Dagblaðið - 21.08.1980, Qupperneq 24
Gengisf elling ákveðin í ríkisstjóminni?
Tilhæfulaust með öllu'9
7T
—segir dr. Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra
„Þetta er tilhæfulaust með öllu og
enginn fótur fyrir því,” sagði dr.
Gunnar Thoroddsen forsætisráð-
herra við DB í morgun, þegar undir'
hann var borin frétt Morgunblaösins
í dag um að á fundi með fulltrúum
Vinnuveitendasambandsins hafi ráð-
herrar skýrt frá því að gengisfelling
væri ákveðin. Var heimildarmaður
blaðsins Karl Steinar Guðnason,
varaformaður Verkamannasam-
bandsins. Það voru ráðherrarnir
Ragnar Arnalds og Steingrímur Her-
mannsson, auk dr. Gunnar Thorodd-
sens, sem tóku þátt í viðræðunum við
vinnuveitendur í gær. Segir Morgun-
blaðið að vinnuveitendur hafi borið
gengisfellingarfréttina inn á fund með
Alþýðusambandsmönnum.ASÍ ósk-
aði eftir fundi með ráðherrum sem
haldinn verður í dag. Ásmundur
Stefánsson framkvæmdastjóri ASÍ
vildi i morgun ekkert segja um
gengisfellingarfréttina: „Það er rök-
réttara að VSÍ geri grein fyrir viðræð-
um sínum við ríkisstjórnina en ASI.”
Um fundinn i dag sagði
Ásmundur: „Við höfum margt að
ræða við ráðherrana. Tilefni fundar-
ins er m.a. kjarasamningarnir við
BSRB og viðhorf sem skapast í kjöl-
far hans. Okkur þykir líka rétt að
ræða við ríkisstjórnina orlofsmál, at-
vinnuleysistryggingar og margt fleira
viðkomandi kjarasamningunum. Ég
geri ráð fyrir að staða efnahagsmál-
anna i heild verði rædd lika.”
„Þessu er slegið upp i stöðunni til
að reyna að skapa spennu í sambandi
við ríkisstjórnina,” sagði Guö-
mundur J. Guðmundsson form.
Verkamannasambandsins í morgun
um gengisfellingarfréttina. „Það er
lítið á ummælum VSÍ-manna að
byggja. Svona leikur er alþekktur hjá
þeim í samningum.”
„Ég vil ekkert um þetta segja,”
sagði Tómas Árnason viðskiptaráð-
herra er fréttin var borin undir hann.
Forystumenn Vinnuveitendasam-
bandsins sátu fund i morgun og
reyndist ekki unnt að fá þeirra álit á
málinu.
-BS/ARH
HvaMkin hefur legið
íl3 vikur í Nígeríu
—skreiðin fer hægt í land
„Ég býst við að Hvalvíkin fári frá
Lagos til Port Harcourt í dag til að
losa þorskhausa, sem hún var með
auk skreiðar og þurrkaðrar loðnu,”
sagði Finnbogi G. Kjeld, forstjóri
Skipafélagsins Vikna í viðtali við DB.
í morgun.
Hvalvíkin hefur nú legið í 13 vikur
í Lagos þar sem óvanalegur hæga-
gangur hefur verið á affermingu af
ýmsum ástæðum. „Þetta er vitanlega
bagalegt og hvimleitt fyrir skips-
höfnina,” sagði Finnbogi. Hann
kvað skipt hafa verið um hluta skips-
hafnar frá því skipið kom til Lagos.
Fimm menn hafa komið heim og
aðrir farið út í þeirra stað.
„Það er mjög til bóta að þeir geta
náð útvarpinu hér á stuttbylgju, auk
þess sem þeir hafa svo góða talstöð
að við höfum nær daglegt samband
við skipið,” sagði Finnbogi. Hann
kvað skipafélagið hafa farið fjórar
ferðir til Nígeríu 1978 og hefði þá sú
lengsta tekið 13 vikur.
Hvalvíkin fór með 36 þúsund
pakka af skreið, þorskhausum og
þurrkaðri loðnu fyrir Sameinaða
framleiðendur að þessu sinni. Finn-
bogi sagðist hafa ástæðu til að ætla
að losunin í Port Harcourt gengi
fljótt og vel.
Þrátt fyrir þennan óvanalega langa
tima, sem losunin hefur tekið, hefur
að sögn skipstjórans á Hvalvíkinni
ekki orðið vart neinna skemmda í
farminum.
-BS.
Ljóma-rallý ’80:
Omar í
sæti að
loknum
fyrsta
degi
Að loknum fyrsta degi Ljóma-
rallýs ’80 eru fjórtán bílar eftir í
keppninni. Þegar keppendur voru
ræstir af stað á Sauðárkróki klukkan
hálfátta í morgun voru bræöurnmir
Ómar og Jón Ragnarssynir i fyrsta
sæti með 7.27 minútur I refsistig.
í öðru sæti er Eggert bilasali Svein-^
björnsson með 9.34 mínútur i refs-'
ingu. Á hæla þeim kemur Finn Ryhl
Anderson frá Noregi með 10.06
mínútur i refsistig.
