Dagblaðið - 21.08.1980, Side 8
8
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1980.
Glaumbær í Skagaf irði:
„Utlendingamir koma aftur og aflur"
i' mm
Ragnheiður Ólafsdóttir undir myndum af merkismönnum f SkagaHrði fyrr og
siðar. Allir veggir f herberginu eru þaktir slfkum myndum. Skagfirðingar virðast
hafa veríð óvenju fljótir að átta sig á þvi galdratæki sem Ijósmyndavélin er.
R ^ ' ■rr*r jl
xjg v 1
Elzti hluti Glaumbxjar er frá árinu 1750.
DB-myndir: EH.
Baðstofan er það sem mesta athygli vekur i Glaumbæ.
„Útlendingar hafa skrífað hingað
'og beðið um leyfi til að fá að heim-
sækja staðinn,” sagði Ragnheiður
Ólafsdóttir, annar af safnvörðum
byggðasafnsins í Glaumbæ, er DB
menn litu þar inn á dögunum. Ragn-
heiður hafði andartaks rólega stund
eftir að nýfarnar voru 5 rútur, bæði
með tslendingum og útlendingum. t
þann mund sem DB menn svo fóru
voru komnar í hlaðið þrjár rútur til
viðbótar, hlaðnar fólki.
„Hingaö koma svona 200 manns á
dag í júlí. t ágúst koma færri. Mest er
um útlendinga en þó kemur talsvert
af íslendingum líka. Útlendingarnir
virðast vera mjög hrifnir og koma
margir hingað aftur og aftur. Þeim
finnst allt sem þeir sjá mjög merkilegt
en sennilega baöstofan merkilegust af
öllu,” segir Ragnheiður. Hún skiptist
á við aðra konu að gæta safnsins og
eru þær hvor sína vikuna.
„Þetta er mikið starf. Við erum
með opið til kl. 7 á kvöldin og allar
helgar,” segir Ragnheiður. Eina bót-
in er að ekki þarf hún langar leiöir að
fara á vinnustað. Ragnheiður býr í
Glaumbæ.
„Gamli bærinn í Glaumbæ er I tals-
verðum vanda núna. Síöan sögu-
aldarbærinn var reistur hafa þeir fáu
menn sem kunna vegghleöslur verið
uppteknir við hann og enginn mátt
vera að því að sinna Glaumbæ.
Ungir menn virðast ekki vilja læra
vegghleðslu þó þeir gömlu bjóðist til
aö kenna þeim hana fyrir ekki neitt,”
segir Ragnheiður. Elzti hlutinn af
bænum er frá 1750 en sá yngsti frá
1876. Því má nærri geta að ekki veitir
af að vera stöðugt að lagfæra til þess
að það óviðjafnanlega safn sem er í
Glaumbæ fariekki forgörðum.
-DS
Fjölbrautaskólinn á Sauðárkróki:
ÓHRÆDDIR VIÐ NÝJUNGAR
í KENNSLU í NÝJUM SKÓLA
Fjölbrautaskólinn á Sauðárkróki er eins og fangelsi utan l'rá séð.
DB-myndir: EH
„Hér voru 82 nemendur á haustönn í
vetur og 87 á vorönn. 1 vetur ætlum við
að koma hér fyrir 150 á hvorri önn en
skólinn á aö taka 400 nemendur full-
byggður,” sagði Jón Hjartarson,
skólameistari Fjölbrautaskólans á
Sauðárkróki. Skólinn hefur núna
starfað eitt námsár og sagðist Jón ekki
sjá annað en að bæði nemendur og
kennarar kynnu vel við sig. DB gekk
um skólahúsnæðið með Jóni og
fræddist um starfsemi skólans.
Skólinn er til húsa í gagnfræðaskól-
anum á Sauðárkróki. Elzti hluti hússins
er frá árinu 1969 en byggingu er enn
ekki fulllokið. Nú í sumar var hafin
bygging verknámshúss, sem er dýrasta
verknámshús sem gert hefur verið í.
landinu. i fyrravetur var áætlað aö það
myndi kosta 400 milljónir króna. En
þar á lika að vanda til allra hluta og
kenndar verða hvers kyns iðngreinar.
Bóknámsálman og ný álma við heima-
vistina eru svo næstar á dagskrá.
Heimavistin er hið vistlegasta hús og
sagði Jón að mörgum i ríkisbákninu
þætti sem þar væri iburður fullmikill
þar eð bað væri á hverju herbergi.
Hann sagðist vera á annarri skoöun.
„Hingað koma nemendur frá öllu
Norðvesturlandi. Slíkur skóli sem þessi
byggist algjörlega á góðri heimavist.
Fólk í dag er ekki vant því að þurfa aö
deila baði með tugum manna og
værum við aö spara í slikum hlutum
sem fólki finnast sjálfsagðir gæti svo
farið að viö fengjum engan hingaö,”
sagði hann.
Mistök
í arkitektúr
Aðalskólahúsiö er frá götunni að sjá
eins og fangelsi. Gluggar eru þar ör-
mjóir, þrir saman og langt á milli
þeirra. Þegar hins vegar er farið vestur
fyrir skólann blasir önnur sýn við. Þar
eru bókstaflega heilu veggirnir úr gleri.
„Það lítur einna helzt út fyrir að arki-
tektinn hafi séð þegar hann var búinn
að teikna framhliðina aö fulllitið var
um glugga. En frekar en að breyta.
henni hefur hann skellt þeim öllum á
.bakhliðina,” sagði Jón.
En þessi gluggaskipan er ekki það
eina sem athygli vekur á húsinu. Yfir
anddyrinu er 30—40 fermetra pallur
með steyptum brúnum. Út á þann pall
er ekki hægt aö komast og varla hægt
að sjá út um hina örmjóu glugga.
