Dagblaðið - 12.09.1980, Qupperneq 1

Dagblaðið - 12.09.1980, Qupperneq 1
6. ÁRG. - FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1980 - 208. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 1 l.-AÐALSÍMI 27022. í á Fullorönir menn kveiktu í svínaskúr í Grindavik: „Dýrin voru inni þegar þeir kveiktu í skurnum” — Mikil skemmdarverkaalda í Grindavík að undanförnu „Dýrin voru inni þegar þeir kveiktu í skúrnum og þeir fóru í burtu án þess að hleypa þeim út,” sagði Jón Ágústsson, sjómaður í Grindavík, er blaðamaður DB hafði samband við hann vegna atviks sem átti sér stað i Grindavík i fyrradag. í fyrradag kveiktu tveir fullorðnir menn í gömlum bragga í Grindavík þar sem Jón hafði fengið inni með fimm svin sem hann átti. ,,Ég var i húsnæðishraki með þessi dýr og fékk að skjóta þeim inn í þennan bragga til bráðabirgða,” sagði Jón. Kvaðst hann siðan hafa oröið fyrir þrýstingi með að koma dýrunum í burtu þar sem ýmsir ótt- uðust, að rottur fylgdu svínunum. Sagðist Jón hafa rætt þetta við bæjarstjórann og sag/i mundu lóga dýrunum ef hann fengi ekki framtiðarstað fyrir þau. Talaðist þeim til að Jón fengi að hafa dýrin þarna í nokkra daga i viðbót. ,,Mér höfðu borizt til :yrna hótan- ir um að svínin yrðu brennd inni en mér datt ekki í hug að mönnunum gæti verið alvara," sagði Jón. Jón Ágúst lýsti í samtali við blaðamann DB óánægju sinni yfir hve rannsóknin gengi hægt, og sagði að t.d. hefði vitni ekki verið yfir- heyrt. Þetta vitni héldi þvi fram að svínin hefðu verið inni þegar kveikt var í. „Baráttan um svinamálið er 6 ára gamalt strið íbúa í Staðarvararhverf- inu að losna við svínabraggann.” sagði John Hill rannsóknarlögreglu- maður i morgun en hann annaðist rannsókn sem nú er lokið. ,,Á miðvikudagsmorgun var komið með bréf heim til lögreglu- manns I Grindavík ásamt skilaboðum um að opna það ekki fyrr en eftir 10 mínútur. Þá ósk hundsaði lögreglu- maðurinn og í bréfinu var sagt að kveikt yrði í svínaskúrnum. Er lögreglumaður leit í átt þangað tók að rjúka úr skúrnum um sama leyti. Hann kvaddi til slökkvilið og slökkt var í rústunum,” sagði John. „Það er sannað að þeir sem kveiktu i ráku út svinin fyrst. Játning um íkveikjuna liggur fyrir,” sagði John. •GAJ/A.St. „Þetto er gullauga’’ segir Eddu. „vestan frá Bœ I Rauðasandshreppi." Það gœti veriðsamistofninn og Bjtirn ISauðlauksdalrwktaðifyrst — ekkierþaðsamt aheg vlst. Við hlið Eddu er dáttirin,, Torfhildur Silja, 9 ára. DB-myné R. Th. Sólin í sumar eykur jarðargróðann: 65-FÖLD UPPSKERA UNDAN EINU GRASI — í sendinni mold r Hún var hreykin af kartöfluuppsker- unni hún Edda Thorlacius, húsmóðir í Fossvoginum sem við heimsóttum i gær. Enda mátti hún vera það. Undan fyrsta grasinu sem hún tók upp að okkur ásjáandi reyndust vera 2,3 kíló. Útsæðiskartafla vegur 30—35 grömm og má því fullyrða að eftirtekjan hafi Fossvoginum þarna verið 65-föld! Auðvitað er misjafnt undir grösun- um. Edda og maður hennar, Sigurður ísaksson bifreiðasmiður, taka dálitiðaf útsæðinu í aprílbyrjun, leggja hverja kartöflu í lítinn'nestisplastpoka og mold svo hylji, geyma þannig þangað til frost er farið úr jörðu. Þá setja þau þau niður — en klippa botninn úr pokunum fyrst. Plönturnar eru veiklu- legar i byrjun en þroskast síðan vel og fjölskyldan getur farið að borða nýjar kartöflur miklu fyrr en ella. Útsæðið sem er forræktað á þennan hátt ætlar að gefa um 50 eða 55-falda uppskeru i ár, en það sem er sett niður á venjulegan hátt verður yfir 30-falt. ,,Ég hef aldrei kynnzt svona góðri uppskeru áður,” segir Sigurður. ,,Ef einhver annar hefði komið og sagzt hafa fengið 65-falda uppskeru undan einu grasi hefði mér ekki dottið í hug að trúa því.” -IHH. „Sigurjón býður mér sára- sjaldan” — segir Guðrún Helgadóttir um meinta veizlugleði borgarfulltrúa ,,Ég get ekki ímyndað mér að I það sé mjög mikið, þar sem félagi Sigurjón býður mér sárasjaldan i slíkar veizlur," sagði Guðrún Helgadóttir, borgarfulltrúi | Alþýðubandalagsins, er blaða- maður DB spurði hana hvopt hún I áliti að veizluhöld og móttökur hjá Reykjavikurborg væru komnar út I öfgar. Eins og DB greindi frá i gær var kostnaðurinn við þessi veizluhöld frá árs-1 byrjun til júlíloka 37 milljónir. „Þessi þáttur borgarlífsins I hefur verið ræddur þó nokkuð innan okkar flokks," sagði Guðrún. „Strax þegar við tókum við borginni, ákvað hinn nýi meirihluti að stilla þessu mjög í hóf." Sagðist Guðrún hafa látið gera smáathugun á þessu í fyrra og þá hefði komið í Ijós að þessi kostn- aður væri sizt meiri en áður. Hún I sagði að það væri mjög erfilt fyrir I höfuðborg að komast hjá ein- hverjum svona kostnaði. fsland væri mikið ráðstefnuland og I borgin hefði vissum skyldum aðl gegna við gestina. Minnti hún á [ að Norðurlandaráð hefði komið saman hér á landi í ár. Þar hefðu verið 600 manns og hefði það hleypt kostnaðinum mjög upp. , ,Við höfum hins vegar tekið upp nýjar gestamóttökur fyrjr landa [ okkar, t.d. I. maí, fyrir félaga úr I verkalýðshreyfingunni. Þá höfum [ við tvisvar boðið hópum starfsliði borgarinnar, t.d. einu | sinni Fóstrum af dagheimilum,” sagði Guðrún og bætti því við að | jafnan væri mikil pressa á borg- aryfirvöld að bjóða alls kyns gestum. „Ég held að við höfum haft skynsamlega relgu á þessu og þessu sé stillt í hóf eins og unnt er,” sagði Guðrún að lokum. -GAJ.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.