„Útlendingunum viröist ganga sér-
lega illa að komast yfir þau vatnsföll,
sem við bjóðum þeim upp á,” sagði
Marianna Friðjónsdóttir blaðafull-
trúi rallsins, er DB ræddi við hana i
rnorgun. „John Haugland missti til
dæmis niður forystuna er hann lenti i
erfiöleikum í Flóká í Fiókadal.”
Ólafur Sigurjónsson datt fyrstur út
úr keppninni er vélin bilaði í Saab bll
hans I Borgarfirði. 1 Dalasýslu brotn-
aði öxull i Escort bil Hafsteins
Haukssonar. Hann var þá i fyrsta
sæti. i Skagafjarðarsýslu bilaöi
Escort Þórhalls Kristjánssonar. Var
hann þar með úr keþpnninni.
i dag aka rallkapparnir um Skaga-
fjörð, Langadal í Húnavatnssýslu og
suður Kjöl. Þeir fara Lyngdalsheiði
síðdegis, fyrir Reykjanes og enda
með stuttri sérleið í öskjuhlið.
Áætlaður komutimi þeirra i öskju-
hliöina er klukkan 21.05. Keppninni
lýkur síðan viö Austurbæjarskólann
uppúr klukkan21.22. -ÁT-
Þótt sumri sé tekið að huiiu ug hetiiur sé hrúsiuguiegi fyrsi ú murgnunu mú enn njóta utiveru Igóðu veðri. Reykvikmgar œttu
jafnvelað geta sleikt sólina Idag, þvi bjart var og hlýtt I morgun þarsem sólin skein. DB-myné Magnús Hjörleifsson.
frfálst, úháð daghlnð
FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1980.
Brennuvargur á Akureyri?
Eldurímann-
lausu húsi og
mannlausum bfl
— aðeins um klukkustund
leið milli þess er eldamir
urðulausirínótt
Eldur varð laus á tveimur stöðum á
Akureyri í nótt og leið ekki nema um
klukkustund milli eldanna. Báðir komu
eldarnir upp á mannlausum stöðum, í
fyrra skiptið í húsi, í siðara skiptið i bíl.
Að þessu leyti eru eldarnir óhugnan-
legir, því grunur manna um orsakir
fellur fljótt að íkveikju. Málin eru i
rannsókn.
Kl. 03.33 var slökkvilið kvatt að
Strandgötu 23, sem er gamalt ibúðar-
hús þar sem búið er, en með viðbygg-
ingu sem liggur að Lundargötu. í við-
byggingunni var áður verzlunin
Cleopatra en er nú aflögð. í þessari
mannlausu viðbyggingu varð eldurinn
laus og þó er ekkert rafmagn á við-
byggingunni. Urðu nokkrar skemmdir,
einkum þó í einu herbergi. Slökkvistarf
gekk greiðlega.
Kl. 04.38 var tilkynnt um alelda bíl á
togarabryggjunni. Áður en við var
ráðið var hann allur brunninn innan.
Var hér um eldri Fiat að ræða og hafði
hann staðið þarna opinn. Eldur var
enginn í vél bilsins, svo líklegast þykir
að eldur hafi verið borinn að bílnum.
Þessir grunsamlegu eldar vekja
nokkurn óhug. Ekki sást til neinna
mannaferða og enginn hafði í morgun
verið tekinn vegna gruns um ikveikjur.
Málið er í rannsókn. -A.St.
HM unglinga ískák:
JónLí
l. -4. sæti
Möguleikar Jóns L. Árnasonar á
öðrum heimsmeistaratitli í skák kunna
að skýrast nokkuð í dag. Þá mætir
hann stórmeistaranum Kasparov frá
Sovétrikjunum, sem er talinn lang-
sigurstranglegastur á mótinu, enda i
hópi sterkustu skákmanna heimsins
með 2595 Elo-stig þrátt fyrir, að hann
sé aðeins 17 ára gamall.
Að loknum 4 umferðum eru Jón,
Kasparov, Negulescu frá Rúmeníu og
Akesson frá Svíþjóð efstir og jafnir
með 3,5 vinninga. Fast á hæla þeirra
fylgir Englendingurinn Nigel Short,
sem lengi hefur verið álitinn undrabarn
í skákinni. Hann hefur 3 vinnigna. Jón
vann í gær biðskák sína við Svisslend-
inginn Zúger úr 3. umferð eftir 71 Ieik
en varð að sætta sig við jafntefli við
Toro frá Chile eftir rúma 50 leiki.
Jón og Kasparov hafa einu sinni
áður mætzt við skákborðið. Það var í
Heimsmeistarakeppni sveina 1977. Þá
skák vann Kasparov en Jón L. varð
heimsmeistari engu að síður. - GAJ
Ávísanahefti
ogfleirustolið
f gær var kært yfir innbroti í ibúð við
Miðstræti í Reykjavík. Húsráðandi er
fjarverandi en kona sem annast tiltektir
sá verksummerki innbrots. Segir hún
horfna tösku og einhverja aðra hluti,
m. a. ávísanahefti sem í íbúöinni hafði
verið. Rannsóknarlögreglan fjallar um
málið. -A.St.
LUKKUDAGAR
21. ÁGÚST 4417
SHARP vasatölva CL 8145
Vinningshafar hríngi
ísíma 33622.