók aukaspyrnu um 35 metra frá marki.
Spyrnti í átt að markinu. Knötturinn
kom í höfuð eins varnarmanns ÍBV,
breytti um stefnu og í markið. Páll á
leiö í hitt horniö. Fallegt mark Sigurðar
með nokkrum heppnisstimpli.
Ingólfur Ingólfsson var klaufi að ná
ekki forustu fyrir Blikana á 30. mín.
Náöi knettinum eftir að Páll hafði
varið hörkuskot Einars Þórhallssonar.
Spyrnti yfir. Þetta var ekki dagur Ing-
ólfs. í byrjun s.h. komst hann 1 opið
færi — spyrnti knettinum beint í Pál.
En Sigurlás fór ekki þannig með færi
sín. Hann fékk mjög góða sendingu frá
Snorra Rútssyni á 35. mín. Komst frir
inn í vítateiginn. Skoraði auðveldlega
— renndi knettinum undir Guðmund
Ásgeirsson. Sigurður Grétarsson
jafnaði óvænt í 2-2 á lokamínútu hálf-
leiksins. Komst frír inn i vítateig eftir
sendingu Ingólfs.
Síðari hálfleikurinn var ekki í sama
gæðaflokki enda hugsuðu leikmenn þá
oft meira um mótherjana en knöttinn.
Ingólfur fékk fyrsta tækifærið, sem
hann misnotaði. Sigurlás átti skot
framhjá eftir að knötturinn haföi farið
í stöng Blika-marksins — og það var
ekki fyrr en níu mín. fyrir leikslok, að
Lási skoraði sigurmarkið. Eftir snöggt
upphlaup fékk hann knöttinn frá
Omari Jóhannssyni og skoraöi auð-
veldlega. Litlu munaði að Vestmanna-
eyingar bættu við marki í lokin —■
Gunnlaugur bjargaði á marklínu.
Sigurlás var yfirburöamaður á vellin-
um. Frábær leikmaður — Páll góður í
I marki ÍBV, Tómas átti spretti og Óskar
jog Gústav standa alltaf fyrir sínu. Tveir
menn báru af í Blikaliðinu, Einar Þór-
hallsson og Sigurður Grétarsson. hsím.
DÚKKAN
Lifandi, falleg og sórlega
meðfærileg. Skemmtíleg
húsgögn og föt í úrvali.
Fæstí flestum
leikfangabúðum.
Pétur Pétursson heildverzlun
Suðurgötu 14. Símar 21020—25101.
Morgunverður — hlaðborð - kr '. 1500^\
Hádegisverður frá kr. 2900.-
Súpa kr. 850.-
Síðdegis- og kvöldkaffi —
Alltaf nýjar kökur og kaffi.
Morgunverður og hádegisverður
aðeins virka daga.
BANKASTRÆTI H
iOPHJ TIL KL
í23.30 ALLA DAGA
Dularfull fjar-
vera sovézkra
Sovézka frjálsiþróttasambandið tilkynnti því hol-
lenzka i gær, að það hefði hætt við að senda þátttak-
endur i fyrsta heimsmeistaramót kvenna i 400 m
grindahlaupi og 3000 m hlaupi, sem á að hefjast i
Sittard f Hollandi i dag. Efnt er til þessa heimsmeist-
aramóts i þessum greinum, þar sem ekki er keppt i
þeim áólympiuleikum.
Hollenzka frjálsiþróttasambandið KNAU sagði i
gær, samkvæmt fréttum frá Reuter, að þetta væri
hefnd sovézkra vegna mótmæla Hollendinga i sam-
bandi við ólympiuleikana i Moskvu. Hollendingar
gengu þar undir ólympiufánanum. Hins vegar til-
kynnti sovézka frjálsiþróttasambandið fram-
kvæmdanefnd keppninnar i Sittard, að hinir sex
keppendur, sem valdir hefðu veriö til þátttöku af
háifu Sovétrikjanna, gætu ekld keppt vegna veik-
inda eða meiðsla. Formaður framkvæmdanefndar-
innar, Franz Jutte, fyrrum formaður KNAU, sagðist
ekki taka þá skýringu trúanlega. Skýringuna væri ef-
laust að finna i þvi, að hollenzka stjórnin fór fram á
við hollenzku ólympiunefndina f sumar að ekki yrðu
sendir þátttakendur á Moskvu-leikana. Nefndin
hafnaði þeirri beiðni — sendi liö til Moskvu en hins
vegar ákváðu hokkey- og hestamenn að keppa ekki á
ólympfuleikunum. Frans Jutte var á leikunum og
þar fullvissuðu frjálsiþróttaleiðtogar sovézkir að
sent yrði fullt lið til keppninnar i Sittard. Sl. fimmtu-
dag var svo sendur nafnalisti um þátttakendur
Sovétrikjanna og flugnúmer flugvélar þeirrar sem
flytja mundu þá til Hollands. í gær kom svo tilkynn-
ing um að ekkert yrði af þátttökunni. Jutte og for-
maður KNAU, Adriaan Paulen, hafa reynt að fá
sovézka til að senda aðra þátttakendúr án árang-
urs.
