Dagblaðið - 12.09.1980, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 12.09.1980, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1980. 3 Vigfús S. Gunniaugsson á Ólafsfirði hringdi og vildi koma eftirfarandi á framfæri vegna fréttar í DB 6. sept- ember sl. varðandi rig milli steypu- stöðva á Dalvik og Ólafsfirði. Eg sem er talinn valda þessum rig vil um þetta mál segja eftirfarandi: Síðastliðið haust, þegar byggingar- vinna var enn í fullum gangi, lokaði Steypustöðin á Ólafsfirði fyrirvara- laust og án nokkurra ástæðna, að því er ég bezt veit, fyrir alla steypusölu til Trévers hf. og fleiri, en þó ekki til allra. Þetta kont hart niður á byggingar- iðnaðinum og reyndi ég, sem er í at- vinnumálanefnd, en i það var vitnað i greininni, að fá keypta steypu hjá Steypustöðinni á Ólafsfirði, en án ár- angurs. Svarið sem ég fékk hjá for- stjóra Steypustöðvarinnar, Rögn- valdi Sigurðssyni, var að framvegis skyldi ég bjarga mér sjálfur, sem ég gerði með þvi að fá steypu frá Dal- vík. Þetta er upphaf þessa máls sem DB kallar steypuríg. í vor er byggingarvinna hófst á ný voru mér sett ákveðin skilyrði ef ég f ætlaði að fá steypu héðan frá Ólafs firði — skilyrði sem enginn bygg- ingarverktaki hefði sætt sig við. Þau voru t.d. þau að kranabifreið Trévers hf. sem alltaf hefur verið notuð við steypuvinnu kæmi hvergi nærri steypu frá Steypustöðinni I Ólafs- firði, heldur yrði notuð nýkeypt kranabifreið sem nokkrir aðilar, ásamt forstjóra Steypustöðvarinnar, eiga. Mér þótti þetta heldur hart að gengið og var reynt að komast að samkomulagi. Það tókst um stundar- sakir, en fór svo út um þúfur. Ég ætla ekki að orðlengja það frekar hér. Þeim ummælum Rögnvaldar Sigurðssonar að hann hafi selt steypu til Dalvíkur, vegna tafa sem orðið hafa á steypu til Dalvíkinga vegna forgangs sem Vigfús Gunn- laugsson hefði notið hjá Steypustöð- inni á Dalvik neita ég, að undan- skildu því að mágur Rögnvalds hefur fengiðsteypuhéðan. Rögnvaldur talar um að óánægju gæti meðal Ólafsfirðinga vegna steypukaupa frá Dalvík. Sú óánægja stafar af því að einstaklingum var neitað um steypu hjá Steypustöðinni í Ólafsfirði ef Tréver hf. sæi um fram- kvæmdir fyrir þá. tígur milli steypustöðva á Ólafsfirði og Dalvflclj ALVÍKINGAR EUA TIL ÓLAFS- JARDAR OG ÖFIIG Dalvíkingar undirbjóða steypuna, segir forstjóri Steypustöðvarinnar á Ólafsfirði mönnum frjálst að taka steypu hvar sem erj segir framkvæmdastjórinn á Dalvík ,,Jú, það er rétt, það hefur komið verið, svo mikið er víst,” sagði Símq Jtrir að menn héðan kaupi steypu frá Ellertsson. teypustöðinni á nalvik bað ér sýr. Ekki ná Anna Ragnarsdóttir húsmóðir: Já, mci myndi finnast það. Einstæð 6 bama móðir skrifar: Fjölskyld- um er stí- að sundur —„Reynum að vinna eftir beztu trú og beztu samvizku,” svarar yfirmaður fjölskyldudeildar Félagsmálastofnunar Guðrún Sumarliðadóttir skrifar: Ég er einstæð 6 barna móðir og fæ áðstoð Félagsmálastofnunar Reykja- víkurborgar. Þann 4. september komu tværl konur frá Félagsmálastofnun ogj tjáðu mér að ég yrði að láta fjögurí yngstu börnin i fóstur. Var mér sagtf að ef ég gerði það ekki með góðu yrðu þau dæmd af mér fyrir fullt og allt og var það yngsta tekið strax. Ég hélt að Barnaverndarnefnd væri til þess að hjálpa fólki en ekki til að stia fjölskyldum sundur og um leið að brjóta mann niður. Ekkert er tekið tillit til tilfinninga tveggja elztu barnanna en þeim var sagt að þau mættu hafa samband við yngri syst- kinisín. Félagsmálastofnun hefur verið að pretta inn á mig alls kyns gömlu nesti sem helzt á heima á ruslahaug og hefur verið tekið af meðlögum og mæðralaunum minum mánaðarlega fyrir þessu „nesti”. Ég vona að fólk sem er í svipaðri aðstöðu og ég þori að skrifa og segja frá viðskiptum sínum við Barna- verndarnefnd. Eg blð að góður Guð gefi mér börnin min aftur og láti ekki eitthvert annað fólk bera ábyrgð á uppeldi barna minna. DB leitaði til Guðrúnar Kristinsdótt- ur, yfirmanns fjölskyldudeildar Félagsmálastofnunar, og er svar hennar eftirfarandi: ,,Eg get ekki svarað þessu bréfi sem slíku, við höfum ekki leyfi til að upplýsa um einstök mál. Við reynum að vinna eftir beztu trú og beztu samvizku í anda barnaverndarlaganna. Ég geri mér grein fyrir því að skiptar skoðanir eru um framkvæmd þeirra.’ ROKKc^HER í Laugardalshöllinni 13. september kl. 900 Þursaflokkurinn - Bubbi Mortens og Utangarósmenn T áragas - Mezzoforte Pétur Blöndal forstjóri: Já, ég er á móti öllum óþarfa boðum og bönnum. Á þessum Rokk-tónleikum ársins, flytja Þursarnir splunkunýtt prógram í anda kvöldsins. Utangarösmenn og Mezzoforte flytja lög af skífum sem væntanlegar eru á næstunni og rokkleikhúsið Táragas flytur dagskrá unna upp úr gasbardaganum 1949 á Austurvelli. Miöar eru seldir í hljómplötu- verslunum Karnabæjar og bókaverslun Máls og menningar. Verö kr. 7000. Fjölmennum á ógleymanlegt kvöld. Anna Óskarsdóttir húsmóðir: Mér finnst alveg óþarfi að hafa þær opnar um helgar. Ulfar Guðmundsson verkamaður: Það á að gera það vegna þess að sumir hafa t ekki aðstöðu til að kíkja á húsgögn á öðrum tíma. Pétur Arnarson flugkennari: Auðvitað. SAMTOK HERSTODVAANOSTÆDINGA Unnur Brynjólfsdóttir verkamaður: Það getur komið sér vel fyrir þá sem ekki koma því við á öðrum tíma að skoða húsgögn. Vigfús S. Gunnlaugsson um „steypuríginn” milli steypu- stöðva á Ólafsfirði og Dalvík: GAT FENGIÐ STEYPU - EN MEÐ SKILYRÐUM sem enginn bygginga- verktaki hefði sætt sig við Spurning dagsins Á að heimila hús- gagnaverzlunum að hafa opið um helgar?

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.