„Þetta er skólabókardæmi um mistök í
arkitektúr,” segir Jón. „Gangarnir eru
við hliöina og örmjóir og allt þetta
pláss til einskis.”
. j
Heimavistin er vistlegt hús, of vistlegt að dðmi margra I embxttiskeríinu.
Miöstöð framhaids-
skóla á Norðvesturlandi
í kynningarriti um Fjölbrautaskól-
ann á Sauðárkróki er lagt til að skólinn
verði miöstöð skólahalds á Norður-
landi vestra. Allir framhaldsskólar á
norðvesturhorninu eru skipulagðir
þannig aö nemendur geta skipt um
skóla án þess að tapa þeim námseining-
um sem þeir hafa unnið sér inn. Próf
og nám er samræmt með öðrum
orðum. „Þó ekki sébúiðaðsamþykkja
frumvarp um framhaldsskóla, sem er
mjög miöur, högum við okkur líkt og
það væri komið til framkvæmdar. Við
miðum við þau drög sem þar eru lögð
að framhaldsskóla og hefur verið
stuðzt við í öðrum fjölbrautaskólum.
Við miðum aðallega viö að fá hingað
fólk frá þéttbýlisstöðunum hérna í
kring. I vetur verða til dæmis 60%
nemenda hér aökomufólk. Við höfum
rætt við nágrannabyggöarlðgin um að
þau tækju þátt í kostnaði við skólann
en ennþá hefur ekki náöst samkomulag
þar um. Ríkið borgar 60% af rekstrin-
um og helming af framkvæmdum en
Sauðárkrókur restina. Það eru mjög
framsýnir menn hér í bæjarstjórn. Þeir
sjá í hendi sér að á menntuninni byggist
það hvort fólk vill vera hér eða ekki.
Þess vegna leggja þeir alla peninga sem
fært er i skóla,” sagði Jón.
í Fjölbrautaskólanum er rekin öld-
ungadeild sem 1 sátu i vetur 120 nem-
endur. Þar eru kennd ýmis hagnýt
fræði eins og heimilishald (þar á meðal
gerð skattaskýrslu) og umhirða og við-
hald bifreiða. Hefðbundnar greinar
eins og tungumál eru líka kenndar.
Kennsla fer fram á Sauöárkróki, Hofs-
ósi, að Löngumýri og í Varmahlíð.
Aðrar forsendur
„Þegar við byrjuðum spuröu aðrir
skólamenn okkur að þvi hvernig í ver-
öldinni viö ætluðum að geta uppfyllt
allar námskröfur fjölbrautaskóla í
svona lítilli einingu. En það sem við
gerum er að reikna út frá öðrum for-
sendum. Verulegur hluti af þvi námi
sem menn hér eiga kost á er sameigin-
legur kjarni sem allir læra. Tungumál,
stærðfræöi og slíkt. Síðan velja menn
sér brautir og þá skiptist meira niður.
En nokkrar námsbrautir eiga enn sam-
eiginlegt nám. Það er ekki fyrr en á síð-
asta námsári sem sundurgreiningin er
algjör. Ennþá höfum viö getað orðið
við öllum óskum um nýjar námsgreinar
Jón Hjartarson skólameistari Fjöl-
brautaskólans á Sauðárkróki. Um
ráðningu hans stóð dálitill styr en nú
hefur bxjarstjórn einróma farið fram á
að hann verði skipaður skólameistari.
en þvi miður ekki við öllum um fram-
hald í greinum sem menn hafa lært í
öðrum skólum. En það kemur allt,”
sagði Jón.
Nýstárlegt nám
Fjölbrautaskólinn hyggst eftir ára-
mótin fara út á nýstárlega kennslu-
braut. Þar er um að ræða kennslu án
eða meö sérstökum réttindum. Kennd
verða undirstöðuatriði i vinnutækni og
vinnueðlisfræði og undirstööuþættir
atvinnulífsins. Nemendur vinna síðan
hjá fyrirtækjum og kynna sér þar öll
handtök sem fylgja hverju verki.
Þetta nám er 1 samvinnu við SERI,
námsdeild OECD, Efnahags- og fram-
farastofnunarinnar. Kennsla á þennan
hátt fer fram í nokkrum OECD lönd-
um samtímis. Á næsta ári verður siöan
haldin í París ráðstefna um árangurinn
í hverju landi og borið saman hvaða
námsgrein hefur komið bezt út. Hér á
landi á að kenna úrvinnslu land-
búnaöarvara og byggingar. 29 fyrir-
'tækjum á Sauðárkróki og nokkrum þar
í kring hefur verið skrifað og spurt
hvort þau hugsanlega gætu tekið að sér
nema úr þessum nýja skóla. Nú er
beðið eftir svörum, á þeim veltur öll
framkvæmd. „Okkur vantar um það
bil 13 mannmánaða vinnu í viðbót til
þess að geta komið þessu í framkvæmd
og við ætlum að Ijúka henni fyrir ára-
mót,” segir Jón og er ákveðinn á svip-
inn.
Góðir kennarar
„Fjölbrautaskólinn hefur verið ein-
staklega heppinn að því leyti að hann
hefur fengið góða kennara. Bæði
menntunarlega og verkfærnislega séð.
Á því byggist allt. Oft er það svo með
skóla að ekki fást góðir kennarar af því
að skólinn er nýr og fáir nemendur.
Nemendur vilja síðan ekki koma af því
að kennarar eru fáir. Þetta er einn víta-
hringur sem okkur hefur tekizt að
rjúfa,” sagði Jón Hjartarson skóla-
meistari. , . r«c