Þá tilkynnti framkvæmdanefndin f gær, að tvær
kunnar hlaupakonur, Grete Waitz, Noregi, og Nat-
alia Maracescu, Rúmenfu, gætu ekki keppt f 3000 m
hlaupinu vegna meiösla. Einnig hefðu Beigar hætt
viö þátttöku. 20 keppendur verða í 3000 m — 28 í
igrindahlaupinu. Talið er að austur-þýzkar stúlkur
verði mjögsigursælari Sittard.
Blackpool komst
í aðra umferðina
Nokkrir leikir voru i enska deildabikarnum i gær- kvöld. Úrslit urðu þessi:
Blackpool — Walsall 3—1 (6—3)
Bradford — Rotherham 0—0 (3—1)
Cardiff — Torquay 2-1 (2-1)
Oxford — Southend 2—0 (2—1)
Reading — Northampton 2—3 (4—3)
Crewe — Wigan 2-2 (3-4)
Þá var fyrsta umferðin i skozka deildabikarnum. Úrslit:
Ayr — Morton 1—2
East Fife — Dundee Utd. 2—5
Kilmarnock — Ardrie 1—0
Queens Park — East Stirling 1—0
Raith Rovers — Falkirk 3—2
St. Johnstone — Clydebank 0—2
Sigurlás
lék með Beveren
„Ég lék einn leik með Beveren. Var driflnn beint i
leikinn og gekk engan veginn nógu vel. Það varð þvi
ekkert af drögum að samningi en kannsld athuga ég
þetta nánar i haust,” sagði landsliðsmiðherjinn
snjalli, Sigurlás Þorieifsson, ÍBV, þegar DB ræddi
viðhannfgærkvöld.
Sigurlás fór i fyrri viku tll Dortmund i Vestur-
Þýzkalandi og siðan til Belgiu, þar sem hann lék með
meistarallðinu Beveren frá 1979. Siguriás hefur
sama umboðsmann og AtU Eðvaldsson, sem nú er
atvinnumaður hjá Dortmund.
„Þetta var heldur leiðinleg ferð og bókstaflega
enginn fyrirvari með leiklnn. Það var þvi ef til vill
ekki furða þó ég léki illa,” sagði Slgurlás ennfremur.
„Þetta var hins vegar stórkostlegt i kvöld," bætti
hann við brosandi. Hafði skorað þrennu gegn Blik-
unum f bikarkeppni KSÍ. - hsim.
Arsenal og Palace
skiptuá leikmönnum
Lundúnafélögin Arsenal og Crystal Paiace gengu
frá samningi f gær um skipti á Clive Alien og Kenny
Sansom en auk þess keypti Palace varamarkvörð
Arsenal, Paul Barron, fyrir 400 þúsund sterlings-
pund. Arsenal keypti Allen fyrir rúma milljón sterl-
ingspunda i sumar frá QPR. Selur hann aftur án
þess hann hafi leikið einn einasta leik fyrir Arsenal.
Slikt mun einsdæmi f enskri knattspyrnu. Clive er 19
ára, sonur Les Allen, sem lengi gerði garðinn frægan
hjá QPR hér á árum áður. Sansom er tvltugur og
hefur leikið i enska landsliðinu. Félögin skiptu á
þessum leikmönnum á jöfnu en Palace borgaði
markvörðinn út i hönd. Markvörður Palace á
síðasta leiktímabili, John Burridge, hefur verið sett-
ur á sölulista.
Reiknað er með, að Arsenal muni nota peningana,
sem félagið fékk fyrir Barron til að kaupa Paul Reid,
varnarmann Boiton, og George Wood, markvörð
Everton, Wood lék hér á Laugardalsvelli i stjörnu-
liði Bobby Charlton og hefur leikið i skozka lands-
liðinu.